Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Blaðsíða 11
j|j"V FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999 i&enning Andríki og húmor Fyrstu tónleikamir af fiórum á kammer- tónlistarhátíð sem kennd er við Francis Pou- lenc í tilefni aldarafmælis hans fóru fram i Iðnó að kvöldi síðasta dags jóla. Þeir hófust á fjórum ijóðum eftir Max Jacob frá 1921 fyr- ir sópran, flautu, óbó, klarínett, fagott og trompet. Ósköp hugguleg tónsmíð sem ber tónskáldinu ágætt vitni þó ekki sé hún hans skemmtilegasta. í heild var flutningurinn góður þótt of oft bæri á því að rödd Þórunn- ar drukknaði í hljómi sveitarinnar. Á eftir kom verk sem gagnrýnandi minn- og gáska en heldur stress- aður og hefði þolað meiri fínpússningu. Les Chemins de l’amour (Vegir ástarinnar) úr Leócadia frá 1940 við texta _________________ eftir Jean Anouilh er eitt- hvert yndislegasta sönglag sem samið hefur verið á þessari öld og var skemmtilegt að heyra það með hljóöfæraskip- aninni klarinett, fagott, fiðla, kontrabassi og píanó. Lagið var ágætlega flutt en örlítið meiri Tónlist Arndís Björk Ásgeirsdóttir Hluti af hópnum sem stendur að Poulenc-hátíð í Iðnó. Tónleikarnir þrennir sem eftir eru verða næstu þrjú þriðjudagskvöld. Forsprakkinn, Eydís Franzdóttir, er lengst til vinstri í neðri röð. DV-mynd E.ÓI. ist ekki að hafa áður heyrt á tónleikum hér, sónata fyrir klarínett og fagott sem þau Ár- mann Helgason og Kristín Mjöll Jakobsdótt- ir fluttu. Þessi skemmtilega samsetning hljóðfæranna kemur einstaklega vel út 1 þessu verki, fyrsti þátturinn fullur af Pou- lencskum húmor sem komst vel til skila í leik Ármanns og Kristínar, rómansan ljúf og fallega leikin og lokakaflinn iðandi af fjöri léttleiki hefði ekki komið að sök og rödd Þór- unnar hefði mátt standa betur upp úr en hún gerði, helst hefði grúppan þurft að vera ofan í gryfju eða meira til baka. Rapsodie négre frá 1917 fyrir barítón, flautu, klarínett, strengjakvartett og píanó er verkið sem kom Poulenc á kortið enda geislandi af andríki og húmor. Flutningur- inn var með mestu ágætum, allt small sam- an undir stjórn Guð- mundar Óla Gunnars- sonar, hinn hálf im- pressíoníski fljótandi fyrsti kafli, rythmísk- ___________________ur annar kaflinn og óborganleg túlkun Ólafs Kjartans á sinni fígúru þannig að útkoman varð hin besta skemmtun. Efir hlé var aftur komið að Þórunni í Le Bestiaire ou Cortége d’Orphée (Dýrasögur) eftir Apollinaire fyrir sópran, flautu, klarínett, fagott, slagverk, píanó, fiðlu og selló. Þessi stutti lagaflokkur um úlfalda, engi- sprettur, höfr- unga og fleiri dýr er stórkost- legt dæmi um það hversu lag- inn Poulenc var að fanga textann í tóna og að þessu sinni var ekkert sem skyggði á flutn- inginn sem var hrein unun á að hlýða. Tónleikunum lauk svo með Le Bal masqué eða Grimu- ballinu frá 1932 fyrir baríton. óbó, klarínett, fagott, kornett, fiðlu, selló, píanó og slagverk. Þetta er mikið stuðverk og langt því frá auðvelt í flutningi. Ólaf- ur Kjartan fékk þama betra tækifæri til að sýna hvað í hon- um býr og með stórri og fagurri rödd sinni og