Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1998, Blaðsíða 15
t æ k i ö
Að baki honum standa útspekúleraðir drengir
í andlegum fræðum og skreyta umslagið
sitt með Kókópelli indíánaguði
himins og jarðar
Marteinn Bjarnar og Sigurður
Baldursson eru On Earth og ný-
lega kom út diskurinn „Magical
Dust“. Þar sem ég vissi ekkert um
tónsköpun tvímenningana þurfti ég
að fá algjöra byrjendafræðslu frá
þeim.
„Þetta er ekki beint hljómsveit,"
segir Marteinn, dularfullur á svip.
„Við vorum hvor í sínu homi að
vinna að okkar hugarefnum," tekur
Sigurður við, „og við höfðum svip-
aðar lífsskoðanir og smekk á mús-
ík. En við emm ekki hljómsveit,
heldur hljóðsmiðja, hljóðiðnaðar-
menn. Við erum ekki músíkantar,
heldur eram við sjálfir músíkin.
Skilurðu?"
Uuu, nei. Hvernig er þá músíkin?
„Okkur langaði að prófa að
blanda saman elektrónískum hljóð-
færum og akkústík og fengum Dan
Cassidy til að spila með. Þetta fór
út í sígaunamúsík og svona Far-
East keim á köflum. Hann mátti
hafa sig allan við að skreyta tónlist-
ina með fiðlunni sinni og gerði það
mjög vel, kom sjálfum sér á óvart,
því hann hefur ekki ögrað sjálfum
sér svona áður. Hans skilningur á
tónlistinni var að þetta væri teknó-
músík, en þetta er það nú varla,
kannski mjög soft teknó, en útkom-
an var meistarastykki og kom okk-
ur öllum mikið á óvart. Þetta voru
gömul lög sem við áttum í poka-
hominu og dustuðum rykið af og
útkoman var Magical Dust, töfr-
andi ryk!“
Mynduói segja að þið spiluðuó
dansmúsik?
„Já, líka. Það er hægt að sleppa
sér yfir henni, en líka t.d. hægt að
borða góðan mat. Það koma grodda-
kaflar inn á milli en á heildina lit-
ið er þetta mjög heppileg plata fyr-
ir kafilhús, rómantísk á köflum og
jafnvel erótísk."
Nú er platan instrúmental. Var
aldrei pælingin að fá söngvara í
púkkió?
„Hvorki ég né Siggi syngjum
nokkuð að ráði,“ segir Marteinn.
„Við fórum aðeins á stúfana að
leita að fólki sem gæti sungið með
okkur, en það var bara svo mikil
vinna og ekki fólk á hverju strái
sem hefði hæft þessu.“
Platan kom út í sumar og Mart-
einn og Sigurður segja að túristam-
ir hafi verið duglegir að kaupa
hana. „Það er mikið af íslenskum
anda I plötunni, krafti, en aftur á
móti gætir ýmissa áhrifa, þetta er
mjög alþjóðleg plata.“
Eitthvaö í líkingu viö Deep Forest
og Enigma kannski?
„Ég segi það nú ekki, þetta er
ekki svo sensúalt, þó þetta sé róm-
antískt á köflum. Það var allavega
ekki meiningin að gera plötu í stíl
við þessi bönd og platan er beint úr
kúnni, við reynum ekki að stílsetja
hana neitt," segir Marteinn.
Sigurður kemur sterkur inn:
„Það má segja að það sem ég átti
hrærðist saman við það sem hann
átti og flðlan tengir þetta allt sam-
an í eina heild. Stemningin er svip-
uð út I gegn; tregablandin,
dansvæn og pínu súrrealismi inn á
milli."
Og nú er platan koma út og kynn-
ingarherferóin yfirvofandi?
„Já, nú er best að taka á honum
stóra sínum. Við ætlum að kynna
þetta, þó við leggjum meiri áherslu
á að gera tónlist heldur en að
stunda kynningarstarfsemi. Það er
hægt að kynna á svo fjölþættan hátt
nú til dags, t.d. á Netinu og í öðrum
fjölmiðlum, en að fara on ðe ród á
kannski ekki alveg við okkur. Ætli
það fari okkur ekki best að setja
skinntrommurnar á herðarnar,
kveikja eld nið'rí fjöru og berja
bumbur þar. Það er seiðurinn sem
við höllumst að. Það má eiginlega
segja að Kókópelli þama utan á
plötuumslaginu sé eins konar
senúall seiður."
Ha?
„Þessi persóna er úr indíánamít-
unni. Ein túlkunin á Kókópelli er
að hann var farandsölumaður sem
fór á milli byggða og seldi vörar.
