Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1998, Blaðsíða 26
LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998
» ‘ #jgt fólk
** *-----
Kind verður appelsína
Ein aðalpersónan er Eva appel-
sína sem leikin er af Sjöfn Everts-
dóttur sem er nýútskrifuð úr Leik-
listarskóla íslands. Leiklistaráhugi
hennar nær ekki aftur í frum-
bernsku en þó minnist hún þess að
hafa leikið kind í jólaleikriti í bama-
skóla. Nú er hún orðin appelsína!
Sjöfn finnst mjög gaman að leika
fyrir börn.
„Börn eru afskaplega kröfuharðir
áhorfendur en jafnframt góðir og
þakklátir áhorfendur. Það er
skemmtilegt að leika fyrir þau,“ seg-
ir Sjöfn.
Þegar hún var á þriðja ári í Leik-
listarskólanum tók hún þátt í upp-
færslu á Rómeó og Júlíu fyrir börn
og hún segir að það hafi verið mjög
gaman.
„Þegar við byrjuðum á því vorum
við spurð hvort við værum brjáluð
að setja upp barnasýningu þar sem
aðalpersónurnar svipta sig lífi. En
við megum ekki vanmeta börn sem
áhorfendur. Þau upplifðu söguna
mjög sterkt og lítill frændi minn
hafði aldrei orðiö fyrir jafnmiklum
áhrifum. Böm skynja og skilja oftast
meira en maður heldur."
Af ávöxtunum skuluð þið
þekkja þá
„Mæja jarðarber er lögð í einelti
vegna þess að hún er lítil og rauð,
minnimáttar jarðarber. Gulrótin
lendir í ávaxtakörfunni og sættir sig
ekki við stéttaskiptinguna í körfunni
og gerir uppreisn með hjálp Mæju.
Eva appelsína er ákaflega fln og er
alltaf að punta sig og púðra og hefur
mikinn áhuga á útlitinu. Það sem
hún hræðist mest er að einhver
myndi leggja hana í einelti og segja
að hún væri ljót. Hún ákveður því að
gera uppreisn með gulrótinni og
jarðarberinu og er fyrsti ávöxturinn
sem þær vinna yfir á sitt band. Þær
sýna henni fram á að gulrótin er
með sama lit og Eva og henni líst
engan veginn á að verða sögð ljót á
litinn. Ég held að Eva haldi að hún
hafi veriö Marilyn Monroe í fyrra
lífi en hafi endurfæðst sem appel-
sina.“
Ákveðin forvitni
Sjöfn segist hafa fundið sig mjög
vel í leiklistinni og hana langi til að
starfa í greininni til æviloka. En af
hverju leiklist?
„Þetta er eins og með aðrar listir.
Sköpunarþörfin er svo rik. Maður er
að skapa karaktera og er alltaf að
prófa eitthvað nýtt. Ég hef til dæmis
leikið fóstru, hefðarkonu og nú app-
elsínu! Ég get ekki málað en þetta
get ég og hef gaman af því. Það er
svo gaman að skoða hvað er bak við
hverja persónu þvi að það hafa allir
margar hliöar. Þetta er ákveðin for-
vitni.“
„Börn eru afskaplega kröfuharðir áhorfendur en jafnframt góðir og þakklátir áhorfendur. Það er skemmtilegt að leika
fyrir þau,“ segir Sjöfn. DV-mynd BG
morgun verður Avaxta-
karfan, söngleikur fyrir
ILbörn, frumsýnd í íslensku
óperunni. Um er að ræða nýtt ís-
lenskt verk, sprellfjörugt og
skemmtilegt, með fallegum og
mikilvægum boðskap. Verkið
fjallar um einelti og fordóma og
hversu fáránlegt það er að gera
upp á milli fólks vegna útlits og
litarafts. Fólk ætti því að geta átt
góða stund í Óperunni og fengið
þarfan boðskap í kaupbæti.
Leikurinn gerist í ávaxtakörfu
og lýsir samfélagi ávaxtanna,
hvemig jarðarberið er lagt í ein-
elti og þá kúvendingu sem verð-
ur þegar gulrót lendir fyrir mis-
tök í ávaxtakörfunni en ekki í
grænmetisgeymslunni. Eins og
skiljanlegt er hefur koma gulrót-
arinnar mikil áhrif á samfélags-
gerðina.
