Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1998, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1998, Side 4
myndlist Opnanir Ráðhús Reykjavikur. Á morgun kl. 14.00, verður opnuð sýning á verkum Dleters Roths. Sýningin stendur til 30. ágúst og er opið kl. 8-19 virka daga og 10-18 um helgar. Gilféiaglð, Kaupvangsstræti 23. Aðalsteinn Vestmann opnar sýningu sína á morgun. Henni lýkur 30. ágúst. Elnar Sebastlan opnar Ijósmyndasýningu I Gallerí Horninu á morgun. Ketilhúslð, Akureyri: Á laugardaginn kl. 16 verður opnuð sýning Arnar Þorstelnssonar sem ber yfirskriftina Málmur I Atómstöð. Sýn- ingin er opin daglega frá kl. 14-18 alla daga vikunnar og henni lýkur 8. september. Síðustu forvöð Handverk & hönnun, Amtmannsstíg 1, Sýn- ingu sænsku listakonunnar Anltu Hedln lýkur laugardaginn 22. ágúst. Opiö þriðjud.-föstud. kl. 11-17 og laugard. kl. 12-16. Aðrar sýningar Mokka, Skólavörðustig. Valgerður Guðlaugs- dóttlr er meö sýningu sem hún nefnir Þjóð- garða. Sýningunni lýkur 9. september. Gallerí Flskurlnn, Skólavörðustig 22. Innan handar, nýtt íslenskt stjörnugötukort og marg- miðlunardiskur. Sýningin stendur til 26. ágúst og er opin alla daga kl. 14-18. Stöðlakot við Bókhlööustig. Ásdís Guðjóns- dóttlr er með málverkasýningu. Sýningin verö- ur opin alla daga nema mánudaga og lýkur 30. ágúst. Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar. Jón Óskar er með myndlistarsýningu í galleríi verslunarinnar, ForsetastofunniJj Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3b. Sýningin Leltin að snarklnum stendur yfir í Nýlistasafninu.Safnið er opið frá kl. 14-18 alla daga. Gallerí Ingólfsstrætl 8. Slgurður Guðmunds- son sýnir höggmyndir, teikningar og grafik. Opiö fim.-sun., kl. 14-18, fram til 26. ágúst. Gerðarsafn. Nú stendur yfir sýning á nýium verkum Krlstínar Guðjónsdóttur. Sýningin stendur til 30. ágúst. Galleri Sævars Karls, Bankastræti. Krlstján Steingrímur Jónsson er með sýningu á verk- um sínum. Sýningin stendur til 2. september. Galleriiö er opið alla virka daga frá kl. 10-18 og Id. 10-16. Bílar og llst, Vegamótastig 4, Reykjavik. Nú stendur yfir sýning á verkum eftir HJört Hjart- arson. Hafnarborg. Nú stendur yfir sýning á verkum eftir Ástu Árnadóttur í Sverrissal. Sýningin er opin alla daga nema þrd. frá kl. 12-18 og stendur til 24. ágúst. Einnig stendur yfir mál- verkasýning fimm listamanna frá Slesvík-Holt- setalandi. Sýningin stendur til 24. ágúst. Gallerí Geyslr, Aðalstræti 2: Nú stendur yfir sýning á Ijósmyndum Jónasar Hallgrímssonar, teknar i Japan fyrr á þessu ári. Sýningunni lýk- ur 23.ágúst og er opin mán.-fid. frá 8-19, föd. frá 818 og frá 14-18 um helgar. Ásmundarsalur, Freyjugötu 41. Nú stendur yfir sýning á Ijósmyndum frá íslandi og íslend- ingaslóðum Vestanhafs Wayne Gudmundson, Guðmundur Ingólfsson. Sýningin stendur til 23. ágúst. Guðný Halldórsdóttir sýnir teikn- ingar i gryfiu Safnsins. Opið frá kl. 14-18 Llstmunahús Ófelgs, Skólavörðustíg 5. Isa Öhman er meö sýningu á textílskúlptúrum og akrilmyndum unnum i blandaðri tækni. Sýn- ingin mun standa til 22. ágúst og er opin á verslunartíma mán.