Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1998, Qupperneq 26
Bíóborgin
Mulan ★★★★ Mulan er uppfull af skemmti-
legum hugmyndum og flott-
um senum, handritið vel skrif-
að og sagan ánægjulega laus
við þá yfirdrifnu væmni sem
oft einkennir Disney. Mikil
natni er lögð í smáatriði eins
' og er við hæfi í teiknimynd-
um, og aukakarakterar eins og drekinn og litla
(lukku)engisprettan eru svo skemmtileg að
þau hefðu ein og sér veriö efni I heila mynd.
Gó sí. -úd
The Horse Whisperer ★★★ Bók Nicholas
Evans hlaut misjafnar viðtökur og var annars
vegar lofuö sem glæsilegt meistaraverk og
hins vegar gagnrýnd sem innihaldslaus loft-
bóla. Myndin brúar að mínu mati bilið og
kannski má kalla hana fallega loftbólu. -ge
Bíóhöllin/Saga-bíó
The Negotlator ★★■*. Samuel L. Jakson og
Kevin Spacey eru eru I fínu formi í The Negoti-
ator sem er ágætlega skrifuð sakamálamynd
en ekki nógu heilsteypt. Þeir dreifa athyglinni
frá brotalömum I uppbyggingu myndarinnar og
því að aldrei næst að skapa almennilega
spennu í kringum þá dramatísku atburði sem
eru að gerast. -HK
A Smlle llke Yours ★ Mislukkuð kvikmynd um
ung hjðn sem langar mikið að eignast barn.
Vandræðagangurinn er mestur þegar reynt er
að fjalla um getnað á opinskáan hátt enda
hefur raunsæi í þessum málum aldrei verið of-
arlega á blaði I Hollywood. Myndin, sem á að
vera rómantísk gamanmynd, verður þvt eitt
klúður frá upphafi til enda. -HK
A Perfect Murder ★★★ Andrew Davis, leik-
stjóri A Perfect Murder, ræðst ekki á garðinn
þar sem hann er hæstur þvt að fyrirmyndin,
Dia. M for Murder (1954), telst ekki til bestu
mynda Alfreds Hitchcocks. Útkoman er þó
ágætis afþreying sem kemur stundum
skemmtilega á óvart. -ge
Wrongfully Accused ★★ Myndir Leslie Niel-
seri eru farnar að verða svona dálítiö eins og
Spaugstofan, þreyttar en enn þá færar um að
kitla upp magahlátur á góðum stundum. Ef þú
ert nægilega skilyrt í aulahúmor þá má vel
skemmta sér yfir þessari þvælu. -úd
FJölskylduglldran ★★* -HK
Töfrasverðlð ★★ -HK
Háskólabíó
Taxl ★★* Taxi erfarsakennd spennumynd þar
sem tekst að ná upp jafn skemmtilegri stemn-
ingu með góöum húmor, sérstaklega fýrri
hluta myndarinnar, og þótt samtöl virki stund-
um sem eintómur ruglingur þá er Taxi
skernmtileg tilbreyting frá amerisku hasar-
myndaflórunni sem við þurfum að lifa við.-HK
Out of Slght ★★★ Þetta er svona hasarmynd
á yrirborðinu en undir niðri lítill blús um tvær
manneskjur sem hefðu sameinast á öðrum
stað og öðrum tíma en heimurinn er stundum
vondur og svo sem ekkert um það að segja
nema að þetta jafnast allt hjá guði. Steven
Soderbergh stýrir þeim Clooney og Lopez
beina leið í höfn -ÁS
Stelpukvöld ★★ Persónur allar dregnar skýr-
um, einföldum dráttum og lifna ágætlega á
tjaldinu. En þetta er ekki merkileg kvikmynda-
gerð, hér er málað á tjaldið eftir númerum og
satt að segja tilheyrir þessi mynd síðdegisdag-
skrám sjónvarpsstöðvanna. -ÁS
Maurar ★★★ -HK
Danslnn ★★★ -HK
Björgun óbreytts Ryans ★★★★ Stríð í sinni
dekkstu mynd er þema þessa mikla kvikmynda-
verks. Stórfenglegt byrjunaratriði gæti eitt sér
staöið undir ómældum stjörnufjölda en Steven
Spielberg er meiri maður en svo að hann kunni
