Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1998, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1998, Blaðsíða 40
Vinningstölur laugardaginn: Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæö 1. 5 af 5 0 3.488.150 2. 4 af 5+«®? 2 164.220 3. 4 af 5 60 9.440 4. 3 af 5 1.994 660 FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1998 Áhrif Kvótaþings koma hart niður á einstökum útgerðum: , Fjölda sjómanna sagt upp störfum - segir útgerðarmaður sem vill að sjómenn fylki liði á Austurvöll „Það eru á annað hundrað sjó- manna að missa vinnuna. Hvað mína útgerð varðar þá höfum þegar sagt upp mannskapnum á öðrum bátnum og munum segja upp mönnunum á hinum bátnum fljótlega," segir Guð- mundur Sigurðsson, útgerðarmaöur á Höfn í Homaflrði, sem gerir út tvo .^vertíðarbáta, Jóa Bjama SF og Haf- '' borg SF. Lítill kvóti er á bátunum sem era rúmlega 100 og 30 tonn að stærð. Samanlagður kvóti er innan við 250 þorskígildi. Guðmundur segir útgerð- ina vera háða framsali kvóta en nú sé Kristinn málar sig út í horn Yflrlýsingar Kristins H. Gunnars- sonar alþingismanns i DV um mál- efnasamning sameiginlegs framboðs vinstri manna hafa ekki mælst vel fyrir hjá sam- flokksfólki hans. „Ég tel að yfirlýs- ingar Kristins séu ekki heppilegar, hvorki fyrir hann né sameiningar- málið í heild sinni. Menn hafa áhyggjur af því að hann sé að mála sig út í hom,“ seg- ir Bryndís Friðgeirsdóttir, oddviti sameiginlegs framboðs K-lista á ísa- firði. „Með yfirlýsingum sínum er .Kristinn að segja að hann styðji '""%kki framboðið og í rauninni finnst mér hann vera að vara fólk við að kjósa samfylkinguna. Hjá okkur hef- ur hann verið forystuefnið í sam- fylkingunni og hingað til hefur hann ekki gefið annað út,“ segir Bryndís jafnframt. Að hennar mati er undarlegt hve óánægður Kristinn er með málefna- samninginn í Ijósi þess að hann kom sjálfur að þeirri vinnu sem lögð var í gerð hans. „Hann talar ekki um einstaka liði málefnasamn- ingsins heldur allt plaggið í heild. Þó aö hann hafi sjálfur tekið þátt í þessari vinnu á fyrri stigum þá get- ur hann ekki einu sinni séð jákvæð- ar hliðar á þeim hlutum samnings- /-%s sem hann er að einhverju leyti ábyrgtu- fyrir. -KJA einfaldlega ekkert framboð nema á því verði sem enginn ráði við að greiða. Guðmundur er ekki með leigu- samning við fiskvinnslu um báta sína eins og margar útgerðir hafa gripið til svo losna megi undan hinum opin- bera kvótafærslum. Þeir bátar sem gera slíka samninga era ekki háðir opinbera eftirliti hvað varðar fisk- verð og geta gert upp við menn sína á lágmarksverði í stað meðalverðs á fiskmörkuðum. Guðmundur segir að eini þorskkvótinn sem boðinn hafl verið um Kvótaþing hafi verið á 105 krónur og enginn standi undir því að leigja kvóta á því verði. „Við fáum ekki einu sinni að skipta á tegundum. Þetta er algjör- lega vonlaus staða fyrir aðra en þá sem eiga kvóta. Þau skip geta ákveð- ið það verð sem þeim sýnist en við, þessir vesalingar sem geram út á annarra kvóta, verðum að greiða uppsprengt verð til skipta. Þá geta þeir sem leigja báta sína til fisk- vinnslunnar gert upp á verði sem þeim sýnist,“ segir hann. „Ég á ekki annars úrkosti en að stoppa. Ég veit um 