Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998 Fréttir Tveir menn sem reyndu að hjálpa liggjandi rosknum manni sem verið var að sparka í: Annar kýldur en hinn barinn í gangstétt - andlitið á mér varð óþekkjanlegt á eftir, segir Valgeir Barðason Við vorum tveir á gangi í miðbæn- um á föstudagskvöldi þegar við sáum hvar strákar hópuðust saman og voru að sparka í liggjandi roskinn mann á móts viö íslandspóst. Mér fannst við- bjóðslegt að horfa upp á þetta - sparka í manninn fram og til baka. Við vild- um að sjálfsögðu skakka leikinn. En það var eins og að henda sprengju á hópinn. Fyrst stökk einn á Helga, fé- laga minn, og kýldi hann,“ sagði Val- geir Barðason, jámsmiður í Reykja- vík, sem var tvær vikur frá vinnu í sumar eftir aö hafa verið misþyrmt illa í miðbænum. Valgeir og Helgi Svanbergsson urðu báðir fyrir líkamsárásum þegar þeir reyndu að koma rosknum manni til hjálpar sem ungir menn voru að ráöast á í Austurstræti. Helgi segir það ákaflega sorglegt hvemig fór þeg- ar enginn svaraði hjálparbeiðni konu sem nýlega var nauðgað í Kópavogi: „Það em samt sumir sem skipta sér af árásum á annað fólk, eins og við gerðum í þessu tilfelli, en það get- ur því miöur farið mjög illa,“ sagði Helgi. Helgi og Valgeir sáu báðir sitt óvænna þegar þeir reyndu að koma Sænski göngugarpurinn á leið upp Fjarðarheiði og þar með lauk hann hringferðinni um ísland. DV-mynd Sigrún Gekk 3000 km á 70 hinum roskna manni til hjálpar fyrir utan íslandspóst - báðir menn sem em vel á sig komnir líkamlega. Barði höfðinu á mér í gangstéttina „Það var ekki um annað að ræða en að forða sér,“ segir Valgeir. „Þetta vom margir fremur illvigir strákar. Þeir urðu bijálaðir yfir því að við skyldum vera að skipta okkur af. Við Helgi urðum viðskila. Ég hljóp upp Bankastrætið. Á móts við Stjómar- ráðshúsið urðu nokkrir ungir menn á vegi mínum. Einn þeirra hafði sig mest í frammi. Hann réðst á mig og felldi mig í götuna. Síðan beit hann mig í bijóstið og lamdi hausnum á mér í götuna. Ég setti vinstri höndina undir til að forðast gangstéttina og hægri höndina fyrir andlitið. Þá tók hann hægri höndina í burtu og stang- aði mig í höfuðið hvað eftir annað. Andlitið á mér varð óþekkjanlegt á eftir. Þegar ég lá þama bað ég fólk um að hjálpa mér en það hreyfði sig eng- inn. Maðurinn var búinn að skalla mig oft þegar lögreglan kom á staðinn og handtók hann,“ sagði Valgeir. Hann þurfti að vera tvær vikur frá vinnu eftir árásina: „Ég varð einn köggull á eftir," sagði hann. Samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar í Reykjavík er kæra Valgeirs í rannsókn. Hann og Helgi segja báðir að það sé greinilega ekkert áhlaupa- verk að sinna borgaralegum skyldum þegar verið sé að ráðast á fólk - þeir hafi reynt að hjálpa en með fyrr- greindum afleiðingum. Hvoragur mannanna kveðst vita um afdrif hins roskna manns enda hafi þeir þurft að flýja af vettvangi. -Ótt Helgi Svanbergsson segir að því miður geti farið illa þegar fólk skiptir sér af Ifkamsárásum á samborgara sína. DV-mynd Pjetur Viðræöur um sameiginlegt vinstraframboð: Ekki krafist ákveðinna sæta - segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Kvennalistans Fulltrúar vinstriflokkanna hittust í gær til að halda áfram viðræðum um sam- eiginlegt framboð A-flokkanna og Kvennalistans. DV-mynd Hilmar Þór dögum DV Egilsstöðum: „Þetta hefur verið skemmtileg- ur tími og ég gekk 3000 km á 70 dögum. Þræddi alla strandlengj- una,“ sagði sænski göngugarpur- inn, Erik Reuersvard, á Egils- stöðum í gær og lagði síöan á Fjaröarheiðina til Seyðisfjarðar í lokaáfangann. Hann gekk yfir- leitt um 6 km á klukkustund og kom víða við á sveitabæjum. Alls staðar var honum tekiö mjög vel og naut fyrirgreiðslu. -SB Stóð á þurru Bátur sem var að koma frá Rifi á Snæfellsnesi strandaði þar sem fjaraði undan honum við Grandahólma, rétt sunnan viö Akurey fyrir utan Reykjavík í morgun. Einn maður var í bátn- um. Björgunarsveitin Albert á Seltjamamesi var kölluð út til þess aö bjarga bátnum. Maður- inn fékk sér kaffi hjá Slysavarna- félaginu þar til báturinn var kominn á sléttan sjó á ný. -hb Formenn Alþýðubandalags, Al- þýðuflokks og Kvennalista hittust á fúndi síðdegis í gær til að ræða sam- eiginlegt framboð til alþingiskosninga í vor. Viðræðumar hafa legið niðri að mestu síðustu vikur en em að sögn Margrétar Frímannsdóttur að hefjast á ný. Fyrir liggur að Kvennalistinn gerir ákveðnar kröfúr sem fúlltrúar A-flokkanna hafa skilið sem kröfur um þingsæti og áhrif sem em óraun- hæfar miðað