ekki að fýlgja þessu eftir og í kjölfarið kemur
áhugaverð saga um björgun mannslífs, saga
sem fær endi í öðru sterku og löngu lokaatriði
þar sem barist er gegn ofureflinu. -HK
Kringlubíó
The Avengers ★ Herra Steed og frú Peel eru
leyniþjónustumenn sem eiga í höggi við veður-
spámann.. En skrautlegt veðurfar er ekki nóg til
að halda uppi heilli mynd og vandamálið hér er að
þegar svona mikið hangir á stílnum þá verður sá
að ganga upp; virka smart og kúl en ekki vand-
ræðalega tilgerðarlegur. -úd
Laugarásbíó
Blade ★★i í Blade eru
vampírurnar hátæknivædd-
ar og sjálfur er hann eins
hip og nokkur vampírubani
getur verið. Sérstaklega er
byrjunin og fyrri hlutinn vel
heppnaður, en svo fer
þetta einhvern veginn allt að þynnast, en það
má vel skemmta sér hér, og með fínum splatt-
ersenum og góðum húmor þá er hún næstum
því þriggja stjarna viröi. -úd
The Truman Show ★★★ The Truman Show er
enn ein rós í hnappagat Peters Weirs. Hún er
ekki besta kvikmynd hans en á meðal þeirra
bestu, virkilega góð og áleitin kvikmynd sem
byggö er á snjallri hugmynd. Jim Carrey hefur
hingað til tekist best upp í försum en sýnir hér
agaðan leik í erfiðu hlutverki þótt ekki verði úr
nein snilld.
Dance with Me Titilllnn segir okkur allt
sem segja þarf, hann segir okkur að dansað
sé I henni og að dansinum fylgir rómantík.
Utan um þessi hugtök getur bæði verið auð-
velt og erfitt að snfða sögu, það fer bara eftir
því hvort ætlast er til að áhorfandinn hugsi
UMBOÐSMENN
Reykjavík: Hagkaup, Elko, Hljómco, BT-tölvur, Bræðurnir Ormsson, Heimskringlan, Heimislistæki, SAM-tónlist, Japis,
Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Hljómsýn, Akranesi. Kf. Borgfirðinga Borganesi. Vestfirðir: Geirseyjarbúðin,
Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, (safirði. Norðurland: Kf. Húnvetninga, Blönduósi. verslunin Hegri, Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. Bókval,
Akureyri. Hagkaup Akureyri. Öryggi, Húsavik. Suðurland: Árvirkinn, Selfossi. Kf. Árnesinga, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Reykjanes: Hagkaup, Keflavík.
Ljósboginn, Keflavlk. Samkaup, Keflavík.
Líkt og trúarbrögð í samfélagi
mannanna gegna kvikmyndir fyrst
og fremst því hlutverki að hressa
upp á sálartetrið, lyfta andanum.
Vissulega er grunnt á þessu í sum-
um myndum en allar góðar kvik-
myndir fela í sér vilja til að snerta
við fólki og veita því innsýn í
sammannlega reynslu. Martin
Scorsese, sem eitt sinn hugðist
verða prestur en fann köllun sína í
kvikmyndum, bendir á í heimildar-
mynd sinni, „The Century of
Cinema: A Personal Journey
with Martin Scorsese through
American Movies“, að kvikmynd-
ir hafi svarað ævafornri leit okkar
að sameiginlegri vitund. Þær komi
ekki i stað trúar en margt sé svip-
að með kirkju og kvikmyndahúsi.
Á báðum stöðum komi fólk saman
til að eiga sameiginlega stund,
eignast sameiginlegar minningar.
Áfram mætti halda í þessum
dúr. Er ekki kókið í raun messu-
vínið? Poppkomið myndi þá vera
oblátan og kvikmyndastjörnumar
eru dýrlingarnir, birtingarmynd
hinna háleitu markmiða sem okk-
ur dreymir um. Kvikmyndasýning-
in er nefnilega altarisganga. Við
játumst töfrum hennar sameigin-
lega og um stund opnast okkur
himnarnir.
