Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Page 9
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999
9
DV
Útlönd
Bandaríkin sáu vopnaeftirlitsmönnum SÞ í írak fyrir tækjum:
Þagað um njósnirnar
Stjórn Bills Clintons Bandaríkja-
forseta hefur reist þagnarmúr um
nýjar ásakanir um að hún hafi geng-
ið of langt í njósnasamvinnu við
vopnaeftirlitssveitir Sameinuðu þjóð-
anna í írak.
Bandaríska leyniþjónustan CIA og
þjóðaröryggisstofnunin NSA vildu
ekkert tjá sig í gær um fréttir þess
efnis að bandarískir njósnarar hefðu
slegist í lið með vopnaeftirlitsmönn-
unum og að NSA hefði getað hlustað
beint á samskipti manna í öryggis-
sveitum íraks.
í fréttum sem blöðin New York
Times og Wall Street Journal birtu i
gær var gengið lengra en í fyrri frétt-
um þar sem staðhæft hafði verið að
vopnaeftirlitsmenn SÞ hefðu unnið
náið með bandarískum njósnastofn-
unum.
Bandarísk stjórnvöld
viðurkenndu á miðviku-
dag að um samvinnu hefði
verið að ræða og héldu
uppi vörnum fyrir hana.
Þau sögðu hana aðeins
hafa leitt af aðstoðinni við
eftirlitssveitirnar í leit
þeirra að gjöreyðingar-
vopnum íraka.
James Foley, talsmaður
bandaríska utanríkisráðu-
neytisins, vísaði því á bug
í gær að bandarískir njósnarar hefðu
laumað sér í raðir vopnaeftirlits-
manna. Þá neitaði hann að ræða hlut-
verk hinnar mjög svo leynilegu
þjóðaröryggisstofnunar NSA í hlerun-
unum.
Wall Street Journal sagði að vopna-
eftirlitsmenn hefðu tekið upp dulkóð-
aðar merkjasendingar frá
samskiptaneti Saddams
Husseins íraksforseta, þar
á meðal frá lýðveldisvörð-
unum sem sjá um öryggi
hans. Bandarískur gervi-
hnöttur kom þessum
merkjasendingum áleiðis
til NSA þar sem ráðið var í
þær. NSA sendi síðan hluta
þeirra aftur til vopnaeftir-
litsmanna.
NSA gegnir því hlutverki
að hlera fjarskipti fyrir bandarísk
stjómvöld um víða veröld.
New York Times sagði að banda-
rískir njósnarar hefðu smyglað sér
inn í raðir vopnaeftirlitsmanna og
safnað upplýsingum á eigin spýtur,
óháð vopnaeftirlitssveitunum. CIA
vildi ekkert tjá sig um fréttina.
Bandaríska blaðið Washington
Post sagði í morgun að bandarísk
stjómvöld hefðu af og til í þrjú ár
hlustað á dulkóðaðar fjarskiptasend-
ingar öryggissveita Saddams
Husseins með tækjum sem vopnaeft-
irlitsmenn SÞ komu fyrir á laun.
Blaðið hafði þetta eftir embættis-
mönnum i stjórnkerfínu í Was-
hington og hjá SÞ.
í fyrstu voru hleranimar stundað-
ar með búnaði sem keyptur var út úr
búð og afraksturinn fór síðan með
sendiboðum til greiningar í Englandi,
ísrael eða Bandaríkjunum.
Vopnaeftirlitssveitimar komust
hins vegar að þeirri niðurstöðu
snemma á síðasta ári að of hættulegt
væri fyrir starfsmenn þeirra að bera
tækin á sér. Af þeim sökum var flókn-
ari sjáifvirkum búnaði komið fyrir.
Bill Clinton.
Snorri fallinn
á prófinu
DY Ósló:
Snorri Sturluson fór með stað-
lausa stafi þegar hann hélt því
fram í Heimskringlu að Hálfdán
konungur svarti hefði verið graf-
inn í haugi kenndum við hann á
Hringaríki í Noregi. Hálfdánar-
haugurinn er minnst 300 árum
eldri en Hálfdán svarti hafi kon-
ungur með þessu nafni nokkru
sinni veriö til
Nýjar aldursgreiningar sýna að
haugurinn er frá 6. en ekki 9. öld.
Norskir fornleifafræðingar hafa
nú um skeið unnið að rannsókn-
um á haugnum með það í huga að
grafa hann upp. Vonir hafa staðið
til að Hálfdán konungur, faðir ís-
landsvinarins Haraldar hárfagra,
lægi í skipi í haugnum en það fær
sem sagt ekki staðist. Annað
hvort er haugurinn tómur eða
það liggur í honum einhver minni
og eldri spámaður. -GK
Sophie Rhys-Jones, unnusta Játvarðar prins, er hún kom til vinnu sinnar í
gær. Símamynd Reuter
Sophie umsetin
af fjölmiðlum
Verðandi brúður Játvarðar prins,
Sophie Rhys-Jones, komst að því í
gær að lífið heldur ekki áfram eins
og vanalega eftir að trúlofun hennar
og prinsins var opinberuð á mið-
vikudaginn.
Þegar Sophie kom í lögreglufylgd
til almenningstengslafyrirtækis síns
i London í gær beið hennar fjöldi
manns, almenningur sem vildi óska
henni til hamingju, fréttamenn og
ljósmyndarar. Ljósmyndarasnápar
þyrptust að henni í þeirri von að ná
glæsilegri mynd sem hægt væri að
selja.
Mörg bresku dagblaðanna fjölluðu
þegar í gær um trúlofunina á mörgum
síðum og ljóst er að áhugi þeirra á
Sophie mun halda áfram. Sophie, sem
hefur það að atvinnu að ráðleggja öðr-
um hvernig umgangast eigi fjölmiðla,
virðist betur undir áhuga fjölmiðla
búin heldur en fyrrverandi brúðir í
bresku konungsfjölskyldunni.
Hlíðarsmára 8 - Kópavogi
SGfltl)Gim:
18"pizza meö 3 áleggstegundum
OC 12" hvítlaukspizza ásamt
hvítlauksolíu, aöeins 1.599 kr.
Tvœr 16" pizzur meö
2 áleggstegundum, sósa
og brauöstangir/franskar,
aöeins 1.990 kr.
16" pizza meö
3 áleggstegundum
1.299 kr.
DDsæHÍP
12" pizza meö 2 áleggstegundum 740 kr.
16" pizza meö 2 áieggstegundum 890 kr.
18" pizza meö 2 áleggstegundum 1.030 kr.
Tæhirærístiiboð^
5 stk. 16" pizzur meö
1 áleggstegund
Aöeins 3.990 kr!!!
...fín sending!
r-------------------
i Útsala - Útsala á
öllum vörum
Gólf- og veggflísar frá
kr. 990 m2
Smiðjuvegi 4a - græn gata — slmi 587-
Hreinlætistæki -
Biöndunartæki —
Sturtuklefar -
♦**** ***♦
; Opið laugardag \
frá 9-18
1885 ............