Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999 Fréttir i>v I I ! ! Vínbúöarmálið í Mosfellsbæ: 11-11 hyggst stefna stjórn ÁTVR og Ríkiskaupa Kaupás hf., rekstrarfélag 11-11 búðanna mun stefna stjórnendum ÁTVR og Ríkiskaupa fyrir dóm, tak- ist ekki samningar áður. Fyrirtækið telur að á sér hafi verið brotið gróf- lega þegar tilboði þess í rekstur á BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR Borgartúni 3 • Reykjavík • Sími 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 íbúar Staða- og Víkurhverfa Fyrir bggur tillaga um að vesturálma Korpúlfsstaða verði tekin til tímabundinna nota fyrir grunnskóla. Tillagan verður til sýnis í sal Borgarskipulags og byggingarfulltrúa í Borgartúni 3,1. hæð, virka daga kl. 10.00-16.15 frá 8. til 22. janúar 1999. Ofangreindar auglýsingar óskast birtar í dagblöðum með venjulegum hætti föstudaginn 8. jan. nk. BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR Borgartúni 3 • Reykjavík • Sími 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Borgartún 36, breytt deiliskipulag I samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst til kynningar tillaga að breyttu deibskipulagi lóðarinnar Borgartún 36. Fyrirhugaðri byggingu er snúið á lóðinni, bílageymsla verður neðanjarðar og aðkoma breytist.Tillagan verður til sýnis í sal Borgarskipulags og byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00—16.15, frá 8. janúar til 5. febrúar 1999. Abendingum og athugasemdum vegna ofangreindrar kynningar skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur eigi síðar en 19. febrúar 1999. Þeir, sem eigi gera athugasemdir innan tilskihns frests teljast samþykkja tillögurnar. Glœsilegi renaissance-bikarinn frá Augsburg. Seldur hjá Bruun Rasmussen í Kaupmannahöfn Jýrir 3.300.000 dkr. Listmunauppboð Bruuns Rasmussens er stærsta uppboðsfyrirtæki Norðurlanda - með veltu sem nemur 250.000.000 dkr. Við óskum eftir gömlum og nýlegum listaverkum og fornmunum til að selja á alþjóðlegu uppboði okkar í Danmörku. Hægt er að hafa samband við matssérfræðing okkar, Sven Juhl Jorgensen, 11.-12. janúar í Reykjavík. Viðtal má panta í farsíma, +45 40 46 96 44, eða á aðalskrifstofu okkar í Kaupmannahöfn í síma + 45 33 13 69 11. BRUUN RASMUSSEN KUN STAUKTIONER Bredgade 33, 1260 Kobenhavn K, Danmark. Telefon +45 33 13 69 11 • Telefax +45 33 32 49 20. vínbúð í Mosfellsbæ var hafnað. Kaupás segir að fyrirtækið hafi bor- ið mikinn kostnað af öllu því þjarki sem staðið hefur um málið um margra mánaða skeið. Enn fremur telur fyrirtækið að Ríkiskaupum hafi tvímælalaust borið lagaleg skylda til að taka tilboði sínu í rekstur vínbúðarinnar, afgreiðsla útboðsins hafi verið ólögmæt. Vera má að krafan á hendur ríkinu verði upp á tugi milljóna króna vegna sölutaps þegar litið er til þeirra tíu ára sem Kaupás telur sig hafa átt rétt á að reka vínbúð bæjarbúa. „Við vorum með hagstæðasta til- boðið og uppfylltum öll skilyrði. Síðar fóru Ríkiskaup að gera ýmsar óeðlilegar athugasemdir, og meðal þeirra var sú að tilboðið væri full- lágt. En auðvitað buðum við sam- kvæmt okkar forsendum fyrir samnýtingu á rekstri," sagði Sigurð- ur, framkvæmdastjóri Kaupáss