Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998 15 Saltvatnið Með og á móti Er hækkunin á Stöð 2 of mikil? Kjallarinn ildir enda áttum við ekkert tilkall til þeirra. Átti að taka réttinn til útgerðar af þeim sem lagt höfðu af vinnu sinni og hætt fé sínu í útgerð? Hver hefði þá átt að fá réttinn? Ef til vill „þjóðin" sem er gælunafn 63 pólitíkusa á Al- þingi þegar þessi mál ber á góma. Vafalaust þætti sumum þeirra það gott að geta leigt veiðileyfin út ár- lega og notað féð til atkvæðakaupa. Einar Guðfinnsson gæti þá keypt atkvæði hjá sveitar- stjórnarmönnum fyrir vestan og Ágúst Einarsson hjá kennurum. Eins og þeir hafa boðað. Sverrir Hermannsson gæti svo reynt að fella 30 milljarða tekjuskattinn Glúmur Jón Björnsson efnafræðingur Fáum þykir nokkuð athugavert við að ein- staklingar, veiðifélög og aðrir veiðiréttarhafar leigi veiðileyfi í ár og vötn. Flestir landsmenn hafa keypt sér slík leyfi til að renna fyrir fisk í einhverri á eða vatni. Hins vegar ætlar allt um koll að keyra ef veiðileyfi í saltvatnið umhverfis landið eru leigð út eða skipta um eigendur. Það er nefnt kvótabrask og þeir sem taka þátt í því eru upp- nefndir sægreifar. Öf- undin og æsingurinn vegna þess að veiðileyfi í saltvatnið ganga kaup- um og sölum milli ein- staklinga og fyrirtækja eru slík að menn nota jafnvel orð eins og „mesta ranglæti lýðveldissögunn- ar“ svo vitnað sé til leiðaraskrifa eins dagblaðs. Ráðið við þessu ranglæti felst svo víst í nýjum skatti, veiðileyfagjaldi. Það mun að sögn allra meina bót. Veiði- leyfagjaldið virðist vera allsherjarlausn í íslenskri þjóðmálaumræðu um þess- ar mundir. Hverjir áttu tilkall? Það er rétt að eignarrétt- ur á veiðirétti í ár og vötn á sér lengri hefð en eignar- rétturinn á veiðleyfunum í hafinu kringum landið. Það segir okkur hins vegar lítið um hvort rétturinn hafi orð- ið til með skikkanlegri hætti en þegar lög um stjórn fiskveiða voru sett árið 1983 og þeir sem lagt höfðu fé og vinnu í útgerð á . saltvatni fengu varanlegar aflaheimildir í hlutfalli við afla áranna þar á undan. Við hin sem aldrei höfðum migið í saltan sjó fengum „Átti að taka réttinn til útgerðar af þeim sem auðvitað engar veiðiheim- útgerð?" niður með afganginum af 6 millj- örðunum sem hann segir að veiði- leyfaskatturinn myndi skila á ári. Það verður þó að segjast eins og er að þessi hugmynd um að lækka skatta með því að bæta nýjum „Niðurgreiðsla ríkisins á launa- kostnaði útgerðarinnar sem felst í sérstökum skattaafslætti til sjó- manna hlýtur svo að falla niður fyrr en síðar. Engin rök eru fyrir því að skattgreiðendur niður- greiði launakostnað einnar at- vinnugreinar hafrannsókna og nýtt rannsóknar- skip verður byggt fyrir gjald á aflaheimildir. Það er sjálfsagt og eðlilegt að útgerðin beri kostnað- inn vegna hafrannsókna sem eru í hennar þágu. Raunar er spuming ____________ hvort veiðirétt- arhafar eigi ekki að taka við þess- um rannsóknum. Veiðiréttarhafar eiga mestra hagsmuna að gæta. Það er beinn hagur þeirra að auð- lindin sé nýtt á skynsamlegan hátt. Því sterkari sem fiskistofn- amir eru því verðmeiri er kvótinn. Stjórnmálamennimir eru veikari fyrir skammtímahagsmun- um. Þótt núverandi sjávarútvegsráð- herra hafi farið að tillögum fiski- fræðinga um afla gerðu forverar hans það ekki og engin trygging er fyrir því að næstu sjávarútvegsráð- herrar muni sýna sömu ábyrgð og Þorsteinn Páls- son hefur gert. Niðurgreiðsla ríkisins á launakostnaði útgerðarinn- ar sem felst í sérstökum skattaafslætti til sjómanna hlýtur svo að faUa niður fyrr en síðar. Engin rök em fyrir því að skattgreiðendur niðurgreiði launakostnað einnar atvinnugreinar. Út- vegsmenn og sjómenn verða að koma sér saman um hvernig þeir skipta þessum 1500 milljóna kostn- aði á miUi sín. Áðrir skatt- greiðendur eiga ekki að bera hann en sjómannaaf- slátturinn gerir það að verkum að tekjuskattspró- sentan er 1% hærri en ella lagt höfðu af vinnu sinni og hætt fé sínu í (39% í stað 38%). Glúmur