Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Page 40
FRETTASKOTIÐ
SÍMINM SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
Yfirmaður sprengjusveitar breska flughersins í Persaflóa:
Get ekki beðið eftir
að flytja til íslands
- ræddi nýlega við Andrés prins og Tony Blair í Kúveit
Fín hverfi, nýbú-
ar og veggjakrot
í Fókusi sem fylgir DV á morgun
eru birtar niðurstöður könnunar um
hvar ríka, valdamikla og fræga fólkið
býr - og þar af leiðandi hvaða hverfi á
höfuðborgarsvæðinu geta talist fín og
hver ófín. í blaðinu er rætt við tvo
unga, víetnamska íslendinga um líf
annarrar kynslóðar nýbúa á íslandi.
Einnig er rætt við Steina Sharq, einn
helsta spámann graffítilistamanna -
eða veggjakrotara, eins og sumir vildu
frekar kalla þá. Fókus fékk nokkur
kærustupör tÚ að teikna hvort annað
og er afraksturinn birtur i blaðinu. Þá
er rætt við Fríðu Rós Valdimarsdótt-
ur, 21 árs stelpu úr pönksveitinni Á
túr, sem berst nú fyrir sæti á listar
Samfylkingarinnar í Reykjavík og
spjallað við sjómanninn Gunnar Jóns-
son sem er nýjasti Fóstbróðirinn.
Snjóflóðahætta á Siglufirði:
Kannað hvort íbúar
fá að snúa heim
Alls voru 23 hús rýmd á Siglufirði
í gær vegna snjóflóðahættu. Snjó-
flóð féll á Siglufjarðarveg í gær rétt
við Strákagöng og var vegurinn lok-
aður af þeim sökum. Almanna-
vamanefnd Sigluíjarðar kom saman
í gærkvöld til þess að ræða ástand-
ið og í framhaldi af því var ákveðið
að rýma húsin. Snjó kyngdi niður á
Siglufirði í gær en lítið snjóaði í
nótt. Alls eru 49 íbúar skráðir til
heimilis í húsunum en ekki var vit-
að hversu margir íbúar þurftu að yf-
irgefa heimili sín. Guðgeir Eyjólfs-
son, sýslumaður á Siglufirði, sagði í
samtali við DV i morgun að kannað
yrði í birtingu hvort íbúarnir gætu
snúið til síns heima í dag. „Við
munum kanna ástandið í samráði
við Veðurstofuna og i framhaldi af
því tökum við ákvörðun," sagði
hann. Ekki er vitað hvort einhver
snjóflóð féllu í nágrenni við bæinn í
nótt en Guðgeir sagði að það yrði
sömuleiðis kannað. „Við sjáum ekki
til fjalls núna og það er óvitað hvort
eitthvað smáflóð hefur fallið," sagði
Guðgeir. Snjóflóð féll einnig á veg-
inn milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur í
gær og er hann lokaður. Flóð féU
sömuleiðis á Súðavíkurveg og er
hann lokaður vegna snjóflóðahættu.
-hb
Almenn veiöi í nótt:
Loksins loðna á Rauða torginu
DV; Eskifirði:
Almenn veiði hefur verið í nótt
hjá þeim 20-30 loðnubátum sem eru
á svæðinu um 60 sjómílur suðaust-
ur af Reyðarfirði. Auk íslensku
skipanna eru nokkur norsk loðnu-
skip á sömu slóðum. Hólmaborgin
SU var komin með 400 tonn í morg-
un, Guðrún Þorkelsdóttir 250 og Jón
Kjartansson 150 tonn. Gott veður er
á miðunum. „Ég hef aldrei séð eins
mikið af loðnu, svei mér þá,“ sagði
Grétar Rögnvarsson, skipstjóri á
Jóni Kjartanssyni, i samtali við DV
á 9. tímanum í morgun, nýbúinn að
kasta á væna lóðningu.
-Regína
Guðmundur Sigvaldason jarðfræð-
ingur og þingmennirnir Kristín Hall-
dórsdóttir og Hjörleifur Guttorms-
son bera saman bækur sínar á fund-
inum í gær. DV-mynd Pjetur
Græningjar í
Reykjavík
Um 200 manns sóttu stofnfúnd
kjördæmisfélags Vinstri hreyfmgar-
innar-Græns framboðs í Reykjavík í
gærkvöld. Formaður félagsins var
kjörin Sigríður Stefánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Hollvinasamtaka Há-
skóla íslands og réttarfélagsfræðing-
ur. Á fundinum í gær var kjördæm-
isfélagið formlega stofnað auk þess
sem því voru sett lög. Landsfundur
Græna framboðsins, þar sem flokk-
urinn verður formlega stofnaður,
fer fram 5. og 6. febrúar þar sem for-
ystumaður flokksins verður kosinn.