-ld., lokað sunnud. Perlan, Reykjavík: Nanna Dýrunn BJörnsdóttlr er með sýningu sem stendur til 24. ágúst. Einnig er sýning á verkum eftir myndlistarkon- una Ríkeyju Inglmundardóttur. |meira á.| www.visir.is Adda og Kristín í Spúnk gáfu nýlega út vinylplötu í félagi við strákana í Múm vegna þess að þeir eru svo ógeðslega skemmtilegir. Þær segjast vera flipparar, spila jeppatónlist, setja alltof mikið af tilfinningum í tónlistina og að nafnið á hljómsveitinni hafi orðið til á fyrsta fundi Elvis og Pricillu. Hvaöan kemur Spúnk-nafnið? „Það þýðir náttúrlega ýmislegt í orðabókinni en fyrir okkur kemur það frá Elvis,“ segir Adda og fer síðan með Elvis-sögu: „Þegar Elvis var í hernum í Þýskalandi var hann Edltaf með partí. Allt liðið kom og Elvis söng og var mið- punkturinn. Einu sinni mætir þar kona sem heitir Pricilla - tilvon- andi eiginkona hans - en þá var hún bara fjórtán ára, algjör skóla- stelpa, og kom í einhverjum matrósakjól. Elvis lýsist allur upp; How old are you, Pricilla? I’m in the 9th grade, svEæaði hún. Þá hló Elvis og sagði; You are just a baby! og ailir á svæðinu fóru að hlæja en Pricilla fríkaði út og sagði; It's just the stupid dress I'm wearing, en þá sagði Elvis: The girl got some spunk, sit besides me, let's be fri- ends. „En við höfum alltaf kommu yfir u-inu - spúnk - því án hennar þýðir nafnið eitthvaö ógeðslega vafasamt á ensku.“ Hvaöa hlut langar ykkur helst í? „Land Rover," segja þær, „og mig langar óstjómlega mikið í blautbún- ing,“ segir Adda. „Ég hef einu sinni prófað svoleiðis. Maður flýtur á Þingvallavatni og horfir út í loftið og maður núllast algjörlega og verð- ur eins og stjama eða einhver dauð- ur hlutur, skítkalt og ógeðslegt." Er þetta sú tilfmning sem kemur fram í músíkinni? „Nei, alls ekki. Ég veit þetta er væmið en það er mikiö af tilfinn- ingum í músíkinni - stundum of mikið af einhverju svona alveg per- sónulegu. Öll lögin nema Jeppalag- ið em um vægðarlausa vægð. Text- inn Kafbáturinn er bara eitt orð - Samfarir - sem er nú meiri athöfn en tilfinning. Það er eitthvað sem ég geri alltof lítið af,“ segir Adda og horfir dreymin út í loftið. Hvaó mynduö þió gera ef þið lok- uöust inni í lyftu meö strákunum í Skítamóral? Samfarir! hrópa Spúnkstelp- ur upp yfir sig og flissa, spyrja svo: Hvað er aftur Skítamórall?" -glh Fengu styrkti að flippa í Spúnk og Múm eru kannski ekki nöfn sem eru á vörum hvers músikáhugamanns en einhvers staðar verður víst að byrja og Spúnk og Múm ákváðu að byrja með 10“ vinýlplötu, Stefnumót kaf- bátanna, þar sem böndin eiga tvö lög hvert. Lykilstelpur Spúnk, Adda söngvari og Kristín gítarleik- ari, fengu sér kaffi í frauðplastbolla og drukku það með mér á Arnar- hóli. „Þetta byrjaði allt í ruglinu," segja þær aðspurðar um ferOinn. „Manstu ekki eftir vodkanu sem var smyglað í gegnum gáminn? Við fengum flösku sem entist helvíti lengi og í kringum hana fórum við að tala saman