Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1998, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1998, Blaðsíða 6
m a t u r ARGENTÍNA ★★★ Barónsstíg lla, s. 551 9555. „Bæjarins besta steikhús hefur dalað. Dýrustu og enn þá bestu nautasteikur landsins, en ekki alveg eins innanfeitar og safaríkar og áður.“ Opiö 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar. CAFÉÓPERA ★ Lækjargötu 2, s. 522 9499. „Undarlegir stælar einkenna þetta Café Óperu og þar viröist vera takmarkaöur áhugi á mat- reiöslu." Opiö frá 17.30 til 23.30. CARPE DIEM ★ Rauóarárstíg 18, s. 552 4555. „Hátt verðlag hæfir ekki tilviljanakenndri og brokkgengri matreiðslu staðarins." Opiö kl. 18-20 virka daga, 18-23 um helgar. EINAR BEN ★★ Veltusundl 1. 5115 090. „Fremur þemahús en veitingahús og leggur meiri áherslu á umbúðir en innihald. Einar Ben. býður yfirleitt ekki uþþ á vondan mat og verður því seint jafnvinsæll og Fashion Café eða Planet Hollywood." Opiö 18-22. HARD ROCK CAFÉ ★★ Krlnglunnl, s. 568 Jónas og Hrannar, fulltrúar hinnar nafntoguðu hljómsveitar Ummhmm, hittu Dr. Gunna í þynnkunni á laugardaginn var og trúðu honum fyrir dásamleik eigin verka, að íslendingar væru í raun amerískir Grænlendingar og að góðæríð værí allt tekið út á raðgreiðslum. | ■ I ■ og þá hringdi hvað-djöfullir okkur að spila á SÁÁ-tói sem var mikill heiður 9888. „Staðurinn hæfir fólki, sem ekki þekkir annaö en skyndibita og vill ekki annað en skyndibita; fólki, sem þolir tvöfalt verð fyrir góða hamborgara og daufa ímynd þess að vera úti aö borða. Þjónustan jafn alúðleg og ágæt og fýrr." Opiö 11.30-23.30. HÓTELHOLT ★★★★★ Bergstaðastræti 37, s. 552 5700. „Listasafnið á Hótel Holti ber í mat- argerðarlist af öðrum veitingastofum landsins. Þar fara saman frumlegir réttir og nærfærin mat- reiðsla, sem gerirjafnvel baunir að Ijúfmeti." Opiö 12-14.30 og 19-22.30 virka daga, 12-14.30 og 18-22 fóstu- og laugardaga. HÓTEL ÓÐINSVÉ ★★ v/Óðlnstorg, s. 552 5224. „Stundum góður matur og stundum ekki, jafnvel í einni og sömu máltíð." Opiö 12-15 og 18-23 virka daga, 12-15 og 18-23.30 föstu- og laugardaga. IÐNÓ ★★★ Vonarstræti 3, s. 562 9700. „Öll umgjörð Iðnó er vönduð og stílhrein. Henni fýlg- ir traust og góð þjónusta og matreiðsla, sem stundum fer sínar eigin slóðir, en nær sjaldan hæstu hæðum. Enginn réttur var að neinu leyti mishepþnaður, en fáir minnisstæðir." Opiö frá 12-14.30 og 18-23. ÍTALÍA ★★ Laugavegl 11, s. 552 4630. „Eignarhaldið er italskt, kokkarnir eru ítalskir og gæðaþjónustan er háifítölsk. Það, sem tæpast hangir í ítölskunni, er matreiöslan." Opiö 11.30-11.30. KÍNAHÚSIÐ ★★★★ Lækjargötu 8, s. 551 1014. „Margt er þaö, sem dregur, matreiðsla, verðlag og andrúmsloft, sem samanlagt gera Kínahúsið að einni af helztu matarvinjum miö- bæjarins." Opiö 11.30-14.00 og 17.30-22.00 virka daga, 16-23 laugardaga og 17-22 á sunnudögum. KÍNAMÚRINN ★★ Laugavegi 126, s. 562 2258 „Kínamúrinn er notaieg matarhola, eitt fárra frambærilegra veitingahúsa hér á landi, sem kenna sig við austræna matreiðslu." Opiö 