hf., í Sigurður Teitsson, framkvæmda- stjóri 11-11 búðanna: Lög voru gróf- lega brotin. gær. Hann sagði að ÁTVR hefði síð- an hringsnúist í afstöðu sinni til vínbúðareksturs í sumar og ákveðið að sveitarfélög með 3.500 manns eða fleiri fengju Ríkis-verslun en ekki verslun sem einkaaðili rekur. „Við munum leita réttar okkar í þessum efnum og höfðum mál ef for- senda er fyrir því,“ sagði Sigurður. Auk þess skrifaði Sigurður fjár- málaráðherra bréf í fyrradag þar sem öil sólarsagan í kringum tilboð- in er rakin. Sigurður segir að í forsendum út- boðsins í Mosfellsbæ segi að ÁTVR leiti að samstarfsaðila með atvinnu- rekstur. ÁTVR telji að rekstur vín- búðar í bænum sé of lítill til að hann standi einn og sér og það sé hagur beggja að samstarfsaðili sé með rekstur við hlið áfengisverslun- ar þar sem hann getur samnýtt starfskrafta og tryggt fullnægjandi þjónustu í vínbúð. -JBP Þau hafa verið heldur kuldaleg hrossin að undanförnu eins og þessi á myndinni sem tekin var í Hálsasveit í Borg- arfirði í vikunni. Tíðin hefur þó ekki verið slæm því víðast hvar sést í jörð, að minnsta kosti enn þá. DV-mynd GVA Sjávarsaltpúðar: Nýstárleg notkun á íslensku salti DV, Hverageröi; Nýjasta einstaklings- framtakið í heilsumálum í Hveragerði er að hafin er framleiðsla á heilsupúðum sem innihalda íslenskt eð- alsalt frá Reykjanesi. Lilja Guðnadóttir, sem rekur nudd- og snyrtistofu í Hveragerði, er hugmynda- smiður og framleiðandi þessarar nýju vöru. Hún segist hafa tröllatrú á púð- unum sinum með eðalsalt- inu. Hér er um að ræða margar gerðir og stærðir af púðum úr mjúku frotté- efhi sem í er ákveðið og ná- kvæmlega mælt magn af salti. Þeir eru notaðir við alls kyns verkjum, eymslum, sárum, þreytu og bólgum. Mælt er sérstaklega með þeim við liðagigt og gigt yfírleitt. Púðarnir eru hitaðir í bakaraofni og síðan látnir liggja á þeim stöðum líkam- ans sem veikir eru eða aumir þar til mesti hitinn er farinn úr þeim. „Ég hef gert tilraunir á nuddstofunni með ýmsar gerðir af saltpúðum í um tíu ár, m.a. baðsalti og grófu matarsalti, en eftir að ég kynntist eðalsaltinu frá Reykjanesi finn ég Lilja Guðnadóttir með nokkra sjávarsaltpúða. að hér er um mikinn mun að ræða,“ segir Lilja um framleiðslu sína. Eðalsaltið hefur verið rannsakað við Læknaháskólann í Rotterdam og kemur m.a. fram í umsögn að í því er um 60% minna natríum en í venjulegu matarsalti. Lilja segir að saltpúðamir hafi m.a. það umfram aðra hitapúða að við hitann dragi húðin til sín efni úr saltinu, kalsí- um og magnesíum, sem séu nauð- synleg líkamanum. Samvirkni þess- ara efna sé sérstaklega mikilvæg fólki sem komið er yfir albesta ald- DV mynd eh urinn, sérstaklega varðandi bein- þynningu. “Saltpúðana má einnig nota sem bakstur við sár en saltið hreinsar upp sárið og sótthreinsar,“ fullyrðir Lilja. Hún segist hafa ætlað að koma þessari heilsubót á framfæri til almennings á nýliðnu ári, ári hafsins. Henni hafi tekist að hefja framleiðsluna, og sjávarsaltspúð- amir verða til sölu í verslunum landsins á þessu ári, auk þess sem hún selur þá sjálf - og notar - á nuddstofu sinni í Hveragerði. -eh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.