Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1998, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1998
Fréttir
^ OZ-menn að baki þriðja símafyrirtækinu, Íslandssíma hf.:
Oheppileg nálægð
- segir stjórnarformaður Landssímans um setu tveggja OZ-manna í fjarskiptastarfshópi samgönguráðherra
„Ég játa að það kom mér á óvart
að þeir sömu menn sem voru trún-
aðarmenn stjórnvalda og gengu
eftir áætlunum og sjónarmiðum
Landssímans, styrkleika og veik-
leika allt fram í endaöan mars-
mánuð á þessu ári, skuli síðan í
ágústmánuði stofna símafyrirtæki.
Mér finnst þetta óheppileg nálægð
en hvaða hugmyndir þeir hafa
uppi nákvæmlega átta ég mig ekki
á. Þeir hafa óskað eftir tiltekinni
þjónustu Landssímans og hann
kemur auðvitað til með að verða
reiðubúinn til að bjóða þeim teng-
ingar,“ sagði Þórarinn V. Þórar-
insson, stjómarformaður Lands-
símans, við DV í gærkvöld, en
þriðja símafélagið í landinu, ís-
landssími hf., var skráð hjá firma-
skrá þann 20. ágúst sl. Aðstand-
endur Íslandssíma tengjast hug-
búnaðarfyrirtækinu OZ og er ætl-
unin að nota tæknilausnir frá OZ í
rekstrinum. Eftir hörð almenn
mótmæli gegn gjaldskrárbreyting-
um Landssímans sl. haust, sem fyr-
irtækið síðan dró að hluta til baka,
skipaði Halldór Blöndal samgöngu-
ráðherra í nóvember 1997 starfshóp
til að skoða framtíðarfjarskipti. í
honum áttu sæti tveir menn frá OZ,
þeir Guðjón Már Guðjónsson og Ey-
þór Arnalds.
Að sögn framkvæmdastjóra ís-
landssíma, Péturs L. Mogensens,
hefur undirbúningur staðið all-
lengi og búiö er að sækja um öll
Annasöm helgi hjá lögreglu:
Tólf árásarmál
Óvenjuannasamt var hjá lögregl-
unni i Reykjavík aðfaranótt sunnu-
dags. Átta stútar vom undir stýri og
tilkynnt var um tólf líkamsárásir. í
einu tilfellinu réðst hópur unglinga
á mann með barsmíðum en mun þó
ekki hafa veitt honum neina meiri
háttar áverka.
Kona í annaríegum hugleiöingum
stökk fram af Faxabryggju og út í
sjó. Lögreglumenn sáu til konunn-
ar, bmgðu skjótt við og var lög-
reglubátur notaður til þess aö koma
henni í land. Konan var flutt á
slysadeild með sjúkrabifreið. -þhs
Gettu bet-
ur áfram
á RÚV
í gær héldu nemendafélög fram-
haldsskólanna íúnd í Hinu húsinu
þar sem rædd var framtíð spum-
ingaþáttarins Gettu betur. Niður-
stöður atkvæðagreiðslu urðu þær að
langflestir skólanna, 15 talsins, vfldu
halda áfram samstarfi við Ríkissjón-
varpið. Einungis 2 skólar vfldu hins
vegar taka tilboði Stöðvar 2 í þætt-
ina. Því er ljóst að RÚV mun fram-
leiða þættina áfram eins og undan-
farin ár.
Andrés Jónsson, sem kom upphaf-
lega með tfllöguna um að Stöð 2 tæki
að sér framleiðslu þáttanna, var eðli-
lega ekki himinlifandi með þessa
ákvörðun nemendafélaganna. „Skól-
amir hafa tekið sina ákvörðun og ég
vona og trúi að hún hafi verið tekin
á faglegum nótum. Þó grunar mig að
hún hafi byggst að einhveiju leyti á
íhaldssemi og hræðslu hjá einhveij-
um skólum. Því miður held ég að sú
íhaldssemi muni ekki verða tfl að
hjálpa RÚV úr þeim vanda sem
stofnunin er komin í að mínu mati.
Ég sætti mig hins vegar við þessa
ákvörðun og sný mér að öðrum verk-
efnum,“ sagði Andrés viö DV í gær
þegar niðurstaðan lá fyrir. -KJA
leyfi sem þarf til
rekstrarins. Þá
hafi viðræður
staðið við
Landssíma ís-
lands hf. um að-
gang að dreifi-
kerfinu. Mark-
mið Íslandssíma
hf. er, sam-
Þórarinn V. kvæmt fréttatil-
Þórarinsson. kynningu sem
send var út í
gærkvöld, að veita alhliða fjar-
skiptaþjónustu á lágmarksverði.
