Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 11
popp Þeir sem eru elskir að póstmódernismanum í heimspeki og listum hafa nú smíðað systurhugtak í rokkinu - póstrokk. Á Bretlandi eru skosku strákarnir í Mogwai helstu merkisberar tónlistarinnar sem hefur fengið þennan merkimiða á sig. Strembnir S Sfói'fínir Mogwai: „Þeir sem eru aö búa til art-rokk gleyma rokkinu. Þeir arta alitof mikið.“ Framfarasinnaðir rokká- hugamenn hafa fundið nýja- brumið í „post-rokkinu“ auk þess að tékka í hrönnum á ýmsum afbrigðum danstónlist- ar. „Post-rokk“ er ekki póst- rokk - þótt bréfberum nýttist seiðfljótandi tónlistin eflaust vel við útburðinn - heldur „síð-rokk“, næsta skref í rokk- inu. Flestar hljómsveitirnar keppast auðvitað við að afneita „post-rokk“-merkimiðanum og vilja kalla tónlist sina eitthvað allt annað og helst ekki neitt. Þeir sem viija tékka á stefn- unni ættu fyrst að skoða plöt- una „Spiderland" með Slint, sem kom út fyrir sirka tíu árum. Þar var hornsteinninn lagður; hæg, seigfljótandi gítartónlist að mestu ósungin. Slint þróaðist út í hljómsveitina Tortoise, sem hefur gert frábærar plötur eins og „Milli- ons now living will never die“ og „TNT“. Úr kjama Tortoise hafa svo sprottið bönd eins og Trans AM og Salaryman, en í Bretlandi eru Skotamir í Mogwai helstu merki- kertin og eru sífellt fleiri að fatta strembna en stórfma tónlist þeirra. Það er drungi yfir henni, en ekki vonleysi, og margt sem minnir á Joy Division, enda Mogwai yfir- lýstir aðdáendur þess gamla bands. „Mér finnst að margir sem era að gera „art-rokk“ gleymi rokkinu, þeir eru of uppteknir við að „arta“. Við erum rokk og ról band sem forðast klisjumar. Við höf- um engin viðlög." Hér talar Stuart Braithwaite, sem stofnaði Mogwai í Glasgow ásamt nokkrum vinum sínum 1996. Tilgangurinn var skýr; „að búa til alvöra gítartónlist“. Það hefur þeim tek- ist. Eftir nokkrar smá- skífur kom út stóra platan „Young Team“, þéttofið gít- arnet sem var rakið upp og leitt til lykta i lokalaginu, hinu epíska sextán mínútna „Mogwai fear Sat- an“, auk þess að tjalda hálfgerðri ástarballöðu, „R U still in 2 it“, sem Aidan, söngvari úr öðra at- hyglisverðu skosku bandi, Arab Strap, söng. Nýlega kom svo út rímix-platan „Kicking a dead pig“ þar sem ýmsir firar endurhanna lög Mogwai og setja í algjörlega nýjan búning, lið eins og Kid Loco, Third Eye Foundation og Alec Empire. Á vínyl-útgáfunni kemur m.a.s. Kevin Shields úr My Bloody Valentine úr áralangri útlegð og endurgerir eitt laga Mogwai og segir það sitt um það vægi sem hljómsveitin hefur í bransanum. - glh plötudómur Pixies - At the BBC: ★★★ Skrautlausir Pixies og harðir Þeir sem hafa á annað borð fylgst með rokki siðustu 10 árin ættu að minnast Pixies með gleði í hjarta enda var rokk bandsins óþyrmilega gripandi og bar ferska strauma inn í rokkið. Áður en Nir- vana gerði allt vitlaust með Nevermind var Pixies bandið sem fólk sameinaðist um. Þau voru kannski aldrei eins rík og fræg og Nirvana (sem var undir miklum áhrifum frá þeim) en áhrif frá Pix- ies má enn þá finna hjá flestum böndum sem kenna sig við nýrokk. Frank Black stofnaði Pixies í Boston '86. Fimm plötrnn og sjö árum síðar voru dvergamir hætt- ir. Bandið var alltaf