Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Blaðsíða 22
i X JÉ Bergsveinn réttir hér Magnúsi atiö sem hann hafði í forrétt. Á tortellini og djúpsteiktur c< Magnús Geir Þórðarson býr einn. ísskápurinn hjá honum fellur inn í piparsveinaskilgreininguna á ísskáp. Fókus ruddist inn í hann og fékk Bergleif Jonelsson, kokk á Mirabelle, til að matbúa úr innihaldi ísskápsins. ÆJas3íij til að ég bofðT ■ Ef það er eitthvað sem manneskjan hatar þá er það að búa ein, éta ein, sofa ein, vakna ein, tannbursta sig ein og vera ein öllum stundum í illa þrifmni partíkytru. Það sem manneskjan býður sjálfri sér byði hún ekki annarri mannveru. Þegar manneskja býr ein er ekki hægt að ætlast til að hún éti heima hjá sér, eldi ofan í sig sjálf. Það er og verður alltaf hálfkák. Hún kemur sér því upp kerfi við að elda ein. Kerfi sem býður af sér algeran óþokka. Aidrei neitt til í þessum fjandans isskáp. Á góðum þynnkudegi er í mesta lagi hægt að finna staðið flatbrauð, eitt egg frá því Rocky var frumsýnd, fros- ið nautahakk og eitthvað af Gunnars majónesi. Þessi blanda getur orðið að úrvals- samloku fyrir manneskju sem býr ein. Hún trúir því ekki að hún sé í raun og veru mann- eskja og eigi skilið mannsæm- andi máltíð. Hún eldar fyrir sig sjálf og sýður saman eiturkokk- teil. Eitthvað sem springur ofan í klósettið en það skiptir hana engu. Magnús Geir Þórðarson er einstæðingur innan hins rammís- lenska genabanka. Magnús Geir býr einn en er að vísu óaðfinnan- legur snyrtipinni. Og einmitt þess vegna veit Magnús að það er ekki hægt að ætlast til að hann borði heima hjá sér. „Ég reyni yfirleitt Matseðillinn Fordrykkur: 3 cl vodka 3 cl tónik 3 óllfur 1/2 glas mulinn ís Forréttur: Grískt salat: 1 rif hvítlaukur 1/2 rauólaukur 2 stk. tómatar 10 stk. ólífur 60 g fetaostur pestósósa. SneiOiO tómatana niöur og fínsaxiO lauk og hvítlauk. ðllu blandaö saman ásamt ólífum, fetaosti og sósu. að eiga pasta og niðursoðna tómata til vonar og vara,“ segir hann blaðamanni þegar hann opnar ísskápinn í óvenju snýrti- legri piparsveinaíbúð. „Þú veist, ef ég skyldi neyðast til að elda,“ bætir hann við og segist yfirleitt ekki eiga til brauð. Það er djöfulleg blanda í landi þar sem rotvarnarefni í mat eru af alltof skornum skammti. Blaðamanni finnst að í raun ætti að koma upp alþýðueld- húsi fyrir þá sem búa einir. Það er ekki hægt að einstæðingar séu látnir niðurlægja sjálfa sig með því að éta heima. Það verð- ur að koma í veg fyrir sýrða pastarétti með barbíkjúsósu og slettu af ódagsettum kaffirjóma. Blaðamaður man meira að segja eftir að hafa unnið á rafmagnsverkstæði sem gutti. Þar kom inn eldri maður af Vesturgötunni með teketil á milli handanna. Brjálaður yfir því að ketiilinn hefði gefið sig. Hann var svo brjálaður að Þjóðarsálin og aðrar ógnandi hótanir voru fram hafðar ef við kæmum katlinum ekki í lag á stund- inni. Þessi ketill var víst búinn að fylgja honum í ein tuttugu ár og á hverjum morgni hafði maðurinn hitað hafragrautinn sinn í honum. Nema þennan eina suddalega morgun. Þá hafði ketillinn ofhitnað og