Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1998, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1998, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1998 Útlönd__________________ Æ fleiri vilja af- sögn Clintons Búist er við metáhorfi á mynd- bandsupptökuna af yfirheyrslu Kenneth Starrs yfir Bill Clinton sem veröur sjónvarpað í dag. Clinton mun á sama tíma ávarpa allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna í New York. Samkvæmt nýrri skoðanakönn- un bandaríska tímaritsins Newsweek segjast 46% aðspurðra vilja að forsetinn segi af sér en 39% voru á sömu skoöun fyrir viku. Þá kváðust 41% á þeirri skoðun að þingið ætti að sam- þykkja vítur á forsetann sem hugs- anlega hefðu afsögn í for meö sér. Fimm láta lífið í lestarslysi Fimm ungmenni á aldrinum 18 til 22 ára, létu lífið þegar lest ók á bifreið þeirra aðfaranótt sunnu- dagsins. Slysið átti sér stað í Gol í Hall- ingdal og svo virðist sem bílstjór- inn hafi ákveðið að keyra yfir teinana. Kyrrstæð lest byrgði honum sýn og hann sá því ekki þegar önnur lest kom aðvifandi á 90 km. hraða og skall á bílnum. Talið er að ungmennin hafi látist samstundis. Mannfall í Kabúl Talið er allt að 180 manns hafi týnt lífi í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í gær þegar upp- reisnarsveitir stjómarandstöð- unnar létu sprengjum rigna yfir borgina. Flestir létust á fjölsótt- um markaöi í vesturhluta borgar- innar. Uppreisnarsveitimar segj- ast munu berjast til síðasta manns. Reuter Sænskir kjósendur streymdu til hægri og vinstri í sögulegum kosningum: Persson vængstýfður en stjórnin heldur velli - erkióvinurinn Carl Bildt tapaði líka og getur ekki myndað rikisstjórn Göran Persson, forsætisráðherra Svía, fékk rósir stuðningsmönnum sínum þegar úrslit lágu fyrir í gærkvöld. Símamynd Reuter DV, Svíþjóö: „Sænska stjórnin situr. Ég er dæmdur til að stjórna," sagði Göran Pers- son, forsætisráðherra Svia, þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína í gærkvöld. Úrslit sænsku þingkosn- inganna urðu þó á þann veg sem Persson óskaði síst. Hann verður að sækja stuðning í mikilvægum málum til Vinstriflokks- ins. Vinstrimenn kallar hann kommúnista og allir vita að þá hatar hann eins og pestina. Sænskir jafnaðarmenn töpuðu um 8% fylgisins frá kosningunum árið 1994 og fengu 37% í stað 45% áður, en Vinstrimenn juku fylgi sitt nær því að sama skapi. Þetta þýðir að vinstri vængur sænskra stjórnmála er jafnstór og áð- ur, það er bara búið að vængstýfa Persson og hann verður að breyta stefnu stjórnar sinnar til að þóknast vinstrimönnum. „Að hluta má skýra ófarir Perssons með því að það er alltaf óvinsælt að stjórna. Að hluta er þetta vegna þess að hann á erfitt með að tala mál sem fólk skilur. Þar er Gudrun Schyman, leiðtogi vinstrimanna, miklu lagnari," segir Grétar Eyþórsson, stjórnmála- fræðingur í Gautaborg, en hann spáði í úrslitin með DV. Þessar kosningar eru líka mikil vonbrigði fyrir Carl Bildt, leiðtoga hægrimanna. Þrátt fyrir setu í stjórn- arandstöðu í fjögur ár stendur fylgið í stað. Og þetta gerist þrátt fyrir að Bildt hafi fyrr á þessu ári notið mun meiri vinsælda en Persson vegna starfa sinna sem sáttasemjari í Bosn- íu. Um leið og hann kom heim til að taka þátt í kosningabaráttunni byrj- aði fylgið að dala og nú eru allir nýju stuðningsmennirnir á bak og burt. Og borgaraflokkana skortir 20 þingsæti til að geta gert Bildt að forsætisráð- herra. Þetta eru mikil vonbrigði og Bildt gaf í skyn í gær að hann hygð- ist hætta í stjórnmálum. Sigurvegarar sænsku kosninganna eru flokk- amir yst til hægri og vinstri. Á hægri vængn- um unnu Kristilegir demókratar mikinn sigur og þrefolduðu fylgi sitt. Þar nutu þeir leiðtoga sins, Alfs Svenssons, sem einkum höfðar til fullorð- ins fólks. Á vinstri vængnum er frá Gudrun Schyman nú óskoraður leiðtogi jafn- réttissinna. Kannanir sýna að hún höfðar til ungs fólks af báðum kynjum með kröf- um um að gamla sænska velferðar- kerfið verði endurreist. Persson hefur ekki náð tO þessa fólks. Því er nú spáð að Persson skipti um nokkra