18 skip um allt land sem eins er ástatt með og mann- skapnum hefúr verið sagt upp. Það er ekkert annað til ráða þar sem skip komast ekki á sjó og meðan svo er fást engar tekjur til að borga mönn- um laun. Ég get trúað að átta manns séu að meðaltali á hverju skipi þannig að þama er um að ræða tæp- lega 150 sjómenn sem margir hverjir era fyrirvinnur fjölskyldna. Þetta er sérstaklega erfltt á Suðumesjunum þar sem margar útgerðir gera út á leigukvóta,“ segir hann. Hann segir vísbendingar um að sjómannaforystan hafi blekkt um- bjóðendur sina til að samþykkja ný lög um Kvótaþing. „Mér skilst á mínum mönnum að þessi áhrif séu allt önnur en forysta sjómanna boðaði í verkfallinu. Þeir era mjög óhressir með þetta ástand og ég heyri þá túlkun að þeir hafi einfaldlega verið blekktir til að sam- þykkja þessi ólög,“ segir Guðmund- ur. „Ég skil ósköp vel að menn hafi viljað fyrirbyggja brask þar sem kvóta hefur verið safnað á báta sem jafnvel standa á þurra landi. Þá er eðlilegt að fyrirbyggt sé að skipt sé til sjómanna úr 10 til 30 króna verði á kíló. Þetta lendir á þeim sem verst skyldi,“ segir hann. „Ég sé ekki annað til ráða en menn sem svipað er ástatt um taki sig sam- an og fundi á Austurvetli. Þetta er stórmál sem nauðsynlegt að alþingis- menn geri sér grein fyrir alvöranni i og leiðrétti ruglið.“ -rt Deilur ungra framsóknarmanna: Vildi fara en fékk ekki Samningaviðræður hafa átt sér stað um helgina í deilum innan Sambands ungra framsóknarmanna sem snúast um meinta smölun núverandi for- manns sambandsins, Árna Gunnarssonar, á skjön við félagslög og nauman sigur í formannskjöri á þingi sam- bandsins í haust. Ámi sigr- aði þar á einu atkvæði. Finnur Þór Birgisson, formaður Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík, staðfesti í gærkvöld að viðræður viö Árna og stjórn hans stæðu yfir. Hann vildi ekki tjá sig um þær að öðru leyti þar sem þær væru á viðkvæmu stigi. Samkvæmt heimildum blaðsins mun Árni hafa boðist til þess að segja af sér ef það mætti verða til þess að lægja öldumar, en það boð ekki verið þeg- ið. Gagnrýnendur Árna telja að bæði í ljósi þess að flokksþing Framsókn- arflokksins sé fram und- an og síðan kosningar I vor sé afsögn ekki heppileg. Betra sé að ná einhvers konar sáttum og nota tímann til næsta lands- þings til að lagfæra lög SUF svo minni líkur verði framvegis á svipuðum uppákomum og urðu á landsþinginu á Laugarvatni sl. sumar. -SÁ Árni Gunnarsson. Þó aö skýlin sem Reykjavíkurborg hefur nýlega látiö koma fyrir á biöstöövum SVR hafi vart veriö tekin í notkun hafa þau strax oröið fyrir barðinu á skemmd- arvörgum. Feröamaöurinn á myndinni varö skiljanlega hneykslaöur þegar hann gekk fram á þetta skýli sem vargar hafa stórskemmt. DV-mynd S Veðrið á morgun: Léttskýjað fyrir norðan Á morgun er gert ráð fyrir hægri suðlægri átt og smáskúrum eða súld sunnan og vestan til. Léttskýjað verður norðan til. Hiti verður á bilinu 8-13 stig, mildast austan til. Veðrið í dag er á bls. 45. MERKiLEGA MERKIVELIN brother PT-220 ný véi íslenskir stafir Taska fylgir 8 leturgerðir, 6 stærðir 6, 9, 12, 18 mm borðar Prentar í 4 línur Aðeins kr. 10.925 n Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.