Jón Björnsson skatti við hljómar ekkert aUt of vel. Útgerö standi undir kostnaöi Á undanfomum árum hefur út- gerðin tekið á sig kostnað vegna Hver er í hers höndum? - svar til Sigurðar A. Magnússonar Hinn 27. júlí birtist hér í blað- inu grein eftir Sigurð A. Magnús- son um málefni Goethe-stofnunar á íslandi; „7000 bækur í hers höndum". Þar er margt missagt og með því Sigurður er vel gerður maður og ágætur álykta ég að upplýsingar hans hafi verið götóttar og heimildarmenn hans óvandaðir. Örstutt um málsatvik: Goethe- stofnunin hefur verið lögð niður. TU að bæta þann missi í ein- hverju efhi hefur verið afráðið að stofna þýskt menningarsetur, sem sinni frá haustinu sumu af því sem Goethestofnun áður gerði, m.a. verður þar bókasafn stofnun- arinnar. Fmmkvæðið að þessu kom frá þýska utanríkisráðuneyt- inu, Þjóðverjar leggja fram stofn- búnað og rekstrarfé í þrjú ár, Reykjavíkurborg mun leigja setrinu hús- næði en nýstofnað Holl- vinafélag þýska menn- ingarsetursins annast reksturinn. Að þessu mæltu kem ég að athuga- semdum við grein Sig- urðar: Engin haldbær rök Forsaga málsins eins og Sigurður rekur hana er í sumu efni rétt en í öllum aðalatriðum röng, þar af leiðandi verða ályktanir hans af forsögunni flestar rangar. Lengra rými en það sem stendur til boða i DV þyrfti til að leiðrétta hana. Öfúgt við fullyrðingu Sigurðar um að Háskóli íslands eigi enga aðild að Hollvinafélaginu er þýskudeild H.í. aðili að væntanleg- um rekstri menningarsetursins auk Félags þýskukennara. í upp- hafi var einnig gert ráð fyrir aðild félagsins Germaníu en það skipti um skoðun er á átti að herða, af ástæðum sem mér hefur ekki tek- ist að skilja og get því ekki skýrt fyrir öðrum. í samningsdrögum sem gerð eru af þýskri nákvæmni milli stjómar Goethe-stofnunar i Þýskalandi og stjórnar Hollvinafélagsins liggur nákvæmlega fyrir hvað Hollvina- félaginu ber að gera fyrir umsam- inn rekstrarstyrk. Sé það orðað vægilega gefur Sigurður í grein sinni í skyn að fé þetta sé í vond- um höndum og Hollvinafélagið óheilt í ætlun sinni. Sigurður hef- ur enga ástæðu til að ætla þetta, engin haldbær rök til að styðja það með og hefði betur kyrrnt sér samnmgmn sem er ema heimildin um hvemig nota á féð. Hissa og ósammála Sigurður fer með þann misskilning að frum- kvæði Hollvinafélagsins og tilkoma hins fyrirhug- aða menningarseturs muni spilla fyrir því að Goethe-stofnun muni nokkurn tíma hefja starf- semi hérlendis á ný og nefnir pólitískar ástæð- ur. Snúist Þjóðverjum hugur þá mun þeim þykja farsælla, hvort heldur Kohl eða Schröder fara með völd eftir kosningar í Þýska- landi í haust, að styðja þá sem vilja sjálfir eitthvað á sig leggja heldur en hina sem allt vilja þiggja án mót- framlags. Af þeim mörgu sem urðu harmþrungnir, reiðir og bitr- ir út af lokun Goethe-stofnun- ar á sínum tíma er Hollvina- félagið hingað til sá einasti eini innlendi málsaðili sem hefur verið reiðubúinn til þess að kosta einhverju til, leggja eitthvað á sjálfan sig til þess að bæta úr skaðanum. Ég er hissa á og ósammála ljót- um orðum sem Sigurður velur bæði stjóm Hollvinafélagsins og Félagi þýskukennara og vil taka það fram að sú samvinna sem ég hef átt við þessi félög undanfarna mánuði hefur ver- ið ágæt og ég hef ekki minnstu ástæðu til þess að draga heilindi þeirra og heiðar- leika í efa. Sama er að segja um samvinnu við þýska sendiráðið sem hefur fylgst náið með málum og lagt lið hvar- vetna sem unnt var. Sigurður seg- ir bókasafn Goethe-stofnunar „í hers höndum", að það liggi imdir skemmdum í rakri bráðabirgðageymslu og stefni í „söggugt óefni“. Þessar lýs- ingar er jafnvel ekki með besta vilja unnt að afsaka sem ýkjur heldur eru þær hreint kjaftavað. Ég ber of mikla virðingu fyrir réttsýni Sigurðar A. Magnússonar til þess að láta mér detta það í hug að hann hefði skrifað svona grein að vel athuguðu máli og þekkjandi öll þess kurl. Ég reikna með að einhver illa innrættur athyglis- sjúklingur hafi skrökvað að hon- um