11.30 til 22.30 alla daga nema sunnudaga frá 17.00 til 22.30. LAUGA-ÁS ★★★★ Laugarásvegl 1, s. 553 1620. „Franskt bistró að íslenskum hætti sem i dregur til sín hverfisbúa, sem nenna ekki að elda í kvöld, barnafjölskyldur utan úr bæ og feröamenn utan af landi og frá útlöndum. Hér koma hvorki uppar né ímyndarfræðingar." Opiö 11-22 og 11-21 um helgar. LÆKJARBREKKA ★★ Bankastrætl 2, s. 551 4430. „Matreiðslan rambar út og suður, góð, frambærileg eða vond eftir atvikum. Með annarri hendinni eru gerðar forvitniiegar tilraun- ir en með hinni er farið eftír verstu hefðum." Opiö mánudaga-miövikudaga 11-23.30, fimmtudaga-sunnudaga 11-0.30. MIRABELLE ★★★ Smlðjustíg 6., s. 552 2333. „Gamal-frönsk matreiösla alla leið yfir í profiteroles og créme brulée. Mirabelle er kom- in á gott skrið." Opiö 18-22.30. PASTA BASTA ★★★ Klapparstíg 38, s. 561 3131. „Ljúfir hrísgrjónaréttir og óteljandi til- brigði af góðum pöstum en lítt skólað og of upp- áþrengjandi þjónustufólk." Opiö 11.30-23 virka daga og 11.30-24 um heigar. Barinn eropinn til 1 virka daga og til 3 um helgar. LA PRIMAVERA ★★★★ Austurstrætl 9, s. 5618555. „Sjálfstraust hússins er gott og næg innistæða fyrir því." Opiö 12.00-14.30 og 18.00-22.30 virka daga og um helgar frá 18.00-23.30. RAUÐARÁ ★ Rauðarárstíg 37, s. 562 6766. „Túrista-steikhús." Opiö frá kl. 18 og fram eftir kvöldi. Hversu lengi fer eftir aösókn. SKÓLABRÚ ★★★ Skólabrú 1, s. 562 4455. „Matreiöslan er fögur og fín, vönduð og létt, en dálítið frosin. Þjónustan er kurteis og hófsöm." Opiö frá kl. 18 alla daga. VIÐ TJÖRNINA ★★★★ Templarasundl 3, s. 5518666. „Nú virðist Tjömin endanlega hafa gef- ið forystuna eftir og raunar annað sætið líka, ger- ir oftast vel, en ekki alltaf og mistekst raunar stundum." Opiö 12-23. ÞRlR FRAKKAR ★★★★ Baldursgötu 14, s. 552 3939. „Þetta er einn af homsteinum íslenskr- ar matargerðarlistar og fiskhús landsins númer eitt." Opiö 12-14.30 og 18-20 virka daga og 18-22 um helgar en til 23 föstu- og laugardag. Jónas Björgvinsson og Hrann- ar Hauksson eru fulltrúar nýrrar hljómsveitar, Ummhmm, sem er að gefa út sína fyrstu plötu. Útgáfu- tónleikarnir verða í Þjóðleikhús- kjallaranum þann 29. okt. Við sitj- umst inn á Sólón íslandus og Hrannar æsir sig við gengilbein- una því hún getur ekki fært hon- um rúgbrauð með hangikjöti. „Djöfuls útlendingasnobb alls stað- ar á þessum kaffihúsum,“ segir hann og fussar yfir matseðlinum. Það er laugardagsmorgunn og strákamir eru þokkalega krumpað- ir í framan, hafa greinilega skemmt sér vel í gær. Þeir eru klæddir eins og erfiðismenn, eru ekkert að klæða sig upp í tískutuskur eins og flestir poppar- ar. Jónas er stjómandi Ummhmm, semur öll lög og texta, er frá Akra- nesi og vinnur sem vélvirki við stórframkvæmdir þegar hann er ekki að poppa. Bandið er annars sex manna, fimm strákar og stelpa sem syngur flest lögin á plötunni. „Þetta byrjaði þannig að ég samdi lögin og hafði verið að vinna þau með henni Tótu, Þór- unni Jónsdóttur, í tvö ár,“ segir Jónas. „Við sendum eitt lag í spil- un í vor, „Plastkortablús", og þá hringdi hvað-djöfull- inn-heitir-hann frá SÁÁ og bauð okk- ur að spila á SÁÁ-tónleikun- um í Borgar- 1 e i k h ú s i n u sem var m i k i 11 heiður fyrir okkur. Þá vfu" rakað saman í þessa grúppu. Við ákváð- um svo að fara út til Danmerkur í stúdíó sem Orri Harðarson rekur þar.