Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998 11 Fréttir ' Fjarfundabúnaður kynntur á ráðstefnu um fjarlækningar: Gæti laðað lækna á landsbyggðina - segir Þorgeir Pálsson, verkfræöingur á Landspítalanum Nú styttist í að kona sem fer í mæðraskoðun á sjúkrahúsinu á Sel- fossi eða á Akureyri geti verið í beinu sambandi við sérfræðinga á kvennadeild Landspítalans. Lifandi | sónarmyndir verða sendar um símalínu og þannig geta læknar lagt mat á myndirnar og talað beint til viðkomandi konu. Þetta er ein af þeim nýjungum sem voru kynntar á ráðstefnu norrænna lækna um fjar- lækningar á Hótel Loftleiðum í gær. Verkefnið er samstarfsverkefni Landspitala og Landssímans en að sögn Þorgeirs Pálssonar, verkfræð- ings á Landspítalanum, verða fjar- lækningar ríkjandi þáttur í heil- brigðisþjónustu á næstu árum. Frá árinu 1992 hefur Sjúkrahús Vest- mannaeyja sent röntgenmyndir um símalínu til Landsspítalans og ný- lega bættust sjúkrahúsin á Sauðár- króki, Stykkishólmi og Neskaupstað við. Fleiri verkefni eru í burðarliðn- um, að sögn Þorgeirs, og meðal þess er tenging heilsugæslustöðvanna á Patreksfirði og Seyðisfirði við Land- spítalann. “Við ætlum að setja upp fjar- fundabúnað þannig að heilsugæslu- læknarnir geti ráðfært sig beint við sérfræðinga á Landspítalanum á meðan sjúklingur er í skoðun. Við erum að vona að þessi tækni verði til þess að bæði auka öryggi og gleði heilsugæslulækna en eins og allir vita þá hefúr gengið erfiðlega að manna stöður víða utan Reykjavík- ur. Þessi búnaður mun auka gæði heilsugæslunnar þvi læknar munu geta sinnt mun fleiri læknisverkum en áður. Þá á þetta vonandi eftir að draga verulega úr ferðum fólks til Reykjavíkur. Sjúklingur sem þarf að fara í aðgerð til Reykjavíkur þarf oft að fara þrjár ferðir. Með fjar- fundabúnaði mætti koma á forskoð- un og eftirskoðun þannig að sjúk- lingurinn þyrfti aðeins að fara eina ferð. Þess verður þó alltaf að gæta að gæði þjónustunnar minnki ekki Þorgeir Pálsson, verkfræðingur á Landspítalanum. DV-mynd S frá sjónarhorni sérfræðingsins. Fjarlækningar verða vafalaust hluti af heilbrigðisþjónustu framtiðarinn- ar enda teljum við að þær geti spar- að þjóðfélaginu talsverða fjármuni þegar til framtíðar er litið,“ segir Þorgeir Pálsson. -aþ ! Allt í blóma á góöu sumri ) ) \ ) ) ) ) ) ) Það hefur verið einstök veður- blíðcm sunnanlands í sumar, þurr- viðrasamt með eindæmum og hlýtt,. Núna síðustu dagana í ágústmánuði er enn sama veðurblíðan og blómin teygja krónur sínar á móti sólu. Jafnt ungir sem gamlir reyna að njóta veðurblíðunar áður en haust- ar að með dimmum nóttum og kald- ari tíð. -NH Gígja Njarðardóttir að skoða hádegisblómin í garðinum heima hjá sér. DV-mynd Njörður Byggðasafnið Skógum: Gestamet slegiö í ár I I I I > ) DVVík: Þórður Tómasson og Sigríður Jónsdóttir í kaffihús- DV-mynd Njörður „Það sem af er ár- inu hafa um 23000 manns heimsótt safnið og ég býst við að heildarfjöldi gesta verði að minnsta kosti 26000 manns,“ sagði Þórð- ur Tómasson, safn- vörður í Skógum. Þórður segir að þetta sé aukning frá þvi í fyrra og þakkar það bæði miklum fjölda ferðamanna á inu. Suðurlandi í sumar og einnig hafi töluverður fjöldi kom- ið að Skógum til að skoða nýju kirkjuna í safninu. í sumar var tekið upp á þeirri nýbreytni að kafíihús var opnað í Byggðasafninu. Því hefur verið vel tekið af gestum enda gott fyrir þá að geta tyllt sér niður yfir kafíibolla meðan verið er að skoða safnið þvi ef fólk ætlar að skoða grannt allt sem í safninu er þarf að ætla sér góðan tíma í það. -NH Svið í Stríðsárasafninu. DV-mynd Þórarinn Stríðsárasafnið Reyðarfirði: Ibúar 300 en hermenn 4000 DV, Eskífirði: „Aðsókn í Stríðsárasafnið á Reyðar- firði hefúr verið mjög góð í sumar þrátt fyrir leiðindaveður á Austur- landi," segir Petra Sif Sigmarsdóttir safnvörður í samtali við DV. Álíka margir hafa sótt safnið í sum- ar og undanfarin ár en ekki lágu fyrir www.visir.is tölur um fjölda gesta. Striðsárasafnið var opnað í júlí 1995 og hefur verið opið á sumrin síðan og notið mikilla vinsælda. Safnið er til húsa á svokölluðum Spítalakambi, rétt ofan við byggðina á Reyðarfiröi, þar sem á stríðsárunum voru reistir braggar sem enn standa . Einnig eru minjar víðar eins og til dæmis byssustæði á nokkrum stöðum. Á Reyðarfirði voru þegar mest var um 4000 fjölþjóðahermenn frá Bret- landi, Noregi, Bandaríkjunum og Kanada en íbúamir í þorpinu voru að- eins 300. Stríðsárasafnið er eina safnið sinnar tegundar hér á landi og alveg þess vert að líta inn á ferð um Austurland. -ÞH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.