Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Qupperneq 26
26
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999
Afmæli____________________
Þorgrímur Þráinsson
Þorgrímur Þráinsson,
rithöfundur og fram-
kvæmdastjóri Tóbaks-
varnanefndar, Tunguvegi
12, Reykjavik, er fertugur í
dag.
Starfsferill
Þorgrímur fæddist í
Reykjavik og ólst þar upp
til sjö ára aldurs, í Kópa-
vogi til tíu ára aldurs og i
Ólafsvík til tvítugs. Þá var
hann á bernsku- og ung-
lingsárum í sveit á sumrin
á Staðastað á Snæfellsnesi hjá afa
sínum og ömmu, séra Þorgrími V.
Sigurðssyni og Áslaugu Guð-
mundsdóttur.
Þorgrímur lauk stúdentsprófi frá
MR 1980 og stundaði frönskunám við
Sorbonne-háskóla í París 1983-84.
Þorgrímur vann við Vöruflutn-
ingamiðstöðina og hjá Flugleiðum til
1983, var bílstjóri hjá Frjálsu fram-
taki, síðar Fróða, til 1985, var blaða-
maður þar frá 1985, ritstjóri íþrótta-
blaðsins 1986-97 og er framkvæmda-
stjóri Tóbaksvarnanefndar frá 1996.
Þorgrímur hefur skrifað tólf
bama- og unglingabækur: Með flðr-
ing í tánum; Tár, bros og takkaskór;
Mitt er þitt; Bak við bláu augun;
Lalli ljósastaur; Spor í myrki; Amo
Amas; Sex Augnablik; Kvöldsögur;
Margt býr í myrkrinu; Nóttin lifnar
við, og Hjálp, Keikó. Hjálp! Þá skrif-
aði hann ævisögu Jóns
biskups Vídalín, Meist-
ari Jón, predikari af
Guðs náð.
Þorgrímur hlaut verð-
laun Skólamálaráðs
Reykjavíkurborgar fyrir
bestu frumsömdu barna-
bókina 1990, Menningar-
verðlaun Visa árið 1992,
og íslensku barnabóka-
verðlaunin 1997 fyrir
söguna Margt býr í
myrkrinu.
Þorgrímur lék knatt-
spyrnu með Víkingi frá Ólafsvík til
1979 og með meistaraflokki Vals til
1990 og var fyrirliði síðustu fimm ár-
in. Hann á hundrað sjötíu og níu
leiki að baki í efstu deild og lék
sautján sinnum með íslenska lands-
liðinu. Þorgrimur varð Islandsmeist-
ari 1980, 1985 og 1987 og bikarmeist-
ari 1988 og 1990. Þá varð hann bikar-
meistari með FH í frjálsíþróttum
1988. Hann var kjörinn besti leik-
maður Vals 1982 og 1989 og Valsmað-
ur ársins 1990.
Þorgrímur hefur setið í stjórn
Reykjavíkurdeildar Barnaheilla,
Samtaka íþróttafréttamanna og í Fé-
lagsskiptanefnd KSÍ. Núna situr
hann í stjóm meðferðarheimilisins
Virkisins-Götusmiðjunnar.
Fjölskylda
Þorgrímur kvæntist 7.7. 1990
Ragnhildi Eiríksdóttur, f. 18.1. 1969,
flugfreyju, klæðskera og fórðunar-
fræðingi. Hún er dóttir Eiríks Ell-
ertssonar, löggilts rafverktaka frá
Meðalfelli í Kjós, og k.h., Ólafiu Lár-
usdóttur, húsmóður frá Káranesi í
Kjósarsýslu. Þau búa í Reykjavík.
Börn Þorgríms og Ragnhildar eru
Kristófer, f. 4.5. 1992; Kolfinna f. 2.9.
1996.
Systkini Þorgríms eru Bryndís, f.
