Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999 Spurningin Hvaða bók ertu að lesa þessa dagana? Sigfús Steingrímsson, 14 ára: Nýju bókina um Bert. Hilmir Guðlaugsson nemi: Ósýni- lega manninn. Birta Sigurðardóttir nemi: Hringadrottinssögu. Valgard Jörgensen: Nýál eftir Helga Pétursson. Jónína Sigurðardóttir, 12 ára: Áhyggjur Berts. Lesendur Ábyrgð manna í ræðu og riti Maður sem kemur fram til að segja fólki sannleikann umbúðalaust þarf ekki á annarri tækni að halda en sannleikanum einum, segir m.a. íbréfi Konráðs. Konráð Friðfinnsson skrifar: Maður sem tekur sér það fyrir hendur að flytja öðrum mál sitt á opinberum vettvangi er bundinn ákveðnum, og ég vil meina ströng- um, skilyrðum. Hann ber ábyrgð gagnvart þeim sem heyra eða lesa málflutning hans. Sérhver sá sem hefur þessa köflun í hjarta sínu skyldi því hafa þetta í huga og hvergi kvika frá þeirri leið. Málið er að hvenær sem menn tala geta þeir haft áhrif á viðstadda og jafhvel breytt algjörlega skoðun þeirra á hinu eða þessu efninu. Hann þarf fyrir þær sakir að vera sannur í því sem hann segir og segja það eitt sem hann veit réttast og sannast. Vitaskuld getur mönn- um skjátlast, en sé það óviljandi en ekki af ráðnum hug er það fyrirgef- anlegt. En á þessum þætti er því miður oft misbrestur. Menn fara kannski ekki beint með lygi í ræðum sínum en fara i máli sínu eins og köttur í kringum heitan graut. Þeir komast af þeirri ástæðu aldrei almennilega að kjarna málsins sem er þó lykilat- riðið í málinu öllu. Séu menn ekki heflir í máfllutningi sínum er út- koman undantekningarlitið sú að áheyrendur taka ekki við sér og eru litlu sem engu nær um innihald efn- isins. Stjórnmálamenn, einkum þeir sem eru á atkvæðaveiðum, eru oft í þessum hópi málflytjenda. Og sem er þá i og með ástæðan fyrir því að almenningur geldur oft varhug við orðum þesscira manna. Það er um leið slæmt til afspumar. Nú á tím- um er þetta stundum flokkað undir það sem menn kalla „ræðutækni". Orð sem ég ber ekki skynbragð á og eflaust margir fleiri. Hitt veit ég, að maður sem kemur fram til að segja fólki sannleikann umbúðalaust þarf ekki á annarri tækni að halda en sannleikanum einum. Sannleikur- inn mun nefnilega fleyta honum yfir sérhverja hindrun og gagnrýni. Heilu bækurnar sem hafa verið ritaðar hefðu betur verið óskrifað- ar. Oft eru þær til þess eins að af- vegaleiða manninn. Þar má nefna ýmsar bækur um andleg efni, nýöld- ina, spíritisma og jafnvel um fljúg- andi furðuhluti eða annað álíka ósannað. Þessum ritum má líkja við hið talaða orð sem ég minntist á hér að ofan. Gagnsleysið uppmálað, lítt spennandi og boðar fráleitt að sann- leikurinn sé þar á ferð. Bygging tónlistarhúss Ólafur H. Ólafsson skrifar: Ríkisstjómin og Reykjavíkurborg hafa nú tekið saman höndum við að beita sér fyrir byggingu tónlistar- húss og eins konar ráðstefnumið- stöðvar í borginni. Að því er varðar ráðstefnuhús og sali til fundahalda hélt ég að nóg væri af slíku húsnæði á hótelum borgarinnar og jafnvel víðar. Ekki þyrfti sérstaklega að sinna þeim málum af takmörkuðu fé hins opinbera. - En að byggja tón- listarhús er þó enn fjarstæðukennd- ari hugmynd þegar almenningur er að kikna undir skattlagningu af ýmsu tagi sem auk þess fer síharðn- andi. Ég tel það beina árás á okkur skattborgara að ætla að leggja út í byggingu húss fyrir um 4 milljarða króna við þær aðstæður sem nú ríkja. Einkanlega átel ég borgar- stjóm fyrir að ljá máls á þessum framkvæmdum eins og nú háttar málum. Vita ekki borgarstjórnarliðar aö þeir liggja undir ámæli fyrir ofur- skattheimtu hjá íbúunum? Veit ekki borgarstjóri að hann á undir högg að sækja vegna stefnu sinnar og svör undirsáta sinna í meiri- hluta borgarstjómar sem reyna að berja í brestina með útúrsnúning- um séu þeir spurðir um ástæðu aukinna skatta og hækkun þjón- ustugjalda? Leyfum áætluninni um byggingu tónlistarhúss að liggja í skúffúm draumóramanna enn um stund. Við getum vel haldið tónleika hér á þétt- býlissvæðinu í þeim húsakynnum sem tiltæk eru. Deiliskipulag Flugleiða Til skamms tíma hafa farþegar á Ameríkuleið Flugleiða meira að segja notið þeirra tfma frá dögum Loftleiða að vera boðið ókeypis vín með mat og kaffi, umfram farþega á öðrum leiðum félagsins, segir m.a. í bréfinu. Guðjón Guðmundsson skrifar: Ég las bráðsmellinn pistil í Sand- korni DV sl. mánudag af flugferð hjóna frá Ameríku með Flugleiðum, undir fyrirsögninni „Af allsnægt- um...