Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 Fréttir Kona sem þjóðin mun minnast - Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur víða minnst í gær Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, forsetafrú íslands, andaðist á Fred Hutchinsons-sjúkrastofnuninni í Seattle í Bandaríkjunum í fyrra- kvöld. Hún var fædd 14. ágúst 1934 í Reykjavik og var aðeins 64 ára að aldri. Þjóðin hefur fylgst með bar- áttu hennar við illvígan sjúkdóm í meira en ár og dáðst að hugrekki hennar. Eftir meðferð á hvitblæði hér heima kom Guðrún Katrín aftur til starfa við hlið manns síns. Allt síðasta sumar voru þau hjónin í miklum önnum og víða .á ferðinni, innanlands og utan. Veikindin tóku sig upp og fór forsetafrúin til Banda- ríkjanna í mergskiptaaðgerð. Guð- rúnar Katrínar var víða minnst í gær. Forsætisráðherra ávarpaði þjóðina, hennar var minnst á Al- þingi og á kirkjuþingi. Forseta og fjölskyldu bárust kveðjur hvaðanæva að. Guðrún Katrín varð stúdent frá MR vorið 1955. Framhaldsnám stundaði hún á árunum eftir 1970, fyrst í fomleifafræðum við Gauta- borgarháskóla 1971 til 1972 og síðan í þjóðfélagsfræðum viö Háskóla ís- lands 1973 til 1975. Hún starfaði við Náttúrufræðistofnun íslands 1956 til 1962, var dagskrárfulltrúi hjá Sjón- varpinu 1972 til 1974, framkvæmda- stjóri hjá Póstmannafélagi íslands frá 1979 til 1987 og aftur frá 1990 til 1996, er þau hjón urðu húsbændur að Bessastöðum. Á tímabili rak hún verslun með hannyrðavörur og var framkvæmdastjóri Þjóðþrifa hf. Tók þátt í að móta Seltjarnarnes Guðrún Katrín og Ólafur Ragnar bjuggu á Seltjamamesi. í bæjarmál- um lét Guðrún að sér kveða undir merkjum Alþýðubandalagsins. Búbba, eins og Guðrún Katrín var ævinlega kölluð á Nesinu, reyndist tillögugóð og þrautseig baráttukona í bæjarstjórn. Og hún átti ekki í erf- iðleikum með að vinna sín verk þrátt fyrir meirihluta sjálfstæðis- manna í bæmun. „Mér var eins og mörgum öðmm, afar hlýtt til Guðrúnar Katrínar. Oft hvessti auðvitað milli okkar á fúnd- um, það væri rangt aö halda öðra fram. Smávegis ágreiningur held ég að hafi aðeins verið af hinu góða. Við vorum 16 ár saman við stjóm bæjarfélagsins svo það gefur auga leið að ekki var fólk alltaf sammála Söknuður á Alþingi Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur var minnst á Alþingi í gær. Hér eru nokkrar þingkonur: Kristín Hall- dórsdóttir, Svanfríður Jónasdóttir, Guðný Guðbjörnsdóttir, Arnbjörg Sveinsdóttir og Jóhanna Sigurðar- dóttir. Greinilegt var að fréttin um andlát forsetafrúarinnar vakti sökn- uð meðal þingmanna. DV-ljósmyndir um alla hluti. En aldrei tók neinn ágreiningsmálin heim með sér og alltaf vorum við bestu vinir á eftir. Það var alltaf gott að ræða við Guð- rúnu og hún tók virkan þátt í upp- byggingunni hér,“ sagði Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri á Seltjamar- nesi, í gær. Hann sagði að fólk á Nesinu hefði vissulega verið hreyk- ið af forsetahjónunum og á vissan hátt eignað sér þau. Enda voru þau boðin „velkomin heim“ þegar þau komu í opinbera heimsókn í gamla bæinn sinn í vor og var fagnað af tvö þúsund íbúum á Nesinu. Magnús Erlendsson, forseti bæj- arstjómar Seltj£im£imess, á þessum árum sagði: „Þessi bæjarstjóm var ákaflega samstillt og Búbba var alltaf fyrst og fremst að hugsa um hagsmuni bæjarbúa og þá mundi enginn fyrir hvaða flokk hann var að starfa. Samstarfið var ljúft, það þurfti varla handauppréttingu í bæjarstjóm, fólk var svo einhuga um flesta hluti," sagði Magnús. Hann sagði að í vinabæjaheimsókn- lun erlendis hefði verið gaman að ferðast með Guðrúnu Katrínu, svo glæsilegum og vel máli fömum fúll- trúa bæjarfélagsins. „í umhverfis- málunum var hún minn sterkasti stuðningsmaður og hún átti stóran þátt í því að vestursvæðin við Nes- stofu vora friðuð. Ég á þá ósk heitasta þjóð okkar til handa að hún eignist margar konur henni líkar," sagði Magnús. Eiginkona, vinur, samstarfsmaður „Guðrún Katrín helgaði Alþýðu- bandalaginu krafta sina í sveitar- stjórnarmálum á Seltjamamesi í mörg ár og naut viröingar allra þeirra sem þekktu til starfa hennar. Þá tók hún alla tíð virkan þátt í störfum eiginmanns síns og var honum einstakur félagi og vinur. Við minnumst hennar öll með þakk- læti og virðingu," sagði Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðu- bandalagsins, í gær. Hún sagði að forsetinn hefði misst eiginkonu, sinn besta vin og nánasta samstarfs- mann. Hún sagði að forsetafrúin hefði áunnið sér virðingu og hlý- hug þjóðarinnar vegna glæsilegrar framkomu sinnar þar sem virðing fyrir landi og þjóð einkenndi öll hennar störf. „Við sem höfum ver- ið svo lánsöm að kynnast Guð- rúnu Katrínu á öðrum vettvangi þekkjum þann sterka og hlýja per- sónuleika sem hún hafði að geyma," sagði Margrét. Ólafur G. Einarsson, forseti Al- þingis, flutti minningarorð um for- Hreykin móðir Þau Guðrún Katrín og Ólafur Ragn- ar eignuðust tvíburatelpurnar Guð- rúnu Tinnu og Svanhildi Döllu sem eru 23 ára. Hér er mynd frá 1978 þar sem hreykin móðir heldur á tápmikl- um þriggja ára dætrum. Guðrún Katrín átti frá fyrra hjónabandi dæt- urnar Erlu myndlistarmann og Þóru kennara Þórarinsdætur. 116,47 Eimskip Flugleiðir Oliufélagið Skeljungur Tæknival Síldarvinnslan 1026,24 1550 1500 1450 1400 1350 1300 Samrýnd hjón Hér getur að líta hjónamynd af þeim Guðrúnu og Ólafi sem var tekin ári áður en farið var í forsetakjörið. Þá var Ólafur formaður Alþýðubanda- lagsins og alþingsismaður en Guð- rún Katrín starfaði sem fram- kvæmdastjóri Póstmannafélags ís- lands. Myndin var tekin á heimili þeirra við Barðaströnd á Seltjarnar- nesi þar sem fjölskyldan bjó um ára- bil. setafrúna í upphafi þingfundar í gær. Hann rakti æviatriði Guðrún- ar Katrínar og sagði að hógvær framkoma, ljúfmennska og hátt- prýði hefðu verið aðlaðandi þættir í fari hennar. „Því hlutverki sem henni var fengið við hlið forseta íslands gegndi hún með sannri prýði og vakti aðdáun hárra sem lágra. Að því kom of fljótt að hún

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.