Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Síða 15
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999 15 Nær Sjálfstæðisflokkur- inn hreinum meirihluta? Á varðbergi Framsóknarflokkurinn verður þó ávallt aö vera á varðbergi í stjómarsamstarfi við Sjálfstæðis- flokkinn og halda í heiðri félags- hyggjustefnu sinni í fárviðri frjáls- hyggju og gróðasjónarmiða sem ákveðin öfl í Sjálfstæðisflokknum hafa gert að trúaratriði. Margar fjölskyldur og einstaklingar standa höllum fæti í þjóðfélaginu þrátt fyrir svokallað góðæri. Framsóknarflokkurinn boðaði það fyrir síðustu kosningar að hann vildi hafa fólk í fyrirrúmi og frá því má ekki víkja. Enda þótt Framsókn- arflokkur og Sjálfstæð- isflokkur hafi setið saman í ríkisstjóm á þessu kjörtimabili og samvinnan gengið með ágætum er ekki hægt að lita fram hjá því að þessir tveir flokkar era ólíkir og hafa löngum verið höfuðandstæð- ingar i íslenskum stjórnmálum. Dýrkeypt stjórnar- samstarf Stjómarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn hefur oftast reynst samstarfsflokkum hans dýrkeypt eins og dæm- in sanna. Það stafar væntanlega af því að almenningur hættir að greina á milli samstarfs- flokkanna og lítur svo á að vilji stærri flokksins, Sjálfstæðisflokks- ins, ráði i einu og öllu. Þetta er þó á misskilningi byggt hvað varðar núverandi stjórnar- samstarf því að ráðherrar Fram- sóknarflokksins hafa beitt sér fyrir fjölmörgum framfaramálum sem byggjast á stefnu og störfum Fram- sóknarflokksins á liðnum ámm. sölsa undir sig veigamiklar þjón- ustustofnanir al- mennings í því skyni að beita þeim í þágu Sjálfstæðis- flokksins. Glöggt dæmi um starfsaðferðir sjálf- stæðismanna er að- fór þeirra að lög- reglustjóranum í Reykjavík. Sem bet- ur fer mistókst sú aðför. En hvers vegna leggja sjálf- stæðismenn svo gíf- urlega áherslu á að stjóma lögreglunni? Sömuleiðis stefna sjálfstæðismenn leynt og ljóst að því að leggja Ríkisútvarpið undir sig og eru með aðgerðarplan í gangi í því skyni. Og enn má spyrja hvers vegna leggja sjáifstæðismenn svo Kjallarinn Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi Hættuleg vinnubrögð Framsóknarflokkurinn verður líka að bregðast hart við þegar samstarfsflokkurinn reynir að „Framsóknarflokkurinn boðaði það fyrir síðustu kosninga, að hann vildi hafa fólk f fyrirrúmi og frá því má ekki víkja,“ segir Alfreð m.a. i greininni. gífurlega áherslu á að leggja Ríkis- útvarpið undir sig? Gætu náð meirihluta með 44% fylgi Nýlegar skoðanakannanir sýna að Sjálfstæðisflokkurinn er nálægt því að ná hreinum meirihluta á Alþingi. Hann hefur mælst með 46-48% í síðustu könnunum. Þótt ótrúlegt megi virðast gæti Sjálf- stæðisflokkurinn náð hreinum meirihluta með aðeins 44% fylgis. Það stafar af því að margir fram- boðslistar verða í næstu kosning- um og mörg atkvæði þeirra falla dauð. Á því hagnast Sjálfstæðis- flokkurinn og gæti náð meiri- hluta, langt undir 50% markinu, eins og gerðist iðulega í borgar- stjórnarkosning- um, áður en and- stæðingar hans sameinuðust í R- listanum. Helsta vonin til að koma í veg fyrir hreina meiri- hlutastjóm Sjálf- stæðisflokksins er öflug sókn framsóknar- manna í Reykja- vík því að ólíklegt er að Samfylk- ingin nái að safna vopnum sínum fyrir kosningar. Lýðræðinu er bráð hætta búin nái Sjálfstæðis- flokkurinn hreinum meirihluta. Alfreð Þorsteinsson „Helzta vonin til að koma í veg fyrir hreina meirihlutastjórn Sjálfstæðisflokksins er öflug sókn framsóknarmanna í