Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1998, Blaðsíða 30
34
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1998
Afmæli
Siguroddur Magnússon
Siguroddur Magnússon rafverk-
laki, Brekkugerði 10, Reykjavík, er
áttræður í dag.
Starfsferill
Siguroddur fæddist í Reykjavik
og ólst þar upp. Hann sótti Kvöld-
skóla KFUM í tvo vetur, stundaði
nám við Iðnskólann í Reykjavík,
lærði rafvirkjun hjá Eiríki Hjartar-
syni og lauk sveinsprófi I þeirri
grein 1944.
Siguroddur hefur verið rafverk-
taki frá 1949. Hann hefur starfað
fyrir fjölda viðskiptavina, m.a.
Byggingarfélag verkamanna á árun-
um 1950-71 er lögum um verka-
mannabústaði var breytt.
Siguroddur hefur starfað í ýms-
um félögum og setið í stjórnum
þeirra. Hann sat í stjóm FUJ og var
formaður þess 1945, sat í stjóm Al-
þýðuflokksfélags Reykjavikur, í
stjóm Félags íslenskra rafvirkja
1946- 48 og var formaður þess
1947- 48, sat í stjóm Félags löggiltra
rafverktaka í Reykjavík í nokkur
ár, sat í sveinsprófsnefnd rafvirkja í
fjömtíu og fimm ár og flest árin for-
maður nefndarinnar en lét af störf-
um 1996, var ritari í stjóm Iðnaðar-
mannafélags Reykjavíkur í tuttugu
og fimm ár, til 1997, var fulltrúi Iðn-
aðarmannafélagsins í stjóm Húsfé-
lags iðnaðarins frá 1978 og er nú for-
maður framkvæmdanefndar þess,
sat iðnþing um langt
skeið, var stofnfélagi í
Rafvirkjadeildinni hf.
sem starfaði á Keflavíkur-
flugvelli, sat í stjóm
deildarinnar nærri frá
stofnun og er nú formað-
ur hennar, hefur starfað í
Oddfellowreglunni frá
1962 og sat í stjóm Frí-
kirkjusafnaðarins um
skeið.
Fjölskylda
Kona Sigurodds er
Fanney E. Long, f. 4.7. 1922, kjóla-
meistari. Hún er dóttir Einars P.J.
Long frá Seyðisfirði, f. 15.2. 1879, d.
19.5. 1964, og Sólrúnar Guðmunds-
dóttur frá Jökulsá í Borgarfirði
eystra, f. 11.4. 1887, d. 25.7. 1951.
Böm Sigurodds og Fanneyjar eru
Magnús Georg, f. 1.12. 1941, raf-
magnstæknifræðingur í Kópavogi,
kvæntur Guðrúnu R. Þorvaldsdótt-
ur, f. 1.12. 1941, hjúkrunarfræðingi
en þau eiga þrjár dætur; Einar
Long, f. 2.11. 1944, aðstoðarskóla-
stjóri í Kópavogi, kvæntur Sólveigu
Helgu Jónasdóttur, f. 12.4. 1945,
myndmenntakennara en þau eiga
tvær dætur; Pétur Rúnar, f. 23.10.
1947, húsasmiður í Reykjavík,
kvæntur Guðnýju Margréti Magn-
úsdóttur, f. 22.2. 1948, orgelleikara
en þau eiga tvö börn; Sólrún Ólína,
Siguroddur
Magnússon.
f. 6.9. 1953, fótaaðgerða-
fræðingur í Reykjavík,
gift Halldóri Jónassyni,
f. 28.3. 1948, trésmið, en
hún á þrjá syni frá fyrra
hjónabandi; Bogi Þór, f.
19.11. 1959, rekstrarhag-
fræðingur í Reykjavík og
markaðsstjóri Húsa-
smiðjunnar, kvæntur
Lindu Björk Ólafsdóttur,
f. 9.4. 1966, lyfjafræöingi
hjá Glaxó-Welcome á
ísalndi og eiga þau tvo
syni auk þess sem hann
á son frá fyrra hjóna-
bandi.
Alsystir Sigurodds er Petrína
Margrét, f. 20.5. 1921, húsfrú í
Reykjavík, var gift Boga I. Guð-
mundssyni, f. 18.12. 1917, d. 10.6.
1996, verkstjóra en þau eiga eina
dóttur.
Siguroddur átti tvær hálfsystur
sem báðar em látnar. Þær voru Úlf-
hildur Þorfinnsdóttir, f. 14.3.1911, d.
16.12. 1971 en hún átti tvo syni; Sól-
veig S. Þorfinnsdóttir, f. 21.9. 1912,
d. 15.4. 1974, var gift Kristni Jóns-
syni frá Gunnlaugsstöðum í Borgar-
firði, f. 30.5. 1909, d. 16.6. 1994, en
þau áttu tvo syni og tvær dætur.
