Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Síða 6
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 Fréttir Talið að illdeilum í Mosfellsdal linni: Póri hestakóngur situr áfram I Laxnesi „Við viljum að landinu verði skipt og ítala sett á landið þannig að þar verði ekki meiri beit en landið þolir,“ sagði Jóhann Sigurjónsson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ. Lang- vinnu deilumáli í Mosfellsdal virð- ist vera að ljúka. Deilan stóð um rekstur hestaleigu Þórarins Jónas- sonar sem þar hefur starfað í ein þrjátíu ár við miklar vinsældir ferðafólks en minni hjá ýmsum ná- grönnum. Nýjar vendingar í Lax- nesmálum voru ræddar á bæjar- stjómarfundi í Mosfellsbæ í gær. Hrossabúskap- ur og hestaleiga verða áfram á sín- um stað. Ragn- heiður Jónasdótt- ir Hansson, systir Þórarins, hefur keypt part Jóns Baldvinssonar, fyrrum bæjar- stjóra í Mosfells- bæ, gömlu bæjar- húsin og hluta af landi Laxness II, sem er norðan Þingvallavegar. Aðrir eigendur landsins eru Wathne-systur og Mosfellsbær. Ragnheiður mun hins vegar selja eða leigja bróður sínum eignina, gömlu húsin í Laxnesi, Undanfarin miss- eri hefur Þórar- inn barist fyrir tilvist sinni á staðnum. Hann var orðinn landlaus og án húsnæðis og rak hestaleiguna í gámi á hlaðinu, sem þegar var kært. Eigandi húsanna i Laxnesi II var Jón Baldvinsson, fyrrverandi Jóhann Sigur- jónsson bæjar- stjóri. Bærinn vill koma í veg fyrir ofbeit. Jón Baldvins- son, bæjarstjór- inn fyrrverandi, selur sinn hluta í Laxnesi II. Póri í Laxnesi, hestabóndi í áratugi, fær nú gömiu bæjarhúsin til nota fyrir sig og hestaleiguna. bæjarstjóri í Mosfellsbæ. Jón Baldvinsson sagði í gær að hann héldi eftir jörðinni og ábúðar- rétti og hitaréttindum. Ragnheiður kaupir húsin sem falla að Laxnesi I en það er 200 hektara jörð í eigu bæjarins, Wathne-systra og Ragn- heiðar. Þórarinn hrossabóndi var sakað- ur um að hafa valdið stórfelldri gróðureyðingu á landi Laxness. Hann segir að slest hafi upp á vin- skapinn við Guðnýju Halldórsdótt- ur, bæjarfulltrúa og kvikmynda- gerðarmann, nágranna sinn, og fyr- ir bragðið hefði hann ekki fengið byggingarleyfí í Laxnesi. Nú er mál- ið leyst. Hann verður hæstráðandi í Laxneshúsunum, þarf ekki að byggja en endurnýjar gömlu húsin. „Það var ýmsu slegið upp í þessu máli og þetta var frá upphafi til enda hreint bull en ég fékk lítið að svara fyrir mig,“ sagði Þórarinn í samtali við DV. „Þetta var allt ógeðslegasta mál, þegar maður fer að hugsa til baka. Það var aldrei tekin ítala og það var haldinn fund- ur hjá Ólafl Dýrmundssyni hjá Bændasamtökunum með Sveini Runólfssyni landgræðslustjóra, þar sem hann þurfti að éta allt ofan í sig. Ég var hins vegar ekki boðaður, ábúandinn og eigandinn að parti af landinu," sagði Þórarinn í gær. - Var þetta einhvers konar innan- sveitarkróníka? „Blessaður, verra en það. Þetta var aðfór vissra persóna, en það er seigt í mér. En ég leit alltaf á Jón Baldvinsson sem góðan mótherja í skák, milli okkar er allt í góðu, við leysum vandamálin þrátt fyrir mik- il málaferli," sagði Þórarinn. -JBP Metsölujeppinn fer beint á verkstæði - og þar er prjónað við hann samkvæmt kröfum íslenskra jeppakarla Izuzu Trooper-jepparnir fara flestir til Árna Gíslasonar og fleiri verkstæða og þar er prjónað við þá samkvæmt kröfum íslenskra jeppakarla. Hér er Gísli Ólafsson, verkstæðisformaður með meiru hjá ÁG, ásamt Hannesi Strange, sölustjóra hjá Bílheimum. Metsölujeppinn Izuzu Trooper kemur góður frá Japan. En ís- lenskir jeppakarlar vilja langflest- ir fá meira, þegar þeir fá jeppann sinn, sama hvað jeppinn heitir. Margir þeirra sem kaupa Trooper-jeppann, og þeir munu vera um 250 talsins á stuttum tíma, vilja stærri dekk, hækka bílana, setja á spoilera og gang- bretti, og margir vilja tvílita bíl- ana. Kostnaðurinn við breytingar er mismunandi, allt frá 60 þús- undum upp í hartnær 400 þúsund. Verð jeppanna frá Bílheimum þykir hins vegar lágt fyrir svo stóran 7 manna jeppa, 2,8 milljón- ir króna. Um það bil helmingur bílakaupenda á