“ Hvernig tónlist er þetta? „Þetta er tónlist sem hefur vant- að í íslenskt tónlistarlif í tuttugu ár,“ segir Jónas, viss í sinni sök, „þegar Bjóla, Spilverkið og þetta var í gangi. Og náttúrlega blús í bland." „Já, og Maggi Eiríks líka, það verður að viðurkennast," bætir Hrannar við. „Þessi plata verður seint þýdd yfir á ensku," segir Jónas og rekur upp skellihlátur. „Við erum jafnís- lensk og slátur." „Lifi lifrarpylsan!" hrópar Hrannar. Ekkert nærbuxnavæl Platan heitir „Haust“ af því hún kemur út um haust og er fyrir fólk sem er komið að hausti í lífinu. „Svo markaðssetjum við plötuna eins og vin,“ segir Jónas. „Haust- uppskera er meira þroskuð og sæt- ari.“ Eruó þió fyllibyttur? „Ha, ha, já, við erum blaut- menni. Ég held að við íslendingar stefnum í sömu átt og Grænlend- ingar, frekar en að hér sé að skap- ast einhver vínmenning." Þannig aö Nýkaup fer aó selja riffla eftir nokkur úr? „LMega, já, íslendingar eru svo öfgafullir. Við erum amerískir Grænlendingar. Það er kannski einhver menningarrembingur hérna í bænum en þegar þú kemur út á land er'ða bara vodki, kók og blindafyllirí. Þannig að textarnir eru um þetta? „Jú, og það er oft ádeila í þeim. Eins og „Pfastkortablúsinn" sem er ádeila á íslenskt samfélag og sjálf- an mig líka. Þetta er ekk- ert nærbuxnavæl eins og flest af flórunni héma er.“ ; Björgvinsson 01 „Við sendum eitt „Nú ertu farin...“ syngur Hrann- ar, máli Jónasar til stuðnings. „Við erum að syngja um okkur sjálf, bara, þjóðina, en sumt annað er sprottið upp úr mínum hugar- heimi,“ segir Jónas. „Sprettur þetta ekki yfirleitt upp þegar þú kemur heim ofurölvi og sest á klósettið?" spyr Hrannar. „Jú, ég samdi eitt á klósettinu. Það heitir „Skjárinn" og er ádeila á sjónvarpsgláp íslendinga. Það er kannski mesta kómedían á plöt- unni af því að ég syng það sjálfur. Ég bjóst ekki við að það myndi enda á plötu en vegna fjölda áskor- ana fór það með.“ Góðæri á raðgreiðslum Eruö þió úr verkalýösstétt? „Ég er úr verkalýðsstétt, já“, svarar Jónas en Hrannar neitar sakargiftum. „Ég er iðnaðarmaður en hann er skrifstofublók," segir Jónas og bendir á vin sinn. Er meiri stéttaskipting hérna en veriö hefur? Hrannar: „Það er stéttaskipting, nnar Hauksson í Ummhmm: spilun í vor, „Plastkortablús“, llinn-heitir-hann frá SÁÁ og bauð -tónleikunum í Borgarleikhúsinu fyrir okkur.