Reykja- vík því að ólíklegt er að Samfylk- ingin nái að safna vopnum sínum fyrir kosningar. “ Eru sjómenn annar flokkur? Hluti af kjörum launþega er rétturinn til launa/bóta þegar slys eða veikindi ber að höndum. Sá réttur er tryggður með tvennum hætti; með ákveðnum fjölda launadaga eftir að launþegi verður óvinnufær og ef óvinnufærnin varir lengur en veikinda- dagarétturinn þá taka við greiðslur úr sjúkrasjóði viðkom- andi félags sem taka mið af fjölskyldu- stærð. Sjúkrasjóðim- ir greiða einnig bæt- ur við fráfall félags- manna; bætur sem geta numið verulegum fjárhæðum en þær taka líkt og sjúkrabæturn- ar mið af fjölskyldustærð. Skemmst er að minnast þess að sjúkrasjóður Vélstjórafélags ís- lands veitti um 700 þús. kr bætur til ekkju með 5 böm sem missti mann sinn í sjóslysi fyrir skemmstu. Réttindi taka mið af tekjum sjóðanna Sjóðfrnir styrkja einnig ýmsa starfsemi sem lýtur að fyrirbyggj- andi starfi svo sem líkamsræktar- stöðvar svo nokkuð sé nefnt. Rétt- indi sjóðfélaga taka mið af tekjum sjóðanna sem em nokkuð breyti- legar milli sjóða þar sem þær fara eftir samningsbundnum greiðslum frá vinnu- veitendum. Þær miða langoftast við ákveðið hlutfall af heildar- launum viðkomandi launþega. Af launþeg- um í landi greiða vinnuveitendur sem nemur 1% af heildar- launum í sjóðina. Hærri greiðslur tíðkast þó sbr. t.d. hjá flugvirkjum þar sem gjaldið nemur 3,5% af heildarlaunum. Vél- stjórafélag íslands gerir kjarasamninga að stofni til fyrir þrjá hópa vélstjóra. Vél- stjóra sem starfa á fiskiskipum, kaupskipum og í landi. Greiðslur af þessum hópum inn í styrktarsjóðinn em misjafnar. Þær em hæstar hjá landmönnunum eða 1% af heildarlaunum. Hjá kaup- skipavélstjómnum era þær 0,5% af heildarlaunum, en þess ber líka að geta í leið- inni að veikindaréttur vél- stjóra á kaupskipum er góð- ur, einn sá besti sem félagið hefur samið um. Útgerðir fiskiskipa greiða minnst í sjóðinn, eða aðeins 0,7% af kauptryggingu, en kauptryggingin er nú frá um 106 til um 127 þús. kr. á mánuði. Ef almenn skynsemi réði.... Ef við berum saman meðal- greiðslur af þeim sem starfa á fiskiskipum og þeim sem starfa í landi kemur í ljós að gjaldið af fiskiskipavélstjóranum er um 35% af þeirri upphæð sem greidd er cif vélstjóranum sem starfar í landi. Ef réttindin í sjóðnum hjá okkur væru hlutfallsleg m.v. inngreiðsl- ur bæri landvélstjóranum þrefald- ur bótaréttur fiskiskipavélstjór- cms. Við hljótum að spyrja hvem- ig það megi vera þegar litið er til þess að slysatíðni er langmest um borð í fiskiskipum að framlag þeirra sem gera út fiskiskip skuli vera svona miklu lélegra en þeirra sem reka atvinnustarfsemi í landi. Ef almenn skynsemi réði ættu greiðslur útgerðarinnar í sjóðinn að vera mun hærri en frá vinnu- markaðinum í landi. En það er alls ekki nóg að okkur finnist það eðlilegt. Forysta LÍÚ þarf að hafa sömu skoðun. Hún verður að telja bæði eðlilegt og sjálfsagt að sjó- mennimir, sem hún kallar hetjur hafsins, a.m.k. á sjómannadaginn, búi við bestu réttindi á þessu sviði. Því miður er því ekki þannig varið. Engin rök, bara „Niet“ Við höfum í undangengnum kjarasamningum margoft farið fram á að greiðslur vegna sjó- manna væru sambærilegar og af þeim sem starfa í landi, en hingað til farið bónleiðir til búðar. Verið að vanda sakaðir um frekju og yf- irgang; tekjur þessara manna væm slíkar að þeir þyrftu sko ekki á mefru að halda. Engin rök bara „Niet“. Því verður að linna. Við getum ekki lengur sætt okkur við þaö að