-hb
„Síðustu vikur hafa verið mjög
annasamar hjá okkur - sérstaklega
þá fíóra daga sem Desert Fox stóð
yfir. Ætlunin var kannski ekki að
steypa Saddam af stóli heldur veita
honum ráðningu. Ég held samt að
hann hafi ekki lært mikið af þess-
um sprengjuárásum okkar,“ sagði
Adrian King, einn af yfirmönnum
sprengjudeildar breska flughers-
ins, í samtali við DV þegar hann
var í Kúveit í gær - 41 árs Breti
sem er giftur og á 4ra ára dreng
með Áslaugu Finnsdóttur King,
núverandi íbúa í Grafarvogi. Adri-
an hefur borið ábyrgð á eftirliti og
útbúnaði mikils fjölda flugskeyta
sem breski flugherinn hefur skotið
á írak að undanfömu.
„Ég get varla beðið eftir að kom-
ast til íslands. Mér finnst varla
hægt að hugsa sér betri stað til að
koma upp fjölskyldu," sagði Adri-
an sem kvaðst munu flytja hingað
heim í lok febrúar.
„Við emm búin að vera gift í 9
ár og búa í Bretlandi og Þýska-
landi. Ég kom reyndar hingað
heim áður en Adrian fór til
Persaflóa," sagði Áslaug, eigin-
kona Adrians, á heimili hennar í
Grafarvoginum.
Hún sagði að síðustu vikur
hefðu verið strembinn tími. „Adri-
an er auðvitað mjög langt í burtu.
Ef ég byggi enn í Bretlandi hefði ég
verið með hinum eiginkonunum.
Það hefur verði svolítið öðruvísi
að vera hér heima. Ég hef talað
einu sinni í viku við Adrian í
síma. Ef við höfum talað um stríð-
ið notum við rósamál því hermenn
mega ekki tala um það sem er að
gerast hjá þeim,“ sagði Áslaug.
Finnur litli, 4ra ára, í Grafarvoginum
f gær með bréf frá pabba í Persaf lóa.
Stuttu eftir að myndin var tekin
hringdi síminn frá Kúveit.
DV-mynd ÞÖK
Adrian, til hægri, segir að Andrew prins, sem er að heilsa honum á
myndinni, hafi talað mikið en fengið menn til að líða vel. Adrian lék
lykilhlutverk í að undirbúa breskar sprengjuþotur áður en þær skutu á írak.
DV-mynd RAF
Blair brosti mikið
Finnur, 4ra ára hermannssonurinn
- mjög líkur pabba sínum - var með
Áslaugu móður sinni og Bryndísi Sig-
urðardóttur, móðurömmu, í Grafar-
voginum í gær. Hann sýndi blaða-
manni stoltur bréf frá fóður sínum í
Kúveit. „Hann er byrjaður í leikskóla
og er að komast vel inn í íslenskuna,"
sagði stolt móðirin.
Adrian hitti Andrew prins í Kúveit
í desember og Tony Blair nú í janúar.
„Andrew er mjög vinalegur. Hann
talaði mikið og fékk menn til að líða
vel. Það var ánægjulegt að tala við
hann,“ sagði Adrian. Aðspurður um
breska forsætisráðherrann sagði
hann: „Blair brosti mikið eins og
venjulega. Hann virtist mjög áhuga-
samur um það sem við erum að gera
og sýndi mikinn stuðning. Ég held
líka að fas hans allt hafi bent til að al-
menningur í heiminum sé sammála
um allt sem við höfum verið að gera
hér í Persaflóanum," sagði Adrian.
Hann hefur nú starfað í 22 ár í
Royal Air Force - og er að komast á
eftirlaun. 41 árs! Hann hefur á síð-
ustu árum menntað sig í viðgerðum á
antikhúsgögnum.
„Hann ætlar að flytja hingað heim
til okkar og sjá svo til hvað hann tek-
ur sér fyrir hendur," sagði eiginkon-
an sem biður spennt eftir manni sín-
um.
-Ótt
Veðrið á morgun: Frostlaust 2°- O j x
fyrir sunnan Á morgun verður allhvöss austanátt og slydda með suður- ströndinni undir morgun, en suð- austlægari og dregur mjög úr vindi er líður á morguninn. Aust- angola eða kaldi og skýjað með köflum norðan til á morgun. Frostlaust verður sunnan til en annars vægt frost. Veðrið í dag er á bls. 37. - y 10* 10#-- ... ^\3° 1°A
Maggi
-gœði, úrval cg gott verð
MERKILEGA MERKIVELIN
brother pt-sso ný véi
tengjanleg við tölvu
8 leturgerðir,
8 stærðir, 15 leturútlit
úrval strikamerkja
6 til 36 mm borðar
prentar í 7 línur
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport