Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1998, Blaðsíða 20
20
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998
21
íþróttir
íþróttir
Bland í poka
Suóur-Kórea varð í gær Aslumeist-
ari i handknattleik. Suður-Kóreu-
menn lögðu Kúveita að velli i úrslita-
leiknum, 29-18, en staðan í leikhléi
var 15-12. t leik um þriöja sætiö
höfðu Japanir betur gegn íran, 28-23.
Þýski knattspyrnumaóurinn Matt-
hias Sammer á enn i meiðslum og
ólikegt þykir að hann leiki með liði
Dortmund i bráð. Sammer gekkst
undir aðgerð á hné í október á síðasta
ári og forráðamenn Dortmund óttast
nú að ferill þessa 31 árs gamla varn-
armanns sé á enda.
Eric Gerets skrifaði i gær undir
þriggja ára þjálfarasamning við hol-
lenska A-deildar liðið PSV. Gerets
hefur undanfarin ár þjálfað lið Club
Brúgge og er með það í efsta sæti í
belgísku A-deildinni sem stendur.
Gerets, sem er fyrrum landsliðsmað-
ur Belga, þekkir vel til hjá PSV en
þar lék hann um árabil við góðan orð-
stír.
Þaö verða íran og Kúveit sem leika
til úrslita um Asíumeistaratitilinn í
knattspyrnu. íran hafði betur gegn
Kína i undanúrslitunum í gær, 1-0,
og á sama tíma lögðu Kúveitar lið
Tælendinga, 3-0.
í gœr var dregiö til 8-liða úrslitanna
í bikarkeppni karla og kvenna í
blaki. í karlaflokki mætast annars
vegar bikarmeistarar Þróttar, R, og
Stjörnunnar, en þessi lið léku til úr-
slita í fyrra, og hins vegar ÍS og KA-
b sem er utandeildar lið. Þróttur N og
KA sitja hjá. Hjá konum mætast KA
og Þróttur, N, annars vegar og hins
vegar Víkingur og KA-b. Bikarmeist-
arar ÍS og Þróttur, R, sitja hjá.
Suöur-Afríka sigraöi Egyptaland,
2-1, í vináttulandsleik í knattspyrnu i
gær. 30.000 áhorfendur sáu Hossam
Hassan koma Egyptum yfir en Bene-
dict McCarthy tryggði heimamönn-
um sigm-inn með tveimur mörkum.
Ron Noades, framkvæmdastjóri
enska knattspyrnuliðsins Brentford,
var æfur út í Hermann Hreiðarsson
eftir að mistök hans urðu til þess að
liðið fékk á sig dýrkeypt mark gegn
Oldham í bikarkeppninni i fyrra-
kvöld. „Hermann hélt að hann væri
að spila í efstu deild, ætlaði að fara að
taka boltann niður á eigin vítateig og
gerði byrjendamistök," sagði Noades.
-GH/VS
Dregiö í Evrópumótunum í knattspyrnu:
Juve líklegast
- til að hampa Evrópumeistaratitlinum
„Eg tel helmingslíkur á að við för-
um áfram í keppninni. Þetta verður
jöfn viðureign tveggja sterkra liða
sem ætla sér bæði alla leið í keppn-
inni. Við höfum átt góð samskipti
við Inter í gegnum tíðina en aldrei
mætt liðinu í alvöruleik svo það
verður fróðlegt að fylgjast með þess-
um leikjum," sagði Ken Merett, einn
forráðamanna Manchester United, í
viðtölum við fréttamenn eftir drátt-
inn í Evrópukeppni meistaraliða í
knattspymu í gær.
Annað þessara fer í úrslitin
„Ég er sammála því sem margir
hafa sagt að þetta sé ein mest spenn-
andi viðureignin í 8-liða úrslitun-
um. Ég held þvl fram að annað þess-
ara liða fari alla leið í úrslitin. Það
er erfitt að spá fyrir um úrslitin í
leikjunum nú i desember þvi það á
mikið eftir að gerast áður en leik-
irnir fara fram í mars,“ sagði Gi-
annaria Visconte, varaforseti Inter.
