Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Síða 3
4. september 1998 f ÓkllS m g ö m æ 1 i g f n i Vlðutan af- grelðslufólk á framköllunar- stofum. Þótt það sé voða gaman að vera maður sjálfur og allt það þá verður það nú að segjast að það er miklu skemmtilegra að fá annarra manna myndir úr framköll- un en sínar eigin. Það er svo miklu meira spennandi að glugga inn í líf ann- arra en að sitja fastur í sínu eigin. Opnunln á -30 60+ á Kjarvalsstöðum. Heill her af ungu og efnilegu myndlistar- fólki að sýna innan um nokkra gamla standarda. Svona opnanir eru sætar. Foreldrar ungu listamannanna hafa enn trú á börnunum sínum og mæta allir. Góður staður til að velta fyrir sér erfða- fræðilegum orsökum listhneigðar. Hvers konar fðlk getur af sér myndlistarmenn? Er ég í áhættuhópi? Sound of ffSf f60B SSESWWS ^ the Americ. an Fast Food Restaur- ant. Disk- ur með upptökum frá jafn ágætum stöðum og Kentucky Fried Chicken, Subway, Taco Bell, Burger King og fleirum. Kliður, kjams, skruðningar og allur sá unaðs- legi hljóðskúlptúr sem þessir staðir bjóða upp. Það er fyrirtækið Planet Pimp Records I San Franscisco sem gefur út og eru 140 aðrir sambærilegir diskar á leiðinni; meðal annars einn sem inniheldur upptökur úr ýmsum góð- um klámbókabúðum. En skyndibitadisk- urinn er góður einn og sér, fáið heimsendan mat og skellið diskinum í spilarann, lokið augunum og lifið ykkur inn I hljóðin. Sverrir Hermanns- son. Ekki stjórn- málamaðurinn heldur styttan. Ríkey hefur framlengt sýn- ingu sína í Perlunni um eina viku og því getur fólk enn séð þessa óborganlegu styttu og önnur verk þess- arar stofnun- ar I íslenskri mynd list Hinu svokallaða Hita 98-gengi leiðist ekki á Ibiza. Gengið mynda sex krakkar sem Fókus, FM957 og fleiri sendu suður á bóginn í þeim tilgangi einum að láta þau skemmta sér - og leyfa okkur um leið að fylgjast með. Úr uppátækinu hefur orðið þessi líka fína sápuópera sem birtist jafnóðum í máli og myndum á Visir.is. Aðalhlutverkin að þessu sinni leika Sara og Rikki, parið í hópnum sem er ekki lengur par. Sundur og saman Það gengur ýmislegt á úti á Ibiza núna þar sem Hita 98-gengið er í brjál- uðu stuði. Og stimdum óstuði. Krakk- amir eru orðnir aðálleikarar í ein- hverri rosalegustu sápuóperu sem um getur. Við hér heima fylgjumst með þessu öllu saman á Visir.is og erum löngu búin að taka Strandverði, Ná- granna og aðra hallærislega fram- haldsþætti af dagskrá. Sara, Rikki, Bjössi, Kolla, Svavar og Magga mynda Hita 98-gengið sem Fókus, FM957 og fleiri sendu til Ibiza. Sam- viskusamlega skrá þau allt sem gerist í dagbækurnar sínar og allir geta lesið þær á Visir.is. Þar er hægt að lesa um kelerí og fyllerí, kossa, kynsvall, sólböð, ferða- lög og ja&vel skyggnast inn í dýpstu hugarheima krakkanna. Rikki óþekkur Mest spennandi hefur þó líklega verið ástarsamband tveggja úr hópnum, Rikka og Söru. Amor byrj- aði að skipta sér af strax á öðrum degi ferðarinnar en svo fór eitthvað úrskeiðis í vikunni. Rikki var víst eitthvað óþekkur. „Jæja, það hlaut að koma að því að ástarmálin færu í klessu hérna á Ibiza,“ skrifar Kolla í dagbókina sina. „Rikki var með gellu úr MA og allt fór i háaloft... Sú dama var draumagella einhvers úr MA-hópn- um og það vita allir að Sara og Rikki voru búin að vera að dúlla sér eitthvað." Bjössi lýsir atriðinu svona: „... Rikki og Hugrún voru eftir. Einhver gekk inn á þau þar sem þau voru eitthvað byrjuð að kyss- ast. Nú fór allt í bál og brand ... Ég veit ekki hvað gekk á inni í herbergi hjá þeim í nótt því þegar ég kom þangað inn í morgun voru húsgögnin úti um allt. Jæja, best að henda þessu inn á Netið áður en Rikki nær að rit- skoða þetta.