Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1998, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1998, Blaðsíða 4
rn.m-’s r r Fyrstu tónleikar Tríós Reykjavíkur í Hafnar- borg, menningar- og listastofnun Hafnarfjaró- ar, á þessu starfsári veröa á sunnudaginn kl. 20. Aö þessu sinni verða eingöngu flutt verk fyrir píanótríó eftir Mozart, Beethoven og Mendelsohn. Slnfóníuhljómsveit Islands leikur undir kvik- myndinni Borgarljósum eftir Charlie Chaplin I Háskólablói kl. 17 á morgun. Rn skemmtun fýrir þá sem eru á menningarskokki seinni- partinn á laugardaginn og vilja prufa eitthvað annaö en þetta vanalega.Gott að taka börnin meö. Leyfa þeim aö hlæja aö Chaplin á með- an klassískri tónlist er lumaö ofan í þau. Léttsvelt Kvennakórs Reykjavíkur leggur land undir fót og heimsækir Kvennakór Bolungar- víkur. Mun þá koma í Ijós hvort eitthvaö sé hæft f hinu fornkveöna að kvennakórar séu kvennakórum verstir. Haldnir verða tvennir tónleikar, fyrri tónleikarnir í ísafjaröarkirkju í dag kl. 20.30 en seinni tónleikarnir í íþrótta- húsl Bolungarvíkur á morgun kl. 17. Hluti tillögu nefndar SUS um frelsi einstaklinga Hugtakið frelsi felur í sér frelsi til að fara sér að voða. Tvenns kon- ar rök eru fyrir að einstaklingar eigi að njóta frelsis til að stunda það sem nefnist hættulegt athæfi eða óhollt líferni. I fyrsta lagi eru það sjálfsögð réttindi þeirra, svo lengi sem þeir stefna ekki öðrum í hættu. í öðru lagi ber þessi við- leitni í flestum tilfellum tilætlaðan árangur. Hugtakið frelsi felur einnig i sér frelsi einstaklingsins tO að stunda líferni og athæfi sem öðrum kann að þykja óskynsam- legt og jafnvel siðlaust, svo lengi sem það felur ekki í sér nauðung af neinu tagi. Þá eiga menn að vera frjálsir að því að fara með fé sitt á þann hátt sem þeir kjósa sjálfir, jafnt vel sem illa. Endanleg ályktun um sama efni Stjórnmálamenn mega aldrei gerast dómendur um það hvaða hegðun mannsins er honum sjáif- vun fyrir bestu. Einstaklingurinn er fulifær um að dæma um það sjáifur. Það verða aldrei til nein al- gild sannindi um hvað veitir ein- staklingnum hamingju og er hon- um fyrir bestu. Hann vegur það sjálfur og metur. Vera má að stundum takist ríkisvaldinu með boðum og bönnum að forða ein- staklingum frá því að fara sér að voða. Það breytir því hins vegar ekki að ríkið getur aldrei sagt fyr- ir um það fyrir fram að ákvarðan- ir manna um eigin hag séu rangar. Bæði vegna þess að í flestum til- vikum eru afleiðingamar óþekktar auk þess sem skilgreiningin á því hvað sé gott og heillavænlegt og hvað ekki hlýtur ávallt að tilheyra dómgreind hvers einstaklings fyrir sig. Glúmur Jón Björnsson, efnafræðingur og ritstjóri Vefþjóðviljans, er hér ínnanbúðar í apóteki ásamt Gunnlaugi Jónssyni nema. Hví ekki að selja þar fíkniefni - kókaín, heróín og hass? spyrja þeir í byrjun mánaðaríns samþykkti Samband ungra sjálfstæðis- manna ályktun um frelsi einstaklingsins sem lesa má sem hvatningu í þá átt að fíkniefni verði lög- leidd hér á landi. Fókus rannsakaði r’ rökin og tvo unga menn sem halda þeim fram. Lögleiðum fíkniefni og seljum þau í apótekum „Þetta var nú orðað beinna og síðan breytt til að ná samhljóm um málið,“ segir Gunnlaugur Jóns- son háskólanemi um samþykkt sem SUS sendi frá sér á síðasta þingi. En Gunnlaugur var einmitt í málefnahópi sem skilaði áliti til þinggesta þriðja og fjórða október síðastliðinn. Innan SUS hefur myndast hópur sem telur að bann á sölu flkniefna sé ekki í samræmi við þá baráttu SUS að auka frelsi einstaklingsins. Rökin fela í sér þá fuUyrðingu að bannið ali af sér glæpi. Þeir sem eru í eiturlyfjum brjóta lögin og fremja ofbeldisverk. Glæpirnir tengjast oftar en ekki því að við- komandi eru að verja hagsmuni sína rétt eins og glæpamenn gerðu á bannárunum í Bandaríkjunum. Það sýndi sig þar að þegar banninu var aflétt fækkaði morðum gífur- lega. Fylgjendur þess að lögleiða skuli fíkniefni benda einnig á að lyfin séu hættulegri sem bannvara. Þá er enginn neytendavernd og sölu- menn þekktir fyrir að drýgja efnin með ahs konar viðbjóði sem getur drepið kúnnana. En ef til dæmis lyfjafyrirtækin sæju um að fram- leiða fíkniefnin og koma þeim á markað er