Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1998, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1998
Neytendur
Sjúkrakassar koma
að góðum notum
Sjúkrakassi á að vera á áberandi
stað þar sem allir vita af honum og
það á að ganga frá kassanum eins og
þú vilt koma að honum. Það er líka
nauðsynlegt að láta yfirfara sjúkra-
kassann reglulega.
Neytendasíðan hafði samband við
nokkur fyrirtæki sem selja sjúkra-
kassa til einstaklinga og fyrirtækja
og athugaði innihald þeirra og verð.
Fyrst skulum við hafa í huga reglur
um skyndihjálp sem allir ættu að
kunna. Þér ber skylda til að hjálpa
öðrum. Næst gætir þú þurft á hjálp
að halda.
1. Stærri slys - bjargið lífi
Engin öndun - blástursaðferðin
Miklar blæðingar - stöðvið blæð-
ingar
2. Áverkar sem þurfa
læknismeðferð
reynið ekki að eiga
við sárin. Dragið úr
áhættu við að áverk-
ar versni við flutn-
ing.
3. Minni áverkar -
hreinsið kringum
sárið. Þerrið. Setjið
umbúðir.
4. Smithætta - not-
ið einnota hanska.
5. Blástursaðferðin
- notið munnmaska
ef kostur er.
Landsbjörg flytur
inn sjúkrakassa auk þe
sjá um áfyllingu
að fást hjá Landsbjörgu fást kassam-
ir líka í Skátabúðinni. Þeir kassar,
sem fást á fyrrgreindum stöðum, eru
eftirfarandi en verð þeirra er án
vsk.:
Sjúkrapúði í bila kostar 2.150
krónur.
Vaki fyrir heimili og sumarbú-
staði kostar 3.900 krónur.
Vís fyrir minni fyrirtæki
kostar 9.197 krónur.
Græðir fyrir meðalstór fyr-
irtæki kostar 13.574 krónur.
Margvís fyrir stór fyrirtæki
kostar 20.000 krónur.
Sjúkraskápur fyrir stór fyr-
irtæki kostar 31.500 krónur.
Til að gefa dæmi um inni-
hald sjúkrakassa er eftirfar-
andi í Vaka: sáraböggull, mið-
stærð, 3 stk.; sáraböggull, lítill,
1 stk.; grisja, 10X10, 3 stk.; sára-
/teygjubindi, 2 stk.; teygju-
bindi, 1 stk.; hreinsigrisjur, 6
stk.; fatli-þríhyrna ,1 stk.; plást-
urslenma 2 stk : nlást-
ur, vatnsheldur, 1 sett;
heftiplástur, 1 rúlla; skæri; flísatöng;
öryggisnælur, 12 stk.; vínylhanskar,
4 stk.; verkjatöflur, 1 pk.; blást-
ursmaski, 1 stk. Einnig fylgir kass-
anum leiðbeiningabæklingur í fyrstu
hjálp.
I Rima apóteki fæst sjúkrakassi á
3.860 krónur. Inni-
hald hans er eftir-
farandi: verkjatöfl-
ur, hálstöflur,
skyndiplástur,
heftiplástur, fiðr-
ildaplástur, grisjur,
sárabögglar, teygju-
bindi, sótthreins-
andi krem, blóð-
stoppandi bómull,
brjóstsviðatöflur,
sprittklútar, augn-
baðglas, skæri, flísa-
töng, sárabindi, ör-
yggisnælur, plástrar
með grisju, natríum-
klóríð skolvökvi og hansk-
ar.
í Vesturbæjar apóteki fæst m.a.
sjúkrakassi á 2.500 krónur. I honum
er: verkjatöflur, sótthreinsandi
þurrkur, sáraböggull, sárasmyrsli,
skæri, flísatöng, augnskolglas,
plástrar, skyndiplástrar, kompress-
ur, sárabindi, saltvatn og einnota
hanskar.
í Breiðholts apóteki fæst m.a.
sjúkrakassi á 3.183 krónur. í honum
er 3 pk. plástur, 2 pk. plástur til að
klemma saman skurði, 1 rúlla hefti-
plástur, 1 pk. sótthreinsaðar grisjur,
7,5x7,5 m, 1 pk. sótthreinsaðar grisj-
ur, 5x5 m, teygjubindi, 6x4 m,
svöðusáraböggull, tubegaze með
beini, 1 rúlla haftelast teygjubindi, 2
grisjur melolin, 10x10 sm, 4 grisjur
mololin, 5x5 sm, 2 stk. augngrisjur,
magnyl, paratabs, kodimagnyl, al-
minox, sótthreinsandi krem, glas til
sárahreinsunar, augnbaðglas, skæri
og flísatöng.
