Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 Íþróttír_________________________________________ Arnar Gunnlaugsson í samtali viö DV: Leikur liklega ekki meira med Bolton - Leicester sýnir áhuga og tilboð jafnvel á leiðinni Arnar Gunnlaugsson er á förum frá Bolton. Það mun koma í Ijós á næstu dögum hvaða félag festir kaup á honum. DV-mynd Eiríkur Eins og fram hefur komið sam- þykkti stjórn Bolton beiðni Arn- ars Gunnlaugssonar um að verða settur á sölulista. Fram hefur komið í fjölmiölum í Bretlandi að nokkur félög hafi beðið átekta en formlegt kauptilboð í Amar hefur ekki enn borist félaginu. Það hef- ur líka Colin Todd knattspynu- stjóri staðfest. Kaupverðið ekki undir þremur milljónum punda Leicester er eitt þeirra liða sem fylgst hefur með Arnari um hríð en liðið hefur verið að líta i kringum sig eftir framherja. Ekki hefur verið gefið út hvað Bolton vill fá fyrir Arnar en líklegt má telja að það verði ekki undir þremur milljónum punda eða um 320 milljónir íslenskra króna. Verðið á kappanum hefur rok- ið upp úr öllu valdi en Arnar kom til Bolton á 100 þúsund pund. Honum gekk allt í haginn framan af tímabilinu, skoraði grimmt, skapaði sér nafn og margir klúbb- ar fóru aö veita honum athygli. Amar sat á varamannabekkn- um um síðustu helgi þegar Bolton sigraði ShefField United á útivelli. Bolton leikur ekkert um næstu helgi en þá fara fram leikir í bik- arkeppninni. Næsta umferð í deildinni verður ekki fyrr en um aðra helgi. „Vonandi að nú komi hreyfing á málið“ „Enn sem komið er hefur ekk- ert gerst i mínum málum eftir að Bolton samþykkti ósk mína um að fara á sölulista. Ef tilboð bærist frá félagi á borð við Leicester myndi ég hiklaust skoöa það. Það er sterkt lið og komið í undanúr- slit í deildarbikarnum. Það er von- andi að einhver hreyfing komist á mín mál fljótlega og jafnvel í þess- ari viku. Ég stunda ennþá æfingar með Bolton en ég er hins vegar á því að ég leik ekki með félaginu framar. Innst inni vona ég að svo verði,“ sagði Arnar Gunnlaugsson í samtali við DV í gær. Nottingham Forest hafði á tímabili augastað á Amari en fé- lagið stendur ekki vel fjárhags- lega um þessar mundir. Sheffield Wednesady kom svo einnig inn í umræðuna fyrr í vikunni en liðið hefur verið að leita að marka- skorara. -JKS Evrópumót kvennalandsliða í handbolta: Stúlkurnar mæta sterku liöi Rússlands Islenska kvennalandsliðið i hand- knattleik mætir Rússum tvívegis hér á landi um næstu helgi í und- anriðli fyrir heimsmeistarakeppn- ina sem haldin verður í Noregi og Danmörku í lok nóvember á þessu ári. Fyrri leikurinn verður í Vik- inni á laugardag klukkan 16 og sá síðari i íþróttahúsinu við Strand- götu á sunnudagskvöldið klukkan 20. Auk Islands og Rússlands er Króatía í riðlinum. Báðir leikirnir við Krótíu verða ytra í febrúar. Fjórir leikmenn sem leika erlendis koma heim í leikina við Rússa. Þetta eru þær Brynja Steinsen frá Minden í Þýskalandi, Fanney Rún- arsdóttir frá Tertnes í Noregi og Helga Torfadóttir og Hrafnhildur Skúladóttir frá Bryne í Noregi. Halla María Helgadóttir, fyrirliði liðsins sl. tvö ár, er fjarri góðu gamni vegna brjóskloss í baki. Enn- fremur getur Auður