Evrópumeistarar Real Madrid
mæta Dynamo Kiev frá Úkraínu á
leið sinni til að verja titilinn.
Ekki auðvelt
„Ég er mjög ánægður með þenn-
an drátt en þetta verður alls ekki
auðvelt verkefni þvi liði Dynamo
Kiev hefur sýnt og sannað að það er
geysisterkt," sagði Lorenzo Sainz,
forseti Real Madrid.
Það er víst að Þjóðverjar eiga full-
trúa í undanúrslitunum en Bayern
Múnchen og Kaiserslautern drógust
saman. „Þetta er að verða hefð. í
fyrra mættum við Dortmund í 8-liða
úrslitunum og nú fengum við
Kaiserslautern. Ég hefði kosið að fá
eitthvert annað lið,“ sagði Carl
Hasper, fulltrúi Bayern Múnchen,
við dráttinn.
Ekki í lukkupottinn
Juventus, sem veðbankar spá að
hampi Evrópumeistaratitlinum,
mætir gríska liðinu Olympiakos.
„Margir halda að við höfum dott-
ið í lukkupottinn en ég er þvi ekki
sammála. Gríska liðið er mjög gott
og það hafnaði í efsta sæti í sínum
riðli. Þá eigum við fyrri leikinn
heima sem ég tel vera verri kost-
inn,“ sagði Roberto Bettega, vara-
forseti Juventus.
Enginn ótti
„Við berum mikla virðingu fyrir
liði Juventus og þekkjum sögu liðs-
ins mjög vel. Við mættum hingað til
Genf reiðbúnir að mæta öllum 7 lið-
unum og bera virðingu fyrir þeim
en við finnum ekki fyrir neinum
ótta,“ sagði Peter Kokkalis, stjórn-
arformaður gríska liðsins Olympi-
akos.
Juventus líklegast
Strax eftir dráttinn í gær birti
breski veðbankinn William Hill nið-
urstöður um líklega Evrópumeist-
ara. Samkvæmt honum eru mestar
líkur á að Juventus hampi titlinum
en líkurnar eru 5:2, Manchester
United og Bayem Múnchen koma
næst með 4:1, Inter Milan 5:1, Real
Madrid 6:1, Dynamo Kiev 8:1,
Kaiserslautern 20:1 og Olympi-
akos 40:1.
Daði bjarg-
vættur
Dormagen
Daði Hafþórsson jafnaði fyrir
Dormagen á síðustu stundu.
Daði Hafþórsson tryggði Dormagen jafntefli á
heimavelli, 24-24, gegn Willstatt í uppgjöri efstu
liða suðurriðils þýsku B-deildarinnar í hand-
knattleik í gærkvöld.
Daði, sem lítið hefur fengið að spila með Dor-
magen í vetur, jafnaði metin á lokasekúndum
leiksins. Það var annað mark hans í leiknum.
Héðinn Gilsson átti góðan leik með Dormagen og
skoraöi 4 mörk og Róbert Sighvatsson gerði 2.
Gústaf Bjarnason gat ekki leikið með Willstátt vegna meiðsla.
Liðin eru jöfn og efst með 28 stig. Solingen er næst með 26 stig en hefur leikið
einum leik meira.
Ólafur Stefánsson skoraði 3 mörk fyrir Magdeburg, 2 þeirra úr vítaköstum þeg-
ar liðið gerði jafntefli við Essen á útivelli, 22-22, í A-deildinni í gærkvöld. Páll
Þórólfsson skoraði ekki fyrir Essen. Joel Abati jafnaöi fyrir Magdeburg undir lok
leiksins.