við þingstyrk og fylgi Kvennalistans í könnunum. Þær kröf- ur hafa verið túlkaöar þannig að Kvennalistinn krefjist efsta sætisins í Reykjavík og ákveðinna sæta í öðrum kjördæmum. Guðrún Jónsdóttir, starfskona Kvennalistans, segir við DV að sú túlkun sé ekki rétt. Það sé þó forsenda þess að Kvennalistinn taki þátt í þessu fyrirhugaöa samstarfi að fram- boðið litist af þátttöku Kvennalistans. Ekki komi tfl greina að Kvennalistinn renni á einhvem hátt inn í A-flokk- ana. Hvort samstarf takist eða ekki sé enn allt of snemmt að segja tfl um. Að- spurð um það á hvem hátt hið nýja vinstraframboð skuli litast af þátttöku Kvennalistans og hvort í því felist krafa um ákveðin sæti á ákveðnum listum, sagði Guðrún: „Ég held að það sé allt of snemmt að fara að nefna sæti eða nööi heldur á ég við það að tryggt verði að Kvennalistinn eigi talskonur, að kvennalistaröddin þagni ekki.“ Hún sagði enn fremur að það hefði aldrei hvarflað að Kvennalistanum að setja fram skýlausar kröfur um tfltek- in sæti. „ Það væri hins vegar óðs manns æði fyrir okkur að samþykkja að taka þátt í samstarfi á þeim grunni einum að við hefðum málefnasamn- ing sem við gætum samþykkt án þess að hafa möguleika á að framfýlgja honum.“ Sighvatur Björgvinsson, formaöur Alþýðuflokksins, sagði í gærkvöld að það væri ekki í verkahring formanna flokkanna að ræða uppröðun á fram- boðslistum enda væri það ekki á valdi formannanna. „Við getum haft okkar skoðun á því. Það er hins vegar mál- efni sem flafla verður um í kjördæm- unum. Við getum ekki bundið kjör- dæmin í þeim eöium,“ sagði Sighvat- ur Björgvinsson. -SÁ Stuttar fréttir dv Ekkert að afsaka Davið Odds- son forsætisráð- herra sagði í samtali við RÚV að hann myndi ekki biðjast af- sökunar á um- mælum sem hann lét falla á ráðstefhu um gagnagrunnsfrum- varpið á laugardag um sjúkra- skýrslur á glámbekk árum saman. Ályktun stjómar Læknafélagsins um sig sé þóttafull og því ekki til sóma. Sveitarfélagavefur Á stjómarfundi Sambands ís- lenskra sveitarfelaga, sem haldinn var á Akyreyri í gær, var formlega opnaður Netvefúr, Syeitarfélagavef- urinn samband.is. Á vefnum em upplýsingar um sveitarfélög hér á landi og starfsemi Sambands ís- lenskra sveitarfélaga. Fáir í Kennaraháskólann Þriðjungur þeirra sem sækir um að komast í nám í Kennaraháskóla íslands kemst að á hveiju hausti. Sama hlutfall gildir fyrir framhalds- nám fyrir kennara. Skólinn útskrifar um 120 kennara á ári en þyrfti að út- skrifa 150 kennara til að mæta þörf- um skólakerfisins. RÚV sagði frá. Varar vió virkjunum Samvinnunefnd um skipulag miðhálendisins vill halda mann- virkjagerð á hálendinu í skefjum og varar við virkjunarhugmyndum við norðanverðan Vatnajökul vegna ríkra náttúmvemdarhagsmuna. Nefndin fékk athugasemdir við skipulag hálendisins frá 95 aðilum. Sóion veiðir lax Dagur segir frá því að Sólon Sigurðsson, bankastjóri Bún- aðarbankans, hafi enn verið í laxi í síðustu viku. Hann hafi verið í Laxá í Dölum í boði VISA. Sakamáladómstóll Helgi Ágústsson ráðuneytisstjóri hefur fýrir hönd utanríkisráðherra undirritað Rómarsamþykkt SÞ um stofnun alþjóðlegs sakamáladóm- stóls í Haag. Samþykktin öðlast gfldi þegar 60 ríki hafa undirritað hana. Musso-jepparnir skráðir Skráningarstofan hefúr skráð tíu Musso jeppa sem styrr hefúr staðið um að undanfómu. Fulltrúar frá lög- giltu prófunarfyrirtæki í Þýskalandi hafa prófað bilana til þess að ganga um skugga um aö þeir stæöust kröfúr Evrópusambandsins. RÚV sagði frá. Údýrara til útlanda Landssíminn lækkar símtöl til Bandaríkjanna fóstudaginn 4. sept- ember úr 54 kr. mínútan í 47 kr. Næturverð sem nú er 40,50 kr. verð- ur óbreytt. Fullvinnsla um borð Sjávarútvegsráðherra hefur gefið út reglugerð sem heimflar full- vinnslu bolfiskafla um borð í veiði- skipum. Hún hefúr verið óleyfileg til þessa. Fiskistofa skal samkvæmt reglugerðinni samþykkja frekari vinnslu en flatningu, flökun, roð- flettingu og snyrtingu og veiðieftir- litsmaður skal vera um borð. Vill stofna flokk Dagur segir að Ástþór Magn- ússon hyggi á stofnun stjóm- málaflokks. Sjálfúr segist hann við blaðið ekki hafa ákveð- ið hvort hann fari sjálfúr í framboð fyrir næstu kosningar. Segist eiga að hanna Garðar Halldórsson, fyrrverandi húsameistari ríkisins, segist hafa samið við stjómvöld um að hanna viðbyggingu við Leifsstöð þegar geng- ið var frá starfslokum hans fyrir tveimur árum. Stjómvöld ætla að bjóða hönnun flugstöðvarinnar út á Evrópska efiiahagssvæðinu.-JH/-SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.