Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
7
Fréttir
Akureyri:
Saumavél-
ar Foldu
fá nýtt
hlutverk
DV, Akureyri:
Sjóklæðagerðin hf., fram-
leiðandi 66° N og Max vinnu-,
skjól- og útivistarfatnaðar,
hefur keypt fataframleiðslu-
vélar þrotabús Foldu hf. á Ak-
ureyri og hefur framleiðslu á
Akureyri á næstu vikum.
Fyrst í stað verður starfsemin
í húsnæði þrotabús Foldu sem
tekið hefur verið á leigu um
óákveðinn tíma.
Til að byrja með mun verk-
smiðja 66° N Sjóklæðagerðar-
innar hf. á Akureyri framleiða
vinnufatnað og útivistar- og
regnfatnað undir merkjum 66°
N og Max og verður sú fram-
leiðsla m.a. ætluð til útflutn-
ings. Tilgangur Sjóklæðagerð-
arinnar með kaupum á vélum
Foldu er ekki síst að mæta
aukinni eftirspurn á mörkuð-
um erlendis. Reiknað er með
að fyrst í stað muni fastir
starfsmenn við framleiðsluna
á Akureyri verða um 15 tals-
ins, en stefnt er að fjölgun
starfa á næstu mánuðum og
misserum.
Forsvarsmenn Sjóklæða-
gerðarinnar segjast horfa með
bjartsýni til starfsemi sinnar
á Akureyri, ekki síst vegna
þess að þar sé að finna starfs-
fólk sem er þjálfað i fatafram-
leiðslu. Verður af hálfu fyrir-
tækisins stefnt að því að
byggja upp trausta og örugga
framleiðslueiningu til lang-
timahagsbóta fyrir fyrirtækið
og starfsfólk þess. Fyrir rekur
66°N Sjóklæðagerðin fataverk-
smiðjur í Reykjavík, á Sel-
fossi, Akranesi og í Borgar-
nesi.
-gk
Skautahús á Akureyri:
Kostnaður
ekki yfir 150
milljónir
króna
DV, Akureyri:
Framkvæmdanefnd Akureyrar-
bæjar hefur samþykkt ályktun
þar sem lögð er áhersla á að
kostnaði við byggingu skautahúss
verði haldið innan þeirra marka
sem bæjarstjórn hefur sett og hef-
ur þess vegna farið fram á það við
verkefnisstjórn um byggingu
skautahúss að hönnunarforsögn
verði endurskoðuð til að tryggja
að settu markmiði verði náð.
Þegar ákveðið var að hefja und-
irbúning að byggingu skautahúss
í Innbæ Akureyrar, markaði bæj-
arstjórn þá stefnu að með bygg-
ingunni yrði sköpuð fyrirmyndar-
aðstaða til skautaiðkunar í bæn-
um. Þá skyldi einnig haft í huga
að heildarkostnaður við bygging-
una yrði ekki hærri en 150 millj-
ónir króna. Samkvæmt nýlegri
hönnunarforsögn, sem gerð var af
Arkitektastofunni I Grófargili
ehf., var gert ráð fyrir að bygging-
in myndi kosta á bilinu 150 til 180
milljónir miðað við að húsið rúmi
600 áhorfendur. í kjölfar þeirrar
hönnunarforsagnar gerði fram-
kvæmdanefnd samþykkt sína um
að kostnaður við bygginguna færi
ekki fram úr þeim 150 milljónum
króna sem bæjarstjóm hefur sam-
þykkt.
-gk
Menntaskólinn á Akureyri:
Ný heimavist við skólann
tekin í notkun haustið 2000
DV, Akureyri:
Áformað er að taka í notkun nýja
heimavistarbyggingu við Mennta-
skólann á Akureyri þegar skólaárið
hefst haustið 2000. Að sögn Tryggva
Gíslasonar, skólameistara MA, hef-
ur forhönnun farið fram og stefnt er
að því að bygging hússins fari í út-
boð í vor.
Um er ræða hús sem verður byggt
austan við núverandi heimavist í
svokölluðum Stefánslundi. í húsinu
verða rúm fyrir 100 nemendur til
viðbótar þeim 140-150 rúmum sem
eru í núverandi heimavist. Áætlað-
ur kostnaður við nýju bygginguna
er áætlaður 300 milljónir króna og
stofnað hefur verið rekstrarfélag á
vegum skólans sem mun annast
fjármögmun og byggingu. Tekin
verða lán á almennum markaði til
byggingaframkvæmdanna og þau
greidd niður af rekstrarfé heima-
vistarinnar. Á sumrin verður
heimavistin rekin sem hótel og boð-
ið upp á vönduð tveggja manna her-
bergi með baði, sjónvarpi, tölvu-
tengingu og síma.
Tryggvi Gíslason segir það á
stefhuskrá skólans að bjóða nem-
endum alls staðar af landinu, og
ekki hvað síst af höfuðborgarsvæð-
inu, vist í stórum traustum heima-
vistarmenntaskóla. „Við fengum
tvöfóldun á kennslurými fyrir
tveimur árum og höfum nægjanlegt
húsnæði til að geta tekið við mun
fleiri nemendum þess vegna,“ segir
Tryggvi. -gk
Panasonic
VIdeomyndavél VHS-C
sjónvarp
I00HZ
Panasonic
Örbylgjuofn 900w
Hann er hafinn
fyrsti dagurinn
af fjórum frábærum
tilboðsdögum sem þú
mátt alls ekki missa af.
í þessari auglýsingu er
aðeins lítið brot
af úrvalinu
-komdu fljótt!
PanaSOnÍC Bíltæki m/geislaspilara
Panasonic
Ryksuga I200w
Isjónvarp
I00HZ
SONY
Myndbandstæki
Panasonic
DVD myndspilari
Hljómtækjasamstæða
SONY
Ferðatæki m/CD
(lltioðsverð
Ulbadsveid