Alfreð Gíslason er kominn með lið sitt, Hameln, á topp noröurriðils B-deildar-
innar eftir glæsilegan sigur á efsta liðinu, Nordhorn, 24-18, í gærkvöld. Hameln er
þá með 31 stig, Nordhorn 30 og Duderstadt 22 stig. -VS
Oleg Blokhin, þjálfari AEK í Grikklandi:
Við höldum
varla Arnari
Chelsea til Noregs
I gær var dregið í 8-liða
úrslitin á Evrópumótunum
þremur í knattspyrnu og fór
drátturinn fram í höfuð-
stöðvum Knattspyrnusam-
bands Evrópu í Genf.
Evrópukeppni meist-
araliða
í Evrópukeppni meistara-
liða varð drátturinn þessi:
Real Madrid-Dynamo Kiev
Manch.Utd-Inter Milano
Juventus-Olympiakos
Bayem Múnch-Kaiserslaut.
Leikirnir fara fram 3. og
17. mars.
UEFA-keppnin
I UEFA-keppninni
drátturinn þannig út:
Marseille-Celta Vigo
Bordeaux-Parma
Bologna-Lyon
Atletico Madrid-Roma
Leikið 2. og 16. mars,
lítur
O’Brien i Hollinni?
- sýnir áhuga á ÍR-mótinu 24. janúar
Svo getur farið að Banda-
ríkjamaðurinn Dan O’Brien,
heims- og ólympíumeistari í
tugþraut, verði á meðal kepp-
enda á stórmóti ÍR í frjálsum
íþróttum sem fram fer í Laug-
ardalshöllinni 24. janúar. Tvö
siðustu árin hafa ÍR-ingar
boðið O’Brien á mótið en
hann svaraði ekki boðum ÍR-
inga. í vikunni kom svo fyrir-
spum frá O’Brien um mótið
frá umboðsskrifstofu hans þar
sem hann spyr um ýmsa hluti
og sýnir mótinu áhuga.
Það er hins vegar spuming
hvort mótið fellur að undir-
búningi og hvort ÍR-ingar geta
staðið undir kröfum hans í
sambandi við fjárhagslega fyr-
irgreiðslu.
O’Brien hefur um árabil
verið besti tugþrautarmaður
heimsins. Hann á heimsmetið
í greininni, 8891, og var fyrir
nokkru valinn besti tugþraut-
armaöur heims af tímaritinu
Track and Field News.
ÍR-ingar eiga í viöræðum
við fleiri af hestu tugþrautar-
mönnum heims vegna móts-
ins en þeir vilja fá þá bestu til
leiks til að etja kappi við Jón
Amar Magnússon sem er 3.
besti tugþrautarmaður heims
samkvæmt Track and Field
News.
-GH
SS
ÞYSKALAND
Duisburg-Kaiserslautern .... 3-1
0-1 Rösler (40.), 1-1 Beierle (48.), 2-1
Töfting (64.), 3-1 Anderson (90.)
Gladbach-Bayem Múnchen . . 0-2
0-1 Effenberg (8.), 0-2 Effenberg (27.)
Efstu og neöstu lið:
Bayern 17 13 2 2 40-13 41
Leverkusen 17 10 5 2 39-17 35
Kaiserslaut. 17 10 3 4 28-27 33
1860 M. 17 9 4 4 31-23 31
Hertha 17 9 2 6 25-17 29
Wolfsburg 17 7 5 5 34-25 26
Frankfurt 17
Rostock 17
Núrnberg 17
Gladbach 17
21-29
25-33
20-31
20-43
Stefan Effenberg tryggði Bayem sex
stiga forskot með tveimur mörkum
gegn sínu gamla féiagi, Mönchenglad-
bach, sem situr í erfiðri stööu á
botninum. Kaiserslautern tapaði
óvænt i Duisburg eftir sjö sigurleiki í
röö.
-VS
EM kvenna í handbolta:
Danmörk og
Noregur áfram
Danmörk og Noregur
tryggðu sér í gær sæti í und-
anúrslitum Evrópumóts
kvennalandsliða i hand-
knattleik sem stendur yfir í
Hollandi.
Danir unnu Pólverja og
Norðmenn Spánverja, og þar
með skiptir lokaumferðin í
B-riðlinum ekki máli.
Norðmenn urðu fyrir því
óhappi í gær að þeirra skær-
asta stjarna, Kjersti Grini,
meiddist og óvíst er með
áframhald hennar í keppn-
inni. Hún verður örugglega
ekki með gegn Dönum í úr-
slitaleik riðilsins í kvöld.
í A-riðlinum er hins vegar
hörð keppni fjögurra þjóða,
Ungverjalands, Austurríkis,
Þýskalands og Úkraínu, um
sætin tvö í undanúrslitun-
um. Úrslitin í gær:
A-riðill:
Holland-Rúmenía .......30-24
Austurríki-Úkraína.....30-24
Ungverjaland-Þýskaland . 25-18
Ungverjaland er með 6 stig,
Austurríki 6, Þýskaland 6, Úkra-
ina 4, Holland 2 og Rúmenía 0.
B-riðill:
Noregur-Spánn .........27-21
Makedónía-Rússland .... 25-23
Danmörk-Póiland .......29-21
Danmörk er með 8 stig, Noregur
8, Pólland 4, Makedónía 4, Rúss-
land 0 og Spánn 0. -VS
Oleg Blokhin, þjálfari gríska
knattspyrnufélagsins AEK, sagði
á blaðamannafundi í höfuðstöðv-
um félagsins í gær að hann reikn-
aði ekki með því að halda Amari
Grétarssyni lengi hjá AEK.
„Ég vona að Arnar verði áfram
með okkur en það er stjórn félags-
ins sem ræður ferðinni. Ef lið úr
sterkari deild, eins og þeirri
ensku, vill kaupa leikmann frá
okkur er lítið sem við getum við
því gert. Ef Arnar fer verð ég
bara að vona að peningarnir
verði notaðir til að kaupa góðan
leikmann í staðinn,” sagði Blok-
hin, sá frægi knattspyrnumaður
Sovétríkjanna og Dynamo Kiev á
sínum tima. Hann tók við liði
AEK í sumar en hann hefur áður
þjálfað mörg af sterkustu liðum
Grikklands.
Beðið er eftir niðurstöðum úr
viðræðum AEK um Arnar við
enska félagið Southampton, sem
grískir fjölmiðlar hafa fjallað
mikið um síðustu daga. Eins og
DV sagði frá í gær er einnig búist
við nýju tilboði frá Paris SG í
Frakklandi.
Enskir fjölmiðlar fjölluöu í fyrsta
skipti í gær um hugsanleg kaup
Southampton á Arnari. Sú um-
fjöllun var byggð á frétt DV af
málinu i gær og greinilegt er að
Englendingar fylgjast betur með
íslenskum fréttum en grískum.
-VS
Evrópukeppni bikar-
hafa
í Evrópukeppni bikar-
hafa drógust þessi lið sam-
an:
Chelsea-Válerenga
Lok. Moskva-Macc.Haifa
Varteks-Mallorca
Lazio-Panionios
Leikirnir fara fram 4. og
18. mars.
-GH
Bland í noka
Islensk knattspyrna 1998,
árbók knattspyrnunnar á ís-
landi, er
komin
Út í 18.
skipti.
Bókin
er 176
blaðsiö-
ur og
skreytt
með
um 240
mynd-
um af
ein-
stak-
ling-
um og liðum, þar á meðal eru
litmyndir af öllum meistara-
liðum ársins í öllum flokk-
um. Fjallað er itarlega um
efstu deildir karla og kvenna,
landsleiki, Evrópuleiki, at-
vinnumenn erlendis, og flest
annað sem tengist íslenskri
knattspyrnu. Þá eru í bók-
inni viðtöl við á annan tug
leikmanna og við Guöjón
Þóröarson landsliðsþjálfara.
Höfundur er Víöir Sigurös-
son og útgefandi Bókaútgáf-
an Skjaldborg.