Foreldrar Sigurodds vom Magn-
ús Pétursson, f. 14.9. 1891, d. 9.1.
1981, iðnverkamaður, og Pálína
Þorfinnsdóttir, f. 18.4. 1890, d. 19.4.
1977, húsmóðir og verkakona, lengi
í stjórn verkakvennafélagsins
Framsóknar. Þau bjuggu í Reykja-
vík, lengst af á Urðarstíg 10.
Ætt
Magnús var sonur Péturs, b. í
Miödal i Kjós, Ámasonar, b. í Haga-
koti, Árnasonar, b. á Vatnsenda á
Seltjarnamesi, Péturssonar, vefara
á Vatnsenda, Jónssonar, b. á Rauð-
ará, Ólafssonar.
Móðir Magnúsar var Margrét,
dóttir Benjamíns, b. í Miðdal og
Flóakoti, Jónssonar, og k.h., Krist-
ínar Þorkelsdóttur.
Pálína var dóttir Þorfinns, b. í
Þúfúkoti, Jónssonar, b. að Hurðar-
baki, Guðlaugssonar. Móðir Þor-
finns var Guðfinna Gísladóttir.
Móðir Pálínu var Sigríður Páls-
dóttir, b. í Saltvík, Jónssonar, b. í
Norðurkoti á Kjalamesi, Jónssonar.
Móðir Páls var Danhildur Teitsdótt-
ir. Móðir Sigríðar var Valgerður
Gísladóttir, b. á Möðmvöllum, Guð-
mundssonar. Móðir Valgerðar var
Guðleif Björnsdóttir, b. á Fremra-
Hálsi og írafelli, Stefánssonar. Móð-
ir Guðleifar var Úrsúla Jónsdóttir,
ættfóður Fremra-Hálsættarinnar,
Ámasonar.
Siguroddur og Fanney taka á
móti fjölskyldu, vinum og samferða-
mönnum í Oddfellowhúsinu i dag,
27.8., á milli kl. 17.00 og 19.00.
Lukka Elísdóttir
Lukka Þórhildur Elísdóttir,
Sjúkrahúsinu á Seyðisfirði, er ní-
ræð í dag.
Starfsferill
Lukka fæddist í Húsavík í Borg-
arfirði eystra og ólst þar upp. Hún
flutti síðan í húsið Vinaminni á
Seyðisfirði með fjölskyldu sinni en
þar átti hún síðan lengst af heima.
Lukka bjó ætíð í foreldrahúsum
og sinnti þar heimilisstörfum. Eftir
að foreldrar hennar féllu frá hélt
hún heimili með bróður sínum um
skeið en flutti síðan á sjúkrahúsið á
Seyðisfirði þar sem hún dvelur nú.
Fjölskylda
Lukka átti níu systkini, sjö systur
og tvo bræður. Hún á nú eina syst-
ur á lifi, sem er Björg Elísabet Elís-
dóttir, húsmóðir í Reykjavík, ekkja
eftir Óskar Jóhannsson verkamann.
Hin systkini hennar vom Guð-
rún, húsmóðir á Straumi í Hafnar-
firði; Sigríður, húsfreyja í Hækisdal
í Kjós; Þórhildur, dó i bemsku; Þór-
hildur Sigrún, dó í bernsku; Ólafía,
dó ung; Þórdís, dó ung; Gísli, verka-
maður á Seyðisfirði; Óskar Júlíus,
sjómaður í Hafnarfirði; Oddrún,
húsmóðir í Reykjavík.
Foreldrar Lukku voru Elís Guð-
jónsson, bóndi og sjómaður í Húsa-
vík í Borgarfirði eystra, og síðar
verkamaður á Seyðisfirði, og k.h.,
Guðbjörg Gísladóttir húsfreyja.
Lukka dvelur nú á Sjúkrahúsinu
á Seyðisfirði þar sem hún hefur not-
ið góðrar umönnunar og hlýhugs
starfsfólksins.
Fréttir____________________________pv
Silfurstigamót og sumarbridge
Sumarbridge 1998 verður í gangi
í rúmar tvær vikur enn. Síðasta
spilakvöldið verður föstudags-
kvöldið 11. september. Laugardag-
inn 12.september verður haldið
opið silfurstigamót í sveitakeppni.
Spilaðar verða sjö Monrad-umferð-
ir, átta spila leikir. Spilin verða
forgefin.
Dregið verður í happdrætti Sam-
vinnuferða-Landsýnar og Sumar-
bridge í lok mótsins. Þeir sem hafa
unnið eitt eða fleiri kvöld í Sumar-
bridge ættu að vera viðstaddir
dráttinn því að það verður dregið
þar til vinningshafi finnst á staðn-
um. Vinningurinn er Lundúnaferð.