duglegt að fita bankainnistæðu útgáfufyrirtækis- ins (4AD, sem gefa út gus gus), og eftir tveggja diska best of-pakkann „Death to the Pixies", sem kom út í fyrra, þótti 4AD upplagt að gefa út þennan 15-laga disk með út- varpsupptökum úr BBC frá tíma- bilinu 1988 til 1991. Þessi diskur er eiginlega „best of ‘ líka, því hér eru flest vinsæl- ustu lögin en ýmis rykfallin og minna þekkt gullkom fylgja með, eins og bijálaðar útgáfur af Bítla- laginu „Wild Honey Pie“ og „In Heaven" (úr David Lynch mynd- inni Eraserhead), þar sem Frank fer gólandi upp á háa-cið og kemur ekki niður fyrr en í fulla hnefana. í útvarpsupptökum er vaninn að bönd sprelli með lög en Pixies taka slagarana alveg eins og á plötun- um, nema hraðar og skrautlaust, og við fáum að heyra hve þétt „Þessi er pakki skemmtileg- ur fyrir gamla aðdáendur og fín kynning fyrir þá sem ekkert vita í sinn haus.“ bandið var og samansaumað í saumlausri keyrslunni. Lítið hefur gengið hjá Frank Black eftir Pixies. Hálf glataðar sólóplötur hafa ekki gert mikið en bassaleikarinn Kim Gordon hefur uppskorið meira með Breeders og ýmsum hhðarverkefnum enda ver- ið hugmyndaríkari og prófað nýja hluti. Mann undrar þessi hraðferð niður á við hjá gamla gól, og kannski var drifkraftur Pixies all- ur kominn frá Kim eftir allt saman - Kurt Cobain hélt því allavega alltaf fram. Hvað sem því líður er þessi pakki skemmtilegur fyrir gamla aðdáendur og fin kynning fyrir þá sem ekkert vita í sinn haus og halda að rokkhjólið hafi verið fundið upp í morgun. Gunnar Hjálmarsson matar krókinn Islandshatarinn Jerry Selnfeld er með nokkur járn í eldin- um. Hann hefur gert samning við Universal um að gera grínplötuna ,1’m Telling You for the last Time" og gera menn þar því skóna að platan verði söluhæsta grlnplata sögunnar. Plata Seinfelds þarf ekki að seljast mjög mik- ið til þess því Jeff Foxworthy á metið með „Games Red- necks Play“ sem seldist „bara“ í 2 milljón eintökum. Adam Sandler er svo í öðru sæti með „What the Hell Happened to Me“ sem fór í 1,4 milljónum eintaka. Sam- j hliða plötunni verður sjónvarpsþáttur á vegum HBO sem j greiddi Jerry litla 10 milljón dali fyrir ómakiö. Efnið á » plötuna og fyrir sjónvarpsþáttinn verður valiö úr upptökum frá nokkrum uppistöndum sem Seinfeld hélt nýlega á Broadway. íslenski t i s t i nn| NR. 282 vikuna 30.7.-6.8. 1998 Saeti Vikur LAG FLYTJANDI 1 8 SPACE QUEEN .............................10 SPEED 2 3 DEEPER UNDERGROUND ...................JAMIROQUAI 3 5 COME WITH ME...............PUFF DADDY & JIMMY PAGE 4 5 I DONTWANTTO MISS ATHING ...............AEROSMITH 5 3 I THINK l’M PARANOID.......................GARBAGE 6 2 INTERGALACTIC ........................BEASTIE BOYS 7 3 DRINKING IN LA......................BRAN VAN 3000 8 1 A BA Nl Bl ....................PÁLL ÓSKAR & CASIN0 9 4 GETIT0N...............................REAL FLAVAZ 10 4 THE B0Y IS MINE...................BRANDY & M0NICA 11 4 NATDRALLY ............................MAGGA STÍNA 12 1 THE X-FILES THEME ..............THE DUST BR0THERS 13 3 TERLÍN.............................LAND 0G SYNIR 14 2 0RGINAL.....................SÁLIN HANS JÓNS MÍNS 15 6 NÁKVAEMLEGA..........................SKÍTAMÓRALL 16 5 S0 