Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1998, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1998, Page 3
meömæli Afrógengið í Shuttle Band heldur tón- leika í íslensku óperunni á miðvikudag- inn kl. 21. í bandinu eru þrír Afrikubúar og þrir Norðurlandabúar, allt vandlega valdir atvinnutónlistarmenn sem hafa verið að æfa f Ósló. Þetta er svona sam- vinnuverkefni og þykir blandan sem myndast einstakur og fjölbreyttur tóna- vefur. Það er því um að gera að drífa sig því þetta eru einu tónleikarnir sem hljóm- sveitin heldur hér á landi. A sunnudagskvöld verður HJartsláttur #6 á Kaffi Thomsen. Nú er þaö enginn ann- ar en Norömaðurinn Rune Lindbæk sem ætlar að spila fyrir fólkið. Hann spilar allt frá mest fönkí húsi í heimi, yfir í upbeat triphop og alveg yfir f bullandi ambient. Kvöldin eru f boði Bjarkar, gus gus, hr. Örlygs og X-18. Það kostar bara fimm- hundruökall inn og inni I þvf verði er einn bjór. Var Hvað segirðu, Jón Atli, stend- urðu á tímamótum í lífinu? „Nei.“ Nú er þá textinn hér að ofan vitlaus? „Já, eða nei. Ég hef þannig séð ekki hugmynd um það.“ Hvað varstu að gera í Poppi í Reykjavík? „Ég er spyrillinn í viðtölunum við hljómsveitirnar en ég er náttúrlega ekki leikstjórinn heldur kom bara inn í þetta til að taka þátt í að velja hljómsveitirnar og spyrja þær.“ Ertu ánægður með valið? „Já. Ég myndi velja eins í dag en með þeim fyrirvara að ég hef ekki séð endanlega útkomu á myndinni. En það var ekki verið að gera mynd um hvað sé endilega vinsælast held- ur það sem þykir frjóast og á þá kannski möguleika á að verða eitt- hvað meira en sveitaballahjakk." klipptur út úr i í Reykjavík SkítamóraU er sem sagt ekki í myndinni? „Nei. Þetta er bara eins og með Bítlana. Nú láta allir af þessari hippakynslóð eins og það hafi verið eina starfandi hljómsveitin á þess- um tíma. En það var fullt af fleiri grúppum að gera frábæra hluti. Þetta er ekkert öðruvísi núna. Gíf- urleg fjölbreytni og algjört anarkí í tónlistarstefnum. Við höfum full- trúa á íslandi fyrir allar stefnurnar sem eru í gangi." Af hverju varstu klipptur út úr myndinni? „Ég held að ég hafi ekkert átt að vera i henni og verð náttúrlega að læra að lifa með því.“ Eitthvað að lokum? „Já, ég er náunginn sem byrjaði að segja „þokkalega“ og „iii ýkt steik" og finnst miður að hafa aldrei fengið þá virðingu sem ég á skilið fyrir að starta því öllu sam- an.“ -MT Annan hvem mánudag er rosalegt fjör f Iðnó. í staðinn fýrir að leika eftir ákveðnu handriti spinna leikarar upp úr sér hvað sem þeim dettur í hug. Þetta er kaliað leikhússport og virðist vera að ná meiri og meiri vinsældum hér á Fróni. Að ems og Kjartan Guðjónsson er einn þeirra leikara sem tekið hafa þátt í leikhússportinu í Iðnó. Hann leik- ur líka í Þjóni í súpunni en það stykki er einmitt byggt að miklu leyti á spuna. Er þetta nýjasta tískan í leiklist- inni? „Leikarar hafa nú átt við spuna óralengi. Þetta er hins vegar að verða sýnilegra en áður, komið í sjónvarpið og svona. Alla vega virðist þetta falla vel í kramið hér á íslandi og aðsóknin á spunaverk er mikil." Út á hvað gengur þetta? Eru leik- ararnir bara aö bulla? „Já, við erum bara að leika okk- ur. Eins og þegar börn leika sér. í leikhússportinu er leikurunum skipt í tvö