„Frábær úrslit“
- sagöi Alex Ferguson eftir jafntefli gegn Chelsea, 1-1
Þýska tennisdrottningin
Steffi Graf, lýsti því yfir í
gær að hún ætlaði að leggja
tennisspaöann á hilluna eftir
Ólympíuleikana í Sydney
árið 2000. Graf hefur verið i
allra fremstu röð tennis-
kvenna til margra ára. Graf
sagðist ekki stefna að efsta
sætinu lengur á heimslistan-
um heldur einungis að leika
sem best á tennisvellinum.
Motheruiell vannn Dundee,
2-1, í skosku A-deildinni i
knattspyrnu í gærkvöld.
Enrico Chiesa skoraði
þrennu fyrir ítali í 6-2 sigri á
heimsúrvali í 100 ára afmæl-
isleik ítalska knattspyrnu-
sambandsins.
-SK
Manchester United tókst ekki að
ná efsta sætinu í enska boltan-
um í gærkvöld er Chelsea lék
á Old Trafford. Leiknum lauk
með jafntefli, 1-1.
Lið Manchester United lék mjög
illa í leiknum og Chelsea var
lengstum betri aðilinn. Það var
gegn gangi leiksins þegar Andy
Cole náði forystunni fyrir United
þegar þrjár mínútur voru eftir af
fyrri hálfleik.
Það var svo ítalinn Gianfranco
Zola sem tókst að jafna með góðu
marki þegar nokkrar mínútur voru
til leiksloka.
Það kom verulega á óvart að
hvorki David Beckham né Ryan
Giggs voru í byrjunarliði United
þrátt fyrir að vera lausir við meiðsli.
Lið United kom lamað til leiks og
mjög frískir leikmenn Chelsea höfðu
mun meiri áhuga á stigunum þremur
sem í boði voru.
Alex Ferguson, stjóri United,
skipti þeim Beckham og Giggs inn á
í síöari hálfleik en það var auðvitað
of seint í rassinn gripið. Ljóst er að ef
United á að eiga möguleika á enska
meistaratitlinum þarf liðið að leika
mun betur en í gærkvöld, svo ekki sé
minnst á meistaradeild Evrópu sem
öllu virðist stjórna í kolli Fergusons
þessa dagana.
Chelsea var betra liðið
Ferguson var mjög ánægður með
stigið. „Þetta eru frábær úrslit fyrir
okkur því Chelsea var betra liðið og
lék mun betri knattspyrnu síðustu 20
mínútumar. Þeir verðskulduðu að
jafna en leikur okkar olli vonbrigð-
um,“ sagði Ferguson eftir leikinn.
Gianluca Vialli, stjóri Chelsea, get-
ur vel við úrslitin unað. Lið Chelsea
er enn taplaust frá fyrstu umferð og
líklegast í dag til að hampa meist-
aratitlinum næsta vor enda liðið
skipað mjög snjöllum knattspyrnu-
mönnum sem gefa sig alla í verkefn-
in hverju sinni.
„Við spiluðum mjög vel og miðaö
við seinni hálfleikinn áttum við að
skora meira en eitt mark. Zola hefur
bætt sinn leik mikið, hann vinnur
mun betur en áður þegar við erum
ekki með boltann og sú vinnsla færði
honum og okkur jöfnunarmarkiö,”
sagði Vialli.
-SK
Evrópubikar á skíðum: ^
Kristinn féll úr keppni á Italíu
Erfiður riðill
- ísland mætir Ítalíu, Þýskalandi og Úkraínu
Kristinn Bjömsson féll úr keppni
á Evrópubikarmóti á Ítalíu í gær.
Kristinn var í tíunda sæti eftir fyrri
umferðina. í síðari umferðinni voru
aðstæður orðnar mjög erfíðar en
snögglega hlýnaði mikið á svæðinu
á milli umferða. Margir skíðamenn
féllu þá úr keppni og var Kristinn í
þeim hópi.
Á sama móti fyrir ári lenti Krist-
inn í þriðja sæti.
Sigríður Þorláksdóttir sigraði
sem kunnugt er á FlS-móti í Sví-
þjóð í fyrradag og vann sér inn 33,89
punkta og bætti fyrir vikið verulega
stöðu sína á heimslistanum í svigi.
