Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 Afmæli Birgir Guðmundsson Birgir Guðmundsson, fyrrv. yfir- birgðastjóri Islenskra aðalverktaka á Keflavíkurflugvelli, til heimilis að Amarhrauni 29, Hafnarfirði, verður sjötugur á morgun. Starfsferill Birgir fæddist á Siglufirði og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Gagnfræðaskóla Siglufjarðar og við Samvinnuskólann í Reykjavík 1947-48. Birgir starfaði við verslunina Ægi á Siglufirði 1948-49, við Skátabúðina í Reykjavík 1949, stundaði verslunarstörf á Siglufirði til 1952, vann við birgðaumsjón hjá vamarliðinu á Keflavíkurflugvelli 1952-57 og starfaði við Innkaupadeild íslenskra aðalverk- taka 1957-97. Birgir var búsettur í Hafnarfirði frá 1952-58, í Garðabæ frá 1958-72 og síðan aftur í Hafnarflrði frá 1972. Hann var formaður skátafélags- ins Fylkis á Siglufirði 1947-51, var formaður ungmennafélagsins Stjömunnar í Garðabæ 1970-71 og formaður Foreldra- og vinafélags Kópavogshælis frá 1979. Þá var Birgir gjaldkeri Lionsklúbbs Hafn- arfjarðar 1988-89 og ritari klúbbsins 1992-93. Fjölskylda Kona Birgis er Mary A. Marinósdóttir, f. 4.9. 1931, fyrrv. aðstoðar- stúlka sjúkraþjálfara á Hrafnistu í Hafnarfirði. Hún er dóttir Marinós Sigurðssonar, f. 1900, d. 1971, bakara á Húsavík og síðar í Borgarnesi, og Guðrúnar Jónsdóttur, f. 1900, d. 1970, húsmóður. Börn Birgis og Mary era Alma, f. 2.3. 1951, hjúkrunar- framkvæmdastjóri á Hrafnistu í Hafnarfirði, búsett í Garðabæ, gift Steingrími Haraldssyni vélstjóra og eiga þau tvö börn; Marinó Flovent, f. 4.11. 1958, sölumaður TOK- hugbúnaðar hjá Tæknivali, búsettur í Reykjavík, kvæntur Jó- hönnu Ingimarsdóttur, húsmóður og dagmóður, og eiga þau tvö böm; Birgir Már, f. 10.1. 1963, öryrki, búsettur í sambýli í Reykjavík. Bræður Birgis eru Ari Guðmundsson, f. 14.9. 1927, veður- fræðingur í Svíþjóð, kvæntur Birgit Guðmundsson, en þau eiga fimm böm; Skarp- héðinn Guðmundsson, f. 7.4. 1930, fyrrv. kaupfélagsstjóri á Siglufirði og síðar fulltrúi Samvinnubankans í Hafn- arfirði, og fyrrv. íslands- meistari i skíðastökki, kvæntur Ester Jóhanns- dóttur, en þau búa í Hafn- arfirði og eiga sjö börn. Foreldrar Birgis voru Guðmundur Skarphéðins- son, f. 1895, d. 1932, skóla- stjóri og bæjarfulltrúi á Siglufirði, og k.h., Ebba G.B. Flóventsdóttir, f. 1907, d. 1935, húsmóðir. Þau bjuggu á Hólum á Siglufirði. Ætt Guðmundur var sonur Skarphéð- ins, smiðs og verkstjóra á Siglufirði, Jónassonar í Grundarkoti, bróður Þórdísar, langömmu Jóns Skafta- sonar, fyrrv. sýslumanns í Reykjavík, fóður Helgu borgarritara. Jónas var sonur Jóns í Grundarkoti, bróður Þórðar Jón- assonar háyfirdómara, föður Jónas- ar Jónassen landlæknis. Móðir Jónasar var Sigríður Jónsdóttir á Vatnsenda, Magnússonar. Móðir Jóns var Ingibjörg Þorleifsdóttir, hreppstjóra á Siglunesi, Jónssonar og k.h., Ólafar Ólafsdóttur. Móðir Ólafar var Guðrún Jónsdóttir, b. á Brimnesi, Arnórssonar, Þorsteins- sonar, ættföður Stóru-Brekkuættar, Eiríkssonar, fóður Péturs, langafa Þóreyjar, ættmóður Thorodddsens- ættarinnar og móður Jóns, skálds og sýslumanns á Leirá. Bróðir Ingibjargar var Þorleifur, langafi Þorleifs, langafa Margeirs Péturssonar. Kona Skarphéðins var Guðlaug Guðmundsdóttir. Systir Ebbu er Maggý, móðir Ebbu Guðrúnar, konu Ólafs Skúlasonar biskups og móður Guðrúnar Ebbu, varaformanns Kennarasambands íslands. Foreldrar Ebbu voru Flovent Jóhannsson, kennari og bústjóri á Hólum í Hjaltadal, búsettur á Sjávar- borg og síðar bæjarfulltrúi og bruna- liðsstjóri á Siglufirði, og Margrét Jós- efsdóttir. Birgir tekur á móti gestum í Odd- fellowsalnum, Staðarbergi 2-4, Hafnarfirði, á afmælisdaginn, fóstudaginn 22.1. frá kl. 19.00-21.00. Birgir Guðmundsson. Ásgeir Jónsson Ásgeir Jónsson hdl., Norðurtúni 4, Keflavík, er fertugur í dag. Starfsferill Ásgeir fæddist í Kefla- vík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1978 og embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1986. Ásgeir var kennari við Grannskólann á Hell- issandi 1978-79, var starfs- maður og siðar fulltrúi hjá Lögmönnum Höfðabakka gjaldheimtustjóri hjá Gjaldheimtu Suðurnesja 1987-90 og hefur rekið eigin lögmannsstofu, fyrst í félagi við fóður sinn í Njarðvík, síðar í Keflavík, frá 1990. Ásgeir var Scriba Scol- aris við MR 1976-77, In- spector scholae við MR 1977-78, fulltrúi Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, í Háskólaráði HÍ og í Stúdentaráði HÍ 1982-84, varaformaður Vöku 1984-85 og í stjóm Háskólabíós 1985-87. Fjölskylda Ásgeir kvæntist 1994 Hrafnhildi Ásgeir Jónsson. 1985-87, Helgu Ólafsdóttur, f. 30.1. 1960, rit- ara. Hún er dóttir Ólafs Helga Jó- hannessonar, f. 20.9. 1907, d. 27.10. 1992, verkamanns í Kópavogi, og k.h., Ingibjargar Ámadóttur, f. 29.12. 1916, d. 3.12. 1988, húsmóður. Börn Ásgeirs og Hrafnhildar Helgu eru Ingibjörg íris, f. 19.3.1992; Bryndís Þóra, f. 25.5. 1994; óskírður sonur, f. 16.12. 1998. Systur Ásgeirs eru Steinunn Helga Jónsdóttir, f. 12.3. 1950, hús- móðir í Reykjavík, gift Hallgrími Gunnarssyni, forstjóra Ræsis; Rebekka Dagbjört Jónsdóttir, f. 16.7. 1956, starfsmaður við Fríhöfhina í Keflavík, gift Björgvini Halldórs- syni húsasmíðameistara. Foreldrar Ásgeirs: Jón Ásgeirs- son, f. 2.5.1921, fyrrv. sveitastjóri og síðar bókari í Njarðvík, og Sigrún Helgadóttir, f. 22.6. 1925, d. 20.11. 1992, húsmóðir. Ætt Jón er sonur Ásgeirs Jónssonar, vélstjóra á ísafirði, og k.h., Rebekku Dagbjartar Hjaltadóttur húsmóður. Sigrún var dóttir Helga Sigurðs- sonar, húsgagnabólstrunarmeistara í Reykjavík, og k.h., Friðsemdar Steinunnar Guðmundsdóttur hús- móður. Sigurður Ingi Ingimarsson Sigurður Ingi Ingimarsson fram- kvæmdastjóri, Boðagranda 7, Reykjavík, er fertugur í dag. Starfsferill Sigurður fæddist í Neskaupstað en ólst upp á Djúpavogi. Hann lauk landsprófi frá Héraðsskólanum í Reykholti 1974, stundaði nám við Verslunarskóla íslands og lauk þaðan verslunarprófi 1976, lauk II. stigs skipstjóm- arprófi frá Stýrimanna- skólanum í Reykjavík 1978, stundaði nám við Tækniskóla Islands og lauk þaðan prófi sem út- gerðartæknir 1981 og lauk einkaflugmanns- prófi frá Flugskóla Ak- ureyrar 1989. Sigurður var stýri- maður og skipstjóri á ýmsum skipum frá 1978, var útgerðarstjóri hjá Siglfirðingi hf. 1988-91 og hefur stundað rekstur eigin fyrir- tækja, Sigluness hf. og Hörganess ehf. frá 1994. Fjölskylda Sambýliskona Sigurðar er Vala Lárusdóttir, f. 24.7. 