lið og fyrirliðamir koma með áskoranir. Svo er dómnefnd á staðnum sem sér um að gefa stig eftir ákveðnum reglum. Menn geta til dæmis verið reknir út af ef þeir gera eitthvað sem er bannað, eins og að blóta eða nota dónaleg orð. Ef vel tekst til verður útkoman oft mjög fyndin og skemmtileg. Leik- ararnir gleyma sér alveg í leiknum og áhorfendum þykir gaman að sjá eitthvað alveg óundirbúið." En ef ekki tekst vel til, er þetta þá ekki alveg glataö? „Nei, mistökin eru þakklátust. Fyrst vorum við hrædd um að gera okkur að algjörum fiflum og vorum mjög stressuð en komumst svo að því að það er algjör óþarfi. Það er jafnvel enn fyndnara ef allt mis- tekst." Helduröu aö þetta leiklistarform nái aó festa rótum hér? „Já, ég held það. Þetta er til dæmis orðið svo vinsælt í Svíþjóð að það hefúr þróast út í að vera sett upp eins og íþróttakappleikur í stórum sölum með stigatöflum og öllu. Það gæti alveg eins gerst hér.“ Skelitu þér á tðnleika. í upphafi jólaplötu-1 flóðs fara allir að I halda útgáfutónleika og bjóða örugglega I upp á eitthvað að I drekka til að trekkja [ að. Aliir pælarar og j áhugamenn ættu svo [ ekki að missa af | trommugaldrakarlin- um Terry Bozzlo sem lemur og ber í Loft- kastalanum á sunnudaginn og svo verö- ur Skúll Sverrlsson með djass-heimstón- listarsveitinni sinni Pachora á sama stað nk. fimmtudagskvöld. RSétflQfflSsá J£új JJlIj JáilíESSirj,, í i%ppi í Rfeykjjawík á þjasssi dágtíteEj -sr sj§ fevsjfeai EmipiidEbai #árii Aiifii heáiur múi fesigi^i tsáÉri& Irikœi srá í slrjjj Jíáu Stjörnubekkur Leiklistarskóla Islands frumsýnir ívanov eftir Anton Tsjekhov á mánudagskvöld. Þetta er vægast sagt skothelt verk sem hefur virkað um allan heim i hundraö ár. Það verður þvi enginn fyrir vonbrigðum og ekki spillir fyrir að sjá Rúnar Frey úr Grease, Nönnu úr Spor- laust, Jóhönnu úr Grease og Stefán Karl úr Þjóni i súpunni leika í djúsí leikriti. Fáðu þér rauðvínsglas um helgina. Læknar mæla með því og náttúrlega Frakkar, þeir eru svo sætir. En vanda- málið er aö í góðæri þýðir ekkert að kaupa sér ódýrt rauðvín. Því er málið að setja það annaðhvort á Visa eða kaupa ódýrt vín sem þú hellir bara í dýra flösku. Þá ættirðu að vera í góðum málum fram yfir helgi. e f n i Frjálshyggju-anarkistar í Sjálfstæðisflokknum: 4 Vilja lögleiða fíkniefni Hljómsveitin Ummhmm: Góðærið er á raðgreiðslum 6 Útskriftar-. bekkur Leiklistar-, skólans: Inntöki skilyrðij að stel séu á Bíbí í Bellatrix: Samstilltir tíðar- hringir á túrum 8 Depeche Mode: Skaddaðir eftir 18 ár í rokkinu 11 EgjSfe... WuÆtsl ciltir ésgrn Ab(*r.indÍ \ /J fólk, flott og furðulcgi Vistmenn á Reykjalundi dæma sjónvarpsþætti: Siggi Hall bestur - Kolkrabbinn kolómögulegur 14 Hallgrímur Helgason: Dagbókin er mín kona 19 The Truman Show: í sjónvarpinu alltaf - alltaf Hvað er að gerast? Klassík........................4 Veitingahús ....................6 Leikhús .......................8 Popp..........................11 Fyrir börnin..................14 Sjónvarp...................15-18 Myndlist......................19 Bíó...........................20 Hverjir voru hvar.............22 Forsíðumyndina tók Teitur af Esther Ásgeirsdóttur - Bíbí í Bellatrix. 23. október 1998 f Ókus

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.