Björgvin Björgvinsson lenti i 13.
sæti á móti í Svíþjóð í fyrradag og
fékkd fyrir það 41,89 FlS-punkta.
Hann átti fyrir 61,91 punkt á gild-
andi heimslista. Þessa góða bæting
kemur sér vel fyrir átökin í vetur.
Strangar æfingar eru famar að
skila sér.
Þeir Arnór Gunnarsson, Sveinn
Brynjólfsson, Jóhann F. Haralds-
son, og Jóhann H. Hafstein kepptu
allir á sama móti en náðu ekki að
ljúka keppni.
-JKS
Islenska kvennalandsliðið í knattspyrnu lenti í
riðli með Ítalíu, Þýskalandi og Úkrainu í und-
ankeppni Evrópumóts kvennalandsliða í knatt-
spyrnu en dregið var í riðlana í gær. Riðlakeppnin
verður leikin á tímabilinu 1. ágúst 1999 til 1. ágúst
2000 en úrslitakeppni 8 liða fer fram um mánaðar-
mótin júní-júlí árið 2001. Sigurvegarar riðlanna fara
beint í úrslit en liðin í 2. og 3. sæti riðlanna leika
aukaleiki um laus sæti í úrslitakeppninni.
„Við eram ekki mjög hress með þessa niðurstöðu
en það þýðir ekkert að svekkja sig á því. Ef við
náum 2. eða 3. sætinu í riðlinum lentum við gegn
liði úr 2. riðli og það er ágætis kostur. Það er ekki
búið að ákveða leikdaga en því á að verða lokið fyr-
ir 16. febrúar,” sagði Klara Bjartmarz, starfsmaður
KSÍ, í samtali við DV í gær.
íslenska kvennalandsliðið hefur 8 sinnum leikið
gegn Þýskalandi og Otapað öllum leikjunum, þremur
á heimavelli og átta á útivelli. ísland hefur tvívegis
mætt Úkraínu en það var í síðustu undankeppni
HM. ísland tapaði 1-0 í Kænugarði en sigraði á
Laugardalsvefli, 3-1. Ítalía er nýr móterji en A-
landslið kvenna hefur aldrei mætt ítölum í lands-
leik.
Riðlamir líta þannig út:
1. riðill: Svíþjóð, Frakkland, Holland og Spánn.
2. riðill: Noregur, England, Portúgal og Sviss.
3. riðill: ítalia, Þýskaland, ísland og Úkraína.
4. riðUl: Danmörk, Rússland, Finnland og
Júgóslavía.
Ekki hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari en sem
kunnugt er þá er Vanda Sigurgeirsdóttir hætt þjálf-
un landsliðsins og hefur tekið við liði KR. Hjá KSí
fengust þær upplýsingar í gær að unnið væri í þvi
að finna þjálfara fyrir kvennalandsliðið og stefnt
væri að því að hann ýrði ráðinn upp úr áramótum.
-GH
íþróttama
Nafn íþróttamanns
1-
2.
3-
4-
5..
Nafn:---------
Heimilisfang:
Sendíð bl:
íþróttamaðuf ársins
DV - Þverholti 11
105 Reykjavík
ENGLAND
Enskum ffölmiölum leist ekki vel á
andstæðinga Manchester United í
meistaradeild Evrópu, Inter Milano.
Sumir fjölmiðlanna töldu dráttinn
hræðilegan fyrir United. Víst er að
leikmenn United verða að leika mun
betur en gegn Chelsea í gærkvöld ef
þeir eiga ekki aö gera rækilega i bux-
urnar gegn ítalska liðinu.
Slakasti maöurinn á vellinum í
gærkvöld þegar Man Utd og Chelsea
áttust við var dómarinn, Graham
Barber. Hann spjaldaði leikmenn
Chelsea út og suður á meðan leik-
menn United sluppu með skrekkinn
hvað eftir annaö. í fyrri hálfleik
fengu sex leikmenn Chelsea gula
spjaldið. 1 síðari hálfleik slapp einn
varnarmanna Chelsea við rauða
spjaldið eftir að hafa klippt Andy
Cole niður er hann var að komast
einn inn fyrir vörn Chelsea.
