Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1998, Qupperneq 13
plötudómur
Ka er öðruvísi
4. desember 1998 f Ó k U S
Ætlar að taka sér frí
Það er brjálað að gera hjá
Celine fram undan. Hún er bók-
uð á tónleika um alian heim til
ársins 2000 og er yfirbókuð í öllu
sem poppinu fylgir; viðtölum,
sjónvarpsuppákomum, þeytingi,
svefnleysi. Hún sér þó fram á
bjartari tíma og eftir túrinn á að
setjast í helgan stein. „Ég byrjaði
að vinna þegar ég var 13 ára,“
segir hún, „nú er ég 30 ára og
lengsta frí sem ég hef tekið er
mánuður. Ég þarf að eignast
venjulegt líf og eyða tíma með
Rene á meðan við erum bæði ung
í anda. Ég vil geta eldað heima,
farið í skógarferðir og synt í
einkasundlauginni. Ég þarf tíma
Það hefur verið fremur hljótt
um hinn málaða Manson síðan
nýjasta platan kom út en nýlega
komst hann og fylgifólk hans í
fréttirnar fyrir þá gömlu
rokklummu að rústa hótelher-
bergi. Þetta var í Poughkeepsie
í New York. „Það stendur sími
út úr veggnum," sagði hótel-
stjórinn við fréttamenn. „Það
eru brunablettir á teppunum
svo nú verður að leggja ný
teppi. Við höfum verið að ■
skrúbba vaskana og baðkerin út
af öllum hárlitnum sem fór þar
niður.“ Rokkarinn leigði fjögur
herbergi og pirraði aðra hótel-
gesti. „Þetta var hræðilegt,“
hélt hótelbossinn áfram. „Það
voru giftingarveislur hérna og
annar mannfagnaður og Man-
son setti ljótan blett á allt starf
hérna í húsinu.“
Hótelstarfsmönnum hafði
verið lofað öllu fögru, m.a. að
ekki yrði hægt að þekkja Man-
son úr fjölmenni og að hann
ferðaðist alltaf með foreldrum
sínum. Sannleikurinn varð þó
ljós þegar liðið mætti í lobbíið,
fullmeikað og ógnandi og með
nakta stelpu sem vafin var i
keðjur frá toppi til táar.
Manson greiðir þó fúslega
fyrir allar skemmdir og má eiga
von á að punga út a.m.k. 25.000
dölum, 1.750.000 kalli - ekki svo
dýrt spaug það fyrir forríkan
poppara og þar að auki frí aug-
lýsing.
Deadsea Apple - Second 1:
komast cjegnutji nálaraugað
Deadsea Apple vöktu hjá flest-
um nokkrar vonir með sinni
fyrstu plötu.
Hér voru .piltar á ferð sem
höfðu margt til að bera, gátu
samið vönduð rokklög og tónlist-
arleg þekking greinilega mikil
meðal meðlima. Kemur það vel
fram í útsetningum, röddun og
ýmsum trixum.
Maður býst einnig við
nokkrum þroska almenns eðlis á
þessu aldursbili sem meðlimir
sveitarinnar eru staddir og ætl-
ast til að það komi fram í tónlist-
inni á þessum nýja diski sem nú
var að koma út og nefnist
Second 1.
Það er ekki svo og reyndar
sorglegt að hér skuli hafa verið
„Þetta vekur ósjálfrátt upp
þær grunsemdir mínar að
meðlimir sveitarinnar séu
að gera eitthvað allt annað
en að veita sköpunarkraft-
inum útrás og hafa gaman
afþví í leiðinni
fallið í gryfju mammons tónlist-
armanna: hlutirnir eru svo fag-
mannlega eða iðnaðarlega unnir
að sjálfur neistinn er með öllu
horfmn sem verður svo á endan-
um til þess að okkur almúgan-
um verður hlustunin leiðitöm,
því ekkert grípur athygli okkar
eða kveikir áhuga.
Þetta vekur ósjálfrátt upp þær
BRIMBORG
Faxafeni 8 • Sími 5157010
grunsemdir mínar að með-
limir sveitarinnar séu að
gera eitthvað allt annað en
að veita sköpunarkraftin-
um útrás og hafa gaman af
því í leiðinni.
Textar eiga heldur ekki
upp á mitt pallborð, vekja
hjá manni þá kennd að
maður hálfskammast sín
fyrir hönd orðasmiðsins og
ekki bæta úr skák töffara-
stunur söngvarans í upp-
hafi og enda sumra hend-
inga.
