Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Blaðsíða 10
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 DV Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir 10 menmng_____________ Draumurinn sem aldrei rættist Jólaköttur eða Freyjuköttur Ljóðatónleikar Alinu og Gerrits Á tónleikum í Kirkjuhvoli viö Vídalíns- kirkju í Garðabæ kl. 17 á laugardaginn ætlar Alina Dubik mezzosópran að syngja franska og rússneska söngva. Við hljóðfærið er píanóleikarinn Gerrit Schuil, list- rænn stjórnandi kammertónleik- anna í Garðabæ. EUn Ósk Ósk- arsdóttir ætlaði aö syngja með Gerrit á þessum tónleikum en vegna veikinda hennar hleyp- ur Alina Dubik í skarðið. Tónleikarnir hefjast á flmm sönglögum eftir Gabriel Fauré en að öðru leyti er efhisskráin helguð fjórum rússneskum tónskáld- um 19. aldar, Rimsklj-Korsakov, Aleksandr Borodin, MíkhaU Glínka og Pjotr Tsjajkovskíj, og mun söngkonan flytja söngvana á frummál- inu. Söngvamir eru allir frá blómaskeiði róm- antísku stefnunnar og yrkisefnin dæmigerð fyrir skáldskap þeirra tíma - ást, náttúra, við- skilnaður og dauði. Alina Dubik er pólsk að ætt og uppruna. Hún brautskráðist frá Tónlistarháskólanum i Gdansk í Póllandi árið 1985. Samhliða náminu söng hún með óperunni í Kraká. Á liðnum árum hefur Alina Dubik komið fram sem ein- söngvari víða um lönd, meðal annars í Þýska- landi, Lúxemborg, Ítalíu og Sviss. Á íslandi hefur hún sungið einsöng með Sinfóníuhljóm- sveit íslands og tekið þátt í uppfærslum hjá ís- lensku óperunni, meðal annars Óthelló eftir Verdi og Töfraflautunni eftir Mozart, og hlotið mikið lof gagnrýnenda. Karlrembukvöld Kaffileikhúsið sem sérhæfir sig í sérkenni- legum kvöldskemmtunum og uppákomum af ýmsu tagi býður nú til Karlrembukvölds ann- að kvöld kl. 20. Fyrst verður borinn fram þorramatur en dagskráin hefst kl. 21 með harmonikuleik Karls Jónatanssonar. Meðal annarra liða er erindi um bóndadaginn og þorrann, sannsögulegar karlrembusögur þjóð- þekktra aðila, tískusýning frá Herrafataversl- un Kormáks og Skjaldar og minni karla sem Auður Harals flytur. Súkkat treður upp milli atriða og lýkur kvöldinu með tónleikum þeirra. Miða pantar maður í síma 551 9055. Halldór um Halldór Að venju býður Endurmenntunardeild Há- skóla íslands upp á mörg spennandi kvöldnám- skeið fyrir almenning nú á útmánuðum. Hið fyrsta hefst 26. janúar og fjallar um Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness og er kennari Hall- dór Guðmundsson bókmenntafræðingur. Nám- skeiðið er haldið í samvinnu við Þjóðleikhúsið en þar verður frumsýnd tveggja kvölda leik- gerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Mar- grétar Guðmundsdóttur af þessari miklu skáld- sögu í febrúar. Endurmenntunardeild Hí hefur nokkrum sinnum áöur boðið upp á námskeiö í tengslum við leiksýn- ingar og hafa þau verið gífurlega vinsæl. Þátttakendur hlýða á fyrir- lestra, fara á æfmgu á stykkinu og sjá það líka í lokagerð. Þeir fá tækifæri til að ræða við aöstand- endur sýningarinnar, leikara og leikstjóra og koma áliti sínu á framfæri. Meðal annarra námskeiöa á vorönn má nefna Undur veraldar, vísindi i nútið og fram- tíð sem Þorsteinn Vilhjálmsson prófessor hefur umsjón með, List í kirkjum í umsjón séra Gunnars Kristjánssonar og námskeið um Orkneyingasögu, Sturlunga sögu og Egils sögu. Skráning í síma 525 4923. Langar þig að læra að syngja? Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzósópran heldur áfram með hressileg og aðgengileg söngnám- skeið í Gerðubergi um helgina. Þar kennir hún fólki á röddina sína og hafa þátttakendur orðið alveg hissa á að uppgötva mögu- leikana og kraftinn sem rödd þeirra býr yfir. Námskeiðin standa í tvo daga og eru ætluð byrjendum á öllum aldri. Þeir læra grunnatriðin í söng, öndun, heilbrigða líkamsstöðu og einfald- ar raddæfingar. Kennt er í hópum en allir fá líka einkatima fyrir sig. Nánari upplýsingar veitir Ingveldur Ýr í síma 898 0108. Jólasólarkötturinn eftir Steinunni Eyj- ólfsdóttur gerist í sjávarþorpi í samtiman- um og segir smásögur af lífi fólksins þar. Samnefnari sagnanna er kettlingur sem kemur á glugga systkinanna Freyju og Sveins á jólanótt, kaldur og hrakinn, og rauði þráðurinn í bókinni er spumingin um hvort hann á meira skylt við jólaköttinn, það óbermi, eða ketti ástargyðjunnar Freyju. Stundum gerir hann skammir af sér Hér á landi eru fáir sem ekki kann- ast við Mýs og menn eftir John Stein- beck, enda hefur sagan verið náms- efni í skólum á frummálinu og kom auk þess út í íslenskri þýðingu Ólafs Jóhanns Sigurðssonar fyrir margt löngu. Leikgerð höfundar á sögu sinni hefur líka verið flutt hér á sviði og í útvarpi. Steinbeck var á sínum tíma einn helsti fulltrúi sósíalreal- ismans í bandarískri skáldsagnagerð og þó Mýs og menn fjalli að vissu leyti um þjóðfélagsleg vandamál tengd kreppu millistríðsáranna er sagan fyrst og síðast um vináttuna og drauminn um betra líf. Leiklist Halldóra Friðjónsdóttir Hin nafnlausa kona verður örlagavald- ur í karlaheimi búgarðsins. Inga María Valdimarsdóttir með Jóhanni Sigurð- arsyni í hlutverki Lenna og Hilmi Snæ Guðnasyni sem leikur Georg. DV-myndir E.ÓI. jafnframt á skeytingarleysið sem virðist alls- ráðandi í því samfélagi sem birtist okkur á sviðinu. Hlutir eins og flugvélarflakið sem í fyrstu virðast hafa litla skírskotun til umfjöll- unarefnisins eru hlaðnir táknrænni merk- ingu, og búningarnir undirstrika greinilega karaktereinkenni persónanna. Jóhann Sigurðarson er eins og sniðinn í hlutverk Lenna, einfalda risans sem endar alltaf með þvi að drepa það sem honum þykir mjúkt og fallegt. Túlkun Jóhanns á hlutverk- inu var einfaldlega frábær, hvort sem um var að ræða raddbeitingu eða látbragð, og nokkuð víst að Lenni mun um langa framtíð skyggja á önnur hlutverk Jóhanns. Hilmir Snær Guðna- son fann sig ekki jafn vel í hlutverki Georgs en gerði samt margt mjög vel. Það sem helst vantaði upp á var að koma því yfír til áhorfenda að Georg er í raun jafn mikill einstæðingur og Lenni og þess vegna alveg jafn háður vináttu þeirra þó hún kosti hann vandræði. Guðmundur Ólafsson leik- ur Candy og átti marga stór- góða spretti. Nægir að nefha atriðið þegar hann fær stað- fest að draumurinn um litla býlið verður aldrei að veru- leika. Hins vegar var Candy óþarflega afkáralegur þegar hann birtist fyrst á sviðinu og hlýtur það að skrifast á reikning leikstjórans. Sveinn Geirsson sem leikur Karls- son og Helgi Björnsson sem er Slim voru nokkuð einsleit- ir í sinni túlkun og þar réði líklega mestu eintóna radd- beiting. Kjartan Bjargmunds- son sýndi meiri tilþrif sem Whit og tókst að skapa bráð- skemmtilega en ótrúlega óaðlaðandi persónu. Þröstur Guðbjartsson var ágætur í litlu hlutverki bústjórans og sama má segja um Atla Rafn Sigurðsson í hlutverki Cur- lys, dulítið kvenlega eigin- mannsins sem hefur engan hemil á eiginkonunni. Hún er leikin af Ingu Maríu Valdimarsdóttur