Nú er aðventa og þá er gott að
íhuga tilvist sína og tilgang. Kvik-
myndirnar eru sálarspegill og fátt
er betra fyrir sálina en að horfa á
sjálfa sig í góðum spegli. Ég hef sett
saman lista yfir tíu myndir sem all-
ar hafa nógu stóra vængi til að
lyfta okkur til flugs og svífa með
okkur yfir Esjuna, til tunglsins og
þaðan til stjarnanna. Því miður er
ekki verið að sýna neina þeirra í
kvikmyndahúsunum þessa dagana
og er það miður því þar eiga þær
heima. Við verðum því að láta okk-
ur myndbandið nægja en, í guðs
bænum, kveikið á kertum,
slökkvið öll önnur ljós og sitjið
þögul og horfið, njótið. Þetta eru
myndir sem enginn má missa af.
Þær ættu að fást á betri mynd-
bandaleigum.
Þessi hjartnæma og magíska
fantasía segir af örvæntingarfull-
um manni sem í gegnum guðlega
forsjón fær tækifæri til að sjá
hvers virði hann er samfélagi sínu.
Capra svifst hér einskis til að telja
okkur trú um mikilvægi fjöl-
skyldugilda og samlíðunar og tekst
svo vel upp að myndin er án efa
hans besta verk, sem og Stewarts.
Hér takast á draumar gegn von-
brigðum, réttlæti gegn kúgun, von-
in gegn svartnættinu og jafnvel
tíminn sjálfur leggur lykkju á leið
sína svo söguhetjan George Bailey
megi finna sjálfan lífsins tilgang og
fyrirheit. Það sem skilur hana frá
flestum fjögurra vasaklúta mynd-
um er að hún fær mann til að
vikna yfir gleðistundum persón-
anna en ekki þeim harmrænu.
Dásamlega látlaus, einföld og
töfrandi tragi-kómedía um krafta-
verk, kærleika og yfirbót. Tvær
dygðugar prestsdætur á Jótlandi
nítjándu aldar feta hinn þrönga
stíg guðsótta og góðra siða. Þegar
þær taka að sér flóttakonu frá Par-
ís reynir þó fyrst á trú þeirra því
hún, Babetta, reynist ekki öll þar
sem hún er séð. Það er hægt að
njóta þessarar myndar á ýmsa
vegu, sem allegóríu, dæmisögu,
matreiðslukennslu eða mixtúru við
þunglyndi. Hér takast á breyskar
sálir og sterkar og á mann leita
áleitnar spurningar um hvert för-
inni sé heitið og til hvers. Tónninn
er meinfyndinn en áreynslulaus,
enda varð þessi mynd „sígild" á
svipstundu og hlaut meðal annars
óskarsverðlaunin sem besta er-
lenda myndin. Með ólíkindum má
teljast að leikstjórinn skuli ekki
hafa gert neitt af viti, hvorki fyrr
né síðar, því svona myndir gera
Játið og sjá,
himnarnir munu opnast
andi dómara sem dundar sér við að
hlera símtöl. Fyrirsætan þarf að
gera upp við sig ýmislegt varðandi
ástamál sín og sækir styrk í sam-
band sitt við dómarann sem vakir
yfir mannfólkinu án þess að hafa
áhuga á því. Örlögin haga því svo
að hún finnur hamingjuna um leið
og lífslöngunin kviknar á ný í dóm-
aranum. Þetta er dæmi um kvik-
myndagerð þar sem afl ímyndunar-
innar beinist að því að skilja
hvernig við erum - þar sem þögnin
fær sama vægi og ræðan og þar
sem auganu er beint að því sam-
hengi sem við kjósum oftast að
leiða hjá okkur. í Rauðum birtist
djúp lotning fyrir leyndardómum
tilverunnar, oft í formi kaldhæð-
innar forvitni en ekki siður í sér-
kennilegum unaði þar sem
Kieslowski myndar ekki aðeins
fólkið sjálft heldur einnig bjar-
mann af sálu þess.
Ozu er sagður japanskastur leik-
stjóra, nokkurs konar Friðrik Þór
þeirra Japana. Stífl hans var fá-
brotinn og einfaldur og útgangs-
punktur hans ávallt manneskjan
sjálf en ekki þráðurinn eða þemað.