Þetta er lítið dæmi um þá sjúkra-
kassa sem eru á markaðnum en þeir
vilja oft gleymast. Þegar neyðin er
stærst er betra að hjálpin sé næst.
-SJ
Húsmæður fá
ódýr egg
Tagliatelli með
hvítlauk og olíu
Eiganda Heildsölubakarís finnst
skjóta skökku við að
eftir að egg voru
undanþegin búvöru-
lögum skuli ekki
vera meiri sam-
keppni milli versl-
ana en raun ber
vitni. Kílóverð á
eggjum er 365 krón-
ur þótt lægsta tilboð-
ið i dag sé 341 krón-
ur.
Nú fer í hönd
heimabakstur hús-
mæðra fyrir jólin og
ætlar bakarinn í
Heildsölubakaríi að leyfa þeim að
njóta góðs af hagstæð-
um innkaupum sín-
um á eggjum og bjóða
þeim kílóið á 250
krónur.
Samhliða þessu eru
boðnar kartöflur í
tveggja kílóa pakkn-
ingum á aðeins 54
krónur, bæði
gullauga og rauðar,
en þær eru boðnar í
dag lægst á 79,50
krónur - gullauga -
og 89,50 krónur -
rauöar.
Uppskriftina að þessum gómsæta
rétti er að fmna í bókinni Pastaupp-
skriftir sem er í flokki Litlu mat-
reiðslubókanna. Rétturinn er fyrir
flóra. Undirbúningur tekur 5 mínút-
ur og suðutími er 10 mínútur.
300 g grœnt tagliatelli
150 ml ólífuolía
3 hvítlauksrif, pressuð
2 tsk. smátt söxuö steinselja
salt og pipar
1. Setjið pastað í sjóðandi vatn,
saltið og sjóðið í u.þ.b. 10 mínútur.
Hrærið í öðru hvoru. Pastað á að
verða mjúkt en þó þétt.
2. Meðan pastað sýður, er olían
hituð á pönnu.
3. Pressaður hvítlaukurinn steikt-
ur fallega brúnn í olíunni.
4. Bætið saxaðri steinseljunni út í
ásamt salti og pipar.
5. Sigtið pastað. Hellið sósunni
yfír og berið fram heitt.
Leyndardómar
vítamínanna
í Bætiefnabilbíunni segir að margir haldi að
vítamín geti komið í stað matar. Það geta þau hins
vegar ekki. Staðreyndin er að vítamín meltast ekki
án fæðunáms. Vítamín eru ekki örvandi lyf og
hafa ekkert hitaeininga- né orkugildi í sjálfu sér.
Þau koma ekki í stað hvítuefna eða nokkurra ann-
arra næringarefna svo sem steinefna, fitu, kol-
vetna, vatns né jafnvel hvers annars! Vítamin eru
ekki efnisþættir líkamsgerðar okkar. Ef þú tekur
aðeins vítamín og hættir að borða, geturðu ekki
vænst þess að halda heilsu.
Ef þú hugsar um líkamann sem vél i bíl og
vítamínin sem kertin ertu kominn með góða hug-
mynd um hvernig þessi undraverðu fæðuefni
vinna fyrir okkur.
Vítamin eru efnisþættir í gerhvatakerfl okkar
sem, með því að vinna eins og kerti, stjórna og
setja kraft í efnaskipti okkar.
Þau halda okkur þannig vel
„stilltum" og afkastagetu
okkar hárri.
Miðað við neyslu okkar á
öðrum næringarefaum, svo
sem hvítuefnum, fltu og kolvetnum, er vitamínn-
eysla okkar (jafnvel þeirra sem eru á risaskömmt-
um) afar lítil. Þó getur skortur á aðeins einu
vítamíni stofnað heilsunni í hættu.
Nokkrar staðreyndir
Ein sígaretta eyðir 25 mg af C-vítamíni.
Fólk, sem býr í menguðum borgum, fær ekki
eins mikið af D-vítamíni og fólk til sveita því
mengunin útilokar útflólubláa geisla sólarinnar.
Meira en einn „kokkteill" á dag getur valdið
skorti á Bi, B6 og fólínsýru.
Fæstar þeirra kvenna, er nota „pilluna" sem
getnaðarvöm gera sér grein fyrir að hún eyðir B6,
B12, fólínsýru og C-vitamíni.
