Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998
Fréttir
22 skipverjum bjargað eftir að japanskt skip strandaði fyrir utan Skeijafjörð i gærkvöld:
Hræddir um að skip-
ið væri að sökkva
- sagöi einn japönsku sjómannanna við DV í nótt
„Þetta var hrikalegt. Staðan var
ekki góð og við vorum mjög hrædd-
ir um að skipið væri að sökkva eft-
ir að við strönduðum á skerinu.
Sem betur fer fór þetta allt vel að
lokum og við þökkum björgunar-
mönnum frábæra frammistöðu. Við
eigum þeim líf okkar að launa,“
sagði einn japönsku skipverjanna
sem lentu í miklum lifsháska þegar
japanska túnfiskskipið Fukuyosih
Maru 68 strandaði rúmar tvær míl-
ur út af Skerjafirði á níunda tíman-
um í gærkvöld. Tuttugu og tveir
skipverjar voru um borð, Japanir
og Indónesíubúar, og var þeim öll-
um bjargað giftusamlega. Aðstæður
á slysstað voru erfiðar, myrkur,
talsverður öldugangur og sjö vind-
stig.
Hafnsögumenn í Reykjavík urðu
fyrst varir við að skipið væri
strandað. Það var klukkan 20.20 í
gærkvöld. Hafnsögumenn létu slysa-
varnafélög vita tafarlaust og þá
voru björgunaraðgerðir settar í
gang. Margir björgunarsveitarmenn
voru sendir af stað og fóru fjórir
björgunarbátar á vettvang. Þá var
varðskipið Ægir fljótlega komið á
strandstað og TF-LÍF, þyrla Land-
helgisgæslunnar, var í viðbragðs-
stöðu. Tuttugu og tveir skipverjar
voru um borð í japanska skipinu og
var ákveðið að reyna að ná þeim
sem fyrst frá borði þar sem hætta
var talin á skipið gæti laskast enn
frekar á skerinu og jafnvel sokkið.
Öllum bjargað á 24 mínútum
Stýrimaður frá varðskipinu Ægi
var sendur um borð í japanska skip-
ið og aðstoðaði skipverja við undir-
búnmg björgunar frá borði. Tveir
björgunarbátar renndu upp að hlið
japanska skipsins. Klukkan 21.48
fóru fyrstu átta skipverjamir frá
Þórshöfn:
Tæplega þriðj-
ungur íbúða í
eigu sveitarfé-
lagsins
DV.Akureyri:
Á fimmta tug íbúða á Þórshöfh
eru í eigu sveitarfélagsins, sem
lætur nærri að vera um 30% allra
íbúða á staðnum. Sú þróun hefur
átt sér stað á Þórshöfn síðustu ár
að þar hefur atvinnulífið verið
með miklum blóma og vantað
fólk til starfa, en íbúðarhúsnæði
hefur ekki legið á lausu.
ísak Ólafsson, sveitarstjóri á
þórshöfn, segir að 43 íbúðir á
Þórshöfn séu í eigu sveitarfélags-
ins. Stór hluti þeirra íbúða sé
svokallaðar félagslegar íbúðir
sem ekki hafi selst. En er staðan
þannig aö fólk vilji ekki fjárfesta
í íbúðarhúsnæði á Þórshöfh?
„Já, það virðist vera þannig.
Það er hér eins og víða á lands-
byggðinni að upp kom andstaða
gagnvart félagslega kerfinu og
menn vilja frekar leigja í þessu
kerfi en aö leggja í fjárfestingar. Á
sama tíma vantar hér fólk til
starfa en ekki er fyrir hendi nægj-
anlegt íbúðarhúsnæði," segir ísak.
Hann segir erfitt fyrir sveitarfé-
lagiö að beita sér meira í þessu
máli. Sveitarfélagið hafi nokkum
kostnað af þvi að vera með allan
þennan fjölda íbúöa í leigu, i
nokkrum hluta íbúðanna sé „gegn-
umstreymi", fólk komi og fari og
því fylgi nokkur kostnaður. -gk
Skipverjar af japanska túnfiskskipinu sjást hér á leið niður landganginn á
Ægi við komuna til Reykjavíkurhafnar í nótt. 22 skipverjum var bjargað giftu-
samlega eftir að japanska skipið strandaði tvær mílur út af Skerjafirði.
DV-mynd ÞÖK
borði og ofan í björgunarbátana.
Þeir voru teknir um borð í varð-
skipið Ægi. 24 mínútum síðar,
klukkan 22.12, hafði tekist að koma
öllum skipverjunum frá borði og
stýrimanni varðskipsins. Allir skip-
verjarnir voru þá heilir á húfi en
talsvert dasaðir og skelfdir eftir
strandið.
Þegar björgunarskipið Henrý
Halfdánarson reyndi að setja drátt-
artaug í japanska skipið, skömmu
fyrir miðnætti, losnaði það af sker-
inu og rak innar í Skerjafjörðinn.
Fegnir að vera á lífi
Skömmu síðar náðist að setja
dráttartaug í skipið og varðskipið
Ægir dró það svo til hafnar í
Reykjavík. Dráttarbáturinn Magni
dró reyndar skipið síðasta spölinn
inn í höfnina um klukkan 3 í nótt.