10.1. 1956, kennari, búsett á Sauðár-
króki; Áslaug, f. 29.6.1957, sjúkraliði,
búsett i Garðabæ; Þorgerður, f. 20.3.
1961, hjúkrunarfræðingur, búsett í
Garðabæ; Hermann, f. 20.7.1968, hag-
fræðingur, búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Þorgríms eru Þráinn
Þorvaldsson, f. 2.7. 1934, múrara-
meistari, og Soffí Margrét Þorgríms-
dóttir, f. 24.10. 1933, kennari.
Ætt
Þráinn er sonur Þorvalds, skrif-
stofumanns á Blönduósi, Þórarins-
sonar, b. og alþm. á Hjaltabakka,
Jónssonar, b. í Geitagerði í Skaga-
firði og síðar á Halldórsstöðum í
Langholti, Þórarinssonar, b. í Gróf-
argili, Jónssonar. Móðir Þórarins
var Margrét Jóhannsdóttir, b. á
Kjartansstöðum í Langholti, Guð-
mundssonar. Móðir Þorvalds var
Sigríður Þorvaldsdóttir, pr. á Hjalta-
bakka, bróður Kristínar, langömmu
Matthíasar Johannessens, skálds og
ritstjóra, og Halldórs Blöndals sam-
gönguráðherra. Þorvaldur var sonur
Ásgeirs, dbrm. og bókbindara á
Lambastöðum, Finnbogasonar, bróð-
ur Jakobs, pr. í Steinnesi, langafa
Vigdísar Finnbogadóttur. Móðir Þor-
valds pr. var Sigríður, systir Þuríð-
ar, langömmu Vigdísar. Sigríður var
dóttir Þorvalds, pr. í Holti, Böðvars-
sonar, pr. í Holtaþingum, Högnason-
ar, prestafoður á Breiðabólstað, Sig-
urðssonar. Móðir Sigríðar á Hjalta-
bakka var Hansína Sigurbjörg Þor-
grímsdóttir, pr. að Þingmúla, Arn-
órssonar.
Móðir Þráins var Ragnheiður, hót-
elstýra og síðar handavinnukennari
við Kvennaskólann á Blönduósi,
Brynjólfsdóttir, b. í Ytri-Ey á Skaga-
strönd, Lýðssonar og Kristínar Ind-
riðadóttur.
Soffia er dóttir Þorgríms, prófasts
á Staðastað, bróður Önnu, fyrrum
forstöðukonu Kvennasögusafnsins,
og Valborgar, fyrrv. skólastýru Fóst-
urskóla íslands, móður Sigurðar
hagfræðings og Stefáns heim-
spekings Snævarr. Þorgrímur var
sonur Sigurðar, skólastjóra á Hvítár-
bakka, Þórólfssonar, b. á Hvoli á
Barðaströnd, Einarssonar. Móðir
Þorgríms var Ásdís Margrét Þor-
grímsdóttir, b. á Ytri-Kárastöðum á
Vatnsnesi, Jónatanssonar. Móðir
Sofiiu var Áslaug Guðmundsdóttir,
kennara á Hvanneyri, Jónssonar.
Þorgrímur
Þráinsson.
Ásta Ólafsdóttir
Böm Ástu og Eiríks eru
Magnús, f. 3.9. 1964, vél-
virki í Svíþjóð en kona
hans er Magdalena Lind-
ers og eru böm þeirra
Anna Elvira, f. 1987, og
Eiríkur, f. 1992; Ámi, f.
8.9. 1966, vélvirki á Skúfs-
læk; Ólafúr, f. 3.9. 1968,
rafeindavirki og nemi við
HÍ; Halla, f. 10.8. 1977,
stúdent og nemi við
Bændaskólann á Hólum.
Fósturbörn Ástu, til dval-
ar á Skúfslæk, era Einar Karl Héð-
insson, f. 19.12. 1985; Stefán Elvuson,
Ásta Ólafsdóttir.
