Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 9 dv Stuttar fréttir Utlönd Hættuleg flugferð 22 slösuðut þegar Boeing 747 þota frá Continental AMines lenti í mikilli ókyrrð á leiðinni frá Tokyo til Honolulu. Flestir hinna slösuðu sátu í aftari hluta vélar- innar. Bjargað af ís Yfir 200 sportveiðimönnum var á þriðjudaginn bjargað af ísjaka sem rak út í Svartahaf. Veiði- mennimir höfðu farið út á ísinn þrátt fyrir að hann væri sprung- Sleppur við aðgerð Borís Jeltsín Rússlandsforseti þarf ekki að leggjast á skurðar- borðið, að þvi er talsmaður hans greindi fréttastofunni Itar-Tass frá. Rannsóknir sýna að blæð- ingar vegna magasársins eru hættar. Jeltsín hefur leyfi til að vera á fót- um á sjúkrahúsinu og vinna en hann verður að dvelja þar næstu 2 til 3 vikurnar. Geislavirk íkon í lest Pólskir landamæraverðir í Ter- espol fundu í gær fjölda geisla- virkra íkona i lest á leið frá Moskvu. íkonin voru falin undir sæti í lestinni og fundust með sér- stökum mæli. Sakaður um barnastuld Reynaldo Bignone, síðasti for- seti herstjómar Argentínu, hefur verið handtekinn vegna rann- sókna á þjófnaði á börnum á ár- unum 1976 til 1983. Árásir á sendiráð Indverska lögreglan segist hafa handtekið fjóra menn vegna meintra áætlana um sprengju- árásir gegn sendiráði Bandaríkj- anna í Nýju-Delhi og tveimur ræðismannsskrifstofum annars staðar í Indlandi. Framdi sjálfsmorð Pol Pot, leiðtogi rauðu khmer- anna, framdi sjálfsmorð í apríl í fyrra þegar fyrrverandi fé- lagar hans höfðu skipulagt að framselja hann til Banda- ríkjanna. Þetta kemur fram í tímaritinu Far Eastem Economic Review. Það var foringinn Ta Mok sem bauöst til að framselja Pol Pot. Námumenn stöðvaðir Rúmenska lögreglan hefur stöðvað for um 10 þúsund námu- manna, sem eru í verkfalli, til Búkarest, höfuöborgar Rúmeníu. 6 tonn af fíkniefnum Yfirvöld 1 Myanmar gerðu I fyrra upptæk yfir 6 tonn af fíkni- efnum. Nær 5 þúsund manns voru handtekin vegna fíkniefnamála. Ashdown hættir Paddy Ashdown, leiðtogi Fijáls- lyndra demókrata í Bretlandi, lýsti því yfir í gær að hann myndi draga sig í hlé að loknum Evr- ópuþingskosn- ingunum í júní. Ákvörðunin er áfall fyrir Tony Blair, forsætis- ráöherra Bret- lands, sem reynt hefur að koma á nánari samvinnu við flokk Ash- downs um umbótaáform sín. Milljón dollara í mútur Varaforseti Alþjóða ólympíu- nefndarinnar, Dick Pound, sem rannsakar meinta mútuþægni samtakanna, segir að sér hafi ver- ið boðin 1 milljón dollara fyrir að koma á sjónvarpssamningi. Pound kveðst hafa afþakkað boðið. Hillary Clinton á hvers manns vörum í New York: Orðuð við framboð til öldungadeildarinnar Um fátt er meira talað og vöngum velt í New York þessa dagana en hugsanlegt framboð Hillary Rod- ham Clinton forsetafrúar til öld- ungadeildar Bandaríkjaþings. Talað er um að hún muni sækjast eftir sæti Daniels Patricks Moynihans sem dregur sig í hlé að loknu yfir- standandi kjörtímabili. Hugmyndin um framboð Hillary fellur í mjög góðan jarðveg hjá mörgum málsmetandi demókrötum í New York. Tímaritið New York helgar málinu forsíðu sína þessa vikuna og það hefur verið vatn á myllu skrifenda lesendabréfa og rit- stjórnargreina undanfarnar vikur. Meira að segja slúðurdrottningin Cindy Adams í æsiblaðinu New York Post hefur slegist I hópinn. Hún hefur það eftir heimildarmanni sem þekkir vel til mála að 99,9 pró- sent líkur séu á því að Hillary muni bjóða sig fram. „Fyrstu viðbrögð min voru þau að þetta væri fáránlegt," segir stjórnmálaskýrandinn og demókrat- inn Jerry Skurnick. „Staðreyndin er hins vegar sú að enginn ber þetta til baka. Undarlegri hlutir hafa sos- um gerst, þó ekki miklu undar- legri.“ Einu svörin sem fást í Hvíta hús- inu eru frá blaðafulltrúa forsetafrú- arinnar sem segir að hún hafi ekki í hyggju að bjóða sig fram til kjörins embættis. í augum demókrata eru engar fréttir því góðar fréttir. „Ég er viss um að hún er að velta þessu fyrir sér. Annars hefðu þeir sagt það á óyggjandi hátt,“ sagði Emily Giske, stjórnmálaskýrandi úr röðum demókrata. Skoðanakannanir hafa sýnt að Hillary mundi vinna forkosningar Hiliary Clinton forsetafrú nýtur bæði vinsælda og virðingar. demókrata auðveldlega og að hún mundi eiga góðar líkur á móti Rudolph Giuliani, borgarstjóra New York og hugsanlegum frambjóðanda repúblikana. Kannanir hafa einnig sýnt að hún mundi sigra hann á heimavelli. Þeir sem visa hugmyndinni á bug, þcir á