um að gera band. Aö vísu vorum við fyrst í Límbandinu sem entist bara tvær æfingar en þar spottaði ég Kristínu," segir Adda. „Við vorum með gamlan Júpiter- hljóðgervil heima í stofu og Adda lamdi á hann og ég tók upp gítarinn og við rokkuðum eitthvað," segir Kristín. „Kristján hljómborðsleik- ari er líka í hljómsveitinni og Gerð- ur kontrabassaleikari og Bjarni Ben. spilar líka stundum með á kontrabassa. Stundum, á þessum tveimur tónleikum sem við höfum spilað um ævina. Við tvær forrit- um. Tókum ógeðslega mikið af lán- um og keyptum geðveikt mikið af græjum og lærðum á þær á meðan við vorum að gera lögin. Þetta var strembin vinna, við tókum nætum- ar í það og dagana í æfingar." Spúnk fór í Músíktilraunir, var þar gefið „haug af hljóðverstímum" og útkoman er lögin tvö á tíu-tomm- unni. Hin hundleiðinlega spuming, Áhrifavaldar?, kemur næst og hið hundleiðinlega svar, „Ja, allt sem við hlustum á hefur náttúrlega áhrif...,“ svo ég bið Spúnkara frekar að lýsa tónlistinni í fimm orðum. „Jeppatónlist," það er bara eitt orð yfir þetta," fullyrða þær ákveðnar. Ungir flipparar Spúnk og Múm og fleiri vinir eru farin út að spila á tónleikum í Cambridge og „láta eins og flfl og flippa. Viö eram öll ungir flipparar. Við fengum styrk til að flippa í viku. Ætlum t.d. að fara í fimm- unda-fimleika úti á götu. Syngja ís- lensk lög í fimmundum og vera með fimleika um leið.“ Segiö mér frá Múm sem er meö á plötunni. „Það eru þeir Örvar og Gunni Penis. Þeir búa til drum and bass og spila á harmóníku og munn- hörpu ofan á og eru ógeðslega skemmtilegir. Múm hafði aldrei heyrt í Spúnk og Spúnk aldrei heyrt í Múm þegar við ákváðum að gefa út plötuna saman. Það höfðu bara allir svo mikla trú á þessu.“ Er ekki hæpiö að gefa út vinýlplötu nú á dögum? „Jú, það er alveg á ystu nöf. En það er stemning í þessu, stemmari. Okkur langaði að geta skreytt og fóndrað á plötuna. Eins og að rifa blað úr dagbókinni og stinga ofan í umslagið og sprauta á það ilmvatni. Við eigum eftir að gera það allt saman.“ viku Mér finnst nú platan lykta ágæt- lega, það er skólalykt af plastinu. „Já, Múlalundur klikkar ekki - graditjúd til þeirra.“ Helvíti mörg hrísgrjón Svo á auðvitað að halda áfram og gera geisladisk einhvern tímann, helst bráðum. „Við erum nefnilega ekkert á leiðinni í skóla eða svoleið- is svo við erum fastar i bransanum, það er ekki aftur snúið. Það er ekki hægt að vinna einhverja 100% vinnu og ætla að gera músik líka. Ég held við getum lifað ágætis lífi bara á því að selja plötuna. Kannski tvær plötur á viku, þúsund kall, það eru helvíti mörg hrísgrjón." ..Manstu ekki eftir vodkanu sem var smyglað í gegnum gáminn? Við fengum flösku sem entist helvíti lengi og í kringum hana fórum viö aö tala saman um aö gera band." segir Adda. ..Viö tokum ogeöslega mikiö af lánum og keyptum geöveikt mikiö af græjum og læröum á þær á meðan viö vorum aö gera lögin," segir Kristín. I I I I < i Í < i i i « l( 4 f Ó k U S 21. ágúst 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.