Hermannsdótt- ir ekki leikið með vegna axlar- meiðsla. Harpa Melsteð hefur legið í flensu síðustu daga en vonast er eft- ir að hún verði orðin góð fyrir leik- ina um helgina. Að sögn Theodórs Guðfinnssonar landsliðsþjálfara eru leikimir við Rússa kærkomið verkefni en tæp tvö ár eru síðan kvennalandsleikir voru háðir hér á landi. Af uppstillingu rússneska liðsins að dæma er ljóst að nokkrar breyt- ingar hafa orðið á liðinu frá heims- meistaramótinu þar sem Rússar höfnuðu í fjórða sæti. Liðsmenn koma eingöngu frá tveimur liðum en þau bæði era komin í 8 liða úr- slit á Evrópumótunum. Þrátt fyrir breytingar í rússneska liðinu eru konur þar innan um með mikla reynslu. íslenski hópurinn í Rússaleikjun- um verður þannig skipaður: Fanney Rúnarsdóttir...........Tertnes Helga Torfadóttir ...............Bryne Hugrún Þorsteinsdóttir ..........Fram Brynja Steinsen ...............Minden Björk Ægisdóttir....................FH Gerður Beta Jóhannsdóttir........Val Eivor Pála Blöndal ................Val Ágústa Edda Bjömsdóttir . . Gróttu/KR Svava Sigurðardóttir...........Víkingi Thelma Björk Ámadóttir .... Haukum Herdís Sigurbergsdóttir . . . Stjömunni Hrafnhildur Skúladóttir .......Bryne Harpa Melsteð...................Haukum Ragnheiður Stephensen .. . Stjörnunni Inga Fríða Tryggvadóttir . . Stjörnunni Judit Rán Estergal .............Haukum Dómarar á leikjunum koma frá Belgíu. Miðasala fer fram í verslun- um 10-11 og leikdagana á leikstað. -JKS Orn Arnarson á fleygiferð í sundinu. Hann verður á meðal keppenda á sundmótinu í Hafnarfirði um helgina. Stórmót Búnaðarbankans og VISA í sundi: Allir bestu taka Stórmót Búnaðarbankans og VISA í sundi verður haldið um næstu helgi og hefst það á föstu- dagskvöldið og lýkur síðdegis á sunnudag. Mótið í ár verður í stærra lagi enda vora skráningar fleiri en nokkru sinni og varð því að takmarka þátttöku yngri sund- manna verulega. í fyrsta sinn í langan tíma synda nær allir bestu sundmenn landsins á mótinu. Öm Arnarson, nýbakaður Evrópumeistari frá Sheffield, verð- ur að sjálfsögðu á meðal keppenda á sínum heimavelli og verður fróðlegt að fylgjast með kappanum. þátt Tveir eftirtektarverðir erlendir sundmenn verða á meðal þátttak- enda, annars vegar Daninn Anders Bo Pedersen, sem komst í úrslit á Evrópumóti unglinga, og hins vegar rússneska konan Kristina Gor- emykia. Hún býr og æfir í Vestmannaeyj- um undir stjóm unnusta síns Yoris Zinovievs. Kristina er margfaldur Rússlandsmeistari frá 1993-95 en hefur ekki æft um hríð en stefnir á toppinn á nýjan leik. Keppninni verðm- þannig hagað að Örn og Ped- ersen keppa saman. -JKS I>V NBA-DEILDIN Dennis Rodman, leikmaöurinn skraut- legi hjá Chicago, leikur ekkert á þessu tímabili. Umboðsmaður hans lýsti því yfir í fyrrinótt að Rodman væri hættur - kappinn bar það strax til baka en sagð- ist ekki ætla að spila í vetur. Menn benda þó á að Rodman sé frægur fyrir að hætta og byrja aftur og koma með alls kyns yflrlýsingar sem falli fljót- lega um sjálfar sig. Vitað er að New York hefur sýnt áhuga á að fá „Orminn" i sinar raðir og hann gæti í raun birst í búningi hvaða liðs sem er, hvenær sem er. En meistaralid Chicago er