Laugavefurinn
- www.laugavegur.is
Laugavefur er þjónustuvefur
verslana á Laugavegi. Vefurinn er
opnaður í dag og nú þegar er um
helmingur fyrirtækja á Laugavegi á
vefnum og er búist við því að þau
verði fleiri. Á vefnum er að finna yf-
irlitskort yfir Laugaveginn og þjón-
ustufyrirtæki þar og þá þjónustu
sem þau veita. Hægt er að
leita að vörutegimdum og
vörumerkjum og einnig
verður sérstök tilboðssiða
þar sem tilboð fyrirtækj-
anna til vefgesta verða
kynnt. Til að byrja með
verður ekki hægt að kaupa
vörur í gegnum vefinn.
Að vefnum standa ungir
menn og ungt fyrirtæki -
Hjálp hugmyndabanki. Eig-
endur fyrirtækisins eru Davíö
Guðjónsson, Eggert Þór Aðalsteins-
son, Magnús Þór Torfason, Þórður
Þórarinsson og Þórlindur Kjartans-
son.
„Halldór Benjamín Þorbergsson,
sem vinnur hjá okkur sem forritari,
fékk þessa hugmynd og síðan var
hugað hvemig fyrirtæki
stemmd fyrir framtakinu
undirtektimar
vora strax mjög
góðar. Það gekk mjög fljótt að fá
verslanir til að vera með og við höf-
um notið velvilja allra verslananna
og Miðbæjarsamtakanna sömuleið-
is,“ segir Þórlindur
Kjartansson um til-
drög verkefnisins.
er
að stækka
í miðbæjar-
Hér eru tveir hönnuða vefjarins sem þykir einkar vel
unninn. DV-mynd ÞÖK
Vinnan við vef-
inn byrjaði í júlí
en mesta vinnan
var í ágústmán-
uði og allan sól-
arhringinn
undanfarið.
Átta starfs-
menn em hjá
fyrirtækinu
en þeir hafa
ekki veriö allir
bundnir við þetta
verkefni. Hönnuð-
imir Bjarki Hólm, Halldór Benja-
mín Þorbergsson og Ólafur Gauti
Guðmundsson eiga mestan heiður-
inn af vefnum og hafa þeir fengið
mikið lof fyrir vinnu sína frá mönn-
um sem starfa við vefmn. -sm
|... í prófi
Dofri í
Sporlaust
Fullt nafn: Dofri Hermanns-
son.
Fæðingardagur og ár: 25.
september 1969.
Maki: Amdis Steinþórsdóttir.
Börn: Katrin, 6 ára.
Starf: Leikari.
Skemmtilegast: Að vera á
hestbaki eða i veiðitúr með
góðum vinum.
Leiðinlegast: Fýlupokar.
Uppáhaldsmatur: Grillaður
höfrungur.
Uppáhaldsdrykkur: Sóda-
vatn.
Fallegasta manneskjan (fyr-
ir utan maka); Mamma.
Fallegasta röddin: Rödd
freistinganna.
Uppáhaldslíkamshluti: Nef-
ið.
Hlynnt(ur) eða andvíg(ur)
ríkistjóminni: Andvígur.
Með hvaða teiknimyndaper-
sónu myndir þú vilja eyða
nótt: Viggó viðutan.
Uppáhaldsleikari: Þráinn
Karlsson.
Uppáhaldstónlistarmaður:
Guðni Franzson.
Sætasti stjórnmálamaður-
inn: Ingibjörg Pálmadóttir
þegar hún skrökvar.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur:
Löggan á Sámsey.
Leiðinlegasta auglýsingin:
Man ekki leiðinlegar aug-
lýsingar.
Leiðinlegasta kvikmyndin:
Heilinn þurkar út vondar
minningar.
Sætasti sjónvarpsmaðurinn:
Góð spuming. Næsta.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Þessi þarna með hreina loft-
inu þar sem músíkin er alveg
mátuleg, enginn þarf að troð-
ast og allir geta talað saman.
Hvað heitir hann aftur?
Besta „pikköpp" línan:
Flottir skór! Viltu ...?
Hvað ætlar þú að verða
þegar þú verður stór: Lítill
aftur. Less is more.
Eitthvað að lokum? Nei,
takk. Jú annars, mig langar
að óska Frey frænda hjartan-
lega til hamingju með þrítugs-
afmælið.