meðal margir vinir for- setahjónanna, segja að hún kunni að hafa annað í huga, annan vett- vang þar sem hún gæti komið bar- áttumálum sínum á framfæri. Bent er á að hún sé ekki endilega ginn- keypt fyrir að vera sex ár til viðbót- ar í Washington og að þau séu stór- skuldug. Þegar Bill Clinton flutti stefnu- ræðu sína á þriðjudagskvöld þakk- aði hann eiginkonu sinni fyrir vel unnin störf í þágu þjóðarinnar. Vakti athygli að þingheimur klapp- aði vel og lengi fyrir henni. Þessir skrautlega kiæddu íbúar Mið-Ameríkuríkisins Níkaragva standa fyrir utan dómkirkju í bænum Diriamba sem er 45 kíiómetra suður af höfuðborginni Managua. Mennirnir eru að bíða eftir að stytta af heilögum Sebastían verði flutt úr kirkjunni. Útgangurinn á þeim er skopstæling á klæðnaði spönsku landnemanna fyrir 350 árum. Fundargerðir Quislings boðnar til sölu á fimm milljónir: Hurfu á síðustu stundum DV, Osló: Á að kaupa fundargerðir fóður- landssvikara eða bara að gera þær upptækar? Getur einn maður grætt fimm milljónir á að selja þjóð sinni heimildir um dauðadæmdan og skot- inn stríðsglæpamanna og fóður- landssvikara? Þetta eru spurningar sem Norðmenn spyrja sig nú. Þeir eru enn að gera upp hörm- ungar stríðsins og gera upp sakir við einræðisherrann Vidkun Quisling. Fundargerðir norska nasistafokks- ins, þar sem Quisling var alvaldur í 12 ár, voru í norsku konungshöllinni í höndum Quislings sjálfs klukkan fjögur síðdegis 7. maí árið 1945. Um kvöldið voru þær horfnar þegar rit- ari flokksins ætlaði að taka þær. Fá- um klukkustundum siðar gáfust nas- istar upp og síðari heimsstyrjöldinni í Evrópu lauk. Hvað varð um bækurnar hefm- verið hulin ráðgáta upp frá því. Þó hurfu þær ekki alveg sjónum manna því árið 1985 var reynt að selja fund- argerðarbækurnar á uppboði í Bandaríkjunum. Þá áttu þær að kosta fimm milljónir íslenskra króna en enginn vildi kaupa. Þá hurfu þær aftur þar til nú i vikunni að sami maður og fyrr býður norska ríkis- skjalasafninu bækurnar fyrir fimm milljónir. Safnið vill ekki kaupa, segist eiga bækurnar og krefst þess að fá þær afhentar. Sagnfræðingar segja að bækurnar séu ekta og ófalsaðar og ævisögurit- ari Quislings upplýsir nú að hann hafi fengið að ljósrita þær fyrir mörgum árum. Ævisöguritarinn, Hans Fredrik Dahl, segir að Quisling hafi afhent norskum hermanni úr liði Þjóðverja bækurnar síðdegis 7. maí. Hermaðurinn gaf þær bróður sín- um, sem barist hafði með and- spyrnuhreyfingunni gegn Þjóðverj- um. Sá faldi þær milli veggja í húsi sínu og þar lágu þær þar til and- spyrnumaðurinn lést árið 1979. Þá lentu bækurnar í höndum skyld- mennis þeirra bræðra og sá hefur ár- angurslaust reynt að koma þeim í verð siðustu árin. -GK Krefjast nýrrar yfirheyrslu yfir Edith Cresson Evrópuþingið krefst þess aö Edith Cresson, einn fulltrúa framkvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins, ESB, verði kölluð í yfir- heyrslu á ný um miðjan febrúar vegna rannsóknar á meintu svindli. Við yfir- heyrslu fyrir tveimur vikum lýsti Cresson, sem er fyrrver- andi forsætisráðherra Frakk- lands, að ekkert misjafnt hefði átt sér stað í sambandi við menntaáætlunina Leonardo. Engin ástæða væri til að reka einstaka embættismenn. Þrátt fyrir það lýsti framkvæmda- stjómin í gær yfir ánægju sinni meö aö tveir yfirmenn franska fyrirtækisins Agenor, sem borið hefur áhyrgð á rekstri Leon- ardo, skyldu hafa sagt upp stöð- um sínum. Fyrirtækið er grun- að um að hafa lagt fram falsaða reikninga og brotið belgísk lög um atvinnuráðningar. Belgískur þingmaður Evrópu- þingsins, Nelly Maes, hefur nú kært Cresson fyrir lögreglunni. Sprengja ífjöl- býlishúsi í Kaupmanna- höfn Danska lögreglan fann í gær þriggja kilóa sprengju i kjallara- geymslu í fjölbýlishúsi á Norre- bro í Kaupmannahöfn. Auk sprengjunnar fundust sprengi- efni, fíkniefni, fatnaður Vít- isengla, stolnir lögreglubúning- ar og gögn með nafni eins félaga Vítisengla. Lögregluna grunar að Vítisenglar hafi ætlað að nota sprengjuna gegn vélhjóla- genginu Bandidos. Lögreglan hafði fengið ábend- ingu um að fikniefni kynnu að vera í íbúð i fjölbýlishúsinu. Enginn var heima í íbúöinni og var þá farið í kjallarageymslu leigjandans. Fíkniefnin fundust í kjallarageymslunni auk ofan- greindra efna og búninga. Á meðan lögreglan var enn við rannsókn í húsinu kom leigj- andinn heim og var hann þegar handtekinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.