grauturinn brunnið. Ég vorkenndi þess- um manni og geri enn. Það sem bjargar honum Magnúsi annars er að hann er einn af þessum ofvirku og framkvæmdaglöðu einstæðingum. Nú er hann að leikstýra Rommí eftir D.L. Coolbourn ásamt því að reka Iðnó. Hinn ofvirki Magnús er því lítið heima hjá sér þessa dagana og losnar við að elda einn. Það er helst að hann komist í léttan og næringarríkan kvöldverð hjá móður sinni en annars er það bara Júmbóhamborgarinn eða kokkamir í Iðnó. Alþýðueldhúsið er eitthvað sem koma skal fyrir þá móður- lausu einstæðinga sem ráfa um hálftóma ísskápa! „í dag verður lítið sem ekkert borðað. Frumsýning og því skjálftinn mikill," segir Magnús og ekki er laust við að röddin feÚ í sér kvíða. Ég gef mér að það sé ekki vegna frumsýning- arinnar heldur að nú horfi hann fram á að elda ofan í sig um helgina. Til að dreifa huga Magnúsar frá eldamennskunni spyr blaðamaður hann um hvað leikritið sé. Hann segir mér að þetta sé átakanlegur gamanleikur um tvo eldri einstæðinga á elliheimili. Þeir eru leiknir af Erlingi Gíslasyni og Guð- rúnu Ásmundsdóttur og Skárren ekkert sér um tónlistina. En þessir einstæðingar, sem eflaust hafa eldað ofan í sig sjálfir gegnum tíðina, hittast á elliheimilinu og fara að spila rommí. Eitt leiðir af öðru og annað af hinu og Magnús hendist út úr ísskápnum. -MT Hvað getur almennilegur kokkur gert úr ísskápnum hans Magnúsar Geirs? Þríréttuð máltíð, gjörðu svo vel Þótt piparsveinar og aðrir einstæðingar geti staðið á gati frammi fyrir ísskápum fullum af hálftómum krukkum og flöskum, þá getur almennileg- ur kokkur séð í þessu hráefni að ágætis kvöldmáltíð. Berg- leifur Jonelsson er yfirkokk- ur á Mirabelle og hann átti í litlum vandræðum með að galdra þriggja rétta máltíð út úr isskápnum hjá Magnúsi Geir. í forrétt hafði hann grískt salat, í aðalrétt var tor- tellini með ostasósu og í eftir- rétt djúpsteiktur camembert. Og til þess að nýta ágætar vín- birgðir ísskápsins bauð Berg- leifur upp á fordrykk, eins konar stuttan gin og tónik með ólífum. Þessi matseðill er ef til vill ekki dæmigerður fyrir matseld Bergleifs á Mirabelle. Þar svífur franskur andi yfir diskum, ekki sá sem Skúli Hansen og fleiri innleiddu hér á uppaárunum, heldur svolítið viútari og grófari. Og umfram allt eru skammtamir stærri en í tíð hreintrúa fransk-eldhússsinna. En þótt Bergleifur sé djarfúr þá hefur hann sjálfsvirðingu. Hann lét pulsumar í ísskápnum hans Magnúsar vera. Magnús getur því borðað þær í hádeginu á morgun með sinnepinu sínu og barbeque-sósunni. af hvítlauk og pressiö út í smjöriö. Smyijiö tvær brauösneiöar og grilliö í ofni. Eftlrréttur: 1/2 camembert 3 brauðsneiðar mjólk hveiti olía sulta Ristiö brauöiö í ofni og myljiö þaö í matvinnsluvél. Sneiöiö camembert í þijá hluta og veltiö upp úr hveiti, mjólk og brauömylsnunni. Djúpsteikiö í litl- um potti. Boriö fram meö sultu. Geir Þórðarson, leikstjórl Rommís, segist ekki elda oft heima hjá sér þessa dagana. Það er í honum klassískur frumsýningarskjálfti. Aöalréttur: 1 rif af hvítlauk 50 g smjör 1 dl mjólk 100 