Japönsku og indónesísku skip-
verjarnir vora þá fluttir í land en
þeir vora flestir enn í talsverðu
sjokki eftir strandið. Þeir sögðust
fegnir að vera á lífi og þakklátir fyr-
ir björgunina. Óljóst er hversu mik-
ið japanska skipið er skemmt en
talið er að botn þess hafi laskast í
strandinu. Nánari skoðun á skipinu
fer fram í dag og þá munu fulltrúar
sjóslysanefndar rannsaka slysið.-RR
Erfið skilyrði á strandstað
- segir skipherrann á Ægi
„Þetta var mjög erfitt. Skilyrði á
strandstað vora mjög erfið, myrkur,
talsverður öldugangur og sjö vind-
stig. Svo vorum við að flækjast inn-
an um sker. Japanska skipið lét
mjög illa á skerinu. Það var ákvörð-
un japanska skipstjórans að skip-
verjar yfirgæfu skipið. Það gekk
mjög vel að koma skipverjum frá
borði og í öraggt skjól í varðskipið,"
segir Halldór B. Nellett, skipherra á
varðskipinu Ægi, í samtali við DV
um borð í varðskipinu í nótt. Ægir
var þá nýkomið til hafnar með alla
22 sjómennina sem björguðust af
japanska túnfiskskipinu.
„Japanska skipið losnaði af sker-
inu þegar við voram að reyna að
koma taug í hann. Skipið rak innar
í fjöröinn og þetta leit ekki allt of
vel út. Vegna grynninga var Henrý
Halfdánarson látinn koma dráttar-
taug i skipið og það hafðist. Henrý
togaði hann frá og varðskipið tók
síðan við og sá um að draga skipið
til hafnar,“ sagði Halldór.
-RR
Stuttar fréttir dv
Minna í happdrætti
Góðærið virðist verða til þess að
fólk freistar síður gæfunnar í happ-
drættum. Samdráttur hefúr orðið
hjá flestum þeirra, að sögn Dags.
Meira kaup
Pétur Blöndal
vill hækka þing-
fararkaup úr 200
þúsundum á mán-
uði í 375. Á móti
verði ýmsar
greiðslur felldar
niður, svo sem
ferðakostnaður, en hann greiddur sam-
kvæmt reikningi. Dagur sagði frá.
Óvissa
Kisiliðjunni við Mývatn verður
hugsanlega lokað þegar kísilgúr úr
námum hennar í Ytri flóa verður
uppurinn. Talið er að hann klárist á
næstu tveimur til þremur árum.
Morgunblaðið sagði frá.
Könnun breytt
Könnun á starfsumhverfi ríkis-
starfsmanna var breytt vegna þess að
kvartað var undan því að hægt yrði
að rekja sörin til svarenda. Svarblöð
verða ekki merkt viðkomandi rikis-
stofnun ef færri en 40 starfa við hana.
Sjónvarpið sagði frá.
Sexfalt lottó
Fyrsti vinningur í Lottói íslenskr-
ar getspár verður sexfaldur á laugar-
daginn og gæti numið um 20 milljón-
um króna, að sögn Dags.
Ræna Leifi heppna
Norðmenn ætla að halda mikla
sýningu á Ellis Island í höfhinni í
New York árið 2000. Sýningin verð-
ur helguð Leifi heppna og fúndi Am-
eríku árið 1000. Dagur segir að
margir Norðmenn vilji láta sem
Leifúr hafi verið Norðmaður.
Göngum skilað
Fossvirki hefúr
skilað af sér Hval-
fjarðargöngunum í
hendur Spalar ehf.
og framkvæmda-
sýórans, Stefáns
Reynis Kristins-
sonar, eftir rúm-
lega tveggja mánaða reynslureksturs-
tíma á ábyrgð Fossvirkis. Lokagreiðsla
til verktakans verður greidd á næst-
unni. Hún er tæpur milljarður.
Skuldugur bær
Skuldir Húsavíkm-bæjar hafa
aukist mjög vegna ákvarðana kjör-
inna fulltrúa bæjarins. Skuldimar
voru um 74% hlutfall af tekjum en
eru nú orðnar 100%. Víkurblaðið á
Húsavík sagði frá.
Stjórinn rekinn
Stjóm Búlandstinds á Djúpavogi
ákvaö í gær að framkvæmdastjóri
fyrirtækisins léti af störfúm þegar í
stað. Bráðabirgðauppgjör frá ára-
mótum til 31. ágúst sýnir 184 millj-
óna króna tap sem nemur 18% af
heildarrekstrartekjum.
Nýr skóli
Borgarverkfræðingur í Reykjavík
leggur til að lægstbjóðandi í bygg-
ingu 4. áfanga Fellaskóla, Fram-
kvæmd ehf., fái verkið. Tilboðið er
upp á 98,4 milljónir kr. sem er um
105% af kostnaðaráætlun.
Vilja 25-30% meira
Fangaveröir
krefjast 25-30%
launahækkunar,
að sögn Þorsteins
A. Jónssonar
fangelsismála-
stjóra við Morg-
unblaðið. Mikið
beri í milli og samningar séu ekki í
sjónmáli. Ef menn segi upp verði
auglýst eftir nýjum fangavörðum í
þeirra stað.
Rektor í heimsókn
Hans van Ginkel, rektor háskóla
Sameinuðu þjóðanna, er í heimsókn
á íslandi. Hann hefúr hitt Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra og
þeir rætt um skólann og þróunar-
samvirmu og frekari þátttöku ís-
lands í slíku.
Hærri gjöld
Gjaldskrá Dagvistar bama i
Reykjavík hækkar um 7% aö meðal-
tali um áramótin. Ástæðan er sögð
hækkun á neysluvísitölu. Morgun-
blaðið sagði frá. -SÁ