“. Hjónin urðu að deila dag- blaði og kóka kóla milli sín vegna skorts á hvoru tveggja um borð. Og var þó skammt farið áleiðis frá góssenlandinu Bandaríkjunum. Ég hugsaði með mér; það er af sem áður var á þessari flugleið milli ís- lands og Bandaríkjanna þar sem farþegar sátu að allsnægtum i góðu yfirlæti hjá þjónustuliði og úðruðu í sig af mat og drykkjarföngum. Byggðist þjónustan mest á þessari þjónustu, allt frá dögum Loftleiða hf., sællar minningar. Til skamms tíma hafa farþegar á Ameríkuleið Flugleiða meira að segja notið þessara tíma frá dögum Loftleiða, að vera boðið borðvín meö mat og koníak með kaffi ókeyp- is, umfram farþega á öðrum leiöum félagsins. Mér þykir því skorturinn vera farinn að segja til sín ef flugfé- lagið er búið að taka upp eins kon- ar deiliskipulag í farþegarými flug- vélanna á Ameríkuleiöinni. En tímarnir breytast og nú er hart i ári hjá flugfélögum þar sem farþegar krefjast sífellt lægri far- gjalda í samræmi við tíðarandann og samkeppnina. - En þar sem hjón- in umræddu í Sandkomspistli DV höfðu greitt um 80 þúsund krónur fyrir jólafarseðilinn hefði ég í þeirra sporam labbað mig til höfuð- stöðva Flugleiða við heimkomuna og spurt hvort ekki mætti líka deila jólafargjaldinu í tvennt og fá helm- inginn endurgreiddan. Það hefði verið í samæmi við það deiliskipu- lag sem hjónin nutu á heimleiðinni frá Ameríku. DV Þorsteinn fer þá til London E.L.K. skrifar: Mikið óskaplega er það hvim- leitt þegar menn í æðstu embætt- um vilja ekki, aðspurðir, svara fjölmiðlum og greina satt og rétt frá um hin ýmsu efni sem varða starf þeirra og stöðu eða framtíð- arverkefni. Líkt og þegar Þor- steinn Pálsson sjávarútvegs- og dómsmálaráðherra var spurður skipti eftir skipti af fjölmiðlum hvort hann vildi ekki svara þeim orðrómi sem var i gangi að hann myndi verða sendiherra í London. Aldrei nein svör frá ráð- herra sem fór undan i flæmingi. Hér er þó ekki um annað að ræða en opinbert starf sem ráðherra hlýtur að hafa vitað að hann ætti von á. Alla vega var orðrómurinn ekki úr lausu lofti gripinn. Og Þorsteinn fer þá tfl London eftir allt. Svona á einfaldlega ekki að standa að málum í stjórnsýsl- unni. Ekki „hafn- vænt“ mannvirki Jakob hringdi. Mér þykir borgarstjórnin nú- verandi bera sig borginmannlega þegar hún gerir ráð fyrir að byggja tónlistarhús við höfnina. Var ekki KEA neitað um að kaupa fiskvinnsluhús eitt mikið sem nú stendur á hafnarbakkan- um og sem átti að nota fyrir stór- markað, vegna þess að starfsem- in, þ.e. verslunarreksturinn, félli ekki undir „hafnvæna" starfsemi? En nú virðist sem tónlistarhús falli undir þetta „hafnvæna". Gott og vel. Ég er ekki að amast við tónlist sem slíkri en ég tel borgar- stjórn sýna mikinn tvískinnung í málunum varöandi tónlistarhús- byggingu. Bæði vegna staðarvals við höfnina og svo auðvitað vegna þess að fjármunir virðast nú í hverju horni Ráðhússins. í sama mund sem allt er lagt i sölurnar fyrir að hækka þjónustugjöld í borginni. Er ekki eitthvað að skolast til í kolli borgarstjórnar? Svarar útvarpsstjóri bréfunum? Halldóra skrifar: í fréttum hefur mátt lesa um sjónvarpsleikritið Dómsdag, byggt á atriöum úr lífi stórskálds- ins Einai-s Benediktssonar og sem margir vildu meina að væri á mörkum velsæmisins. Líka las maður um að tveir menn, þeir Davíð Scheving Thorsteinsson og Einar Benediktsson sendiherra, hefðu skrifað útvarpsstjóra bréf þar sem farið var fram á afsökun- arbeiðni af hálfu útvarpsstjóra fyrir hönd Sjónvarpsins. Enn las ég í einhverju blaðinu ummæli útvarpsstjóra, að hann myndi svara bréfi Einars Benediktsson- ar en ekki minnst á bréf Davíðs Scheving, og var þar þó um alvar- legra mál að ræða, að mínu mati. Nú verður fróðlegt að sjá hvort útvarpsstjóri svarar þessum tveimur mönnum og þá á hvem hátt. Þetta er jú opinber stofnun og málið allt hið alvarlegasta fyr- ir hið ríkisrekna sjónvarp. Seinvirk forræðismál Steindór Einarsson skrifar: Mig furöar á hvernig forræðis- mál ganga fyrir sig, eins og t.d. hjá sýslumannsembættum. Manni er sagt við undirbúning málshöfð- unar út af bömum sínum og for- ræði yfir þeim að þetta taki að minnsta kosti eitt ár eöa lengur. Mér þykir þetta vera heldur lang- ur tími. Skyldi vera um að ræða skort á mannafla til að annast þessi mál? Ef svo er þykir mér rétt að bæta við nokkram lög- lærðum við embættin. Svona nokkuð getur nefnilega bitnað á bömunum og foreldrum þeirra og það er kannski verst af öllu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.