skemmtilegri sviðsframkomu notfærði hann sér það með miklum glæsibrag. Sveitin var pottþétt undir stjórn Guð- mundar Óla. Að öðrum ólöstuðum átti Helga Bryndís Magnúsdóttir stórleik á píanóið sem og Bryndís Pálsdóttir í bagatellunni. Þetta var mikil flugeldasýning og maður var vel sáttur við að kveðja jólin með þessum hætti. Svo eru þrennir tónleikar hátíðarinn- ar eftir til þess að láta sig hlakka til. Ivan grimmi Fyrsta kvikmyndasýning i MÍR-salnum, Vatns- stig 10, á þessu ári verður á sunnudaginn kl. 15. Þá verður sýndur fyrri hluti stórvirkis lettneska leik- stjórans Sergeis Eisensteins um ívan grimma frá árunum 1941-44. Síðari hlutinn verður sýndur viku síðar á sama tíma. Enskur texti er með báð- um hlutum. Eisenstein var lengi að vinna þessa miklu kvik- mynd, enda varð hann „að endurskoða allan per- sónuleika ívans keisara og sögulegt hlutverk hans“, eins og hann sagði sjálfur, i ljósi heimsvið- burða á vinnslutima. Hefur ýmsum dottið í hug að aðalpersónan dragi nokkum dám af valdamesta manni Sovétríkjanna á þeim dögum. Splveig gengur aftur í kvöld hefjast á ný sýningar á leikriti Ragnars Amalds, Solveig, sem frumsýnt var á Stóra sviði Þjóðleikhússins í haust. Það fjallar um ástir og örlög Miklabæjar-Sol- veigar og séra Odds sem hafa verið skáldum hugleikin allt frá því að þau vom uppi. Ragnar skapar eftirminni- legar persónur úr Solveigu, fátæku stúlkunni sem átti ekkert annað til í lifinu en ást sína, og Oddi, prestinum og biskupssyninum sem ekki megn- aði að ganga í berhögg við lögmál samfélagsins þegar á reyndi. En þótt ást þeirra sé réttlaus og forsmáð, nær hún aö lokum út yfir gröf og dauða. Þau era leikin af Vigdísi Gunnarsdóttur og Þresti Leó Gunn- arssyni en leikstjóri er Þórhallur Sig- urðsson. Útvarpsleikhúsið Þema Útvarpsleikhússins í janúar er „þegar menn grípa til vopna“ og á morgun kl. 14.30 verð- ur flutt leikritið „Sálumessa fyrir látna hershöfð- ingja“ eftir Makedóníumanninn Dragan Kotevski undir stjóm Hailmars Sigurðssonar. Olga Guðrún Ámadóttir þýddi. Á sunnudaginn verður svo flutt leikritið „Frú Carrar geymir byssur“ eftir Berthold Brecht. Bríet Héðinsdóttir þýddi leikritið og lék sjálf aðalhlut- verkið í eftirminnilegri uppfærslu í Þjóðleikhús- kjallaranum á sínum tíma. Að þessu sinni er það leikið af Önnu Kristínu Amgrímsdóttur en leik- stjóri er Sigurður Skúlason. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir ki. i4.oo Frítt Augnablik... nú er ástæða að fara á Gleraugu með HOYA plastgleri, glampa- og rispuvörðu Styrkl. +/ - 6 ásamt umgjörð áður 17.500. Nú 12.500. Þú sparar 5.000 Margskiptgler með breiðu lessvæði. Styrkl. + / - 6 ásamt umgjörð áður 35.450. Nú 25.450. Þú sparar 10.000. Verðútreikningur með auglýstum umgiönðum. Við hugsum vel um sjón þína PROFlI^bpTIK Viðurkenndur sjónfræðingur Gunnar Guðmundsson Gleraugnamiðstöðin Laugavegi 24, sími 552 0800 r v Opið til kl. 17.00 í miðborginni eru um 300 verslanir og ótrúlegur fjöldi veitinga- og kaffihúsa ianoavi'ói 71,2 lia*ð níiiií: .1.110770 Utsalan er hafin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.