Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1998, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998
7
Unglömbin
í Reykjavík hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn á að skipa mörgum efhi-
legum mönnum af yngri kynslóð-
inni sem koma til greina við upp-
stiliingu á framboðs-
listann fyrir þing-
kosningamar í vor.
Þeir sem oftast eru
nefhdir eru þau
Hanna Bima Sig-
fúsdóttir, sem
þykir hafa staðið
sig með prýði sem
framkvæmda-
sfjóri þingflokks-
ins, og einnig Birgir Ár-
mannsson. Hann var inspector
scholae eins og Davíð Oddsson og
Geir H. Haarde, vinnur nú hjá
Verslunarráði og er sagður orðinn
leiður á því að vera bara efnilegur.
Nýjasta nafnið úr röðum yngri
manna er Orri Hauksson aðstoðar-
maður Daviðs. Fyrir utan að vera
ungur og frambærilegur er hann
einn fárra hugmyndafræðinga af
ungu kynslóðinni og hefur það sér
til ágætis að hafa andmælt best hug-
myndum vinstri manna um veiði-
leyfagjald...
Ritstjóri á þing
í Norðurlandskjördæmi eystra
velta vinstri menn fyrir sér hvaða
frambjóðendur yrðu
sterkastir gegn árás-
um Steingríms J.
Sigfússonar sem á
þar höfuðvígi sitt.
Nafti Sigriðar Stef-
ánsdóttur, sem er
vinsæll fyrrverandi
bæjarfúlltrúi Al-
þýðubandalagsins,
er oftast nefnt, auk
Svanfriðar Jónasdóttur af Dalvík
sem nýtur þess að vera sitjandi þing-
maður en hún var upphaflega i Þjóð-
vaka. Nú tala menn um að nauðsyn-
legt sé að sterkur karlmaður verði í
öðru sæti. Nafii ritstjóra Tímans,
Stefáns Jóns Hafstein, er æ oftar er
nefnt í því sambandi...
Sunnudagslæri Kolbrúnar
í vetur mun Jón Viðar Jónsson
snúa til baka úr útlegðinni sem Sig-
urður Valgeirsson,
dagskrárstjóri Sjón-
varpsins, sendi hann i
eftir að Jón Viðar var
búinn að úthúða leik-
listarelítunni. Sömu-
leiðis mun Ámi
Þórarinsson aftur
taka upp þráðinn í
kvikmyndagagn-
rýni. Annarri stór-
stjömu Dagsljóss gamla, Kolbrúnu
Bergþórsdóttur, blaðamanni á
Degi, var boðið að halda áfram með
bókmenntarýni sína en mun hafa
ákveðið að hvila sig í einn vetur eða
svo. Hún er hins vegar ekki horfin
af öldum ljósvakans því í vetur mun
hún halda úti þætti með fjöl-
miðlarýni DV, Auði Haralds rithöf-
undi, í Ríkisútvarpinu. Þáttur
þeirra mun heita því tviræða nafhi
Sunnudagslærið...
Katrín á glámbekkinn
Athygli vakti þegar Davið Odds-
son heimtaði að gert yrði opinbert
hveijir stjómarmanna Læknafé-
lagsins hefðu staðið að ályktuninni
þar sem honum vora
veittar harðar ákúr-
ur fyrir ummæli sín
um glámbekk stétt-
arinnar. Ástæðan
er sögð vera að
hann vildi draga
fram gagnvart
flokksmönnum
að meðal þeirra
sem stóðu að árásinni
hann var varaþingmaður Sjálfstæð-
isflokksins Katrín Fjeldsted. Eftir
brottfor Friðriks Sophussonar af
þingi gerði Katrín sér eðlilega vonir
um að komast í öruggt sæti á listan-
um. Eftir að hafa leitt hlut hennar
að ályktiminni fram verður auð-
veldara fyrir Davíð að sjá til þess að
hún verði sniðgengin. Nú þegar er
kominn kandidat I sæti Friðriks,
hinn gamalreyndi borgarfulitrúi
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson...
Umsjón: Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkom @ff. is
íþróttaskór
-margar gerðir
Lavamat W 80
frabæ
OÐ
Tekur 5 kg • Vmdingarhraði: 800 400 snúningar
Ryöfnr belgur og tromla • Sjálfvirkt magnskynjunarkerfi - nyjasta tækni.
Fuzzy- Logic" enginn 1/2 takki • „ÖKO‘‘ kerfi (sparar sápu) • Öll þvottakerfi
Ullar vagga • Þvottahæfni „B" þeytivinduafköst „C“
kr. 49.900 stgr.
BRÆÐU RNIR
OKMSSONHF
Lágmúla 8 • Sími 5332800
Fréttir
Júlíus Arnarson, formaður íþróttafélags fatlaðra, ræsti Eurogoals, nýjasta leik
íslenskra getrauna í fyrradag ásamt Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra. Sig-
urður Baldursson, framkvæmdastjóri íslenskra getrauna, fylgist með. Leikurinn
er í samstarfi við getraunafyrirtæki í Danmörku og Svíþjóð. DV-mynd E.J.