Möguleikar séu á að nota Intemet-
ið fyrir millilandasímtöl og far-
síma. Það muni lækka verð á
millilandasímtölum í áfongum nið-
ur í brot af því sem þau kosta nú.
Ætlunin sé að bjóða upp á
tækninýjungar,
ekki síst tækni-
lausnir frá OZ.
Eyþór Arn-
alds sagði í gær
að í fjarskipta-
málum í Evrópu
væru ýmis
merkileg mál á
döfinni sem
menn fylgdust
grannt með og
án efa yrðu
nýttar í rekstri hins nýja fyrirtæk-
is. Hann var spurður hvort nýhaf-
ið samstarf OZ og LM-Ericsson í
Svíþjóð myndi hafa einhver áhrif
á hinn fyrirhugaða rekstur ís-
landssíma hf. eða jafnvel þátttaka
í starfseminni. Hann sagði að svo
væri ekki. LM-Ericsson væri
aldrei í samkeppni við viðskipta-
vini sína en Landssíminn hefur átt
mikil viðskipti við LM-Ericsson
um tæknibúnað.
DV spurði Pétur L. Mogensen og
Eyþór Arnalds um það hvort sú
staðreynd að tveir menn frá OZ
hefðu átt sæti í fyrrnefndum
starfshópi samgönguráðherra kall-
aði ekki á grunsemdir um aö þeir
OZ-menn hefðu í þessum starfs-
hópi komist að viðskiptaleyndar-
málum og innri málum Landssím-
ans og væru nú að notfæra sér vit-
neskju sína í eigin þágu. Þeir vís-
uðu þessu alfarið á bug. Eyþór
sagði að f fyrsta lagi myndi hann
ekki starfa hjá hinu nýja símafé-
lagi og í öðru lagi hefði starfshóp-
urinn ekki fjallað um neitt sem
flokka mætti undir viðskipta-
leyndarmál. Sem dæmi nefndi
hann að ekkert kostnaðarbókhald
hefði fyrirfundist né búnaður til
að greina hann meðan starfshóp-
urinn starfaði. Það sé fyrst nú sem
verið sé að taka upp slíkt hjá fyr-
irtækinu. Því til viðbótar ætti ekk-
ert í sambandi við kostnað og þar
með gjaldskrárútreikninga að vera
leyndarmál í þessum rekstri. -SÁ
Eyþór
Arnalds.
Eldur viö Smiöjuveg
Síðdegis á laugardag kom upp eldur á efri hæð húss við Smiðjuveg í Kópavogi. Eigendur íbúoarinnar voru heima
þegar eldurinn kviknaði, gátu hringt á slökkvilið og komust klakklaust út. Greiðlega gekk að slökkva eldinn, en mik-
ill hiti og reykur hafði myndast og voru slökkviliðsmenn lengi að reykræsta íbúðina. Talsverðar skemmdir uröu, að-
allega af völdum reyks og sóts. Ljóst þykir að eldurinn hafi átt upptök sín á eldavél. 'Þhs
Kosning fulltrúa Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur til flokksþings Alþýðuflokks-
ins fór fram um helgina. Elías Kristjánsson forstjóri tekur hér við kjörseðli úr
hendi Árna Stefánssonar, formanns kjörstjórnar. Helstu úrslit kosninganna
urðu þau að Pétur Jónsson hlaut afgerandi stuðning. DV-mynd GTK
rændur
Aðfaranótt sunnudags réðust
tveir menn á pitsusendil, rændu
hann og sprautuðu í augu hans efni
sem líklegt þykir að hafi verið tára-
gas. Árásarmennimir sluppu og
sendillinn var fluttur á slysadeild
en fékk að fara heim þegar efnið
hafði verið skolað úr augum hans.
