Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Blaðsíða 9
stein, sem enn gefur út ýmsar plötur. Hvaö kom til að hann fór sjálfur að gefa út? „Það var nú bara hreinlega vegna þess að það vildi enginn gefa okkur út. Mönnum fannst það hreinlega of dýrt miðað við hugs- anlega möguleika á að hafa eitt- hvað upp úr því. Böndin þurftu að fljúga til Englands eða Danmerkur til að taka upp því það voru engin alvörustúdíó hér. Þegar maður gef- ur út sjálfur hefur maður valið - og að vísu áhættima og allt það - og þarf ekki að spyrja Steinar eða Jón Bæjó og bíða eftir að þeir segi já eða nei eða hendi efninu í ruslið." Hvaö er fram undan hjá Geim- steini? „Það er verið að mixa „Rokk- stokk '98“ með ungum böndum núna, ég hef alltaf verið svolítið í því að gefa yngri böndum sem koma af Suðurnesjunum séns. Svo verður plata með mér, sem er orð- inn árviss viðburður. Vinnutitil- inn er „Farandskugginn“.“ Hvað helduröu að drífi þig mest áfram í rokkinu, er þaö ánœgja hlustenda eöa eigin ánœgja? „Það er sambland af hvoru tveggja. Það er mjög gefandi að skapa sér umhverfi til að vera skapandi í, það að búa hlutina til og sjá þá verða einhvers virði fyr- ir einhvem, einhvers staðar. Gott lag getur gert dagamun i lífi fólks. Það fylgja því jákvæðir straumar." Hvernig er venjuleg vika í lífi Rúnars Júl? „Mjög athafnarík. Á sunnudag- inn lenti ég eftir spilirí helgarinn- ar og fór að taka upp sökkulinn fyrir nýju plötuna. Á mánudaginn fór ég í kaupstaðarferð að sinna ýmsum erindum, fór í húsvitjanir, hitti Gunna Þórðar út af pródjekti og Bjartmar og Kristján Hreins- son upp á texta. Svo fór ég að byggja á sökkulinn í stúdíóinu. Ég verð að spila á Álafoss fót best um helgina. Ég er bókaður til 2002. Mér finnst gott að hafa þá bókun til að hafa samlíkingu við Kristján Jóhannsson, sem talar alltaf eins og hann sé bókaður fram eftir öllu, en er svo alltaf laus þegar honum býðst að taka að sér forfoll ein- hvers staðar. Ég byrja hvern dag á klukkutíma göngu um sjávarsíð- una í Keflavík og svo pumpa ég í svona hálftíma. Ég hef ánetjast sjávarloftinu og það er gott að byrja hvem dag svona, maður er þokkalega skýr fram eftir degi!“ Ofboðsleaa gaman að spila Hvert er besta gigg sem þú hefur spilaö um dagana? „Þau em mýmörg. Ég hef mjög gaman af því að spila með góðri hljómsveit, í góðu sándi, og þess vegna geri ég það um hverja helgi og er enn að 35 árum síðar. Maður fær oft þessa spumingu: „ertu ekki orðinn leiður á þessu?“ en ég verð það aldrei, eins lengi og það er von til þess að það verði ofboðs- lega gaman að spila. En ég á erfitt með að taka eitt gigg út og segja að sé best því þá myndi ég særa öll hin giggin. En auðvitað, verslun- armannahelgar í gegnum tíðina: Húsafell, Saltvík - ég hef aldrei haft eins mikið út úr einni helgi eins og þá. Svo var gaman að spila í Cavem-klúbbnum, að hita upp fyrir Dr. John í New York og að djamma með Ray Davies í Sig- túni, hann kom þangað á sínu fylliríi eftir að hafa verið að spila héma með Kinks.“ En skrítnasta giggiö? „Stundum hafa þrengslin á svið- inu verið slík að bandið hefúr þurft að spila i einfaldri röð, sex- manna band kannski i beinni línu á ská. Ég hef alltaf þurft svigrúm, sérstaklega á yngri árum þegar ég spriklaði meira vegna þolsins sem ég hafði úr fótboltanum. Þrisvar sinnum hef ég fengið rafmagnsst- uð úr míkrafóninum og fariö í gólfið. Maður hefur verið nálægt einhverju dauðastigi, en giggið heldur áfram og maður kemur fljótlega inn aftur, en heldur sig aðeins frá míkrafóninum. Annars era öll gigg góð nema þau þegar maður hefur ekki náð til fólksins og ekki svitnað við að gera það.“ -glh Allar spár um framtíðina eru bull. Þetta vita allir. Eina leiðin til að láta framtíðarspár líta gáfulega út er að byggja þær á traustum grunni, það er upplýsingum úr fortíðinni. Þannig eru allar þjóðhagsspár og veðurspár, spár um stofnstærðir fiska og starfsmannaþörf fyrirtækja. Gallinn við þessar spár er að framtíðin verður aldrei spegilmynd af fortíðinni. Tíminn líður ekki í beinni línu heldur gusast hann áfram, glutrast niður, stendur í stað eða snýr við á punktinum - stundum að því er virðist allt í sömu andrá. En ef við myndum trúa okkar færustu sérfræðingum þá verður framtíðin eins og sjá má hér á síðunni. Það sem hún ber í skauti sér er það sama og við höfum þegar reynt - ýmist meira eða minna af því sem þegar hefur orðið, allt eftir því hvort það er að minnka eða stækka þessa stundina. Framtíðarspá — samkvæmt hinni heilögu Ifnulegu jöfnu Elnn bfll á mann Fjöldi íbúa á hvem fólksbíl: 1970: 4,5 1990: 2,1 Slöaati farbeglnn hsattur aö nota st Farþegafjöldi SVRáári: 1970:13.385 þúsund manns. 1990: 7.342 þúsund manns. Elnn tannlæknlr á hvem Ibúa Fjöldi ibúa ■kklnn sundkall itsprófl Verð á sígarettupakka: 1988:145 krónur 1998: 360 krónur. Giranra laáiEiBii Hlutfall þeirra sem taka stúdentspróf af árgangi 20 ára: 1960: 9,2 prósent. 1990: 44,7 prósent. Meðalneysla á gosi á mann: 1960: 56 sentílítrar. 1990: 326 sentílítrar. Alllr falendlngar Btrnnra fluttir suöur taiSIMISi WliTmSSla MoðalheeA kdlla orðlnn tvelr metrar ÍNá ■ fel m Meðalhæð karia: 1969:176,3 sentímetrar. 1989:179,4 sentímetrar. gs&fö&ttQH Alter akatttekjur rfltjalns f M grelöe vextl af Iðnur Vaxtagreiðslur sem hlutfall af heildarskatttekjum: 1960: 0,5 prósent. 1990: 8,9 prósent. [búafjöldi höfuðborgarsvæðisins sem hlutfall af íslendingum: 1910:17,6 prósent. 1990: 57,2 prósent. Jarðir I eyði sem hlutfall af öllum jörðum: 1980: 21,7 prósent. 1990: 26,5 prósent. fÖld ánægja! Hringdu og pantaðu 16" pizzu með 5 áleggsteg. fyrir aðeins 1400 kr. 4. september 1998 f ÓkllS 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.