Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1998, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1998, Qupperneq 8
1 g i k h ú s Lelkfélag Reykjavíkur. Mávahlátur verður frumsýndur í kvöld kl. 20. Önnur sýning er síö- an á sunnudag og sú þriöja næstkomandi fimmtudag. Um er að ræða verk sem byggist á skáldsögu Krlstínar Marju Baldursdóttur í leikgerö Jóns J. HJartarsonar. Með aöalhlut- verkið fer engin önnur en Halldóra Gelrharðs- dóttlr en Hláturinn gerist ! Islensku sjávar- þorpi á sjötta áratugnum. Plássið fer í upp- nám þegar Freyja (leikin af Halldóru) mætir á svæöið frá Ameríku. Hún er v!st algjört fox og viö taka flókin ástarmál og undarleg atburða- rás kastast af stað. Slminn er 568-8000 fyrir þá sem vilja panta miða. Brecht kabarett verður forsýndur í Iðnó á morgun kl. 12 og er uppselt. Það er einnig upp- selt á frumsýning- una sem er á sunnudaginn en laus sæti á aðra sýningu sem er á miðvikudag. Þeir sem vilja sjá Slf Ragnhlldardóttur syngja Ijóð Brechts ættu að panta sér miða f síma 530-3030. 1 Kaffilelkhúsinu eru trúöarnir Barbara og Úlf- ar allsráðandi annað kvöld kl. 24. Þaö eru nokkur sæti laus, síminn er 551-9055. Ofanljós á Litla sviðinu kl. 20, föd. 23/10, Id. 24/10. Borgarlelkhúslð, síminn er 568-8000 fyrir þá sem vilja panta miða. Hafnarfjarðarlelkhúslð Hermóður og Háðvör sýnir Okkur feðgana eftir Þorvald Þorsteins- son í kvöld kl. 20. Sími 555-0553. ÞJóðlelkhúslð sýnir Mann í mlslitum sokkum en það er uppselt bæði annaö kvöld og á fimmtudag. Þetta er góð skemmtun fyrir ömm- ur, afa og annaö miðaldra fólk. Símapantanir í síma 551-1200. Lelkfélaglð SJónlelkur sýnir Svartklæddu kon- una í Tjarnabíói I kvöld og á mánudag. Þetta er pottþétt sýning fyrir þá sem vilja fá gæsa- húð ! leikhúsi. Algjör spennutryllir. Miðapant- anir! s!ma 561-0280. ÞJóðlelkhúslð sýnir sögulega verkiö Solvelgu annað kvöld en þaö er uppselt og þv! ekkert hægt að gera annaö en panta miöa í s!ma 551-1200. Iðnó sýnir leikritið Rommi annað kvöld og því miður er uppselt á ellismellinn. En síminn fýr- ir þá sem vilja bóka fram ! t!mann er 530- 3030. í Kaffllelkhúslnu er verið að sýna spennuleik- ritið Svlkamyllu. Þaö eru örfá sæti laus á sýn- inguna annað kvöld. Þetta er sakamálaflækja ! hæsta gæöaflokki. Siminn er 551-9055. Leikritið Þjónn i súpunnl er leikið i kvöld i lönó kl. 23.30. Það er uppselt á sýninguna en sím- inn er 530-3030. Hellisbúlnn er sýnd- I ur ! íslensku óper- unnl föd 23/10 kl. i 21, uppselt, Id. í 24/10 kl. 21, upp- | selt, fid. 29/10 kl. | 21, uppselt. Síminn í Óperunni er 551- 1475. Borgarlelkhúslö. Það er uppselt á Grease á morgun kl. 15 en hægt er að panta miða í síma 568-8000. Þjóðlelkhúslð heldur áfram að sýna Óska- stjörnuna hans Blrgls Slgurðssonar í kvöld og þaö er hægt að panta miða! síma 551-1200. Sex í svelt er leikið á Stóra sviði Borgarlelk- hússlns annaö kvöld en það er uppselt. Sím- inn er 568-8000 fyrir þá sem vilja panta miða. meira á. www.visir.is FÓKUSMYNDIR: TEITUR „Pandóra var uppáhaldshljóm- sveitin okkar í Keflavík og við fór- um aö spila út af þeim,“ segir Bíbí. „Elíza gerðist söngvari af því að hún var með eins hár og söngvar- inn í Pandóru og Birgitta hafði lært á sneril þegar hún var fimm ára svo hún fór á trommur. Mamma Sigrúnar hafði keypt handa henni gítar á Majorka árið áður svo ég sat uppi með hassann. Ég hafði líka lært á píanó eins og bassaleikarinn í Pandóru svo þetta gekk allt upp. Við fórum ekki að spila af neinu viti fyrr en eftir ár, vorum bara að pæla og finna nafn, kölluðum okkur Zaraþústra og Græn og eitthvað svona, hétum ýmsum nöfnum í mesta lagi viku í senn.“ Voruó þiö þá aö hanga meö strákunum í Pandóru inni í bíl- skúr? „Nei, við fengum að æfa með öðrum hljómsveitum, komumst í græjumar þeirra og tókum „Wild thing“. Svo þegar við vorum búnar að eignast almennileg hljóðfæri og semja frmm lög fóram við Músíktil- raunir." Þá var Kolrössunafnið komið, bandið sigraði í Tilraununum og ekki var aftur snúið. „Við pældum ekkert í því hvað myndi gerast, þetta var bara ógeðslega gaman og hefur haldið áfram að vera ógeðs- lega gaman og þess vegna er mað- ur í þessu, þó það séu náttúrlega „öpps and dáns“.“ Fenguð þið fleiri tœkifœri af því þið eruö konur? „Sjálfsagt. Er það ekki alltaf þannig? En svo sönnum við okkur alltaf. Til að byrja með þótti það eitthvað fyndið að við værum stelpur en það er löngu hætt. Við hefðum aldrei náð svona langt bara út á það.