“ meira a. www.visir.is Það kemur spánskt fyrir sjónir, að Spánarvín skuli vera kjölfesta vínlistans á veitingahúsi, sem kall- ar sig „ristorante" og „í ítölsku umhverfi". Og ekki er mikill ítaliu- svipur á að bjóða þunnt kafii úr sjálfsala og kalla það espresso. Gervimúrsteinn og gervi- marmari, gervisúlur og gervibitar, vafnir gerviblómahafi, og dauflega kertalýst myrkur um miðjan dag eiga að höfða til ástarævintýra með contessum við hrundar hallir á hæðunum við Flórens, en virka í raun eins og leiksvið. Þegar kjörþyngdarfólk hefur troðið sér í bakháa bekki og hinir hafa setzt í stólana fyrir framan, kemur i ljós, að þetta er notaleg og næstum rómantísk veitingastofa með góðri þjónustu og frambæri- legum Ítalíumat fyrir lægsta verð, sem þekkist hér á landi. Hér borga menn í hádeginu 785 krónur fyrir súpu og pöstu og 885 fyrir súpu og fiskrétt. Annars kosta níu tomma pítsur 950 krón- ur, pöstur 1050 krónur, alvörurétt- Madonna 'J3ÍÚ j já, en ekkert meira en hefur verið. Maður tók bara ekki eftir þessu fyrr en manni fór að langa í pen- ing. Ég er ekki einn af þeim sem er í biðröð eftir bíl; frekar aö maður bíði í biðröð á stoppistöðinni. Ég tel mig hafa ágætis tekjur en mað- ur hefur engan veginn efni á að taka þátt i góðærinu." Jónas: „Eru ekki bara allir á ís- landi í því að láta líta út fyrir að þeir séu eitthvað annað en þeir eru. Þú ert með Visakort í vasan- um, ný fót, gsm á borðinu, nýjan bíl á sjö ára raðgreiðslum, ferð á kaffihús á hverjum degi með flott- an hatt og vinnur svo sem pitsa- sendill á kvöldin. Svona er ís- lenskt þjóðfélag." „Góðærið er á raðgreiðslum," botnai- Hrannar. -glh Notaleg og rómantísk ir 1590 krónur og þríréttað með kafíl 3100 krónur. Þetta verð er til fyrirmyndar. Gengið er þröngan gang inn að þröngum skenk með reyksal til hægri og reyklausan til vinstri, þar sem öflugar loftviftur halda góðu lofti. Lágvær óperutónlist hefur í seinni tíð vikið fyrir lágværu jarmi í Eurovision-stíl, sem hverfur í kliðinn við borðin, þar sem jafnan er setinn bekkurinn. Rjómuð og rauðleit humarsúpa, þakin þeyttum rjóma, var meyr og matarmikil, borin fram með hvít- lauksbrauði, sem fylgir mörgum réttum staðarins. ítalskt salat með ólífum, pepperoni, skinku, túnfiski og rækjum reyndist vera heil mál- tíð. Gott var ferskt og fjölbreytt grænmetissalat með ostasósu. Meira spennandi forréttir voru hvítlauksristaðir og meyrir sniglar með mikilli hvítlauksrjómasósu ofan á beði jöklasalats. Og smávax- inn hörpuskelfiskur, örlítið of mik- ið pönnusteiktur í mildu raspi og sterkri freyðivínssósu. Góð var pitsa Veneziana með eggjum, beikoni og lauk, svo og hæfilega brakandi kanti. Pöstur voru enn betri, nákvæmlega soðn- ar, svo sem fettucini með humri í skelfisksósu. Spaghetti carbonara var líka léttsoðið, en hins vegar ofhlaðið grana-osti og skorti alveg skinku og harðsoðin egg. Mildilega pönnusteikt ýsa í mildu karríi var frambærileg, en benti til, að fiskur kæmi ekki daglega í húsið. Hæfilega smjör- steiktur skötuselur í hvítvíns- sósu var líka góður, en pönnu- steikt grænmeti með honum stakk í stúf. Bökuð kartafla virt- ist fylgja öllum fiskréttum. Súkkulaðifrauð var létt og hlutlaust, með þeyttum rjóma. Ostakaka var hæfilega mjúk og góð, en ofhlaðin ávöxtum, þeytt- um rjóma og aðallega sultu. Það er vel hægt að hugsa sér að koma hér aftur. Jónas Kristjánsson 6 f Ó k U S 23. október 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.