Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1998, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1998, Qupperneq 36
44 MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1998 DV nn Ummæli Grátleg vitleysa Þetta er grátleg vitleysa. Það er safnað saman öllum eyðsluáformum i einn bunka til að gleðja hinn og þennan og engin grein gerð fyrir kostnaðinum." Davíð Oddsson forsætisráðherra um málefnaskrá A-flokkanna, i Degi. Dýrar óskir „Það eru margar góðar ósk- ir í þessu skjali. Gallinn er hins vegar sá að mér sýnist þetta kosta nokkra tugi millj- arða.“ Halldór Ásgrímsson utanrík- isráðherra um sömu mál- efnaskrá, í Degi. Genagreinarinn „Auðvitað er minnst á þann íslending sem ég nenni ekki að nafngreina en er ýmist nefndur genagreinari eða greiðari. Það hlýtur að merkja að hann sé ýmist að greina genin eða greiða fyrir þau.“ Guðbergur Bergsson rithöf- undur, í DV. RÚV og Gettu betur „Ef Ríkisútvarpið getur ekki druslast til þess að gera vel við framhaldsskólanem- endur fyrir sjónvarpsefni sem gefur miklar tekjur og áhorf þá verða aðrir að taka við.“ Guðmundur Birkir Þorkels- son, skólameistari á Húsa- vík, um framtíð Gettu betur, í Degi. Árborg er nafnið „I raun er eini aðilinn sem skrifar utan á bréf til „Samein- aðs sveitarfélags Selfoss, Sandvík- urhrepps, Eyr- arbakka og Stokkseyrar", félagsmála- ráðuneytið. Allir aðrir skrifa Árborg utan á bréf til okkar.“ Karl Björnsson, bæjarstjóri Árborgar, í DV. Gjaldeyrir „Úr því við búum ekki við betri eða sterkari mynt en gömlu, slitnu og ógæfusömu krónuna verður alvörumynt aldrei kölluð annað en gjald- eyrir." Magnús Sigurðsson, í DV. Gengið á Álftanesi Aiftanesið er með allra skemmti- legustu stöðum í næsta nágrenni Reykjavíkur enda leita margir þangað allan ársins hring, þó ekki sé nema til að viðra sig. Fjörugöng- ur á vestanverðu nesinu eru áhuga- verðar og ekki leiðigjarnar, þótt far- ið sé aftur og aftur. Eftir mikil brim er stundum hægt að tína öðuskeljar á Hrakhólmum og oft eru þar selir að forvitnast um vegfarandann. Nefna má tvær ágætar hringgöngur á nesinu. Umhverfi Önnur leiðin er frá Bessastöðum og má ganga þar fyrir neðan garð og út á Bessastaðanes eftir ökuslóð. Vestan á Bessastaðanesi komum við að rústum Skansins sem gerður var á 17. öld. Haldið er áfram með Seil- unni og ströndinni fylgt vestan við Breiðabólsstað og Akrakot. Hinn hringurinn getur hafist við Kasthúsatjöm og má fylgja þaðan ströndinni til suðurs alveg að Mel- húsum eða jafmvel Hliði. Til baka má ganga eftir veginum kringum kjama byggðarinnar eða jafnvel 'ólmar Æfe C':ioforð Skansinn Bessastaðancs ■ ■ . Rcssastaðatjöm ' t ' íjm 4, Sk0 Svartbakki Helguvík Reykjavík Fossvogur Kópavogur Kópavogur Arnarnes s'"" f Amamesvogur Gálgahraun staftlr Löngubrekkur G*%/, m nOh X V Garöahraun Mlðengi h a Presthóll Garðar vöhruteíftt :íj9HI^E5PKa^|l \ ^ '•..................