Að sögn lögreglu er efhi það sem
um ræðir, hinn svokallaöi Mace-
úði, mjög áhrifaríkt vopn í höndum
lögreglu þegar yfirbuga þarf ófriðar-
seggi því að sá sem fær úðann í aug-
un er algerlega óvígur eftir. Al-
mennum borgurum er hins vegar
óheimilt að hafa efnið í sínum fór-
um og er þvi sennilega um smygl að
ræða. Rannsóknardeild lögreglunn-
ar í Reykjavík kannar málið. -þhs
Stuttar fréttir dv
Clinton í
Myndbandsupp-
tökur af yfir-
heyrslu Kenneths
Starr yfir Bill
Clinton vegna sam-
bands hans við
Monicu Lewinsky
verða gerðar opinberar í dag. Hægt
verður að sjá upptökumar á slóð-
inni www.visir.is en búist er við að
útsending hefjist um hádegi. Gífur-
leg spenna rikir vegna sýningarinn-
ar og því má búast við aö mikið áiag
verði á vefnum. Talið er að birting
upptakanna auki enn á niðurlæg-
ingu forsetans. www.visir.is:
Jarðskjálfti
Jarðskjálfti reið yfir höfúðborgar-
svæðið í morgun rétt fyrir klukkan
níu. Hann var 2,8 stig á Richter og
átti upptök sín við Kleifarvatn.
Skjáiftans varð vart bæði í Reykja-
vík og nærliggjandi byggðarlögum.
Algengt er að skjáiftar verði á þessu
svæði og skjálftavaktin er ekki með
neinar ráðstafanir.
Samstöðufundur Amnesty
Á þriðja tug fé-
laga og stuðnings-
manna Amnesty
Intemational tók
þátt í samstöðu-
fúndi með fómar-
lömbum mannrétt-
indabrota í
Kosovohéraði á
Austurvelli á laugardag. Samtökin
fara meðal annars fram á rannsókn
á mannréttindabrotum í héraðinu
og að þeir seku verði dregnir til
ábyrgðar. RÚV greindi frá.
Norðmenn vel settir
Auðveldara er fyrir Norðmenn að
virkja á íslandi en í Noregi. Þar í
landi tekur umhverfismat 5-10 ár og
á íslandi geta þeir reist miklu hærri
stíflur og stærri uppistöðulón en
gert var í Noregi. RÚV sagði frá.
íbúum fækkar
íbúum á Suðurlandi hefúr fækkað
um 2% á síðustu tveimur ámm.
Laun íbúa i sumum jaðarbyggðum
eru allt að 32% lægri en meðallaun á
íslandi. RÚV sagði ffá.
84% undir HvaHjörð
84% bíia fara um Hvalfjarðargöng
og er umferðin minnst um helgar.
Fyrstu þrjár vikumar í ágúst fóru
85.543 bílar um göngin en á sama
tíma í fyrra fóru 74.077 bílar fyrir
Hvaifiörð. Morgunblaðið sagði frá.
Hentifánar dauðadómur
Jónas Garðarsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, segir að ef
hugmyndir um skráningu hentifána-
skipa hér á landi verði að veruleika
sé það dauðadómur yfir íslenskri far-
mannastétt. Bylgjan greindi frá.
Raf- og bensínbíll
Toyota-umboðið flytur á næst-
unni inn raf- og bensínbíl af gerð-
inni Toyota Prius. Bíllinn hefúr
tvær vélar, rafmagns- og bensínsvél,
sem skiptast á að vinna eða vinna
saman. Morgunblaðiö sagði frá.
Metkornuppskera
Komrækt i landinu hefúr aukist
mjög og fleiri landsvæði reynast vel
faiiin til komræktar. Á Suður- og
Vesturlandi stefiiir í metuppskem og
víða á Norðurlandi er uppskera góð
þrátt fyrir slæma tíð. Stöð 2 sagði frá.
Barraeldi
Fiskeldisfyrirtækið Máki er að
kaupa stóra fiskeldisstöð í Ffiótum
og margfaldar við það eldi sitt á
hlýsjávarfiskinum barra. RÚV
greindi frá.
Sjálfsmorösbylgja skýrð
Þórarinn Tyrf-
ingsson, yfirlæknir
á Vogi, segir að am-
fetamínneysla skýri
sjálfsmorðsbylgju
karla að vissu leyti.
Bylgjan greindi frá.
Féll8 metra
í Ölfusi féli maður á laugardaginn
8 metra ofan af nýbyggingu sem haim
var að vinna við. Maðurinn slasaöist
alvarlega á höfði og var fluttur með
sjúkrabifreið á Sjúkrahús Reykjavík-
ur. Hann hefur nú verið fluttur yfir á
almenna defld og að sögn læknis líð-
ur honum vel eftir atvikum. -sm
beinm