“ Nú er fólk víst byrjað að jafna sig og allir orðnir ofsa- lega góðir vinir. „Hópurinn er orðinn mjög sam- rýmdur og menn eru farnir að pissa með allt opið fram og við erum hætt að vera stressuð yfir því hvernig við lítum út. Þetta svínvirkar," segir Kolla og restin af genginu samsinnir. Kennari sem flengir Þegar Fókus hafði samband við lið- ið um daginn voru þau úrvinda eftir margra daga stanslausa skemmfim. Ætlunin var að flatmaga og hlaða raf- hlöðurnar fyrir kynsvall eitt sem var á dagskrá á einhverjum skemmtistaðn- um. Daginn eftir var svallinu lýst í dagbókunum. „Stelpurnar, sex talsins, voru allar Rikki og Sara byrjuðu saman en eru nú í sundur - í bili að minnsta kosti. klæddar upp í skólabúninga. Kallinn, sem var bara einn, var klæddur eins og kennari í svörtum kufli og með prik sem hann hafði greinilega verið að flengja þær með því þær voru allar rauðar á rassinum ... Ég ætlaði ekki að trúa því þegar þær byrjuðu að draga hina og þessa hluti út úr ónefnd- um stöðum á hver annarri. Þetta voru t.d. heillangt bindi og band með litlum kúlum á. Eftir að allir höfðu lokið sér af stungu þau sér til sunds áður en far- ið var í búningsklefana." Hita 98-genginu leiðist ekki á Ibiza. Þau segja hitann hafa ótrúleg áhrif á menn og ráða sér varla fyrir kæti. ís- land er samt ofarlega í huga þeirra og Kolla biður að heilsa öllum í rækjunni á Húsavík. -ILK Þannig var nú þaö Hver drap líkið? Á fostudaginn síðasta rakst ég á mann sem sagðist ekki vita hvort hann væri geggjaður eða hvort allir aðrir væru geggjaðir. Hann hafði farið á frumsýningu á Sporlaust kvöldið áður. Honum fannst myndin afspymu vond, plottið rakin enda- leysa, tónhstin ömurleg og flest ann- að eftir því. í partíinu á eftir hitti hann engan sama sinnis. Þar voru allir hæstánægðir. Myndin var skemmtileg, hún rann vel og var ágætlega leikin. Niðurstaðan varð sem sagt sú að á fóstudeginum glímdi maðurinn við þessa ævafomu ráðgátu: Er ég geggjaður eða allir hinir? Flestir þeirra sem hafa glímt við þessa gátu hafa á endanum talið sig sjálfa geggjaða. Það er einhvem veg- inn of ótrúlegt að heilu hópamir, heilu þjóðimar, geti misst vitið si- sona. í Þýskalandi Hitlers töldu menn að þeir hlytu að vera eitthvað neikvæðir úr því að þeim einum fannst eitthvað bogið við ríkisum- svifin. Þeir reyndu að temja sér já- kvæðni og segja hæl Hitler eins og hinir. Og þannig hefur þetta alltaf verið og mun alltaf verða. Á einum tíma hrópar múgurinn krossfestið hann, kossfestið hann og öðrum tíma græt- ur hann Díönu prinsessu. Eftir á að hyggja og þegar grannt er skoðað, virðist það vera lögmál að múgur- inn hefur rangt fyrir sér. Fólki finnst það brenglað ef það hefur aðr- ar skoðanir en fjöldinn vegna þess að það notar fjöldann sem viðmið. Þetta er álíka og að mæla vind með vindinn sem núllpunkt. Þá er alltaf logn, himnablíða um allan heim - sem er mjög jákvætt í sjálfu sér. Ég býst við að maðurinn sem ég hitti á föstudaginn sé búinn að jafna sig og sé nú á því að það hafi verið einhver þyngsli í honum þegar hann horfði á Sporlaust. Kannski hefur hann skellt sér aftur á myndina og horft á hana með hugarfari fólksins í partíinu. Og þá hefur hann líklega séð að þetta er ágætis mynd, kannski ekki gallalaus en barasta fín þegar á heildina er litið. Það hjálpar honum því líklega ekki mikið þótt ég segi honum að ég hafi séð Sporlaust á laugardaginn og að ég hafi ekki í langan tíma séð vitlausari mynd. Hann yrði líklega fyrstur til að segja mig geggjaðan. Fólk sem hefur jafn- að sig á einhverri óáran er oftast dómharðara gagnvart þeim sem verða fyrir þvi