^. . ' ■ :aðir Lambhúsatjöm Dysjar Bali gegnum byggðina að upphafsstaðn- um við Kasthúsatjörn. Heimild: Gönguleiöir á Íslandi eftir Einar Þ. Guöjohnsen. Stefán Jónsson, nýráðinn sveitarstjóri Dalabyggðar: Langaði að sigla á móti straumnum DV, Vestnrlandi: „Mér líst vel á nýja starfið," seg- ir Stefán Jónsson, nýráðinn sveitar- stjóri Dalabyggðar, sem tók við af Marteini Vaddimarssyni sem lét af starfi sveitarstjóra Dalabyggðar eft- ir 22 ára farsælt starf sem sveitar- stjóri, fyrst í Laxárdalshreppi og nú síðast í sameinuðu sveitarfélagi, Dalabyggð. Stefán er ættaður frá Flateyri en hefur búið undanfarin ár í Hafnarfirði. Að undan- _________ förnu hefur hann verið starf- andi stjórnarformaður Skel- fisks hf. á Flateyri ásamt því að — gegna ýmiss konar ráðgjafarstörf- um í sjávarútvegi. Áður starfaði Stefán á endurskoðunarskrifstofu. „Það sem varð til þess að ég sótt- ist eftir starfi sveitarstjóra Dala- byggðar var að mér fannst tími til kominn að breyta til. Ég kem úr dreifbýli og kunni ágætlega við það svo það var ákvörðun okkar hjóna að skella okkur aftur út í dreifbýlið og sigla aðeins á móti straumnum. Reynsla mín af sveitarstjórnarmál- um er ekki mikil. Ég hef tekið þátt í störfum Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði og verið þar i stjórn Landsmálafélagsins Fram, að öðru leyti hef ég ekki fylgst með nema í gegnum það starf. Auðvitað er það viss ögrun að takast á við þetta starf, ég hef verið viðloðandi einka- fyrirtæki og hlutafélög og þetta er allt annar vettvang- ur sem ég er að fara í núna. Ég er ekki í nokkrum vafa um það að viðamestu verkefnin sem bíða mín er skoðun á því hvort það er hagkvæmt að bæta búsetusíályrði hér í Dalabyggð með hitaveitu. Þá er það 2000 ára afmælishátíðin, uppbyggingin á Eiríksstöðum og síðan önnur samfélagsmál svo sem skólamál sem vega alltaf þungt í svona samfélög- um. Við fyrstu skoðun teljum við að það geti verið góðar líkur á því að íbúar Dalabyggðar geti innan fárra ára byrjað að kynda hús sín með heitu vatni, hins vegar á eftir að klára það mat, það er í vinnslu þessa dagana." Stefán er mikill áhuga- maður um golf en hefur kom- ist lítið í það upp á síðkastið, auk þess hefur hann gaman af að dunda sér í boltaíþróttum. Hann var áður í fótbolta en hefur imdanfarið stundað körfubolta þar sem það er mýkra sport. Stefán er kvæntur Guðrúnu G. Halldórsdótt- ur, kennara í Búðar- dal, en hún er ætt- uð úr Hnífsdal og er 40 ára. Þau eiga tvö böm, Ingu Dóru, 17 ára nema í Verslunarskól- anum, og Jón Gunnar, 8 ára „dalapúka". -DVÓ Maður dagsins Stefán Jónsson. DV-mynd Melkorka Teiknimyndasögur ' 21. aldarinnar Breski rithöfundurinn Warren Ellis flytur fyrirlest- ur á vegum heimspekideild- ar Háskóla íslands í dag kl. 17.15 í hátíðarsal Háskólans í aðalbyggingu. Fyrirlestur- inn nefnist Teiknimynda- sögur 21. aldarinnar og er fluttur á ensku. Ellis hefur á undanfornum árum vakið athygli fyrir myndasögur sem hann hefur samið, með- al annars fyrir bandaríska fyrirtækið DC Comics. Menning og náttúra í Alberta Robin Peck, kanadískur myndlistarmaður, rithöf- undur og gagnrýnandi held- ur fyrirlestur i MHÍ, Laug- isrnesi í dag kl. 12.30. Mun hann fjalla um eigin verk um menningu og náttúru í Alberta-fylki í Kanada þar sem hann er búsettur. Þá mun hann