Ásta Ólafsdóttir, bóndi á Skúfslæk
í Villingaholtshreppi, er sextug í dag.
Starfsferill
Ásta fæddist í Syðstu-Mörk undir
Vestur-Eyjafjöllum. Hún stundaði
nám við Skógaskóla og Húsmæðra-
skólann að Staðarfelli.
Ásta vann við bú foreldra sinna og
va>' ráðskona við mötuneyti um skeið
á sínum yngri árum. Hún hóf búskap
á Skúfslæk með fyrri manni sínum
1963 og hefur verið þar bóndi síðan,
fyrst ásamt honum og meöan hann
lifði, þá með bömum þeirra hjóna til
1988 og loks með seinni eiginmanni
sínum frá 1986.
Ásta sat í stjóm hestamannafélags-
ins Sleipnis, var gjaldkeri fyrir
Murneyrarsjóð, meðhjálpari í Vill-
ingaholtskirkju og safnaðarfulltrúi
við sóknina um árabil,
hefur starfað í Kvenfélagi
Villingaholtshrepps og var
var formaður kven-
félagsins í þrjú ár, hefur
starfar mikið fyrir Félag
vistforeldra á íslandi og er
nú formaður Landssam-
taka Félaga vistforeldra.
Ásta hefur unnið mikið
með böm en fjöldi bama
hefúr dvalið á Skúfslæk
um lengri eða skemmri
tíma undir hennar umsjón.
Fjölskylda
Ásta giftist 1963 Eiríki Magnús-
syni, f. 22.12.1931, d. 2.11. 1982, bónda
á Skúfslæk. Hann var sonur Magnús-
ar Eiríkssonar og Ingibjargar Gísla-
dóttur.
f. 23.10. 1991.
Seinni maður Ástu frá 1986 er Sig-
urður Einarsson, f. 4.6. 1939, bóndi á
Skúfslæk. Hann er sonur Einars Sig-
urðssonar og Önnu Ólafsdóttur.
Systkini Ástu eru Sigríður, f. 26.9.
1921, húsfreyja í Bakkakoti á Rangár-
völlum; Guðjón, f. 23.9.1922, oddviti í
Syðstu-Mörk; Ólafur, f. 5.5. 1924,
fyrrv. kaupfélagsstjóri á Hvolsvelli;
Sigurveig, f. 14.6. 1925, húsmóðir í
Reykjavík; Sigurjón, f. 3.7. 1927, nú
látinn, bóndi á Stóru-Borg í Árnes-
sýslu; Jóhanna, f. 2.8. 1928, húsfreyja
á Völlum í Akraneshreppi; Ámi, f.
12.7. 1931, bamalæknir i Sviss.
Foreldrar Ástu vom Ólafur Ólafs-
son, f. 24.5. 1891, d. 13.7. 1973, bóndi í
Syðstu-Mörk, og k.h., Halla Guðjóns-
dóttir, f. 7.8. 1892, d. 7.4. 1970, hús-
freyja.
Sigurður verður sextugur á þessu
ári. í tilefni afmælanna taka þau
hjónin á móti gestum í félagsheimil-
inu Þjórsárveri fóstud. 8.1. frá kl.
21.00.
André Bachmann Sigurðsson
André Bachmann Sigurðsson, tón-
listarmaður og vagnstjóri, Hábergi
20, Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
André fæddist á Steinhólum við
Kleppsveg í Reykjavík og ólst upp í
Reykjavík. Hann var í Laugames-
skóla.
André hefur m.a. unnið við geð-
deild Bamaspítalans, verið aðstoðar-
maður sjúkraþjálfara við Borgarspit-
alann, unnið við auglýsinga- og
markaðsdeild DB og Vikunnar og við
auglýsingadeild Timans. Þá hefur
hann verið vagnstjóri hjá SVR sl. sex
ár.
