Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 Fréttir Sviar banna gagnagrunn um sjúkdóma og kynlíf Ný lög um vemd persónuupplýs- inga ganga í gildi í Svíþjóö 24. þessa mánaðar. Svíar hafa nýtt sér ýmsa möguleika aöildarþjóöa Evrópusam- bandsins á að gera undantekningar frá meginreglum sambandsins frá 1995 sem fjalla um vemdun einstak- linga gagnvart öflun persónuupplýs- inga og notkun þeirra. í Sviþjóð verður bannað með öllu að geyma tölvuupplýsingar sem greina frá ættkvísl og menningar- samfélagi einstaklingsins, stjóm- málaskoðunum, trúarlegum eða heimspekilegum skoðunum hans, aðild að félagsskap - eða upplýsing- ar um heilsufar og kynlíf viðkom- andi borgara. Slikar upplýsingar má því aðeins geyma að viðkom- andi hafi gefið skriflegt leyfi, nema hann hafi sjálfur opinberað þær eða að almennir hagsmunir krefjist þess lögum samkvæmt. Svíum er frjálst að loka fyrir rasl- póst sem berst samkvæmt flokkuð- um upplýsingum tölvuútskrifta. Þá mun venjulegur Svíi hafa frjálsan aðgang að öllum tölvuupplýsingum sem fjalla um hann sjálfan. Brot á lögum um persónuupplýsingar varða tukthúsvist, frá sex mánuð- um upp í tvö ár. -JBP Þessi gamli bótur við Reykjavíkurhöfn vakti athygli nemenda Háteigsskóla þegar þeir fóru í vettvangsferð með kennara sínum þangað. DV-mynd GVA 1 \ J 1 '■ \ { i £U-"\whl L ' u' h- \ s , ^ niiiiBr s [%*« u> m má tál lllP :■ lk x .v' UK m ' 'r{ j - ” ' • " m m K ■ I ' V; ^ Magnesíumverksmiðja á Reykjanesi: Aströlsk verksmiðja er vænsti kosturinn Magnesíumverksmiðja á Reykja- nesi kann að rísa undir merkjum AMC, Australian Magnesium Company. Albert Albertsson, að- stoðarforstjóri Hitaveitu Suður- nesja, sagöi í gær að verkefnið hefði aldrei verið með öðmm eins skriðþunga og einmitt nú. Blaðið hafði fregnað að verið væri að leggja á hilluna öll áform um slíka verksmiðju. Það sagði Albert hina mestu fiiTU. Magnesíumverksmiðjan í Ástral- lu hefur undanfarinn áratug þróað nýja aðferð við framleiðslu á magnesíum sem virðist benda til að það félag veröi lægstbjóðandi í sölu á magnesíum í heiminum og því í afar sterkri stöðu. Þessi þró- un og rannsóknir hafa kostað fyr- irtækið milljaröa Ástralíudollara. íslenska magnesíumfélagið á tvo kosti núna. Annars vegar er að nýta hagkvæmnikönnun sem gerð var með rússneskum og þýskum framleiðendum og var hagstæð. Hins vegar em Ástralamir meö lægra verð og minni mengun. Afar litlu munaði í sumar að samið yrði við evrópsku framleiðenduma en rétt þótti aö kanna hvað Ástralar vora að bjóða. „í svipinn er veðjað á þessa áströlsku leið en hinni er engan veginn búið að henda,“ sagði Al- bert Albertsson í gær. Hann sagði að AMC væri á myljandi ferð með framleiðsluaukningu. „Núna er verið að taka það sem íslenskt er og fella það inn í þessa áströlsku tækni.“ FuUtrúar frá Ástralíu hafa verið hér í fjórgang frá því að þessi staða kom upp um mitt sumar. Albert sagöi að upp úr áramótum mundi án efa draga til tíðinda. Eflaust yrði komið fram á mitt næsta ár áður en hægt yrði að tilkynna um upphaf magnesiumiðnaðar á ís- landi. Magnesíumnotkun í heiminum er um 350 þúsund tonn á ári. Bíla- iðnaðurinn notar málminn í æ meira mæli. Magnesíum er létt, sterkt og dýrt. -JBP Dagfarí Það má merkilegt heita aö Steingrímur J. Sigfússon sé fyrsti karl- inn á Alþingi sem tek- ur sér fæðingarorlof. Alþingismenn em frjósamir eins og aðrir, karlar jafnt sem konur, enda getur engin kona átt afkvæmi nema karl- maður komi þar nærri og sömuleiðis mun það víst vera þannig að enginn karlmaður eignast barn, nema kona sé með í ráðum. Þetta gildir um þing- menn sem aðra, þótt ótrúlegt sé, vegna þess að fólk heldur að þing- menn séu öðm vísi en annað fólk. Steingrím- ur karlinn Sigfússon er þar að auki fom í útliti, hálfgerður skallagrímur vorra tíma og ekki kannske líklegastur til að vera bamakarl. En þessi skeleggi alþingismaður er ekki allur þar sem hann er séður og á þrjá stráka fyrir, áður en honum fæddist dóttir á dögunum, þannig að Steingrímur hefur greinilega haft tíma til annars heldur en að standa í pólitík. Þar að auki er það heldur leiðigjörn pólitík sem Stein- grímur stundar. Hann er ekki aðeins upp á kant við ríkisstjómina og stjómarflokkana heldur líka sinn gamla flokk og er nú búinn að lýsa yfir sérstöku framboði nýrrar flokkstegundar á vinstri væng stjómmálanna, sem á að líkjast gamla flokknum, sem hann er búinn aö segja sig úr. Steingrímur