Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1998, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1998, Blaðsíða 22
fÖld ánægja! Hringdu og pantaðu 16" pizzu með 5 áleggsteg. fyrir aðeins 1400 kr. 1 ísienskir tnMtnnarar Rick Ailen Trommaraferill Ricks Allens virtist búinn þegar hann missti vinstri handlegginn í bílslysi á gamlárskvöld 1984. Hann gafst þó ekki upp heldur lét sérhanna fyrir sig trommusett sem hann stjórnar að miklu leyti með löppunum. Þrem árum eftir slysið gaf sveit hans, Def Leppard, út plötuna „Hysteria“ sem varð algjör metsöluplata. Tommy Lee Kannski ekki neitt sér- staklega frægur fyrir trommuleik með Motley Crue en þess þekktari „leikari" og fyrir að misbjóða Pamelu Anderson með barsmíðum. Hefur gefið út heimamyndband. Keith Moon Moon „The Loon" var brjálæðingur; kvennabósi, Rolls Royce-safnari, sukkari mikill og frábær trommari með The Who. Hann sukkaði sig í hel árið 1978. Gerði sólóplötuna „The Two Sides of the Moon“ og beraði rassinn á sér á umslaginu. Pétur Östlund Besti trommari landsins á bítla- árunum, sýndi m.a. stórgóða takta með Hljómum. Flutt- ist svo til Sví- þjóðar og gerð- ist djasstrommari. Hefur gefið út sólóplötu. Gunnar Jtfkull „Faðir tvöfalda bítsins", að eig- in sögn. Varð trommari Flowers og Trú- brots eftir að hafa næstum meikað það í London með Syn (sem síðar varð Yes). Hvarf úr landi í mörg ár en sneri svo aftur og gaf út sólóplötuna „Hamfarir" sem hann trommaði að vísu ekkert á. Ásgelr Óskarsson Sá fyrsti með tvöfalt trommu- sett (sem sögur segja að hann hafi smíðað sjálfur) og vakti fyrst athygli með lcecross. Helsti verk- takatrommari landsins áratugum saman og er enn á fullu. Heldur lífi í Stuðmönnum með kraftmiklum trommuleik og getur sýnt leikræn tilþrif ef svo ber undir. Hefur gefið út sólóplötu. Qunnlaugur Brlem Ólst upp í Mezzoforte og hefur tekið að sér ýmis verk- efni, m.a. með GCD. Frægasti trommari lands- ins og hefur verið kosinn „besti trommarinn11 í öllum íslensku tón- listarverðlaununum til þessa. Á eftir að gera sólóplötu. Slgtryggur Ðaldursson Mikill stílisti sem setti gáskafullt mark sitt á Þeysara, Kuklið og Syk- urmolana. Hefur tekið að sér verkefni í Bandaríkjunum þar sem hann hef- ur búið og sló í gegn sem raular- inn Bogomil Font. Starfar í dag með Grindverki og Dip. ’iivjjjjnsij1 Ringo Starr1 Kannski ekki besti trommari í heimi en erfitt er þó að heyra annan fyrir sér við settið hjá Bítlunum. Mínímalískur stílisti og sérkennilegur söngvari. Hefur gert fjölmargar sólóplötur. Charlie Watts Líkt og Ringo er | Charlie mikill míní- j malisti en þó er tónlist Rollinganna ' óhugsandi án hans. | Sérstakur stíll hans (felst í því að sleppa úr slagi á hi-hat diskana og er það kallað að „Charlí- ast“. Hefur gert djassaða sólóplötu. hverjir voru hvar a stærsta isett Trommarar hafa löngum þótt hálf- gerðir huldumenn í hljómsveitum. Þeir sitja í vari á bak við settið en eru stundum hafðir uppi á palli svo það glitti betur í þá. Trommarar eru oft uppspretta gríns, sbr. trommararnir í Spinal Tap, sem sprungu í loft upp hver af öðrum, og trommarabrandar- ar eru vinsælir. Hvað er það síðasta sem trommari segir áður en hann er rekinn? „Ég var að semja lag.“ Annar er svona: Hvað þarf marga trommara til að skipta um ljósaperu? Engan, það eru vélar sem geta gert það núna. Þessi brandari er sprottinn upp úr því að með sívaxandi tölvunotkun í tón- list finnst mörgum trommarinn vera orðinn óþarfur. En góður trommari slær alla trommuheila út og nú ætlar einn sá al- besti að mæta með sitt risavaxna trommusett á klakann. Hér er um að ræða Bandaríkjamanninn Terry Bozzio sem heldur sólótónleika í Loft- kastalanum nk. sunnudagskvöld. Trommusettið hans samanstendur af 30 trumbum, þar af 4 bassatrommum, 45 simbölum og allra handa ásláttar- hljóðfærum. Terry notar sérhannaða tækni til að ná til aílra trumbnanna, m.a. barka sem hann fjarstýrir fjærstu trommunum með. Það er því ljóst að þetta verða ævintýralegir tónleikar sem tónlistaráhugafólk ætti ekki að missa af og þaðan af síður trommarar. Það er trommarabúðin Samspil sem flytur kappann inn. „Sólótrommari?“, hugsar nú ein- hver, „verður þetta ekki bara leiðin- legt trommusóló í tvo tíma?