AL0NE....................................BANG GANG 17 1 PERFECT.................................SMASHING PUMPKINS 18 2 IMM0RTALITY...............................CELINE DI0N 19 1 YOU’RE MY HEART, YOU’RE MY S0UL ...M0DERN TALKING 20 6 MEM0RY CL0UD..................................MÓA 21 2 LIFE ....................................DES’REE 22 6 EL PRESIDENT.............DRUGST0RE FEAT TH0M Y0RKE 23 8 ALLTSEMPÚLESTERLYGI .........................MAUS 24 2 ÉR ER BARA EINS 0G ÉG ER ................STUÐMENN 25 4 REALG00DTIME .....................ALDA ÓLAFSDÓTTIR 26 6 VERA ......................................VÍNYLL 27 3 CRUEL SUMMER .........................ACE 0F BASE 28 6 THEWAY...................................FASTBALL 29 3 DAGURl...................................B0TNLEÐJA 30 4 LIFEAINTEASY ............................CLE0PATRA 31 2 HALTU MÉR.............................GREIFARNIR 32 2 CRUSH ..............................JENNIFER PAIGE 33 6 GAUR ......................................ENSÍMI 34 7 UPUPANDAWAY ...................PÁLL ÓSKAR & CASIN0 35 3 BECAUSE WE WANTT0 .........................BILLIE 36 5 SÍÐAN HITTUMSTVIÐ AFTUR.....................SSSÓL 37 1 A CHANGE 0F HEART.........................BERNARD BUTLER 38 9 WHISHING I WASTHERE .............NATALIE IMBRUGLIA 39 1 I D0NTWANTT0 KN0W...........................LH00Q 40 1 L0VELY DAZE............DJ JAZZY JEFF & FRESH PRINCE 23/716/7 2 9 5 13 22 28 7 - 10 11 Inýtt 14 15 9 4 19 17 Inýtt 13 36 15 - 8 8 17 19 lll ýtt 24 - Inýtt 18 23 28 - 4 5 6 2 39 - 25 20 12 7 30 40 16 25 20 21 31 32 33 - 40 - 23 18 11 3 36 38 29 29 IUjUJ 21 10 1Í!í u ■ N S T T1 Taktu þátt í vali listans í síma 550 0044 nraa Íslenskí llstínn er samvlnnuverkeFnl Bylgjunnar og DV. Hringt er f 300 tll 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, af fiHu landlnu. Einnlg getur fdlk hringt f sfma 550 0044 og tekifi þátt f vall listans. íslenskl llstinn er frumfluttur í fimmtudagskvfildum i Bylgjunni kl. 20.00 og er blrtur i hverlum föstudegl f DV. Listinn er jafnframt endurfiuttur i Bylgjunni i hverjum laugardegi kl. 16.00. listinn er blrtur. afi hluta, í textavarpi MIV sjánvarps- stöfivarinnar. Islenskl listinn tekur þátt f vali „World Chart“ sem framlelddur er af Radio Errpress f lós Angeles. Einnlg hefur hann áhrif á Evrdpulistann sem blrtur er f tdnlistarblafiinu Muslc & Media sem er rekifi af bandan'ska tdnlistarhlafilnu BlOboard. Yfrrumsjdn meí sknSartakönnun: Hahddra Hauksdðttrr - Framkvremd konnunar. MarkaSsdelld 0V • Tsivuvinnsla: DSdS - Handrlt, helmlidarSfiun og yfirumsldn meS framleiSslu: ívar GuSmundsson - Taeknistjdm og framlelSsla: f’otstemn Asoelrsson og Frálnn Stelnsson - Utsendingastjdm: Xsgeir Kolbeinsson og Jdhann Jdhannsson - Kynnir f útvarpl: Ivar GuSmundsson Kaffl Reykjavík. Slxtles uLw mun spila I kvöld, á morgun °g sunnudagskvöldið. S Bubbl Morhens heldur tón- s. y leika á mánudagskvöldinu . „ Á íHj og Sigrún Eva tekur við Þefiaf hann hefur lokið sér i’.vá’WdBP | CT af. Bubbi karlinn mun spila á staðnum öll mánudags- og miðvikudagskvöld til 17. ágúst frá kl. 21.20 - 23.00. Svo taka aðrir við og spila til 1.00. Gaukur á stöng mun verða með ýmsar uppá- komur um verslunarmannahelgina. Þar verða plötusnúöar og hljómsveitir. 