g paprikuostur 100 g tortellini hvltlauksbrauð paprikuduft, salt og pipar 50 g smjör Forsjóöiö torteliini í saltvatni. Sigtiö og brúniö sveppina og kryddiö meö paprikudufti. Helliö mjólk út í og hrær- ið þar til suöan kemur upp. Bræöiö paprikuost út í og helliö þessu yfír tor- telliniiö. Hvítlauksbrauö: Takiö eitt ríf fe. fk Á Astro var frönsk stemn- ing síðasta föstudags- kvöld þar sem hUlunni var svipt af nýjum Renault Clio. Þarvoru ýmsir menn, meðal annars kvikmynda- gerðarmaðurinn Jonni og Björn hr. Norburlönd en hann var með einhverju út- lensku goði, umkringdur fögrum fljóðum. Á laugar- dagskvöld var fótboltaliðið I Garðabæ áberandi á staðnum með Valdimar Kristófersson, Rúnar Sigmundsson og Ragn- ar Gíslason I broddi fylkingar. Þar var lika Hrafnhlldur Hafsteinsdóttlr, fyrrverandi feg- urðardrottning, Blrta og Anna Playboy-drottn- ingar, Svavar klipparakrútt, Anna BJörk Blrgls- dóttlr, fvar Guðmunds og fleiri fjölmiölarisar. Oddur og Arl sáust á staðnum, sem og 0111 og Slggi Bolli. Þá kíkti Slmbl klippari llka inn ásamt vinkonum sínum. Nýrbarvaropnaður á Einari Ben, Rauði barinn, og þar var margt góðra manna. Hár- greiðslufrömuður- inn Arnar, sem nú er kenndur við Fudge, Maggl Rlkk, Slssó og Stjánl þeyttust um á meðal fólks og sáu til þess að engan skorti neitt. Á Sóloni þetta sama kvöld sat Guðlaugur Þór Þórðarson, Björn I Rton, Bryndís Hólm og fleira gott fólk. Kvöldið eftir mátti sjá á staðnum eina stjörnuna úr myndinni Sporlaust, Þrúðl Vilhjálmsdótt- ur, I góðra vina hópi, Döllu Ólafsdóttur og Elnar Baldvln Árnason sem var óeölilega fjörugur I sínum góðra vina hópi. Hilmar. Huldar Breiðfjörð var llka mættur þangað, nýkominn til landsins. Það var llka ofsamikið fjör á Skuggabar um helgina. Þar sást Tómas X Hard Rokk stíga villtan dans og taka skrykkspor. Klara, versl- unarstjóri Sklfunnar, var þar llka ásamt hinum búðarstelpunum og ÍA-mennirnir Alexander Högna og Helmlr Guðjóns helltu I sig dræ appel- sínusafa eins og sönnum Iþrótta- mönnum sæmir. Jón Kárl hjá Rug- leiðum var um- kringdur glæsileg- um dömum og Sigurstelnn Más- son mætti létt- klæddur og var I miklu stuði. Verðbréfaguttarnir hittast oft á Kaffibrennslunni seinni part föstudags og slðast mátti sjá þar Kaupþingsgæj- ana Per Henje, Jóhann ívars- son og Stelngrim P. Kárason sem og Helgu Hlín Hákonar- dóttur, lögfræðing Verðbréfa- þings Islands og megabeib. Þar var líka Ásgelr Friðgelrsson, höfuðpaurinn á Visi.js og Árnl Hauks- son, fjármálastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar. Sá sem var I mestu stuði þennan föstu- dag var þó lllklega Oddur Þórðarson frá Búnaðarbankanum. Frlðrik Þór, Baltasar, Hllm- ar Örn og Ingv- ar Þórðar voru allir á Kaffibarn- um á föstu- dagskvöldið. Þeir voru allir I smóking, nema Á Vegamótum var væg- ast sagt brjálað stuð um helgina, hverfið kvartaöi og löggan skipti sér af og allt. Þaö voru plötusnúðarn- ir Þossi, Andrés og Am- ar sem trylltu lýðinn svona rosalega. meira á. wwwvisirJs f Ó k U S 4. september 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.