Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998 DV erlend myndsjá Hillary Clinton forsetafrú gengur hér ein I þungum þönkum í bakgarði sjónvarpsmannsins Walters Cronkites á eynni Víngarði Mörtu. Þar dvelur forsetafjölskyldan nú í sumarleyfi. Hillary hefur sjálfsagt um nóg að hugsa enda hafa sfðustu vikur og mánuðir verið henni erfiðir vegna margumtalaðs kynferðis- sambands eiginmannsins og lærlingsins Monicu Lewinsky. Dæmdur eiturlyfjafíkill stekkur hér í dauðann frá 10. hæð f byggingu í Hong Kong, með gaskút og hníf. Ffkillinn, 49 ára, var nýlega látinn laus úr fang- elsi. Alvarleg aðfararsýki olli þvf að hann særði tvo meðleigjendur í lítilli íbúð og tók þrjá í gíslingu, hélt að þeir væru útsendarar lögreglunnar. Samn- ingaviðræður lögreglu báru ekki árangur og sá hún á eftir manninum f dauð- ann. Símamyndir Reuters Þessi kona, Kathryn Schoonover, er grunuð um að hafa sent blásýru til fólks í Los Angeles með póstin- um. Viðtakendur héldu að þeir væru að fá venjulegt fæðubótarefni. Alríkisdóm- stóll fjallar nú um mál henn- ar. Starfs- menn stórmarkaðar í Sidney hamast við að raða vatnsflöskum í hillur. Gríðarleg eftir- spurn hefur verið eftir vatni á flöskum í borg- inni eftir að prófanir á kranavatni sýndu of mikið af skaðlegum gerlum í drykkjarvatni. Magn gerla nú var hærra en fyrir mánuði en þá vöktu niðurstöð- ur vatnsveitunnar mikinn heilsufarsótta meðal íbúanna. Compay Segundo, nf- ræður kúbverskur gítarleikari og söngvari af guðs náð, veifar hér til áheyrenda á tónleik- um í Miami í Flórfdaríki. Segundo og margir aðrir kúbverskir tónlist- armenn fengu sérstaka vegabréfsáritun til að sækja tónlistarhátíð þar sem latnesk tónlist er kynnt. Brottfluttir Kúbverjar, búsettir í Flórfda, mótmæltu með látum fyrir utan og varð að gera hlé á tónleikum Segundos vegna sprengjuhótunar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.