André hefur spilað á trommur og
sungið með ýmsum danshljómsveit-
um frá 1972, s.s. Hljómsveit Þorsteins
Guðmundssonar, Aríu, Hljómsveit
André Bachmann og loks hljómsveit-
inni Gleðigjöfum sem enn leikur fyr-
ir dansi.
André gaf út diskinn Gleðigjafmn,
André Bachmann, Til þín, 1995.
André skipulagði dægurlaga-
keppnina Landslagið, skipulagði,
ásamt Kiwanisklúbbnum Viðey
styrktardansleik vegna sundlaugar-
byggingar fyrir fatlaða í Reykjadal,
skipulagði Kántrýhátíð, ásamt Magn-
úsi Kjartanssyni, á Hótel Sögu á síð-
asta ári til styrktar Hallbirni í Kán-
trýbæ og gaf út nú fyrir jólin ásamt
Áma Scheving og Þorgeiri Ástvalds-
syni diskinn Maður lifandi, til styrkt-
ar Þroskaheftum í tilefni fjörutiu ára
afmælis Styrktarfélags vangefinna.
Fjölskylda
André kvæntist 26.7. 1975 Emilíu
Ásgeirsdóttur, f. 18.6.1951, verslunar-
manni. Hún er dóttir Ásgeirs Þórar-
inssonar, f. 4.9. 1924, d. 28.9. 1981,
vörubílstjóra á Selfossi, og k.h., Mar-
grétar Karlsdóttur, f. 28.7. 1931, hús-
móður.
Böm André og Emilíu em íris Eva
Bachmann, f. 13.7. 1974, nemi í tölv-
unarfræði en maður hennar er Ás-
geir Sæmundsson vörubílstjóri og
eiga þau eina dóttur; Ásgeir Bach-
mann, f. 7.6. 1976, framkvæmdastjóri
í Reykjavík en unnusta hans er Vig-
dís Ásgeirsdóttir, starfsmaður leik-
skóla; André Bachmann, f. 12.5. 1987,
nemi.
Dóttir André frá fyrra hjónabandi
er Sigríður Bachmann, f. 18.11. 1969,
búsett í Garði en maður
hennar er Matthías Magn-
ússon útgerðartæknir og
eiga þau tvö böm.
Systkini André em Jak-
ob Bachmann, f. 31.10.1952,
feldskeri í Svíþjóð; Sigurð-
ur Bachmann, f. 19.5. 1954,
vagnstjóri í Reykjavík;
Dóra Sigurðardóttir, f. 11.5.
1956, húsmóðir í Reykja-
vík; Júlíus Heiðar Sigurðs-
son, f. 19.5. 1958, heildsali í
Reykjavík; Sigurbjöm
Bachmann, f. 5.10.1961, bú-
settur í Danmörku; Jóhann-
es Bachmann, f. 4.4. 1963,
skemmtikraftur í Reykjavík; Kristín
Sigurðardóttir, f. 11.11. 1968, búsett í
Kópavogi.
Foreldrar André: Sigurður Bach-
mann Ámason, f. 29.9. 1928, d. 2.6.
1988, umsjónarmaður Sjómannaskól-
ans í Reykjavík, og k.h., Hulda Val-
gerður Jakobsdóttir, f. 4.6. 1929, hús-
móðir.
Ætt
Sigurður Bachmann var sonur
Áma, múrarameistara í Reykjavík,
Grimssonar, bakarameistara í
Reykjavík, Ólafssonar.
Móðir Áma var Þorgerð-
ur Stefanía Stefánsdóttir.
Móðir Sigurðar Bach-
mann var Kristín, systir
Meyvants, bilstjóra á
Eiði á Seltjamamesi, afa
Más Halldórssonar, dreif-
ingarstjóra DV. Kristín
var dóttir Sigurðar Frí-
manns Guðmundssonar,
og Sigurbjargar Sigurðar-
dóttur.
Valgerður er dóttir Jak-
obs, innheimtumanns í
Reykjavík, Stefánssonar,
og Guðlaugar Kjartans-
dóttur.
