Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1998, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1998, Síða 11
Trúbadorinn Jonathan Richman: Undir verndarvæ Farrelly-bræðra Neil Youngs o Bjama Fei Grínmyndin „There’s Some- thing about Mary“ hefur slegið allrækilega í gegn enda algjör snilld. Margir hafa líklega velt því fyrir sér hver þessi trúbador sé, sem birtist reglulega í mynd- inni. Það er heiður að tilkynna að þetta er mikill meistari sem heitir Jonathan Richman og þeir sem hafa áhuga á reglulega jákvæðu poppi ættu að tékka á honum. Jonathan er gamall í hettunni, er orðinn 47 ára og hefur verið í músikinni síðan hann varð vit- laus í hljómsveitina Velvet Und- erground á sjöunda áratugnum. Sagan segir að Jonathan liafi verið svo æstur aðdáandi að hann mætti á fleiri tónleika með sveitinni en hljómsveitin sjálf. Frá fyrstu tíð hefur hann alltaf verið á skjön við poppið í kringum sig. Árið 1971, þegar hipparnir voru orðnir gamlir og vildu bara softrokk, var hann farinn að spila með bandi sem kallaði sig The Modem Lovers, í fyrstu til þess eins að spila lög Velvet Underground. Jonathan fór þó snemma að semja og bandið spilaði einfalt og hrátt þvergripapopp og tók upp plötu þegar gamallv.þrahsarefur, Kim Fowley, tók það að sér. í band- inu voru ásamt Jonathan kallar á borð við Jerry Harrison (fór síðar í Talking Heads) og David Robinson (siðar í The Cars). Fyrsta plata bandsins kom þó ekki út fyrr en 1976 vegna áhugaleysis útgáfufyrirtækja, en þá hafði popplandslagið breyst allverulega og einfalt poppið smellpassaði í pönkfilinginn, því lög eins og „Pablo Picasso" og „Road Runner" (sem mörg pönk- bönd reyndu sig á) voru hrá og rokkuð. Jonathan sjálfur var þó kominn í allt annan filing, vildi ekki taka þátt í reiði pönksins og spilaði bara frábærlega skemmtilegt kassagítarpopp í fiftís-legum „doo-wop“ stíl með bamalegum og fyndnum textum, t.d. um geimferðir, ástina, mat og um það þegar snjómaðurinn ógurlegi fór að versla í kringl- unni. Árið 1977 kom út vin- sælasta lag Jonathans fyrr og síðar, hið ósungna „Egyptian Raggea". Lagið barst m.a.s. til ís- lands þegar Bjarni Felixson notaði það sem kynningarstef í sjónvarpsíþróttaþætti sinum. Næstu árin minnkaði Jonath- an við sig, fór jafnvel um og spil- aði einn með kassagitarinn. Hann gaf út helling af skemmti- legum plötum og hélt áfram að syngja um hina fyndnustu hluti á sinn einfalda og „naive“ hátt. Hann gerði m.a. plötu á spænsku og kántriplötu, ferðað- ist um og er löngu orðinn „költ“. Farrelly-leikstjórabræðurnir era miklir aðdáendur og var Jonathan í myndinni „King Pin“ og svo í stærra hlutverki í .. Mary“. Þar er trommarinn Tommy Larkins með honum en samstarf þeirra hófst fyrir þrem árum. Þrátt fyrir þetta er Jonathan Richman ekki orðinn Sú stjama sem hann hefur alltaf langað til að verða. Hann ferðast enn þá um á „rúgbrauði", spilar á frekar litlum stöðum og selur frekar fáar plötur. Hann gerði nýlega samning við Vapor Records, plötufyrirtæki Neil Youngs, sem er aðdáandi. Þetta rúllar því allt áfram á „gúddvill" hjá Jonathan. Nýjasta platan heitir „I’m so Confused" og kom út fyrr á ár- Jonathan Rlchman (t.v.) ásamt trommaranum Tommy Larklns í myndinni There's Something about Mary. Þelr Elkki og Tommi hafa túraö saman í þrjú ár og koma fram u.þ.b. 200 sinnum á ári! inu. Þar er Jonathan auðvitað jafn jákvæður og þægilegur og áður, hress poppari með langa fortíð og vonandi jafn skemmti- lega framtíð. -glh KRINGLUNNI • SIMI 588 7230 WWW.LEONARD.IS 4. desember 1998 f 6 k U S 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.