er íhaldssamur maður og heldur sig viö sinn gámla flokk, jafnvel eftir aö hann er lagður niður og stofnar nýjan í staðinn fyrir þann gamla til að gamli flokkurinn fái framhaldslíf í hinum nýja flokki. Hann hefur sem sagt hafnað því, hann Stein- grfmur, að fara í fæðingarorlof vegna fæðingar nýju samfylkingarinnar og hann mun heldur ekkert fæðingarorlof fá þegar hann hleypir nýja flokknum sínum af stokkunum og þess vegna eins gott aö taka sér orlof þegar litla telpan fæð- ist. Auk þess er fint að taka sér fæðingarorlof og losna úr þinginu. Það hlýtur að vera mun skemmtilegra að hlusta á babblið í baminu, held- ur en babblið í þingliðinu og svo getur Steingrím- ur talað þindarlaust yfir dóttur sinni, án þess að hún komi nokkmm vörnum við og ekki verður andmælunum fyrir að fara og Steingrímur getur flutt heilu ræðumar án þess að fá viðbrögð úr vöggunni. Ekki nema þá þegar litla daman fer að skæla og heimta sitt og þaggar þannig niður í pabba sínum. Það er meira en þeir geta gert niðri í þingi! Þess vegna hlýtur það að koma sér vel fyrir Steingrfm að taka sér fæðingarorlof og æfa sig á málflutningnum fyrir nýja flokknum í staðinn fyrir gamla flokkinn og bamið fær þar að auki stjómmálaviðhorf Steingrims í vöggugjöf. Ekki kannske það eftirsóknarverðasta fyrir litlu blómarósina, en hvað gerir maður ekki fyrir pabba sinn, sem tekur sér fæðingarorlof til að sinna manni? Maður verður að gera fleira en gott þykir. Dagfari Síðasta skjólið Lítið fer fyrir stuðningi framsóknar- manna á Vestfjörðum við Kristin H. Gunnarsson á kjördæmisþingi um síð- ustu helgi. Stöð 2 setti Kristin í það samhengi í fréttatíma að mikið væri þrýst á hann að taka sæti Gunnlaugs Sig- mundssonar vestra. Reyndar mun Stöðin hafa beðið þing- manninn afsökunar á þessu athæfi en áfram grassérar orðrómurinn. Nú er svo komið að Kristinn á hvorki skjól innan Framsóknar né Alþýðubanda- lags-samfylkingar. Ólíklegt er talið að hinn vegalausi þingmaður eigi samleið með Sverri Hermannssyni, foringja Fijálslyndra íhaldsmanna, sem vill kvótann feigan. Líklegast er talið að Kristinn muni leiða lista Talebana Steingríms J. Sigfússonar. Öllu verra er að sjávarútvegsstefna Talebananna, fer saman við stefnu LÍÚ í meginatrið- um, leggst illa í Vestfirðinga ... Rétt staðsetning Þær breytingar sem kjördæma- nefnd Friðriks Sophussonar boðar á kjördæmaskipan kemur róti á margar þingmannsfjölskyldur. í væntanlegu austurkjördæmi Reykjavíkur verður Grafarvogur áhrifa- svæði meö á bilinu 15 til 20 þúsund kjósendur. Mikil sjáifstæðisalda reis í hverfmu við borg- arsfjómarkosning- amar þar sem sjálfstæðishetjan Snorri Hjaltason benti réttilega á áhrifaleysi landnemanna. Snorri var síöar barinn til hlýðni í flokknum og hlaut það hlutskipti að vera varamað- ur í borgarstjóm. Nú huga einhverjir þingmenn að brottflutningi úr mið- borginni í úthverfi austurborgarinnar til að vera rétt staðsettir þegar borgin klofnar. Einn er þó sá þingmaður sem ekki þarf að flytja. Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra sýndi þá íramsýni að setjast að í Grafarvogi hvar hann býr, einn þingmanna... Bjargvættur af Nesinu Fmmvarp Ingibjargar Pálmadótt- ur um gagnagrunna þótti taka mikl- um stakkaskiptum við síöustu yfir- ferð. Maðurinn á bak viö breytingam- ar er sagður Guð- mundur Sigurðsson, læknir á Seltjamar- nesi, en hann er bróðir Jóns Sig- urðssonar, fyrrver- andi iðnaðarráð- herra. í sjónvarps- þætti á dögunum hélt hann sjó fyrir ráðuneytið þegar hann bæði hélt affur af Kára Stefáns- syni og hlóð síðan andstæðingum fmmvarpsins í þættinum. Sagt er að Guömundur hafi svo góðan hemil á Kára að hann sé allt að því kurteis í návist hans... Ráðherraefni SUS Aðstoöarmaður Bjöms Bjarna- sonar menntamálaráðherra er Ásdís Halla Bragadóttir sem jafnframt er formaður Sambands ungra sjálfstæð- ismanna. Ásdís hefur beint sjónum þess í ríkari mæli en áður að málefnum sem ekki hafa alltaf ver- ið ofariega á dag- skrá þess. Þannig samþykkti sam- bandið á dögun- um stefnu um að __ feður ættu að fá þriggja mánaða sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs o§ jafnframt aö samkjmhneigðir ættu af fá sama rétt og aðrir til ættleiðinga. 1 röðum ungra sjálfstæðismanna þykii hún kjörin til að veröa heilbrigöis ráðherra flokksins og helst fyrr er seinna... Umsjón Reynir Traustason Netfang: sandkom @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.