sama seinna meir. Uppþurkaðar fyllibyttur eru þannig miskunnarlausar gagnvart drykkju- mönnum, menn sem hafa unnið sig upp úr fátækt fyrirlíta blanka, nýút- skrifaðir hafa skömm á ófaglærðum og þar fram eftir götunum. Hvað á að segja um spennumynd þar sem framið er morð en aldrei kemur í ljós hver drap, hvers vegna né hver tengsl morðingjans og hinn- ar myrtu voru? Þetta er svolítið stór skalli í frásögninni. Og til hvers var einhver flugmaður að flytja gim- steina til íslands? Og úr því hann var að asnast til þess, hvers vegna í ósköpunum faldi hann þá í íkon? Er það góður felustaður? Eru íkonar ekki efst á óskalista allra tollvarða, einhvers staðar rétt á eftir heróíni og spægipulsum? Var hin myrta dóttir flugmannsins? Hversu mikið hjálpaði Hraunarinn bófunum? Og hvemig í veröldinni á einhverjum að detta í hug að burðast með lík i ókunnugt hús, búa um það viö hlið- ina á bláókunnugum manni og taka myndir af öllu saman í þeirri von að hægt sé að nota þær til að kúga ein- hverja vitneskju út úr þeim sofandi - það er ef hann býr þá yfir þessari vitneskju? Það er svo sem ekki hægt að skamma menn fyrir að láta sér detta svona vitleysu í hug. Ef þeir vildu hins vegar orða þessar hugsanir við aðra bæri fólki siðferðisleg skylda til að tala um fyrir þeim. En að þessi vitleysa skuli hafa ratað niður á blað, fengið samþykki framleiðenda og styrki úr sjóðum, er í raun ótrú- legra en handritið sjálft. Það er eins og allir hafi dottið í það og vaknað upp með þessa líka steindauðu mynd við hliðina á sér. Ég hef séð það í viðtölum við leik- stjóra og handritshöfund Sporlaust að þeir vilja sannfæra sjálfan sig um að plott séu í raun til óþurftar í bíói. En þeir geta þó ekki omaö sér við að betur hafi tekist til með aðra þætti. Grey leikararnir verða til dæmis að styðja sig við einhverjar óljósar tilvitnanir í útjaskaðar týpur úr öðrum myndum því það er ekki ein einasta persóna í myndinni. Tónlistin er svo gersamlega út úr kú að áhorfendur hrökkva í kút í hvert sinn sem hún heyrist. Samtölin em svo flöt að maður veltir fyrir sér hvers vegna fólkið þegir ekki bara úr því það hefur ekkert að segja. Út- lit myndarinnar, kvikmyndataka, áferð og stíll, veður úr einu í annaö, vill stundum vera smart eins og músikvideó, stundum hallærislegt eins og þriðja flokks sjónvarpsleik- rit og í partísenunni þráir þaö ekk- ert heitar en að renna saman við Morðsögu Reynis Oddssonar. Þannig var nú það. Af tvennu illu myndi ég fremur kjósa að vera geggjaður en þurfa að beygja smekk minn undir Sporlaust. Gunnar Smári Egilsson Hávaðaleikar Stilluppsteypu Grotnandi kæfa og rínguireið í sökkvandi kafbáti 4 Viðtal við keikó „Vér hvalir erum yfirborðs- kenndar skepnur“ Jónas Kristjánsson Deginum bjargað á Primavera Gabríela ræðir við Magnús Engin ástæða til að nöldra Rúnar I Júl er kúl Framtíðarspá Einn tannlæknir á íbúa árið 2004 Grandaddy Drykkjusjúkir afar . . 9 11 Flottustu gæjarnir á Islandi 1243 Hljóðsmiðjan On Earth Tengiliðir himins og jarðar 14 Árni Daníel Júlíusson Evrópa hefur unnið landnámsmennina 19 Glæpir borga t>\ A?S sig í bíó ayját j Vondir P^Limenn W ailtaf ríkarí 1 en góðir 20 Álfar og geimverur Sami grautur í sitthvorri skálinni 21 Magnús ______ Geir í Iðnó if'-if* Etlastu ^kvöld? Hvað er að gerast? Leikhús ..............4 Veitingahús ..........6 Klassík...............7 Popp.................11 Sjónvarp..........14-18 Myndlist.............19 Bíó..................20 Hverjir vorn hvar....22 r-t, Fókus -4- °* fyigir dv á . >‘4 í" föstudögum Forsíðumyndina tók Hilmar af Jóhanni, Jóhannesi og Guðjóni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.