nánast horf- ið. Michael Jordan og Rodman hættir, Scottie Pippen á forum til Houston, Luc Longley til Phoenix og Steve Kerr til San Antonio. Þá fer Scott Burrell vænt- anlega til Miami. Þeir Tony Kukoc og Derek Harper verða efiir til að halda uppi fjörinu ásamt minni spámönnum. Eistneski risinn Martin Muursepp, sem lék með Eistlandi gegn íslandi í Evrópukeppninni í vetur, fer væntan- lega til Chicago frá Phoenix ásamt þeim Mark Bryant og Bubba Wells í skipt- um fyrir Longley og þá kemur Brent Barry líklega frá Miami í skiptum fyrir Burrell. Samningar leikmanna og eigenda i NBA eru enn ekki frágengnir þrátt fyrir samkomulagið sem gert var 7. janúar. Enn er deilt um nokkur minni háttar at- riði og það þýðir að æfmgabúðir liðanna og undirskriftir leikmannasamninga geta í fyrsta lagi hafist í dag. Sam Perkins er á leiðinni frá Seattle til Indiana en hann var með lausan samn- ing. Þá fer Loy Vaught væntanlega frá LA Clippers til Detroit. Seattle selur lík- lega Jim Mcllvaine til New Jersey og fær í staðinn Michael Cage og Don MacLean. Vlade Divac, sem fór í vetur heim til Belgrad, er mjög eftirsóttur. Sacramento þykir líklegast til að krækja í hann en hann er líka sterklega orðaður við Phoenix og Denver. -VS Skíðagönguátakið: Aftur reynt á Akureyri Skiðasambandið neyddist til að fresta skiðagönguátakinu á Skíðahelginni á Akureyri um siðustu helgi vegna veð- urs. Aftur á móti er ætlunin að gera aðra tilraun um næstu helgi, þ.e. dagana 23.-24. janúar. Umgjörðin verður ná- kvæmlega sú sama og lýst var í siðasta bréfl og mun maraþonskíðagangan fara fram á laugardeginum og hefjast klukk- an 15.00. Kennslan hefst klukkan 14.00 og stendur til 17.00 báða dagana. Dag- skráin hefur verið stokkuð örlítið upp. Sauðarkrókur verður heimstóttur laug- ardaginn 30. janúar og Mývetningar sunnudaginn 31. janúar. Mikið hefur verið haft samband viö skrifstofu Skíðasambandsins með fyrir- spumir varðandi hvar átakið verður. Sökum þess hve dagskrá þessi er háð snjóalögum þá er mjög erfitt fyrir Skíða- sambandið að vera að gefa upp ná- kvæmar dagsetningar. Þó er ljóst að kennsla verður á Austurlandi dagana 1.-14. febrúar og verður flakkað vítt og breitt um Austfirðina. Stefnt er að því að halda skíðahelgina í Reykjavik helg- ina 20.-21. febrúar og verður það nánar auglýst síðar. Því miður tókst ekki að halda slika helgi í fyrra sökum snjóleys- is en byijun þessa vetrar lofar vissulega góðu. Skíðasambandið mun dreifa auglýs- ingaveggspjöldum á alla kennslustaði þar sem fram kemur hvar og hvenær kennslan verður á viðkomandi stað. Al- menningur er beðinn að hafa augun opin, auk þess að fylgjast vel með í DV og á síðu 379 i textavarpi RÚV. Dagskráin: 24. janúar .... ísafjörður kl. 14.00 25. janúar Patreksgörður kl. 18.00 26. janúar .... Blönduós kl. 20.00 27. janúar . . Skagaströnd kl. 18.00 28. janúar Hofsós kl. 18.00 30. janúar . Sauðarkrókur k. 13.00 f kvöld Úrvalsdeildin i körfubolta: Grindavik-ÍA ...............20.00 KR-Snæfell...................20.00 Keflavík-Skallagrímur........20.00 Tindastóll-KFl...............20.00 Haukar-Valur................20.00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.