Bi vitamin getur komið i veg fyrir ferðaveiki.
Ef mataræði þitt er hvítuefnaríkt þarftu aukið
magn af B6.
Rússar hafa komist að því að B12 getur komið í
veg fyrir timburmenn.
Unnin úr fæðu
Vegna þess að vítamín eru náttúruleg efni sem
fmnast í fæðu eru bætiefain sem þú tekur - belgir,
töflur eða mixtúrur - einnig unnin úr fæðu. Þó að
mörg vítamínanna megi mynda með efnasmíði,
em flest þeirra unnin úr náttúrulindum.
A-vítamín er yfirleitt unnið úr lifrarlýsi fiska. B-
hópurinn úr geri eða lifur. Besta C-vitamínið er úr
aldini rósarinnar og E-vítamín er yflrleitt unnið úr
sojabaunum, hveitikími eða maís.
Heimild: Bætiefnabiblían
Itök Kára
í læknastétt telja margir að
stuðningur Sigurðar Guð-
mundssonar læknis við gagna-
gmnninn um-
deilda hafi ráðið
úrslitum um að
Ingibjörg Pálma-
dóttir gerði hann
að landlækni.
Helsti keppinaut-
ur hans var
Haraldur
Briem sem upp-
haflega var tal-
inn andstæðingur
frumvarpsins. Hann lýsti að lok-
um einnig stuðningi við frum-
varpið umdeilda en gerði það víst
aðeins of seint fyrir smekk þeirra
sem mestu réðu. í læknastétt
finnst mönnum nú með miklum
ólíkindum hve ítök Kára Stef-
ánssonar em orðin mikO innan
heflbrigðisgeirans. Meira að
segja stjóm Læknafélagsfas, sem
tók Kára upp á segulband í laumi
og lofaði að aOir mættu heyi'a,
hefur hrokkið til baka og býðst
tO að eyða spólunum ...
Tvöfalt þingmannsefni
Hinn nýi flokkur Steingríms
J. Sigfússonar hefur á að skipa
reyndum þingmönnum og vara-
þingmönnum sem
fylgdu honum úr
Alþýðubandalag-
inu. Sá talsmaður
flokksins sem
kom þó mest á
óvart í samtöl-
um við fiölmiðla
eftir frétta-
mannafundinn
á dögunum var
þó ung kona sem ekki hefur
mikið borið á í landsmálunum.
Hún heitir Drifa Snædal og er
ekki óvön félagsmálum enda gam-
aO formaður Iðnnemasambands-
ins. Heyrst hefur að Drífa verði í
efsta sæti á lista Steingríms í ein-
hverju kjördæmanna. Gárungarn-
ir segja að hún sé í raun tvöfalt
þingmannsefni því hún er kona
ekki einsömul og á von á barni
áður en kosningaslagurinn hefst
fyrir alvöru ...
Damon og Madonna
Hinn frægi íslandsvinur úr
Blur og einn eigenda Kafflbars-
fas, Damon Albarn, er um þess-
ar mundir að reka
smiðshöggið á far-
sælt samstarf um
lagasmíð við hfaa
þokkafuflu popp-
dís Madonnu.
Stefnt er að því
að kynna af-
raksturinn um
mánaðamótfa
og hermt er að
Damon hafi endOega viljaö
fá Madonnu til íslands og kynna
diskinn hér. Af því mun þó ekki
hafa getað orðið sökum anna dís-
arinnar sem þar að auki þekkir
ekki Kaffibarinn nema af af-
spurn gegnum Damon og veit því
ekki hvað Island hefur upp á að
bjóða...
Carlsson þjálfari
í landsleiknum í handbolta við
Sviss á sunnudag tók nýr lands-
liðsþjálfari við sfióm íslenska
liðsins - en aðefas
í örfáar sekúndur.
Hinir harðsnúnu
dómarar leiksins
fengu þá hálfgert
æði með rauða
spaldið og hættu
ekki fyrr en
þeir voru búnir
að reka af veOi
bæði þjálfarann,
bjöm Jensson, og aðstoðarþjálf-
arann, Boris Bjarna Akvachev.
Þar með var enginn eftir til að
stýra liðinu nema Stefán Carls-
son, læknir liðsfas. Það gerði
hann af mikilli röggsemi, enda
Valsari eins og þjáifararnir tveir.
Honum tókst sem sagt að stýra
liðfau tO sigurs í sínum fyrsta
leOí...
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkom @ff. is
Þor-