sjómennirnir búi við lakari veikindarétt en aðrir. Við eigum heldur ekki að sætta okkur við það og það sem meira er, út- gerðarmenn eiga heldur ekki sætta sig við það vegna þess að með því em þeir að setja sína sjó- menn skör lægra en aðra launþega. Virða rétt fjöl- skyldna þeirra á annan veg en t.d. rétt fjölskyldna þeirra sem sinna pappírs- vinnunni á skrifstofunum hjá þeim. Það er ekki í anda sannra útgerðar- manna að svo sé. Líklegra er að þeir hafi ekki gert sér grein fyrir stöðu málsins. Ég skora því á þá að bæta hér um hið allra fyrsta. Helgi Laxdal Kjallarinn Helgi Laxdal formaður Vélstjórafélags tslands „Ef almenn skynsemi réði ættu greiðslur útgerðarinnar i sjóðinn að vera mun hærri en frá vinnu- markaðinum í landi. En það er alls ekki nóg að okkurfinnist það eðli- legt. Forysta LÍÚ þarf að hafa sómu skoðun. “ Með og á móti Er frammistaóa Kristins Björnssonar skíðamanns ■ vetur ásættanleg? Arnar Björnsson, íþróttafróttamaöur hjá íslenska út- varpsfélaginu. Verðum að hafa þolinmæði „Já, ég hef engar áhyggjur af Kristni. Hann er búinn að sýna mér í tvígang að hann er í hópi bestu svigmanna heims. Árang- urinn í Park City og Vey- sonnaz, þegar hann hafnaði í öðru sæti, sannar það. Vegna þess hve keppnin er hörð verða menn að taka áhættu, það taka fáir eftir þeim sem verða í 11.-20. sæti. Norðmaðurinn Ole Christi- an Furuseth hefur ekki náð að Ijúka keppni á fjórum síðustu mótum og fyrir vikið á hann á hættu að komast ekki í HM-lið Norðmanna. Það vita þó allir hve góður hann er, Furuseth, sem m.a. vann silfúrverölaun á síð- ustu Ólympíuleikum. Það liðu fjögur ár frá fyrsta sigri besta svigmanns heims, Thomas Stangassingers frá Austurríki, og þar til hann endurtók leikinn. Meriri verða að hafa þoiin- mæði og því miður finnst mér margir dæma Kristin Björnsson alltof hart. í mínum huga er hann einn besti íþróttamaður landsins, jafnvel þó hann hafi ekki náð að ljúka keppni á fjór- um síðustu heimsbikarmótum. Áfram Kristinn, þinn tími mun koma.“ Getur betur „Að mínu mati hefur Kristni ekki tekist í haust að ná þeim styrk sem við öll vitum að hann býr yffr. Honum skaut upp á stjörnu- himininn í fyrra með ótrúlegum ár- angri í tveim- ur heimsbikarmótum. Þar með var hann kominn í hóp þeirra fremstu og auknar kröfur og væntingar fylgdu í kjölfarið. Við þessar nýju aðstæður þarf hann að búa og í haust hafa ýmis út- færsluatriði gert honum erfitt fyrir. Þá er spuming um einbeit- ingu og sálrænan undii'búning, sem hann þarf hugsanlega að leggja enn meiri rækt við. Mér er kunnugt um aö Krist- inn kom líkamlega mjög vel und- irbúinn til leiks, sennilega í betra formi en áður. Hann fór af öryggi í fyrsta mótinu, náði 11. sæti, en féll úr leik í næstu fjór- um eftir að hafa lagt allt undir eins og hann er þekktur fyrir, síðast í Schladming í Austurriki í gærkvöld. Kristinn er um margt óvenju- legur íþróttamaður. Hann tekur einatt hámarksáhættu, nær góð- um árangri eða fellur úr keppni. Allt eða ekkert, enginn milliveg- ur, engin málamiðlun. Þessi taktík hefur fleytt honum á topp- inn, en er honum einnig fjötur um fót þegar pressan er eins mikil og nú í haust." -VS Ingólfur Hannos- son, íþróttafrótta- stjóri Ríkisútvarps- ins. Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið viö greinum i blaðið nema þær ber- ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu- . diski eða á Netinu. Netfang ritstjórnar er: dvritst@centrum.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.