Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1998, Qupperneq 20
b í ó
Bíóborgin
Lethal Weapon 4 ★★★ Þessi nýjasta viSböt
í sertuna er ágætis afþreying. Hún er fyndin og
spennandi og áhættuatriöin fiest til fyrirmynd-
ar. Þótt hún nái aldrei aö toppa þaö besta úr
fyrstu tveimur myndunum ætti hún ekki aö
valda aödáendum þeirra Riggs og Murtaugh
vonbrigöum. Þetta veröur llklega síðasta
myndin og ekki amaleg endalok á eftirminni-
legri seríu. -ge
Clty of Angels Þrátt fyrir aö vera klisju-
kennt bandarískt ástardrama eru fallegar og
áhrifamiklar senur inni á milli þar sem leik-
stjóra og kvikmyndatökumanni tekst vel upp
aö skapa þá stemningu sem upprunalega
hugmyndin um (ó)sýnilega engla býður upp á.
-úd
Bíóhöllin/Saga-bíó
Mercury Rlslng ★★* Tveir einstaklingar sem
eru á mismunandi máta einangraöir frá um-
heiminum eru gegn öllum öörum I þessari
ágætu sakamálamynd sem kemur skemmti-
lega á óvart meö þéttri sögu um Stóra bróöur
sem gerir ekki mun á röngu og réttu og notar
öll meðul, lögleg sem ólögleg, til að halda
sínu. Bruce Willis er t mun gáfulegra hlutverki
en t Armageddon. -HK
Lltla hafmeyjan ★★★ Teiknimyndir Walts Dis-
neys eru klasstskar og þegar ný kynslóö rts
eru þær settar á markaöinn á ný og er ekkert
annað en gott um þaö aö segia. Litla hafmeyj-
an kom meö ferskan blæ inn t þetta kvik-
myndaform eftir aö teiknimyndir t fullri lengd
höfðu veriö! lægö um nokkurt skeiö og.hún á
fullt erindi enn til ungu kynslóðarinrfar. Is-
lenska talsetningin er vel heppnuö. -HK
Háskólabíó
Dark Clty ★★ Dark City er metnaöarfull og
ansi mögnuö mynd, og vekur tilfinningar bæði
um ofsóknir og innilokun. Hún er full af ótrú-
lega eftirminnilegum myndrænum skeiöum,
sérstaklega þar sem geimþjóðin „tjúnar' og
lætur borgina bókstaflega vaxa, hús spretta
upp úr götum, stækka, minnka eöa taka öör-
um breytingum. Hins vegar veldur handrits-
skortur þvt aö oft var eins og um langa auglýs-
ingu aö ræöa. -úd
Vlnarbragö ★ Helsta vandamál Vinarbragðs
er kannski það aö myndin er hreinlega of leiö-
inleg, langdregin og flatneskjuleg og endirinn
fyrirsjáanlegur. Kosturinn er hins vegar sá aö
leikurinn er almennt góöur en átakalaus. -úd
Washinton Square, sem Háskóla-
bíó frumsýnir í dag, er gerð eftir
samnefndri klassískri skáldsögu eft-
ir Henry James. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem sagan er kvikmynd-
uð. Árið 1947 var frumsýnt leikrit
eftir skáldsögunni sem hlaut heitið
The Heiress og tveimur árum síðar
gerði William Wyler kvikmynd eft-
ir leikritinu sem bar sama nafn. í
leikritinu og fyrri myndinni er vik-
ið töluvert frá sögu James, en í Was-
hington Square, sem Agniszka Hol-
land (Europa, Europa) leikstýrir, er
sögunni fylgt eftir í öllum meginat-
riðum.
Fjallar myndin um Catherine
Sloper sem alls ekki er falleg og
ekki nema í meðallagi gáfuð. Hún er
aftur á móti erfingi mikilla auðæfa.
Faðir hennar, sem missti eiginkon-
una rétt eftir að Catherine fæddist,
er ailtaf að minna dóttur sína á það
að hún hafi hvorki fegurð né gáfur
móður sinnar og hefur gert það að
verkum að Catherine er feimin og
inni í sér. Þegar ungur maður,
Morris Townsend, sýnir henni
áhuga kolfellur hún fyrir honum og
lætur í fyrstu orð föður síns um að
Morris sé eingöngu á peningaveið-
um sem vind um eyru þjóta og er til-
búin að fóma öllu fyrir unnustann.