Síðan var hann með töfraflautuna
sína og sprautaði sæði yfir konur í
þorpunum, frjóvgaði þær með sínu
heilaga sæði. Það má eiginlega líta
á plötuna okkur sem eins konar
frjósemistákn án þess að við séum
að sprauta sæði yfir hlustendur."
Jœja, það er nú gott. Hvernig
gengur aó sprau.., selja?
„Vel, það er alls kyns fólk sem
hefur gaman af þessu. Við settum
upp fund á Hótel Borg þegar disk-
urinn kom út og á næsta borði voru
þrjár ungar meyjar á sjötugsaldri -
þrjár hefðarfrúr - sem ráku augun
í diskinn og urðu okkar fyrstu
kúnnar. Við vorum bara með tvö
eintök á okkur svo við getum sagt
að ffá fyrsta degi höfum við ekki
annað eftirspum."
Hvað með þetta nafn, „On Earth",
hvað þýðir það?
„Seiður, eldur, himinn og jörð,
þetta era elementin sem við hríf-
umst af og tjáum á plötunni. Það
eru samskipti í sifellu milli himins
og jarðar og maður er sjálfur
tengiliðurinn. Við tökum loft-elem-
entið til jarðar og tjáum það á jörð-
inni, þess vegna köllum við þetta
On Earth, hér erum við, hvort sem
okkur líkar betur eða verr.“
Þiö eruó svona miklir hippar í
ykkur?
„Nei, nei!“, segja þeir í sannfær-
andi kór. „Við erum miklu fremur
anarkistar. Við látum ekki vel aö
stjórn og það gefúr okkur ákveðið
frelsi. Við erum bara við sjálfir,
eins slæmir eða góðir og við getum
orðið. Það er stefnan í dag. Trúaður
og trúleysingi á sama tíma.“
Þió talió í gátum. Þió trúió
kannski á stjörnuspeki líka?
„Nei... en við trúum á speki."
-glh
Aldrei aftur
slæmar myndir
Þau eru ófá tonnin af filmu sem árlega fara
í það aó taka slæmar Ijósmyndir. Trúlega eru
vel riflega 99% allra Ijósmynda sem teknar eru
og framkallaöar í heiminum ruslatunnumatur.
Jafnvel þokkalega liótækir Ijósmyndarar fá oft
ekki nema örfáar nothæfar myndir af hverri
filmu. Ljósmyndun er fremur dýrt tóm-
stundagaman. Filma kostar 5-600 kr. og
framköllun og stækkun hátt í 2000 kr. Oft eru
ekki nema nokkrar verulega skemmtilegar
myndir á hverri filmu og stór hluti myndanna
mistök.
Tæki vikunnar er Kodak DC 200 stafræn
myndavél. Hún lítur aö framan út eins og hver
önnur ömmumyndavél, meö on/off-takka og
takka til að smella af. Ekkert flókiö eða tækni-
legt. Þegar vélinni er snúiö viö sér maður hins
vegar tækniundrið: Þar er tölvuskjár sem sýn-
ir myndina sem maöur er nýbúinn aö taka.
Neöst í vinstra horni myndarinnar er táknmynd
ruslatunnu og ef maöur ýtir á hnappinn fyrir
neðan ruslatunnuna þarf maður ekki aö hafa
frekari áhyggjur af mistökunum. Engin filma er
í vélinni. DC 200 skráir myndirnar á tölvukubb
og svo eru myndirnar teknar beint inn í heim-
ilistölvu og ýmist prentaðar út heima, sendar
Kodak á diski eöa á Internetinu og prentaðar
þar, eða bara geymdar í tölvunni og skoðaöar
á skjánum. Hægt er aö fá myndirnar prentað-
ar út í fullum Ijósmyndagæöum. Meö Kodak
DC 200 fylgir 4 Mb kort sem tekur eitthvað
yfir 20 myndir í fullum gæöum, en Fókus próf-
aði líka 32 Mb kort sem getur tekið vel yfir
100 myndir í fulium gæðum. Gæöi myndanna
eru aö nálgast það aö vera sambærileg viö
myndir teknar á 35 mm filmu. Fyrir allar venju-
legar myndirtil heimilisbrúks ættu gæöin sem
vélin skilar aö nægja.
Stærsti kosturinn við Kodak DC 200 er
náttúrlega sá að núna hendir maður vondum
myndum strax og geymir bara þessar góðu.
Hjá Hans Petersen er einnig til DC 210 sem
hefur ágæta zoomlinsu en væntanleg er frá
Kodak DC 260 sem býöur upp á zoomlinsu og
þann möguleika að taka upp tíu sekúndna
hljóðbút meö hverri mynd. Svona til aö minna
á stemninguna sem fýlgir myndinni.
-KPJ
bíllinn...ferðalagið...fjallahjólið...hljómtækin...tölvan...og allt hitt...tryggðu þitt hjá TM