1962, sjúkraliði. Bróðir Siguröar er Sveinn Krist- ján Ingimarsson, f. 26.6. 1968, skrif- stofustjóri á Djúpavogi. Foreldrar Sigurðar eru Ingimar Sveinsson, f. 29.6. 1927, fyrrv. skóla- stjóri Barnaskólans á Djúpavogi, og Erla Sigríður Ingimundardóttir, f. 5.11. 1936, kennari. Ætt Ingimar er sonur Sveins, b. á Hálsi í Bú- landshreppi, Stefáns- sonar, b. í Kambshjá- leigu Ólafssonar. Móðir Ingimars var Kristín Sigríður Stef- ánsdóttir, b. á Hamri í Geithellnahreppi, Sig- urðssonar. Erla Sigriður er dóttir Ingimundar, verkstjóra á Djúpavogi, Guð- mundssonar, verka- manns á Seyðisfirði, Sumarliðasonar. Móðir Erlu Sigríðar var Þórey Sigríður Gústafsdóttir, verkamanns á Djúpavogi, Krist- jánssonar, b. á Brekku á Djúpa- vogi, Kristjánssonar. Móðir Gúst- afs var Þórey Jónsdóttir. Móðir Þóreyjar Sigríðar var Jónína Rebekka Hjörleifsdóttir, b. á Núpi á Berufjarðarströnd, Þórarinssonar, b. á Krossi á Berufjarðarströnd, Richardssonar, ættfoður Longætt- ar. Móðir Hjörleifs var Lísibet Jónsdóttir, b. í Núpshjáleigu, Jóns- sonar og k.h., Þórdísar Einarsdótt- ur. Móðir Jónínu Rebekku var Sig- ríður Bjarnadóttir, b. í Berufirði og síðar á Núpi, Þórðarsonar. Móðir Sigríðar var Málfríður Jónsdóttir. Hagstœö kjör Ef sama smáauglýsingin er birt undir 2 dálkum sama dag er afsláttur af annarri auglýsingunni. Smáauglýsingar \i 550 5000 Sigurður Ingi Ingimarsson. Til hamingju með afmælið 21. janúar 85 ára_______________ Marga Guðmundsdóttir, Tjamarbóli 14, Seltjarnamesi. 75 ára Erna Kristjánsdóttir, Hnjúki, Dalvík. Skarphéðinn Kristmundsson, Frostafold 155, Reykjavík. Unnur N. Eyfells, Selvogsgrunni 10, Reykjavík. 50 ára Auður Þorvaldsdóttir, Garðabraut 33, Akranesi. Jóakim Tryggvi Andrésson, Eyrarbraut 26, Stokkseyri. Hann verður að heiman á afmælisdaginn. Halldóra Ólafsdóttir, Bólstað, Austur-Landeyjum. Hilmar Hansson, Lindasmára 73, Kópavogi. Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Ásvallagötu 14, Reykjavík. Soffía Ásgeirsdóttir, Háalundi 7, Akureyri. Valdís Oddgeirsdóttir, Skeiðarvogi 121, Reykjavík. 40 ára Ósk Sigurjónsdóttir, Frostafold 4, Reykjavík. Aldís Razoumeenko, Seljalandsskóla, Vestur-Eyjafjallahreppi. Baldvin R. Baldvinsson, Lindarbyggð 18, Mosfellsbæ. Bjarki Pétursson, Vesturbergi 120, Reykjavík. Gunnar Kjartansson, Langagerði 42, Reykjavík. Ingi Þór Skúlason, Miðtúni 50, Reykjavík. Jóhanna Guðmundsdóttir, Grundargötu 41, Grundarflrði. Magnús Ingi Ásgeirsson, Bústaðavegi 97, Reykjavík. Marinó Már Marinósson, Kjarrhólma 8, Kópavogi. Sigurður Jón Ragnarsson, Hlíðarhjalla 47, Kópavogi. Stefán Garðar Óskarsson, Baughúsum 10, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.