SUMARBRIDGE 1998.
24. ágúst var spilaður Howell-tví-
menningur. Meðalskor var 108 og
þessi pör urðu efst:
1. Eðvarð Hallgrímsson-Valdimar
Sveinsson 141
2. Ólafur Þór Jóhannesson-Guð-
mundur Magnússon 124
3. Árni Hannesson-Baldur Bjart-
marsson 123
4. Dúa Ólafsdóttir-Þórir Leifsson
122
25. ágúst var spilaður mitchell-
tvímenningur með þátttöku 24 para.
Efstu pör (meðalskor 216):
NS
1. Dúa Ólafsdóttir-Þórir Leifsson
263
2. Geirlaug Magnúsdóttir - Torfi
Axelsson 251
3. Páll Þór Bergsson - Július
Snorrason 250
4. Jón Viðar Jónmundsson-Agn-
ar Kristinsson 240
AV
1. Pétur Júlíusson-Randver Ragn-
arsson 271
2. ísak Örn Sigurðsson-Hrólfur
Hjaltason 264
3. Guðmundur Ólafsson-Hallgrím-
ur Rögnvaldsson 240
4. Þorsteinn Berg-Valdimar
Sveinsson 231
Krakkarnir á myndinni eru frá Dansfélaginu Hvönn en þeir héldu til Þýskalands 17. ágúst. sl. í æfinga- og keppnis-
ferö. Þeir taka þátt í einni stærstu danskeppni f Evrópu dagana 25.-29. ágúst, German Open 1998. Hún er núna hald-
in í tólfta sinn og hafa aldrei verið fleiri þátttakendur en alls taka 3300 danspör þátt í henni, frá 11 ára aldri, og koma
þau frá 37 löndum. í efri röð frá vinstri eru þeir Guðni, ísak, Gylfi, Conrad, Oddur, Hannes og Gunnar. í neðri röð frá
vinstri eru þær Helga, Halldóra, Lilja, Kristveig, Ingveldur, Hrund og Bryndís.
DV
Til hamingju
með afmælið
27. ágúst
90 ára
Helga Bæringsdóttir,
Bergstaðastræti 25 B,
Reykjavík.
85 ára
Kristinn Guðjónsson,
Tjamarbraut 17, Hafnarfirði.
75 ára
Hilmir Högnason,
Túngötu 22, Vestmannaeyjum.
Jón Egill Sveinsson,
Egilsstöðum m, Egilsstöðum.
Þorgrímur Eyjólfsson,
Hásteinsvegi 29, Stokkseyri.
70 ára
Ármann Jónsson,
Nýbýlavegi 42, Kópavogi.
Danlel B. Pétursson,
Eyri, Hvammstangahreppi.
60 ára
Davíð Guðnason,
Mosgerði 1, Reykjavík.
Gunnar Sigurðsson,
Langholtsvegi 148, Reykjavík.
50 ára
Anna María Hilmarsdóttir,
Bárugötu 17, Reykjavík.
Emði Norðdahl Ólafsson,
Brekkubæ 8, Reykjavík.
Hanna K. Sigmannsdóttir,
Amarhrauni 8, Hafnarfirði.
Hannes Ragnarsson,
Gljúfraseli 8, Reykjavík.
Kristín Jósefsdóttir,
Ásbjarnarstöðum I,
Kirkjuhvammshreppi. '
Sigríður Karlsdóttir,
Stekkholti 2, Selfossi.
Þórormur Óskarsson,
Búðavegi 39, Fáskrúðsfirði.
40 ára
Aðalheiður Valgeirsdóttir,
Auðarstræti 3, Reykjavík.
Gunnhildur Sveinsdóttir,
Smárahlíð 18 E, Akureyri.
Hrönn Jóhannesdóttir,
Aðalstræti 17, Akureyri.
Hulda Björk Magnúsdóttir,
Hrauntungu 2, Hafiiarfirði.
John Charles Hopkins,
Miðbraut 18, Seltjamamesi.
Magnea Jóhannsdóttir,
Ljósalandi 21, Reykjavík.
Magnús Geir Sigurgeirsson,
Melbæ 16, Reykjavík.
Magnús Þór Haraldsson,
Sogavegi 190, Reykjavík.
Ómar Kjartansson,
Ártúni 13, Sauðárkróki.
Sigurður Ágúst
Guðmundsson,
Löngumýri 6, Garðabæ.
Þórhildur Björnsdóttir,
Höfðastíg 12, Bolungarvík.
og greiðslukorta-
afsláttur og
stighœkkandi
birtingarafsláttur
Smáauglýsingar
550 5000