“ Ekki vill Terry meina það. Hann lemur og ber frumsamin verk, heilu lögin, sem kveikja sýnir hjá hlustendum af hest- um sem þeysa inn í sólsetur, afrískum ættflokki sem fagnar góðri veiði, fla- mengódönsurum, o.s.frv. Fólk sem heyrt hefur í honum á erfitt með aö trúa því að hér sé bara einn trommari á ferð og býst við að alla vega fjórir í viðbót séu faldir á bak við sviðstjöldin. Terry Bozzio varð eins heimsfrægur og trommari getur orðið þegar hann gekk i hljómsveit Frank Zappa árið 1975. Hann fór í prufú hjá Zappa og eft- ir að hann hafði lokið sér af höfðu hin- ir trommararnir, sem ætluðu að sækja um starfið, læðst í burtu. Terry spilaði á mörgum helstu plötum Zappa, t.d. „Bongo fury“, „Sheik Yerbouti“ og „Baby Snakes“, og hefur einnig verið verktaki hjá fólki eins og Debbie Harry, Jeff Beck, Steve Vai og Robbie Robertsson. Þá stofnaði hann nýbylgjusveitina The Missing Persons snemma á níunda áratugnum og hefur gefið út tvo sólódiska með trommuleik eftir að hann þróaði tæknina. Nú stundar hann trommutrúboð um heiminn sem miðar að því að fólk við- urkenni trommuleik sem sérstaka list- grein. Ef einhver getur breytt viðhorfl fólks til trommara þá er það þessi galdrakarl. -glh 1 meira á.| www.visir.is A laugardaginn sást Ijósmyndarinn Lára Long á Rex, Borghildur Er- llngsdóttlr lögfræóingur, María FJóla Pétursdóttlr flugfreyja, Þóra Baldvlnsdóttlr pæja og Gísll Gíslason lögfræðingur. Landinn lét sér ekki leiðast um síöustu helgi frekar en venjulega. Alla vega ekki hinn geð- þekki Árnl Oddur Þórðarson sem var á Kaffibrennslunni ásamt vini sínum ivari. Þar var reyndar fleira fólk eins og til dæm- is Sara Björg Ólafsdóttlr mannfræðinemi, Erla „Skari skrípó", Eyjólfur Magnús Krlst- insson, verkfræðinemi og frambjóðandi og Vala Pálsdóttlr sjónvarpskona. Þetta var á föstudagskvöldinu en daginn eftir sáust á þessum fróma stað Ásgelr Friögelrs, guðfaöir Vis- ir.is, Árni Rnns en hann er nú alltaf þarna, Darrl Johansen og Guójón Óskar Guömundsson. gaflarar meö meiru, Óskar Haraldsson, Vestmanna- eyingur og vélstjóraefni, Runólfur Geir Benedlktsson, fótboltakappi úr Leikni, og Ragga, konan hans, Stjörnutöffararnir Arnar Pétursson og Siggl Vlðars ásamt Halla ham- stri, Kaupþingskarlinn Sigurður Valgelr Guð- jónsson og Per vinur hans og svo auövitaö vin- ir hans Tomma, KJartan Guðmundsson og Guðmundur Gíslason. Glæsilegasta kona ís- lands, Unnur Steins- son, var á Skugga- barnum með bónda sinum og þar voru líka Frank Tal. Síjó Ijósmyndari, Jóhann Ingl Sportlff, Óll Árnl, Valdl Krlstófers og Magn- ús Árna, stórskytta og „eftir- sóttasti piparsveinninn í dag". Þessir herra- menn eiga þaö sameiginlegt að vera í hinu sig- ursæla Fróða fótboltaliði. Brandy Þórscafé dilF aöi sér í takt við tónlistina og einnig sást í Súsönnu X-Face sem er oröin einkavinkona Davlds i X-Files. Blúsbræöurnir Júlll Kemp og Sverrlr X-rós voru á kantinum, Óll kóngur X- Tunglið og frú sátu í rólegheitum en borðiö hans Jóns Kára var svo þétt setið af konum að vin- ur hans, Siggi Zoom, rétt komst fyrir. Anna Svala dans- kennari tók flottar sveiflur og Jól „kúreki" sté léttan dans, Simbi hárlista- maður var umvafinn vin- um og þarna var líka hún Andr- ea Róberts ásamt glæsilegum vinkonum úr einum af sauma- klúbbunum sem hún á sæti í. Hansl og Jón Atll af X-inu voru líka á Skugganum sem og boltahetjan Óliver og vinur hans Fjöln- ir. Lovísa hans Valda lét sig ekki vanta og ekki heldur þær Blrna Rún, Áslaug flug- freyja, Guðmunda Ósk Krlstjánsdóttlr, Ásta Andrésdóttlr og módelið Eva Dögg Guð- mundsdóttlr. Árshátíö Þokkabótar var haldin í sal Feröafé- lagsins I Mörkinni og þar var fullt af fólki í fínu formi, þar á meðal lögfræðibeibin Krlstín Ed- wald, Slgrún Brynja Einarsdóttlr, Dóra Slf Tynes, Eva Margrét Ævarsdóttlr, Erna HJaltested og Ally McBeal. Á Rauða Ijóninu drekktu Óll BJörn Kára- son og félagar af Viöskiptablaðinu sorgum sínum vegna hörmulegs gengis á fjöimiðlamótinu í knatt- spyrnu. Það var víst rosalegt fjör á Ráð- húskaffi á laugardagskvöldinu. Þar var haldið upp á átta ára af- mæli útvarpsþáttarins Party Zone og plötusnúðarnir voru í sínu besta formi, eins og sjá mátti á Árna E., Frímannl og Arnarl. Á staðnum voru leikararnir Baltasar, Hllmlr Snær og Ingv- ar Sig. ásamt Ingvari Þórðar, ungfrú ísland, Guðbjörg Her- mannsdóttlr, og Jóhann Ingl Gunnarsson. f Ó k U S 23. október 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.