1 kvöld mun Na Fir Bolg leika fyrir gesti á The Dubliner en á morgun og hinn verður stemn- ingin í höndum Bjarna Tryggvasonar. Þaö þarf ekki að koma neinum á óvart að söngvarinn og píanóleikarinn óþreytandi Glen Valentine mun skemmta á Café Romance næstu vikurnar. Glen spilar einnig matartón- list fyrir Café Óperu fram eftir kvöldi. Hljómsveitin Tvennlr tímar mun leika á Felta dvergnum í kvöld. Rússíbanar ætla að halda hátíð í Kaffileikhúsinu á sunnudagskvöldinu. Þeir ætla að byrja tónleikana sína kl. 23.00. Fólk getur nálgast miða I sfma Kaffi- leikhússins og við inngang- inn. Á Astró er það DJ Ákl Paln sem mun þeyta skífum um verslunarmannahelgina. Wunderbar mun halda þemakvöld á morgun. Þema kvöldsins er sól og sandur. Á sunnudaginn spila svo DJ 001 og DJ Sel- ur. Á þriöjudaginn verður hljómsveitin Klám á staðn- um. Fjaran mun státa af Jénl Möller sem leikur rómantíska píanótónlist fyrir matargesti. Hljómsveitin SÍN mun leika í kvöld en þegar hún hefur lokið sér af tekur hljómsveitin Limosin við sem leikur einnig annað kvöld. Guðmundur Rúnar mun leika á Fögetanum alla helgina en á mánudagskvöldinu verður svo djass á boðstólum. Naustkjallarlnn mun eins og áður bjóða upp á línudans á fimmtudagskvöldum I sumar frá kl. 21-1. Aðgang kostar 500 kr. í kvöld og á morgun mun hins vegar Skugga-Baldur skemmta gestum staöarins. Hljómsveitin KOS spilar á Fjörukránnl í kvöld og á morgun. Víklngasveltin mun leika fyrir matargesti í Víkingaveislunni. Mimisbar á Hótel Sögu verður opinn í kvöld og annað kvöld. Þar mun Hllmar Sverrisson skemmta. Á Grand Hótel v/Sigtún mun enginn annar en Gunnar Páll leika og syngja í kvöld og á morg- un frá klukkan 19 til 23. Næturgallnn. Stefán P. og Pétur spila alla helgina. Sveitaböll 8-VILLT verða i Herjólfsdal í kvöld. Á laugar- dags- og sunnudagskvöldinu verður hljóm- sveitin svo í Hreöavatnsskála i Borgarfirði. Sól Dögg mun leika á útisviöinu á Siglufirði á morgun. Á sunnudagskvöldinu munu kapparn- ir svo leika á Bíókaffi sem, líkt og útisviðið, er á Siglufirði. 2 * '.• ®kítamóral1.verður f hinu I verður hljómsveitin komin á WÆmmmm Vopnafjörö til þess aö spila á Vopnaskaki. Á sunnudagskvöldinu verður hljómsveitin svo stödd á Neskaupstað og tek- ur þátt í Neistaflugi. TJald galdramannslns, Lónkotl, Skagafirði, mun bjóða upp á barna- og fjölskylduball meö Fjörkörlum á morgun kl. 16 en um kvöldið mun hljómsveitin Leyniþjónustan svo skemmta fullorðnum. Vlð Pollinn, Akureyri. Á morgun og hinn leikur hljómsveitin PPK en á sunnudagskvöld verður það hljómsveitin Hey Joe sem stjórnar stemn- ingunni. Réttin, Úthlíð, Biskupstungum, mun ekki bjóða upp á neitt I kvöld og annað kvöld. Þá veröur enginn annar en Rúnar Júl. og hljóm- sveit sem sér um að skemmta gestum. Á sunnudagskvöldinu tekur svo hljómsveitin Á móti sól við. í Munaðarnesl munu KK og Leo Glllespl skemmta á morgun. Ruth Reglnalds og Blrglr Jéhann verða alla helgina á Búðarkletti í Borgarnesi. Buttercup verður á Neistaflugi, Neskaupstað, í kvöld. Á morgun verður hún á Sævangi, Hólmavík. Grúppan verður að svo komin til eyja á sunnudagskvöldinu. Imeira át www visins 31. júlí 1998 f Ó k U S 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.