Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Qupperneq 20
M 4mn
Hvern myndirðu helst vilja hafa með þér í bæinn þegar þú ætlar að kaupa þér föt:
besta vin þinn, mömmu þína, kærustuna eða einhvern allt annan?
Ertu eins og þetta fólk vill hafa þig eða myndi það vilja kalla fram í þér annan mann
en þú þykist vera? Fókus fékk mömmu, unnustu og vin Jóhanns G. Jóhannssonar,
sem leikur Sonny í Grease, til að klæða hann upp og skapa
nýjan Jóa með nýjum fötum.
Og tveir hommar fengu
líka sitt tækifæri
Skíðamaður, töffarí,
Síðan Jói var lítill drengur hafa
konumar í lífi hans séð um að
klæða hann. Fyrst mamma hans,
svo systir hans og nú kærastan.
Jói hlýðir bara og klæðir sig í það
sem til er ætlast. Þess vegna var
hann tilvalinn efniviður í verk-
efnið sem móður hans, unnustu,
besta vini og tveimur hommum
var falið. Að klæða hann upp eft-
ir sínu höfði til að kanna hvort
fotin skapi manninn; hvort þau
gætu sært fram þann Jóa sem þau
helst vildu sjá með fötunum ein-
um.
Unnustuna dreymir
um aksjón-mann
Ferðin byrjar í Útilífi í Glæsi-
bæ. Þangað vildi kærastan hans,
Guðrún Kaldal, fara með hann.
„Ég vil setja hann í skíðagalla.
Það er kominn tími til að maður-
inn eignist almennileg útivistar-
fot og hendi ljósbláa vattgallanum
sem hann hefur notað síðan hann
var fimmtán ára,“ segir kærastan
um leið og hún rennir augunum
rannsakandi yfir skíðadeildina.
Henni er alveg sama þótt úti sé
sól, blíða og átján stiga hiti. í
skíðagalla skal hann fara.
„Ég hef alla ævi verið mikið á
skíðum og þarf að ala Jóa svolítið
upp á því sviði. Ég gaf honum
skíði í jólagjöf og um páskana fór-
um við til Dalvíkur og Akureyrar
í því skyni að iðka þessa iþrótt.
Hann er allur að koma til en það
versta er að hann er alltaf svo
upptekinn við leiklistina og hefur
þess vegna lítinn tima fyrir þetta.
Það breytir því samt ekki að nú er
kominn tími til að dressa mann-
inn upp svo hann falli almenni-
lega inn í fjölskylduna mína,“ seg-
ir kærastan.
Fyrst er Jói settur í gular og
svartar skíðabuxur með axla-
böndum. Á meðan kærastan trítl-
ar um og leitar að meiru biður
Jói hinn rólegasti í skíðabuxun-
um og drekkur vatn. Hann er
greinilega vanur að vera með-
höndlaður á þennan hátt.
„Jóka, systir mín, og mamma
voru á sínum tíma með verslun-
ina Skaparann. Þá var ég óspart
notaður sem fyrirsæta. Svo vann
Jóka einu sinni hjá Gerði í
Flónni og þá notaði hún mig líka
sem tilraunadýr. Á pönktímabil-
inu klæddi hún mig eins og pönk-
ara og á Grease-tímabilinu var ég
líka hafður í réttu múndering-
unni,“ segir Jói.
Og hefur þú enga skoðun á í
hverju þú ert látinn veral
„Ég hef bara aldrei fengið að
hafa neina skoðun á því. Það er
alltaf farið með mig eins og dúkku
og þær eiga ekki að hafa skoðan-
ir.“
Svört flíspeysa, svört flíshúfa,
svört skíðagleraugu, gul og svört
úlpa, buxur og snjóbrettaskór í
stíl. Þama var það komið. Þannig
vill kærastan hans Jóa hafa hann.
„Verst hvað þetta kostar mikið.
Ég verð bara að byrja að safna
fyrir næstu jól,“ segir hún og fær
glampa í augun þegar hún sér
draumagæjann sinn, kærastann, í
fyrsta flokks útivistarfötum.
Jói brosir sveittur í sólinni og
jöklaklæðnaðinum á meðan ljós-
myndarinn tekur mynd og
kærastan ljómar.
velur á föt á drenginn slnn.
Mamman
vill gulan gæja
Þá var það mamman. Líklegt
var talið að hún myndi klæða
hann í pressaðar buxur, snyrti-
lega skyrtu og kannski prjóna-
vesti við. En nei, nei. Mamma
hans Jóa er engin venjuleg
mamma og ólíkt því sem blaða-
maður hafði gert sér í hugarlund
fór hún með hann í hina flippuðu
tískuvöruverslun, Spútnik.
„Ég hef alltaf getað valið fot á
Jóa sem honum líkar vel. Alveg
síðan ég pantaði á hann fot upp úr
Kays-listanum hefur hann verið
ánægður með það sem ég vel á
hann. Enda er hann líka svo sæt-
ur að það fer honum allt vel,“ seg-
ir mamman, Guðlaug Ingibergs-
dóttir.
Hún var ekki lengi að fmna föt
á drenginn sinn - dró strax fram
gula skyrtu, svartan og gráan
jakka með óvenjulegu sniði og
víðar, svartar buxur.
„Ég held að þetta verði fínt á
honum. Gult fer honum líka svo
vel,“ segir hún og laumar að um
leið þeirri skoðun sinni að stund-
um sé hræðilegt að sjá útganginn
á synimun.
„Hann á það til að taka ást-
fóstri við einhverja flík og nota
ekkert annað i langan tíma. Þeg-
ar ég sé hann í einhverri skelfi-
legri druslu þá tek ég í taumana
og segi: „Bíddu nú við, hjartans
fallega bamið hennar mömmu
sinnar, í hverju ertu núna?“
„Við erum öll svolítið fríkuð í
fjölskyldunni. Ég vil hafa Jóa töff
og þó að ég sé að verða sextug
finnst mér árin ekki skipta neinu
máli. Nú sér kærastan um að
klæða hann og ég er bara ánægð
með hvemig hún gerir það. Hún
er samt meira í íþróttafatnaði
heldur en við systir hans. Hann er
flottur í þessum fötum, gæti verið
í þeim hversdags og eins farið í
þeim í leikhús."
Vinurinn vill út
með Gary Grant
Vinahópur Jóa er skrautlegur
og enginn einn stíll einkennir fé-
lagana. í hópnum er að finna pilta
allt frá rokkurum upp í jakkafata-
menn. Einn af vinum Jóa, Gunn-
ar Valur, var fenginn til að velja
á hann föt. Hann fór með vin sinn
i verslunina GK en hún er rómuð
fyrir fín og klassísk herrafot.