Jón L. Arnalds um einkaleyfi vegna gagnagrunns á heilbrigðissviði:
Einkaleyfi til söfnunar
upplýsinga er sérmál
- gagnagrunnar sem slíkir njóta höfundarréttar
„Islensk erfðagreinmg fær sérleyfi
til að safria heilsufarsupplýsingum og
skrá þær sem er dálítið annað en
einkaleyfi á grunninum sjálfum. Það
má ekki blanda saman höfundarétti á
granninum og hlutum í kring um
hann eða þessu einkaleyfi sem íslensk
erfðagreining mim fá til að safna upp-
lýsingum og meðhöndla þær. Það
verður að halda þessu tvennu að-
skildu,“ segir Jón L. Amalds, hæsta-
réttarlögmaður og sérfræðingm' í
einkaleyfarétti, við DV.
Samkvæmt frumvarpi um gagna-
grunna á heilbrigðissviði fær aðeins
einn aðili rekstrarleyfi á gagnagrann-
inum. Hefúr verið út frá því gengið að
íslensk erfðagreining ehf. fái þetta
rekstrarleyfi. Er það talið forsenda
þess að byggja megi upp miðlægan
gagnagrunn með heilsufarsupplýsing-
um um íslendinga. Spurt hefúr verið
hvort ÍE þurfi á sérstökum lögum um
gagnagrunn sinn að halda, fyrirtækið
geti sótt um hefðbundin einkaleyfi og
starfrækt granninn á grundvelli
þeirra.
Jón segir einkaleyfið samkvæmt
gagnagrannsfrumvarpinu vera frá-
bragðið hefðbundnu einkaleyfi fyrir
uppfmningu. Gagnagrunnurinn sé að
vissu leyti sambærilegur og byggi á
sömu sjónarmiðum en sé þó ekki það
sama.
„Sækja má um einkaleyfi ef menn
finna eitthvað upp, t.d. gagnagrunna.
Samkvæmt nýlegri tilskipun Evrópu-
sambandsins njóta gagnagrunnar höf-
undarréttar sem slíkir. Ef menn era
með einhverja tæknilega hluti sem
fela i sér uppfinningu þá er það sjálf-
stæð uppfmning sem sækja má um
einkaleyfi á.“
Jón segir fúlltrúa íslenskrar erfða-
greiningar ekki geta farið hvem dag
og sótt um einkaleyfi fyrir mismun-
andi hlutum varðandi gagnagrunninn
og losnað þannig við að biða eftir
einkaleyfi á grundvelli nýrra laga.
Lögtaka gagnagrunnsfrumvarpsins
muni hins vegar gera ÍE kleift að fá
aðgang að upplýsingum sem safnað
verður í grunninn.
„En í báðum tilvikum era sömu
rökin á bak við veitingu einkaleyfis-
ins, þ.e. hagnaðarvonin, að ekki sé
hægt að fjármagna hugmyndina öðra-
vísi,“ segir Jón og vísar í að lítil leið
sé að fjármagna verkefni með millj-
örðum nema hagnaðarvon sé einhver.
Ef margir era um hituna minnkar
hagnaðarvon og minni möguleiki
verður á fjármagni. Sama gildi um
leinkaleyfi á lyfjum. Þau kosta
kannski milljarða í framleiðslu. Fjár-
festing sé óhugsandi nema einkaleyfi
fyrir hendi. Það er þá tímabundið
eins og hjá ÍE (12 ár).
Að þeim tíma liðnum geti allir nýtt
sér þá framþróun sem sá er átti einka-
leyfið hefur staðið fyrir. -hlh
Vestmannaeyingar fá að sjá Keikó:
Eitt skref tekið í einu
Á næstunni mun Eyja-
mönnum gefast kostur á
að skoða frægasta Eyja-
peyjann, háhyrninginn
Keikó. Hallur Hallsson,
talsmaður Free Willy
Keiko Foundation, segir
að ekki sé enn búið að
ákveða hvaða leið verði
farin í því efni. Eitt skref
verður tekið í einu. Fyrst
um sinn verður bömum
úr Eyjum leyft að fara að kvínni til að
skoða nýja nágrannann. Öðram Eyja-
mönnum mun svo í framtíðinni gef-
ast kostur á að fara í bátum út að
kvínni og verður það gert í samvinnu
við heimamenn.
„Þar sem þetta hefur gengið
miklu betur en menn þorðu að vona
og þar sem Keikó hefur lagað sig
miklu betur að aðstæðum en gert
var ráð fyrir munum við hafa þetta
opnara en ella.“
Eins og komiö hefur fram í frétt-
um kom hnísa upp að kví Keikós á
Eyjamenn fá að
skoða Keikó.
fimmtudaginn, aðeins
nokkrum klukkustundum
eftir að hann var settur
þar niður í. Önnur hnísa
kom að kvínni nú um
helgina, þannig að ný ver-
öld er að opnast fyrir há-
hymingnum sem hefur
verið innilokaður í laug-
um í dýragörðum mestan
hluta ævinnar. -SJ
Lýst eftir
Lögreglan í
Reykjavík lýsir eftir
Jóhannesi Baldri
Guðmundssyni. Jó-
hannes Baldur er 24
ára, 184 cm á hæð,
grannvaxinn, með
aflitað hvítt, stutt hár. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um ferðir Jóhann-
esar Baldurs síðastliðna viku eða
vita hvar hann er nú eru beðnir að
hafa samband við lögregluna í
Reykjavík. -RR
manni
□
IVticit- >
HOFFELL
Ármúla 36, Selmúlameginn
Sími: 581 2166 - Fax: 588 8047
e-mail: hoffell@mmedia.is
______________________________