fjalla um íslend- ingabyggðir í Kanada og verk Stephans G. Stephans- sonar og hvernig hann hyggst stofna til samskipta Samkomur milli islenskra og kanadískra myndlistar- manna og rithöfunda. Aðalfundur bridgedeildar Aðalfundur bridgedeildar Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni verð- ur haldinn í Ásgarði í dag kl. 13. Spilað verður eftir fund. Myndgátan Lausn á gátu nr. 2208: Gerir bíl upptækan Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki. Haukur Dór á vinnustofu sinni. Vinnustofusýn- ing Hauks Dórs Hinn kunni myndlistarmaður, Haukur Dór, heldur um þessar mundir sýningu á vinnustofu sinni að Laugavegi 18b. Á sýningunni eru ný og áður sýnd verk unnin á pappír meö blandaðri tækni. Haukur Dór er fæddur í Reykjavík 1940. Eftir nám hér heima stundaði hann nám í Edinborg og Kaup- mannahöfn og var síðan tvo vetur í námi við Visual Art Center í Bandaríkjunum. Hann á að baki 36 ára sýningarferil hér heima og er- lendis og eru mörg verka hans í eigu opinberra aðila. Síðast sýndi hann í Listaskálanum i Hvera- gerði. Haukur Dór er nú búsettur á íslandi eftir margra ára dvöl á er- lendri grundu. Sýningin er opin daglega kl. 13-18 og stendur til 27. september. Sýningar Þrjár sýningar í þremur sýnirýmum Nú standa yfir þrjár sýningar á vegum galleríkeðjunnar Sýnirými. í Gallerí við Vatnsstíg sýnir Aimee Simmons verk sitt Það sem getur hent ungar stúlkur í dag. Gunnar Magnús Andrésson sýnir Samsýn- ingu í gallerí Barmi, sem er ferða- gallerí og er berandi sýningarinn- ar Ólafur Ingi Jónsson forvörður ásamt fleiri. Símsvaragalleríið Hlust flytur verkið Story eftir Janet Passehl. Síminn í Gallerí Hlust er 5514347. Sýningamar standa út mánuðinn. Bridge Þeir sem spiluðu þrjú grönd á hönd austurs í þessu spili í sumar- bridge síðastliðið föstudagskvöld fengu góða skor vegna hagstæðrar legu í tígullitnum, en óhætt er að segja að nokkur heppni hafi fylgt þeirri sögn. Sumir spilaranna í a-v vildu frekar spila 5 tígla sem virðist vera heilbrigðari samningur og byggist í fljótu bragði á þvi að spaðaásinn liggi hjá norðri. Til vara er hagstæð lega í tígullitnum eða möguleikar á niðurkasti i hjarta eða laufi. Að spila 5 tígla gaf a-v meðal- skor í spilinu. Hrólfur Hjaltason og Þórir Sigursteinsson ákváðu að gera ráð fyrir óhagstæðri legu, en uppskáru botnskor fyrir. Norður gjafari og enginn á hættu: * K53 * Á864 * Á * ÁD1062 Norður Austur Suður Vestur pass 1 * pass 1 ♦ pass 2 * pass 3 ♦ p/h Kerfið hjá a-v var precision og laufopnunin sýndi 16 eða fleiri punkta. Einn tígull var afmelding (0-7 punktar) og þrír tíglar sýndu langan tígullit. Hrólfur Hjaltason, sem sat í sæti austurs, sá að líkur voru á samgangsörðugleikum í þremur gröndum og vildi ekki taka áhættuna á 5 tíglum. Útlit var fyrir að ákvörðun hans væri skynsamleg eftir að vörnin hafði tekið tvo fyrstu slagina á spaða, en vonbrigðin mik- il þegar tígulkóngur féll í tígulás- inn. Réttlætið sigrar ekki alltaf í bridge. ísak Örn Sigurðsson ♦ DG10: ♦ D109/ ♦ K ♦ G84 ♦ A872 »32 ♦ 1072 ♦ K973

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.