Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.1998, Page 8
Aukabúnaður é mynd: Altelgur A Lancer og Carlsma. 8 MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 Hið virðulega Dansk 0lnyder Selskab hefur kosið Thule bjór frá Sól-Víking á Akureyri 3. bragðbesta bjórinn í veröldinni. 513 bjórtegundir komu til greina frá 59 löndum. Þiónustusfml 55D 5DQD www.visir.is NÝR HEIMUR Á NETINU Utlönd Milosevic Júgóslavíuforseti undir smásjánni: Mismikil hrifning Slobodan Milosevic Júgóslavíu- forseti er nú undir smásjá Vestur- landa sem vilja tryggja að hann fari að samkomulaginu sem gert var við sendimann Bandaríkjastjórnar í vikubyrjun. Þar gaf Atlantshafs- bandalagið (NATO) Milosevic fjög- urra sólarhringa frest til að leysa Kosovodeiluna áður en loftárásir NATO hæfust. Stjórnvöld í Júgóslavíu og erlend- ar ríkisstjómir fógnuðu samkomu- laginu þar sem áhættusömum hem- aðaraðgerðum er afstýrt, að minnsta kosti í bili. Ekki em þó all- ir jafnhrifnir. Einkum eru það Kosovo-Albanir sjálfir sem eru óhressir. Þeim finnst sem sum lykil- efni hafi verið skilin eftir óleyst. Staða Kosovohéraðs er þeim hug- leikin. Samningurinn gerir ráð fyr- ir sjálfstjórn þótt íbúamir krefjist fulls sjálfstæðis. Þá hafa Kosovo-bú- ar áhyggjur af því hvernig hægt verði að fá flóttamenn í héraðinu til að snúa aftir heim áður en vetur gengur í garð þar sem engar her- sveitir NATO verði til staðar að veita þeim vernd gegn Serbum. Búist er við embættismönnum frá NATO og Öryggis- og samvinnu- stofnun Evrópu (ÖSE) til Serbíu á næstu dögum til að ganga frá samn- ingi um endalok hemaðaraðgerða Sextán manns létu lífið og sextíu særðust er sprenging varð í flugeldaverksmiðju í Tultepec í Mexikó í gær. Símamynd Reuter Serba gegn albanska meirihlutan- um í Kosovo. Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagði í gær að góðar líkur væru á því að koma mætti í veg fyrir loft- árásir NATO. Það væri þó undir Milosevic komið. Serbar verða að kalla hermenn sína heim frá Kosovo eða halda þeim í búðum sínum. Þá verða þeir að hleypa tvö þúsund eftirlitsmönn- um ÖSE inn í Kosovo og vinna með þeim svo þeir geti fullvissað sig um að Serbar fari að öllum skilmálum sem þeim hafa verið settir. Óvopn- aðar flugvélar NATO munu fljúga eftirlitsflug yfir Kosovo. Netanyahu svartsýnn Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra ísraels, sagði í gær að engar horfur væru á imdirritun samkomulags við Palestínumenn á leiðtogafundinum í Washington sem hefst á morgun nema Palest- ínumenn sinntu öllum skyldum sínum. Netanyahu lét þessi orð falla nokkrum klukkustundum eftir að ísraeli var skotinn til bana og annar særður alvarlega nálægt Jerúsalem. Svarta ekkjan ekki geðveik Þrír sérfræðingar hafa úr- skurðað að Patrizia Reggiani Gucci, fyrrverandi eiginkona tískukóngsins Maurizios Guccis, sem kölluð hefur verið svarta ekkjan, sé heil á geði. Patrizia er ákærð fyrir að hafa skipulagt morðið á fyrrverandi eiginmanni sínum. Verjendur Patriziu reyndu að halda því fram að hún hefði ekki verið andlega heilbrigð síðan æxli var fjarlægt úr heila hennar árið 1992. | i ( i L € € i c: [HJ HEKLA Lancer 75 hestöfl •öryggispúðar fyrir ökumann og farþega •Fjarstýrðar samlæsingar •Rafdrifnar rúðuvindur með slysavörn •Rafhitun í framsætum •Rafstýrðir upphitaðir útispeglar •Vindskeið o.m.fl. MIT5UBISHILANCER kostarfrakr. 1.350.000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.