um málsatvik og vona að hann snupri nú þann kauða eins og hann á skilið. Jón Björnsson „Af þeim mörgu sem urðu harm- þrungnir, reiðir og bitrir út af lok- un Goethe-stofnunar á sínum tím, þá er Hollvinafélagið hingað til sá einasti eini innlendi málsaðili sem hefur verið reiðubúinn til þess að kosta einhverju Kjallarinn Jón Björnsson framkvæmdastjóri menningar-, uppeldis- og félagsmála Reykjavíkurborgar Hækkunin of mikil „Við neytendur erum alltaf á móti því að hlutirnir kosti mikið. Mér fmnst þetta áskriftargjald vera orðið of hátt miðað við áskriftir að lokuðum stöðvum í ná- grannalöndunum. Ég var t.d. að skoða verðlagningu Sky-sjónvarpsstöðvanna um daginn. Ef allur pakkinn er tekinn kostar hann innan við 3.000 krónur en hann inniheldur nokkrar stöðvar, eins og Sky One, sem er svipuð og Stöð 2, þrjár kvik- myndarásir - tvær eru allan sólarhring- inn - Discovery og fleiri. Það að þessi pakki sé ódýrari en áskriftargjaldið að Stöð 2 finnst mér vera dæmi um að þetta sé sennilega dálítið dýrt hjá Stöð 2. íslenska útvarpsfélagið þarf náttúrlega að skila sínum arði. En hvað varðar verðlagninguna má nefna að ef þeir fara svo og svo hátt þá missa þeir svo og svo mikið af áskrifendum. Og þeir fara sjálf- sagt á ýtrustu mörk með það. Þaö sem viö höfum aldrei velt fyrir okkur í sambandi við verðlagningu er hvað þetta kostar á ári. Ef maður er áskrifandi að sjónvarpsstöð, sem maður getur verið án, sem kostar um 4.000 krón- ur á mánuöi þá eru þetta tæpar 50.000 krónur á ári. Þá er spuming hvað fólk þarf að vinna sér inn mikla peninga til að geta verið áskrifandi. Þá þýðir þetta að maður, sem er með þokkalegar tekjur, þarf að vinna sér inn um 70.000-80.000 krónur til að greiða bara fyrir áskriftina að Stöð 2. Það er endalaust hægt að spyrja sig að því hvort þessi hækkun sé of mikil. Pró- sentulega er hún of mikil miðað við verð- lagshækkanir í þjóðfélaginu. Þannig að út frá því sjónarmiði er hún of mikil. í Danmörku var sjónvarpsstöð sem sendi fólki ákveðið peningahylki sem það átti að hengja á sjónvarpstækin og setja sem svarar mn 100 íslenskum krónum þegar það sá efni sem því fannst þess virði að horfa á það. í lok mánaðarins átti það svo að athuga hvort upphæöin dugði fyrir afnotagjaldinu. Það er athug- andi fyrir áskrifendur Stöðvar 2 að koma sér upp svona peningahylki. Sú frelsissvipting er hins vegar algjör- lega óþolandi að vera neyddur til að borga árum saman fyrir sjónvarpsstöð sem mað- ur hefur e.t.v. ekki áhuga á en það er Rík- issjónvarpið. Það er óþolandi að geta ekki valið hvað maður viil af fjölmiðlaefni og greiða fyrir það sem maður vill fá.“ Gerum greinarmun á áskrift allt árið „Þessar breytingar á áskriftargjöldum eiga sér tvenns konar forsendur. Við erum í fyrsta skipti að gera greinarmun á verði til þeirra sem fá áskrift í lausa- sölu og þeirra sem eru í áskrift ailt árið, svonefndra M-12 áskrifenda. Sumir af þeim áskriftarpökk- um sem við bjóðum hækka, s.s. áskrift að Stöð 2 einni sam- an, en aðrir pakkar, t.d. stóri pakkinn með Stöð 2, Sýn og Fjölvarpinu eða Stöð 2 og Sýn saman, lækka. Eftir stendur að M-12 áskrifendur greiði lægri áskrift- argjöld sem nemur gjaldi eins mánaðar á ári. Við erum að umbuna tryggustu viðskiptavinum okkar likt og t.d. DV og Morgunblaðið gera. Við erum líka að mæta verðlagshækk- unum, sérstaklega hækkunum á erlendu dagskrárefhi sem er bundið í Bandaríkja- dollurum. Þaö er óhjákvæmilegt að laga áskriftargjald að breytingum á verölagi, annars hefðum viö ekki getu til að mæta óskum áskrifenda um góða dagskrá og þjónustu. Ef verðbreytingamar hjá Stöð 2 nú eru teknar með í reikninginn hefur áskriftargjaid að Stöð 2 síðustu 5 árin hækkað um samtals 12% til M-12 áskrif- enda en 22% til þeirra sem kaupa í lausa- sölu. Til samanburöar hefur áskrift að fjöl- miðlunum DV og Morgunblaðinu hækkað á síðustu 5 árum um nærri 50%! -SJ Jón Magnússon, varaformaður Neyt- endasamtakanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.