í þessari þekktustu mynd hans
halda öldruð hjón úr þorpi sínu til
Tokyo að vitja um uppkomin böm
sín. Þau em of upptekin við að lifa
líflnu til að sinna gömlu hjónunum
og sú eina sem tekur þeim vel er
tengdadóttir þeirra sem er orðin
ekkja. Þetta er hljóðlát en áhrifa-
mikil mynd, ofur mannleg og af-
skaplega hjartnæm, þar sem mæt-
ast vonbrigði foreldranna með
böm sín og ótti bamanna við ell-
ina og dauðann.
Þessi dáðasta mynd íslenskrar
kvikmyndasögu er látlaus en sterk
frásögn af gömlu fólki sem hnígur
til sins uppruna. Eftir sterka opn-
unarsenu, þar sem hver einasti
myndrammi lítur út eins og helgi-
mynd, dettur sagan svolítið niður
þegar gamli bóndinn heldur til
borgarinnar, enda er fólkið þar
teiknað tvívíðum og grófum drátt-
um. En allt er fyrirgefið þegar
gamla parið strýkur af elliheimil-
inu og heldur á vit heimkynna
sinna. Eftir það er myndin sam-
felldur unaður, ómótstæðileg
blanda af söknuði, þrautseigju, til-
híökkun og reisn - ofin í feld lág-
stemmdrar kímni og væntum-
þykju. Hún tekur á sig goðsagna-
kenndan blæ, þetta er ferðalag inn
í eilífðina, varðað skýmm kenni-
leitum éem vísa hinu aldraða pari
leiðina heim. Friðrik Þór þekkir
sitt fólk, Angelopoulos svífur svo-
lítið um og yfir, visanirnar í
Wenders og Kieslowski blasa við,
en hvað með Ozu og myndina hér
að ofan? Berið saman og ákveðið
Ein af mínum helstu uppáhalds-
myndum. Fulltrúi oliufyrirtækis í
Texas er sendur í skoskt sjávar-
þorp til að kaupa það með húð og
hári fyrir olíuhreinsunarstöð.
Þorpsbúar beita ýmsum brögðum
til að fá gott verð en fyrirstaða birt-
ist í gömlum karli sem á strand-
lengjuna sjálfa og býr þar í kofa.
Ekki bætir svo úr skák að olíumað-
urinn fær guðdómlega kraftbirt-
ingu á staðnum sem ruglar hann
menn ekki án þess að vera í beinu
sambandi við guð sinn.
Tíu frábærar myndir til að lyfta andanum á aðventu:
r
tjH NINTENDO
(Allt að 15 mín i öðrum lcikjatölvum)
• Allt að 4 spilarar í einu
• Rauntíma þrividd
• Besta leikjatölvan ‘98
• Um 80 leikja titlar
• Golden eye 007 liæst dæmdi leikurinn ‘98 (98%)
• Margföld ending leikja
Kieslowski verður ekki kallað-
ur trúaður í hefðbundnum skiln-
ingi en myndir hans gefa okkur
engu að síður möguleikann á til-
vist æðri máttarvalda, sjötta skiln-
ingarvitsins og hugmyndarinnar
um samantvinnað líf. Hvergi koma
þessi hugðarefni betur saman en í
síðustu mynd hans, Rauðum. Á yf-
irborðinu gerist fátt en undir niðri
kraumar í heitum potti. Ung fyrir-
sæta kynnist lífsþreyttum fyrrver-
Gestaboð Babettu (1987)
Leikstjóri: Gabriel Axel. Aöalhlutverk: Stephane
Audran, Jean*Philippe Lafont. Bodil Kjer.
Birgitte Federspiel.
It’s a Wonderful Life (1946)
Leikstjóri: Frank Capra. Aöalhlutverk: James
Stewart, Donna Reed, Lionel Barrymore.
Tokyo Story 0953)
Leikstjóri: Yasujiro Ozu. Aöalhlutverk: Chishu
Ryu, Chieko Higashiyaina. Setsuko Hara.
Local Hero (1984)
Leikstjóri: Bill Forsyth. Aöalhlutverk: Peter
Riegert. Burt Lancaster, Peter Capaldi.
Börn náttúrunnar (1991)
Leikstjóri: Friörik Þór Friöriksson. Aðalhlutverk:
Gísli Halldórsson, Sigríöur Hagalín.
Þrír litir: Rauður (1994)
Leikstjóri: Krzysztof Kieslowski. Aöalhlutverk:
Iréne Jacob, Jean-Louis Trintignant.
26
f Ó k U S 4. desember 1998