sem var bæði þokkafull og umkomu- laus f karlaheimi búgarðsins. Þá er aðeins eftir að nefna Sigurþór Albert Heimisson sem leikur svertingjann Crooks með mikilli prýði. í heildina er uppsetningin ágætlega heppnuð þó ekki nái hún að snerta mann jafn djúpt og efnið gefur tilefni til. Sýningin fer nokkuð hægt af stað og enn vantar töluvert upp á að jafnt flæði náist í framvinduna. Það lagast væntanlega með tímanum og án efa eiga leikararnir líka eft- ir að eflast í hlutverkum sínum. Flugfélagið Loftur sýnir í Loftkastalanum: IVIýs og menn eftir John Steinbeck. Þýðing: Ólafur Jóhann Sigurðsson. Leikmynd og búningar: Vytautas Narbutas. Lýsing: Lárus Björnsson. Tónlist/leikhljóö: Egill Ólafsson. Leikstjórn: Guðjón Petersen. Hvort tveggja kristallast í sam- bandi þeirra Georgs og Lenna sem þvælast saman úr einni vinnu í aðra og láta sig dreyma um að eignast lít- ið býli þar sem þeir sínu að vild. Þegar þeir félagar koma á enn einn búgarðinn og kynnast Candy sem á dá- lítið af peningum fær draumurinn byr und- ir báða vængi. En allar áætlanir verða að engu þegar Lenni drepur tengdadóttur bú- stjórans í ógáti. Guðjón Pedersen velur sýningunni hefð- bundið raunsæisyfirbragð í leik en leikmynd og búningar eru hins vegar stílfærð og gefa ákveðið tímaleysi til kynna. Vytautas Narbut- as, sem er kunnastur hér fyrir samstarf við landa sinn Rimas Tuminas, er höfundur leik- myndar og búninga og er hvort tveggja mjög vel af hendi leyst. Leikmyndin er hrörlegt klastur sem vitnar um hnignun en minnir en stundum blómstrar ástin í kringum hann. Söguna segir alvitur sögumaður sem gefur sig fram strax í fyrstu setningu og ávarpar lesendur sína: „Þið vitið hvernig aðfangadagskvöld eru.“ Persóna þessa sögumanns er skýr, hann er félagslega meðvitaður og rætir sitt fólk vel: Pabbi Freyju og Sveins er sjómaður „og mamma þeirra vinnur í frystihúsinu, þegar það er ekki á hausnum." Eftir almenna kynningu hverfur sögumaður þó í bakgrunninn og við sjáum söguefnið ýmist með augum Freyju eða Sveins sem eru ólík systkini en bæði skemmtilegar persónur - hún jarðbundin og skynug stelpa, hann dreyminn og jafnvel skyggn. Bókmenntir Silja Aðalsteinsdótb'r Lífið í svona þorpi er krökkt af sögum og Steinunn heldur sig ekki við barnaheiminn. Lárus gamli í Ystabæ hefur áhyggjur af því að ráðskonan hans hún Rúna ætli að fara frá honum, en kisi bjargar því, Svo veiðir kisi fallega hanann hennar ömmu, Freyju til armæðu, en bætir úr skák með því að koma aftur á sambandi milli Höllu Siggu og kvennaguUsins bamsföður hennar. Sveinn veiðir sinn mariu- fisk, týnist í berja- mó og hittir forna íbúa heiðarinnar. Kannski hefði hann horfið inn í annan heim ef Sigfinnur uppi á súlum hefði ekki fundið hann. Sigfinn- ur þessi er besti vinur systkinanna og uppá- haldskenn- ari, meira að segja skáldmæltur. En hann býr yfir leyndri sorg eftir týndan son, og saga hans er eins konar saga undir sögunni, harmur- inn sem gefur hversdagsleikanum dýpt. Ævintýri systkinanna og kattarins eru skemmtUeg og frásagnarhátturinn aðlað- andi og yfirleitt hæfUega hraður. Þó hefði átt að gefa fjölskyldusögunni meira rými. Það er ekki nógu sennUegt að greind stelpa eins og Freyja velti ekki fyrir sér hvers vegna hún þekkir bara annan afa sinn. Frá- gang hefði líka átt að vanda betur. Steinunn Eyjólfsdóttir: Jólasólarkötturinn. Ævintýri. Vestfirska forlagið, Hrafnseyri, 1998.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.