ráðherra og reyni að sveigja stjórnarstefnuna til vinstri svo stuðn- ingur Vinstriflokksins - sem hann kallar kommúnista - bregðist ekki. Hann sagðist þó í gærkvöld ekki mundu mynda samsteypustjórn held- ur stjóma í minnihluta og reiða sig á ýmsa flokka um stuðning. -GK Stuttar fréttir i>v Sleppt eftir 14 mánuöi Tveimur breskum sálfræðing- um var í gær sleppt eftir að hafa verið haldið í gíslingu í Tsjetsen- íu í rúma 14 mánuði. Móðir Fergie látin Susan Barrantes, móðir Sömh Ferguson, her- togaynju af York, lést í bílslysi i Argentínu í gær. Barrantes var farþegi í Landrover-bif- reið sem skall framan á vörubíl skammt frá bænum Tres Lomas. Sarah Fergu- son hélt rakleiðis til Argentínu í gærkvöld en hún var í fríi á ítal- íu þegar hún fékk fréttirnar. Enn hundrað saknað Enn er hundrað manna saknað úr ferjuslysinu sem varð á Filippseyjum um helgina. Þegar hefur 300 manns verið bjargað. Anwar handtekinn Anwar Ibra- him, sem var rekinn úr emb- ætti fjármála- ráðherra Mal- asíu fyrir stuttu, var handtekinn í gær. Anwar hafði fyrr um daginn stjómað mótmælafundi þar sem forsætis- ráðherrann, Mahathir Mohamad, var hvattur til að segja af sér. Ólæsi í Tyrklandi Níu milljónir Tyrkja, eða 14% þjóðarinnar, kunna hvorki aö lesa né skrifa. Konur eru í meirihluta eða um 5 milljónir. Reuter NYJA BILAHOLLIN FUNAHÖFÐA1 -112 Rvík - FAX 567 3983 Sölumenn: Ingimar Sigurðsson, löggildur bifreiðasali, Hörður Sævarsson Ssang young Musso, árg.1998, nýr MMC 3000 GT, árg. 1995, Mer. Benz station, árg.1994, bíll, einn með öllu, toppl., leður, ek. 41 þús. km, rafdr. rúður, álfelgur, ek. 63 þús. km, sjáfsk., topplúga, rafm., abs, geislasp., sjálfsk. til með 220 hesöfl, mikið áhvílandi.skipti ath. rafdr. rúður, fallegur bill. og án leðri, frábært verð. Kr. 2.590.000. Kr. 2.790.000. 0 [IíILASAI.j Í V W ****** | # Mercury Sable, árg. 1995, BMW 318 is, árg. 1995, ek. 52 þús. km, sjáflsk., rafdr. rúður, ek.49 þús. km, sjálfsk., leðursæti, samlæsing, bílalán getur fylgt. topplúga, gott verð. Kr. 1.590.000. Kr. 2.290.000. Toyota Hiace árg. 1998, ek. 62 þús. km, bíllinn er 4x4, turbo diesel, 8 manna og iítur mjög vel út. Kr. 2.790.000. Suzuki Baleno, árg. 1997, VW Polo árg. 1998, Suzuki Sidekick JLXi, árg. 1995, ek. 40 þús. km, mjög gott lán getur ek. 6 þús. km, 5 gíra, 3 dyra, lítur út ek. 97 þús. km, upphækkaður, fylgt bílnum. sem nýr, álfelgur, 33“ dekk, 5 gíra. Kr. 890.000. Kr. 990.000. Kr. 1.490.000. Chevrolet Silverado árg. 1996, ek. 23 þús. km, bill með öllum aukahlutum sem um getur. Kr. 2.890.000. Nissan Patrol, árg. 1994, ek. 134 þús. km, 5 gíra, álfelgur, vel útbúlnn bill. Kr. 2.400.000. Subaru Justy, árg. 1989, ek. 87 þús. km, 5 dyra, 5 gíra, 4x4, Kr. 390.000. Bílasalan bíll.is Malarhöfða 2, 112 Reykjavík sími 577-3777 fax 577-3770 www.bill.is Land Rover Discovery windsor dísil Musso dísil TDI '98, Toyota Landcrsieer VX '93, turbo intercooler '98, ekinn 28 þús. ekinn 20 þús. km, 5 g., álf., spólvörn. ekinn 147 þús. km, sóll., áfl., saml. km, ssk., einn með öllu. Verð 2.800.000. Ath. skipti. læs. Verð 3.200.000. Ath. skpiti, Verð 3.290.000. Ath. skipti. áhv. bílalán. Hyundai Accent GLS '98, ekinn 6 þús. km, 5 g., álf., spoil. Verð 1.150.000. Bein sala. Nissan Almera SR '97, ekinn 44 þús. km, 5 g., álf., saml., spoil., geislasp. Verð 1.320.000. Ath.skipti. Volvo 850 stw 2.0L '96, ekinn 42 þús. km, ssk., saml., ABS. Verð 2.410.000. Ath. skipti. MMC Galant GLSi hlaðb. '92, ekinn 113 þús. km, álf., sóll., spoil., saml. Verð 1.030.000. Ath. skipti. Renault Clio 1.2 '97, ekinn 33 þús. km, 5 g. Verð 940.000. Hyundai Accent LS '96, ekinn 81 þús. km. Verð 690.000. Eigum einnig Accent LSi '98, silfurl., ekinn 5 þús. km, 3 d. Verð 990.000. Hyundai Atos '98, ekinn 15 þús. km. Verð 870.000. Opel Astra GL '95, ekinn 68 þús. km, 5 g. Verð 930.000. M. Benz 220 E '93, ekinn 131 þús. km. Verð 2.180.000. Ath.skipti. Hlýr og bjartur innisalur. - Heitt á könnunni. Vantar allar gerðir bíla á staðinn og á skrá - Innisalur - Útvegum bílalán

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.