Second 1 veldur mér von-
brigðum sem verk fram-
sækinnar rokksveitar en
kannski verð ég einfaldlega að
setja Deadsea Apple undir ann-
an hatt til að skilja þessa plötu.
Páll Svansson
Celine og Rene ræða barneignir í einkaþotunni.
til að geta orðið veik og náð mér,
tíma til að keyra stefnulaust um
og hlusta á tónlist."
Karlinn Rene er orðinn 56 ára
og skötuhjúin eru barnlaus.
Þetta þykir i glansblöðunum
hvíla sem skuggi á undralands-
ímynd Celine en hún hyggst
bæta úr þessu. „Ég hef allt annað
í lífinu, svo það að eignast barn
yrði það mikilvægasta sem gæti
gerst í lífi mínu.“ Hún stefnir þó
ekki á 14 böm eins og mamma
sín: „Nei, en það era engin tak-
mörk fyrir því. Ég ætla ekki að
eignast bam bara til þess að
eignast barn. Ef við gætum bara
eignast eitt yrði það yndislegt.
Við skulum bara biðja og sjá
hvert forsjónin leiðir okkur.“
Á nýju jólaplötunni, „These
are special times“, syngur Celine
þekkt jólalög á þrúgandi tilflnn-
ingalegan máta í útsetningum
þar sem vellan lekur af hverjum
tóni. Svo fær hún lið til að syngja
með sér, óperustjörnuna Andreu
Bocelli og R&B-gyðjuna R.
Kelly. Celine hefur einmitt verið
dugleg í dúettunum og Bee Gees-
bræður og Barbara Streisand
t.d. tekið lagið með henni. Jóla-
platan verður örugglega rifin úr
búðunum af firrtu nútímafólki
sem finnst froðan veita fró. Gam-
an aððí. Á meðan þú last þessa
grein seldi Celine 250 plötur í
viðbót. -glh
plötudómur
Skagarokk
Fitl er ung hljómsveit ofan af
Akranesi og á Undri bjóða þau
fjögur frumsamin lög.
Tónlistin verður að kallast
„skagarokk" því á Akranesi
hefur löngum verið poppað og
rokkað á svipaðan hátt og hér
er gert. Fitl-krakkar kunna vel
að spila og syngja, lögin fjögur
eru ágætlega hrærð, og minna
á hafnfirsku sveitina Woofer og
á fyrstu plötu Kolrössu
krókríðandi. Hér er semsé ekki
boðið upp á nýjungar heldur
kunnuglegt popprokk með ung-
æðislegum áherslum og Fitl
myndi örugglega pluma sig vel
í Músiktilraunum. Söngkonan
heitir Valgerður og er svaka-
lega skýrmælt. Hún töfrar nú
ekki mikið enn þá, en það gæti
vel komið seinna. Strákar sjá
um rokkið og eru þéttir á'ðí og
einstaka sinnum heyrist í sellói
sem Anna spilar á. Það mætti
alveg heyrast oftar I þvi.
Valgerður semur textana,
sem eru ágætir og vel innhverf-
ir. Með allar þessar fyrirmynd-
ir sem allar syngja um sjálfa
sig og innstu tilfinningar er
ekki að furða að stelpa ofan af
Skaga syngi; „Því í höfðinu á
mér / er háð styrjöld sérhvern
dag / hugarflækjur fljúgast á /
og ég brotna niður.“ Firringin
er komin til að vera.
Lögin eru nokkuð jöfn, þó
„Fríða Brá“ áberandi mest
grípandi, með skemmtilegu við-
lagi og almennt léttri sveiflu.
Þetta er popplag Fitlsins og það
á alveg skilið vinsældir. Bandið
Fitl - Undur: ★★
Bandið kafar dýpra í hinum
lögunum, rokkar með myrkari
áherslum og þar tekst ekki eins
vel upp í að semja góðar söng-
melódíurnar svo útkoman er
heldur „bílskúrsleg“, þ.e.a.s.
það vantar dálítið upp á
þroska rokksins.
kafar dýpra í hinum lögunum,
rokka með myrkari áherslum
og þar tekst ekki eins vel upp í
að semja góðar söngmelódíurn-
ar svo útkoman er heldur „bíl-
skúrsleg", þ.e.a.s. það vantar
dálítið upp á þroska rokksins.
Það ætti þó allt að koma með
kalda vatninu, víðsýni, til-
raunagirni og þrotlausum pæl-
ingum.
Gunnar Hjálmarsson
13