Fósturforeldrar Valgerðar vom
Hjálmar Diegó Jónsson, bakarameist-
ari í Reykjavík og fulltrúi tollstjóra-
embættisins í Reykjavík, og k.h.,
Halldóra Friðgerður Sigurðardóttir.
Þau bjuggu að Steinhólum við
Kleppsveg í Reykjavík.
Ándré og Emilía taka á móti gest-
um í Súlnasal Hótel Sögu á afmælis-
daginn, föstudaginn 8.1., kl. 21.00.
André Bachmann
Sigurðsson.
Til hamingju
með afmælið
8. desember
95 ára
Kristjana Magnúsdóttir,
Vatnsnesvegi 32, Keflavík.
85 ára
Jóna Jónsdóttir,
Blikahólum 4, Reykjavík.
Þórdís Gunnlaugsdóttir,
Logafold 56, Reykjavik.
80 ára
Finney
Árnadóttir,
Sólvangsvegi 1,
Hafnarfirði.
Hún er að heiman.
Guðrún Kristjánsdóttir,
Vikurbraut 26, Höfn,
verður áttræð á mánudaginn.
Hún tekur á móti gestum á
heimili sonar sins og tengda-
dóttur, Austurbraut 1, Höfn,
sunnud. 10.1. eftir kl. 15.00.
Guðbjörg Þorsteinsdóttir,
Pólgötu 6, ísafirði.
Stefán PáU Björnsson,
Laugavegi 139, Reykjavik.
Steinunn Daníelsdóttir,
Smáravegi 10, Dalvík.
75 ára
Ástvaldur Kristófersson,
Túngötu 8, Seyðisfirði.
Emil Sigurðsson,
Sólvallagötu 31, Reykjavík.
Finnbogi Guðmimdsson,
Sólvangsvegi 7, Hafnarfirði.
Margrét Kröyer,
Helgamagrastr. 9, Akureyri.
70 ára
Gréta Jóhannesdóttir,
Grundarbraut 5, Ólafsvík.
Jón Sigurður Eiríksson,
Fagranesi, Sauöárkróki.
60 ára
Sigurður Sigurðsson,
Hlaðbæ 5, Reykjavík.
50 ára
Anita L. Þórarinsdóttir,
Hlíðarenda, Bárðdælahreppi.
Benedikt Skarphéðinsson,
Frostaskjóli 87, Reykjavík.
Björn Guömundsson,
Hliðarhjalla 40, Kópavogi.
Ester Steindórsdóttir,
Barðstúni 3, Akureyri.
Geirþrúöur Sigurðardóttir,
Þórunnarstræti 83, Akureyri.
Indriði Kristinsson,
Selvogsbraut 29, Þorlákshöfn.
Kristín Jónsdóttir,
Háteigi 6, Akranesi.
Magnús Sigurðsson,
Aragerði 13, Vogum.
Marin Pétursdóttir,
Kaplaskjólsvegi 50, Reykjavík.
Peter Radovan Jan Vosicky,
Austurbrún 4, Reykjavík.
Sigurður Styrmisson,
Reynilund 4, Akureyri.
Stanislaw Switon,
Álfhólsvegi 8 A, Kópavogi.
40 ára
Bertha Richter,
Álfheimum 28, Reykjavík.
HaUdór Guðnason,
Stórholti 25, Reykjavík.
Helga Jónsdóttir,
Austurey II, Laugardalshr.
Helgi Erlendsson,
Hraunbæ 186, Reykjavík.
Júlíus Pétur Ingólfsson,
Vogabraut 22, Akranesi.
Olga Magnúsdóttir,
Ósi III, Skilmannahreppi.
Ólafur Rúnar Björnsson,
Jörundarholti 44, Akranesi.
Steindór Rúnar Ágústsson,
Asparfelli 8, Reykjavík.
Vilborg Jónsdóttir,
Blöndubakka 15, Reykjavík.