Dómararnir í ensku knattspyrnunni
hafa verið gagnrýndir harðlega fyrir
frammistöðuna það sem af er leiktíð-
inni. Ef marka má frammistöðu dóm-
arans í gærkvöld á sú gagnrýni fullan
rétt á sér.
Chelsea hefur náð mjög athyglis-
verðum árangri á Old Trafford. Með
jafnteflinu í gærkvöld hefur liöið að-
eins tapað tvisvar þar í síðustu 24
heimsóknum sinum í deildakeppn-
inni.
Dean Richards, leikmaður Úifanna í
ensku B-deildinni, hefur verið settur
á sölulista. Richards, sem er einn eft-
irsóttasti varnarmaðurinn í enska
boltanum i dag, neitaði að skrifa und-
ir samning hjá Wolves og langar
kappann i efstu deildina. Arsenal,
Sheffield Wednesday, Liverpool,
Newcastle og Manchester United vilja
öll kaupa Richards en líklegast er að
hann fari til Blackburn Rovers og
leiki innan skamms undir stjórn Bri-
ans Kidd.
Coventry hefur styrkt lið sitt veru-
lega með því aö kaupa sóknarmann-
inn John Aloisi frá Portsmouth.
Kaupverðiö var 800 þúsund pund.
Lengi vel leit út fyrir að Aloisi færi
til Charlton en samningar tókust
ekki. Aloisi hefur leikið mjög vel fyr-
ir Portsmouth það sem af er leiktíð-
inni og sent knöttinn sautján sinnum
i mark andstæðinganna.
Arsene Wenger, framkvæmdastjóri
Arsenal, er mjög óánægður með
heimavöll Arsenal, Highbury. Wen-
ger segir völlinn alltof litinn en hann
tekur 38 þúsund áhorfendur. Til sam-
anburðar má nefna að Old Trafford
tekm- á næstu leiktíð 67 þúsund
áhorfendur eftir stækkun.
„Ef Arsenal ætlar sér að vera á með-
al bestu liða Englands á næstu árum
veður liöið að fá stærri og betri
heimavöll," segir Wenger. Highbury
er þannig í sveit settur aö enginn
möguleiki er að stækka völlinn.
Vandrœöagangurinn hjá enska
knattspymusambandinu undanfarna
daga og afsögn Grahams Kelly eru
talin skaða mjög umsókn Englands
um heimsmeistarakeppnina árið
2006. Kelly sagði í gær að afsögn
hans myndi engin áhrif hafa á um-
sókn Englands en vitanlega er hann
ekki dómbær á það frekar en margt
annað þessa dagana.
Derby County hefur fengið Finnann
Jonatan Johansson til sín til
reynslu i þrjá daga frá skoska liðinu
Glasgow Rangers. Johansson var á
sinum tima keyptur til Rangers frá
Flora Tallinn í Eistlandi. Ef hann
stendur sig í stykkinu hjá Derby er
talið að félagið muni kaupa hann á
1,5 miUjónir punda.
David Howells verður enn lengi frá
æfingum og keppni með liði sinu
Southampton. Howeils hefur ekkert
leikið með Southampton frá þvi i lok
október og verður enn frá í tvo mán-
uði. -SK
Ikvöld
Úrvalsdeildin i körfubolta:
ÍA-Skallagrímur 20.00
Grindavik-KFÍ 20.00
Keflavík-Snæfell 20.00
Tindastóll-Þór, A 20.00
Haukar-Njarðvík 20.00
Valur-KR 20.00
Bikarkeppni karla í handbolta:
ÍBV-HK.....................20.30
(frestað í gærkvöld)
1. deild kvenna í handbolta:
KA-Grótta/KR...............20.00
(frestað í gærkvöld)