“ Give us something to eatl Birgitta trommari heltist úr lest- inni, Kall trommari kom í staöinn beint úr dauðarokkinu og nýr gít- arleikari, Anna Margrét, bættist við. Bandið byrjaði snemma að horfa til útlanda. „Við vorum alltaf svo hrifnar af þessum indie-bönd- um frá Englandi á því tímabili sem við unnum Músíktilraunir. Þá var alltaf draumurinn England og ef við fengjum að spila á einum klúbbi í London þá myndi draum- urinn rætast og við gætum bara hætt. Nú er þetta orðinn aðeins stærri draumur." Hvert er þá markmiöiö núna - hvenœr verðió þið ánœgö? Rétt eins og Kolrassa krókríðandi er kölluð Bellatrix er Esther Ásgeirsdóttír bassaleikarí yfirlertt kölluð Bíbí. Hún stendur í stórræðum með hinum Tríxunum; bandið hélt útgáfutónleika fýrir nýju plötuna í vikunni þar sem tuttugu erlendir blaðamenn og snuðrarar létu sjá sig svo árangur þrotlausrar rokkhörku virðist vera að skila sér. Dr. Gunna lék forvitni á að vita hvernig þetta hefði veríð í Keflavík fyrir tæplega átta árum þegar stelpurnar hættu í mömmuleik og fóru að rokka. „Þegar við getum lifað þokkalega á þessu og þurfum ekki að vera í fúllri vinnu í Hagkaupi eða póstin- um. Þetta útlandabrölt allt er svo dýrt - það væri gott ef einhver væri til í að borga það fyrir okkur, ha ha. Þó við höfum fengið styrki þá brenna þeir fljótt upp og við þurfum strax að fara að öngla sam- an í næstu ferð.“ Leit Kolrassa að meikinu hefur dregið þau víða. „Fyrst fórum við til Danmerkur og tókum upp lag á „Upcoming 2“ sem var hroöalegur diskur með þungarokksböndum frá Norðurlöndum. Ég veit ekki alveg af hverju við vorum fuiltrúar ís- lands, ja, við vorum reyndar með smá þungarokkskomplexa þá. Svo fórum við til Bandaríkjanna sem var mikið ævintýri og höfum svo verið með annan fótinn í London síðustu árin.“ Ein fyrsta ferðin sem bandið fór í var tónleikaferð sem skipulögð var af stráki í Frakklandi. „Það var allt mjög ævintýralegt og fáránlegt, sérstaklega þegar hann flúði. Hann var búinn að lofa að aðalgiggið yrði i París en sagð- ist svo þurfa að drífa sig heim til Marseille og tók lestina. Við vorum eftir í París en þar var auðvitað ekkert að gerast. Maður var hættur að verða fúll eða reiður og fór bara að hlæja og sagði; „Give us somet- Skúli Sverrisson og félagar í Pachora koma til íslands og flytja með sér miðjarðarhafsstemningu, bi-bop og áhrif frá Búlgaríu og lyrklandi Sniðug blanda úr ólíkum Árum saman hefur bassaleikar- inn Skúli Sverrisson dvalist í New York og spilað með helstu djass- og avant garde-spilurum borgarinnar. Hann hefur komið víða við, m.a. í hljómsveitinni Pachora, sem verður með tónleika í Loftkastalanum í næstu viku. Það er ekki auðvelt að útskýra tónlist Pachora. Þar er sniðug blanda úr ólíkum áttum. Miðjarða- hafsstemning er allnokkur, blönd- uð tónlist Balkanskagans, bi-bop djass og áhrif frá Búlgaríu og Tyrk- landi eru einnig vel heyranleg. Pachora er kvartett, auk Skúla eru innanborðs ásláttarleikarinn Jim Black, klarínettuleikarinn Chris Speed og Brad Shepik leikur á saz, sem er portúgalskur gítar, og rafmagnssaxófón. Tónleikarair hér eru hluti af tónleikaferð þeirra um Evrópu. Nú eru þeir t.d. á Spáni og eiga eftir að fara víða. Hljómsveitin er sprottin upp úr kreðsu sem hægt er að kenna við Knitting Factory. Það er helsta uppspretta „öðruvísi" tónlistar í New York, víðfrægur klúbbur djúpt í East Village og um leið eitt stórvirkasta útgáfufyrirtækið á þessu sviði í heiminum. Fyrsti diskur Pachora kom einmitt út hjá Knitting Factory í fyrra og hefur fengið skínandi góða dóma. Sem dæmi um aðra listamenn sem gefa út hjá Knitting Factory má nefna trommarann William Hooker, brjálaða saxistann John Zorn, Arto Lindsay og Kramer. Þó ýmsa listamenn úr þessari kreðsu mætti kalla „erfiða" er tón- list Pachora létt og auðmeltanleg og fln fyrir þá sem hafa gaman af böndum eins og Júpiters og Millj- ónamæringunum og auðvitað kjör- in fyrir djassara og heimstónlistai'- pælara. Tónleikamir verða eins og áður segir í Loftkastalanum funmtudagskvöldið 29. þessa mán- aðar. A undan Pachora stígur Is- lenski hljóðmúrinn á stokk en það er samstarfsverkefhi Óskars Guð- jónssonar saxófónleikara og Jó- hanns Jóhannssonar úr Lhooq. -glh f Ó k U S 23. október 1998 !'! H M I i J *•*•> I .1 i i i| j I iii M * IÍ.UÍ ij.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.