íslandi þessa Japanskur jeppi, sem boðinn er á góðu verði, hefur náð undragóðri markaðshlutdeild. DV-mynd Hilmar Þór stundina fjármagnar stóran hluta viðskiptanna með bílalánum. Sala nýrra bíla er mikil og biðlistar eru eftir sumum bílum, Trooper- jeppanum sem og Skodabílum frá Heklu. Bílaverkstæði Árna Gíslasonar við Tangarhöfða, stærsta bíla- verkstæði landsins, annast um breytingarnar fyrir Bílheima og nýju eigendurna ásamt fleirum. í gær voru þar fimm jeppar í breyt- ingum og von var á 20 til viðbótar í dag úr tolli að sögn Gísla Ólafs- sonar hjá ÁG. „Þessi bíll hefur víst slegið öll sölumet jeppa á íslandi, maður hefur ekki fyrr séð jeppa eina og sér hafa 7,7% markaðshlutdeild en það hefur jeppinn það sem af er árinu, en auðvitað er árið ungt,“ sagði Júlíus Vífill Ingvars- son, framkvæmdastjóri Bílheima, i gær. Hann segir að sending hafi verið að koma frá Japan, hún er seld, og næstu sendingar nánast seldar. Júlíus Vifill segir að þessi jeppi sé nýtt módel, útliti breytt og dísilvélin aflmeiri en þekkist, 159 hestöfl og þriggja lítra en togar jafnframt mikið. En íslendingar vilja breyta, hvers vegna? „Bíllinn kemur vel búinn frá framleiðanda en hins vegar þekkj- um við það að við íslendingar vilj- um bílana enn flottari, menn vilja meira, og þeir sjá að vélin þolir talsverðar breytingar án þess að það komi niður á afli bílsins. Gott verð þýðir líka að menn telja sig geta sett svolítið í aukahluti og aðgreint bílana sína frá öðrum,“ sagði Júlíus Vífill. -JBP Láglaunastarf í prófkjöri Samfylkingar á Reykjanesi hafa ýmsir verið til- nefndir í slaginn. Margir eru um hituna þrátt fyrir að ekki hafi all- ar spár um framboð gengið eftir. Þannig hafði Ari Skúlason, fram- kvæmdastjóri Al- þýðusambands ís- lands, verið nefnd- ur sem kandídat í eitt af efstu sæt- unum en það gekk ekki eftir. Ástæðan er sam- kvæmt óstaðfestum heimildum Sandkorna sú að þjónn verkalýðsins gat ekki hugs- að sér að fara í láglaunastarf á vegum kjósenda og því hætti hann að hugsa um þingmanns- starf sem gefur aðeins rúmar 200 þúsund krónur í mánaðarlaun ... Ósýnilegur Nú þegar Seljavallabóndinn Egill Jónsson hverfur af þingi og nýr oddviti tekur við gætir nokkurs kvíða á Austfjörðum um að áhrifaleysi þeirra á Alþingi aukist. Egill hef- ur að vísu ekki komist í þær álnir á löngum ferli að fara á ráðherrastól en hann hefur haft drjúg áhrif í gegnum alls kyns nefndar- og stjómarsetur. Þær raddir heyrast að mesta þunga- vigt Austfirðinga, Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra og fyrsti þingmaður íjórðungsins, sé nánast ósýnilegur eystra nema á sjónsvarpsskjám að rifast vegna Ástþórs Magnússonar eða ræða önnur utanrikismál. Fjarvera ráðherrans úr kjördæminu sé talandi dæmi um að ráðherrar eigi að láta af þingmennsku svo sem Siv Friðleifsdóttir hefur krafist... Vinnufélagi ársins Sigurður Þ. Ragnarsson, sem fór aftur á bak út af Frétta- stofu Sjónvarpsins eftir að hafa staðið í klögumálum og útistöð- um vegna Helga H. Jónssonar fréttastjóra, er kominn í vinnu á ný. Hann er veð- urfréttamaður á Stöð 2 hvar hann upplýsir um áhrif þeirra hæða og lægða sem þvælast að landinu. Ekki er aö sjá að nein óveðursský hafi hrannast yfir höfði hans á nýja staðnum en Sigurður var út- nefndur af Fókusi sem vinnufé- lagi ársins í fyrra ... Á götunni í hinum ýmsu hólfum Sam- fylkingai- er barist af hörku og reynir hver að ota sínum tota. Málið er nokkuð flókið því á sama tima og frambjóðendur þurfa að tryggja eigið brautar- gengi þarf að huga að velferð hólfsins i heild. Þar er þó fyrst og fremst um að ræða A- flokkana sem berjast um forystusætiö. Mjög mismunandi er hve mikil umsetning er hjá frambjóðend- um. Fiestir eru með kosninga- miðstöðvar en þó eru undanskild- ir þungavigtarmenn eins og Mörður Árnason íslenskufræð- ingur sem lætur möppu duga og Magnús Árni Magnússon al- þingismaður sem sömuleiðis er með kosningaskrifstofu á tveim- ur fótum ... Umsjón Reynir Traustason Netfang: sandkorn ®ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.