líklegra að þau myndu þjónusta kúnnana vel og varan væri miklu hreinni og betri. Og í ofanálag kemur bannið í veg fyrir vöruþróun fíkniefna. Dóp ætti að geta verið undir sömu lögmálum og kók og aðrir drykkir. Sumir drykkir eru hollari en aðrir og fyr- irtækin hafa stundað það að þróa vörurnar og koma heilsusamlegri vörum á markað því það er það sem neytandinn krefst. En bannið á fíkniefnum gefur ekkert svigrúm til að þróa vöruna til hins betra fyrir neytandann sem notar hana hvort eð er. Glúmur Jón Björnsson efna- fræðingur er ritstjóri Vefþjóðvilj- ans sem þekktur er fyrir að berjast fyrir frelsi einstaklingsins. Að- spurður um afstöðu sína til fíknefnabannsins svarar Glúmur: „Ég held að skilningur á því að bannið við fíkniefnum veldur meiri skaða en efnin sjálf hafí vax- ið mjög á undanförnum árum. Enda tala ýmsir stjómmálamenn nú opinskátt um að aflétta banninu og sums staðar er verið að aflétta því að hluta. Margir þessara stjórn- málamanna hafa sjálfir tekið þátt I að reyna að viðhalda banninu og séð hve vonlaust og skaðlegt það er. Má þar nefna George Shultz, fyrrverandi utanrikisráðherra Bandaríkjanna, og Emmu Bonino, ráðherra hjá Evrópusambandinu. Þess vegna er það ekkert mál að tala fyrir þessum sjónarmiðum í dag. Þeir einu sem vilja ekki heyra minnst á að aflétta banninu eru fíkniefnalögreglan og lýðurinn sem selur efnin á götuhomunum i dag. Enda myndu bæði þessir fíkniefna- salar og fíkniefnalögreglan missa vinnuna ef banninu yrði aflétt!" Aðspurður um hvernig það sé að halda einhverju í líkingu við þetta fram segir Gunnlaugur Jónsson að það sé mjög skrýtið. „En það eru margir sem em fylgjandi þessari skoðun og til að vera fylgjandi henni þarf maður að sætta sig við að vera á réttri en ekki vinsælli skoðun.“ En það hljóta líka margir aó vera á móti þessari skoðun? „Já,“ svarar Gunnlaugur. „Ungir sjálfstæðismenn vilja til dæmis ekki halda henni fram vegna þess að þeir hræðast að halda sannleik- anum fram. Svo virðist bara sem fólk hafi þetta bann við eiturlyfjum sem frumforsendu í heilanum. Það em líka svo miklar tilfinningar tengdar þessu máli og erfitt fyrir fólk að sjá út fyrir þær.“ Þau rök sem notuð era gegn lög- leiðingu fíkniefna em oft að fólk telur að fíklar muni flykkjast hing- að eins og gerðist að nokkru leyti í Holllandi þegar þeir lögleiddu fíkniefni og vændi. En það verður þó að taka tillit til þess að Holland er betur staðsett en ísland. Engu að síður er möguleikinn fyrir hendi. „Þó við höldum þessari skoðun fram þá verður þetta ekkert að veruleika á næstunni," heldur Gunnlaugur áfram. „Bæði vegna þess aö þetta fær ekki breiðan hljómgrunn hjá fólki og svo hafa stjómmálamenn nóg að gera með að koma á frelsi í þjóðfélaginu. Það eru til dæmis imíflutningshöft á ýmsar aðrar vörur og margt fleira sem þarf að koma i lagið. Og það væri hvort eð er sniðugast að lög- leiða fikniefni um svipað leyti og önnur lönd í Evrópu." Hefur einhverjum tekist aö banna fikniefni alveg? „Jafnvel ekki strangtrúuðum einræðisríkjum þar sem bann við fíkniefnum nýtur mikils stuðn- ings meðal almennings," svarar Glúmur. „Okkur mun því ekki takast það hér. Fíkniefni hverfa meira að segja úr vörslu lögregl- unnar og þeim er smyglað inn í fangelsi hér sem annars staðar. Við getum því vart búist við því að takist að stöðva flutning þess- ara efna til landsins." En ef af lögleiöingu yröi, hvar œtti aó selja fikniefnin? „Það væri fín málamiðlun, póli- tískt séð, að efnin væru seld í ap- ótekum til að byrja með,“ segir Gunnlaugur. „En ég sé engin rök gegn því að seinna yrði bara farið með þessa vöm í búðir eins og tó- bak, sem er nú mjög ávanabind- andi fíkniefni." Ertu sammála því, Glúmur? „Já, lyfjafræðingarnir geta tryggt neytendum gæði og hrein- læti en í dag eru menn að kaupa þessi efni á götuhornum og hafa enga tryggingu fyrir því hvort þeir em að kaupa rottueitur eða amfetamín. Menguð efni og skort- ur á hreinlæti við neyslu þeirra veldur mörgum neytendum heilsutjóni og dauða. Það er því meðal annars af umhyggju fyrir þeim sem eru svo ólánsamir að ánetjast þessum efhum sem ég tel rétt að reyna aðrar leiðir." -MT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.