Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Síða 17
D"V FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998 17 etlend myndsjá ' ★ ★ Kazimierz Switon er úr hópi róttækra kaþólikka í Póllandi sem hafa sett upp hundruð krossa við útrýmingabúðir nasista í Aushwitz. Gyðingar hafa mótmælt hástöfum og segja að aðgerðirnar brjóti samkomulag um að ekki megi setja upp nein trúarleg, hugmyndafræðileg eða pólitísk tákn í búðun- um þar sem hálf önnur milljón manna týndi lífi í heimsstyrjöldinni síðari. Níu af hverjum tíu fórnarlambanna voru gyðingar. Á þriðja hundruð þúsund óbreyttra borgara ■ Kosovohéraði í Serbíu hafa þurft að yfirgefa heimiii sín vegna árása serbneskra hersveita á aðskiinað- arsinna albanska meirihiutans í héraðinu. Flóttamennirnir flytja eigur sínar á brott með því sem hendi er næst. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, var dapur á svip þegar hann heils- aði upp á vegfarendur í bænum Omagh á Norður-írlandi í vikunni, tíu dögum eftir að 28 manns létust í sprengjutilræði. Hann skýrði frá því að breska þingið yrði kallað saman í næstu viku til að setja herta löggjöf gegn hryðjuverkamönnum. Doug Haber í Nags Head í Norður-Karólínu þorði ekki annað en að klifra upp á þak hjá sér til að taka niður nýja vindhanann áður en fellibylurinn Bonnie kæmi. Bonnie kom upp að ströndum Norður-Karólínu í gær. Kona þessi frá Sádi-Arabíu nýtur þess að spóka sig um í svalanum í Lundúnum. Hún gaf dúfunum í Kens- ingtongarði brauð að borða og myndaði þær síðan við máisverðinn. Hundruð þúsunda ferðamanna frá Persaflóaríkjunum koma til Lundúna á sumrin til að flýja steikjandi eyðimerkurhitann heima. Hér er hann kom- inn, á báðum myndum, hundur- inn Missy sem ein- hver sérvitur millj- ónamæringur frá Texas vill láta klóna. Vísinda- menn fá 2,2 millj- ónir dollara til verksins og verður Ijóst innan tveggja ára hvort það tekst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.