Faðir hennar á þó enn tromp á
hendi sem reynst getur örlagaríkt.
Jennifer Jason Leigh leikur
hina ógæfusömu Catherine, breski
stórleikarinn Albert Finney leikur
fóður hennar og hafa þau bæði feng-
ið afbragðsdóma fyrir leik sinn þótt
ekki séu allir samála um túlkun
Leigh á aðalpersónunni. í öðrum
hlutverkum eru Ben Chaplin sem
leikur Morris og Maggie Smith
sem leikur frænku Catherine, sem
reynist henni betri en enginn á ör-
lagastundu.
Agnieszka Holland er tékknesk að
uppruna og einn virtasti leikstjóri í
Evrópu um þessar mundir.
Þekktasta kvikmynd hennar er
Europa, Europa, sem var tilnefnd til
óskarsverðlauna árið 1992. Áður en
hún gerði Washington Square hafði
hún gert tvær enskumælandi kvik-
myndir, The Secret Garden og Total
Eclipse. Sautján ára gömul varð
Agnieszka Holland yngsti nemand-
inn sem fengið hefur inngöngu í
skóla tékknesku akademíunnar í
Prag. Þótt hún væri pólsk tók hún
virkan þátt í „vorinu í Prag“ árið
1968 þegar reynt var að koma á sós-
íalísku lýðræði þar í landi. Hún var
síðar fangelsuð og var ekki sleppt
fyrr en eftir sex vikur. Hún sneri
aftur til Varsjá 1971. Næstu fjögur
ár sat hún við skriftir en öllum
kvikmyndahandritum hennar var
hafnað. Eitt handrita hennar lenti
þó á borði hjá Andrzej Wadja og
hann bauð henni vinnu við fyrir-
tæki sitt. Vann hún með honum í
nokkur ár og er meðhöfundur hand-
rita í nokkrum kvikmynda hans.
Árið 1979 fékk hún loks að leikstýra
sinni fyrstu kvikmynd.
-HK
1§stttÉm iðlÉÉL,__Í
Óskarinn er svindl
Samuel L. Jackson, sem var að
frumsýna nýjustu kvikmynd sína,
The Negotitor, fyrir tveimur vikum
var óspar á fullyrðingar um ósk-
arsverðlaunin í viðtali sem tekið var
við hann og hefur greinilega lítið álit
á þeim sem þar ráða ferðinni: „Ég hef
enga trú á því að þar sé farið eftir sett-
um reglum. Við erum 5000 sem skip-
um akademíuna og greiðum atkvæði
og ég hef enga trú á að einhverjir sitji
sveittir í herbergi og telji atkvæðin.
Okkur eru aðeins sendir atkvæðaseðl-
ar til að halda okkur við efnið og láta
okkur finnast að við ráðum ein-
hverju." Ekki var Jackson tilbúinn að
segja til um hverjir réðu ferðinni þeg-
ar kæmi að því að raða niður tilnefn-
ingum. Sjálfur hefur hann verið einu
sinni tilnefndur, fyrir Pulp Fiction.
Hann telur að hann hefði einnig átt að
fá tilnefningu fyrir leik sinn í Jungle
Fever. Þá er Jackson einnig óhress
með laun sín: „Það er hart að leika að-
alhlutverk í dýrum og stórum kvik-
myndum og fá aðeins það sama og
hvítur leikari í B-flokki,“ segir hann
og telur að ef hann væri hvitur og í
sömu stöðu og hann er nú fengi hann
mun meira kaup.
BISTRO & BAR
X veqAMOTUJá
flbsolut funk
Funkmostcr 2000 featuring Óskar Guðjónsson
dj. flrni 6 og Þossi
Hefst kl. 22.00
Maettu með fókus niður c
í dog og þú færð miðo í
ABS0LUT
TUB0RG
20
f Ó k U S 21. ágúst 1998