Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998
23
DV
Sviðsljós
Margrét Þórhildur Danadrottning var ekki fyrr farin í fríið:
Krónprinsinn í villtu
partíi með kameldýr
Prinsar eru ekkert öðruvísi en
iðrir strákar, jafnvel þótt rígfull-
Drðnir séu. Að minnsta kosti ekki
tiann Friðrik, ríkisarfi í Danmörku.
Foreldrar hans, þau Margrét Þór-
hildur Danadrottning og Henrik
prins, voru ekki fyrr farin til Caix,
kastala drottningarmanns í suðvest-
urhluta Frakklands, en krónprins-
inn bauð til heljar veislu þar sem
dansað var og duflað fram í rauða-
bítið.
Friðrik er í raun kóngur í ríki
sínu á meðan drottningin er fjarver-
andi og af því tilefni var veislan
haldin. Friðrik bauð að sjálfsögðu
fjölskyldunni, meðal annars þeim
Jóakim bróður sínum og hinni
fögru Alexöndru mágkonu. Önnur
Alexandra var þar einnig, náfrænka
prinsanna sem nýgift er greifanum
Jefferson. Þar að auki mátti sjá
gamla skólafélaga og kammerata úr
hernum. Svo komu tónlistarmenn
og leikarar og léku listir sínar.
Friðrik krónprins af Danmörku og Maria Montell, kærastan hans, héldu mikla
veisiu í garði Marselisborgarhallar í Árósum fyrir ættingja og vini. Eitt hundr-
að sáu sér fært að koma og taka þátt í gieðskapnum.
Ekki má gleyma aðalgestinum,
henni Mariu Montell, 29 ára gamalli
kærustu Friðriks. Hún flutti reynd-
ar inn til Friðriks í Marselisborgar-
höll í Árósum þegar drottning og
maður hennar fóru úr landi. Maria
var því eiginlega gestgjafi með
kærastanum.
Skemmst er frá því að segja að
allir skemmtu sér konunglega. Frið-
rik og Maria dönsuðu og dönsuðu,
enda ekki sést neitt að ráði undan-
farið. Hún var um skeið í ferð um
Taíland og hann var í fríi i Frans.
Friðrik tók á móti gestunum í
búningi olíufursta úr Austurlönd-
um og eins og sönnum fursta sæmir
var hann með glæsilegt kameldýr
sér við hönd.
Það var svo hálfgerður olíufursta-
bragur á Jóakim Friðriksbróður
þegar hann kom til veislunnar í
nýja blæjubílnum sínum sem er af
gerðinni Lotus og lét smárigningu
ekkert á sig fá.
Ringo fyrstur
Bítla til Moskvu
Ringo Starr trommuleikari
veit sem er að betra er seint en
aldrei. Hann er þó hálfspældur
yfir aö hafa ekki orðið á undan
keppinautunum í Rolling Stones
að leika í Moskvu. Hann varð þó
allténd fyrstur Bitlanna fyrrver-
andi til að gera það, lék í borg-
inni á þriðjudagskvöld. „Það
hefði verið gaman að vera aðeins
fyrr á ferðinni. En betra er sko
seint en aldrei,“ sagöi hinn geö-
þekki trumbuslagari við á þriðja
þúsund aðdáenda sinna sem
flestir, eins og kappinn sjálfir,
voru komnir á miðjan aldur.
Einn áheyrandinn sagðist hafa
dáð Ringo í 30 ár.
Bandaríska körfuboltasnillingnum Shaquille O’Neal er margt til lista lagt. Hann tók nýlega að sér að leikstýra þætti
einum í þáttaröð Nickelodeon-kapalstöðvarinnar um Skeeter frænda. Hér má sjá Shaquille ræða málin við framleið-
anda þáttanna, Mike Tollin.
Hagstœð kjör
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
afsláttur
af annarri auglýsingunni.
Smáauglýsingar
rss*a
550 5000
aWt mllll hlmir,s
Iförubflar og
Þann 9. september mun 24 síðna aukablað
um vörubfla og vinnuvélar fylgja DV.
Meöal efnis:
Dísilvélar og umhverfiskröfur.
Kynntar ýmsar nýjungar á vörubíla- og
vinnuvélamarkaöinum.
Innflutningur á vinnuvélum. o.fl. o.fl.
vinnuvélar
Umsjón efnis:
Þórhallur Jósepsson í síma
Auglýsendur, athugið!
Síðasti skiladagur augfýsinga er
fimmtudagurinn 3. september
899 0006 og 553 8321
Umsjón auglýsinga hefur Gústaf
Kristinsson í síma 550 5731,
550 5000, fax 550 5727.
*
%