Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1999, Qupperneq 11
> í » » » > » » » » » » » » > > um plötum að það tekur því varla að telja það upp. Ætli það sé ekki einhver svona plata sem er keypt af því að maður er að styrkja gott málefni.“ 7. Hverjir eru fyrstu tónleikam- ir sem þú fórst á? „Boney M í Háskólabíói þegar ég var 7 ára. Ég fékk að fara upp á svið og allt.“ 8. Hver er uppáhaldssöngkonan þín? „Diddú.“ 9. Diddú? „Já, heldur betur!" 10. Hvað ertu með í vasanum núna? „Ég er ekki með neina vasa.“ 11. Hefurðu verið tekin föst? „Ég var tekin fyrir of hraðan akstur í gærkvöldi og ég var ógeðslega sár af því ég var bara á sjötíu.“ 12. Við hvað ertu hræddust? „Að vera ein í ógeðslega miklu myrkri.“ 13. Hefurðu farið full í bíó? „Ég hef aldrei verið full. Ég drekk ekki. í mesta lagi skála ég við hátíðleg tækifæri." 14. Hver er mesti heiður sem þér hefur hlotnast á ævinni? „Að fá að prédika i Kópavogs- kirkju þegar ég var 14 ára. Mér fannst ég þurfa að segja svo mik- ið.“ 15. Hvernig er venjulegur dag- ur hjá þér á tónleikaferðum? „Ég er í náttfótunum þangað til við eigum að spila um kvöldið. Maður vaknar kannski klukkan sex og einhver segir, Hafdís, það verður stoppað núna og svo verður ekkert stoppað fyrr en eftir tólf tíma. Þá dröslast maður eitthvað inn og þar eru bara vörubílstjórar og allir að tala í síma af því að þeir eru allir einir on ðe ród. Við þvæl- umst þar um og borðum einhvem brasaðan morgunmat. Svo fórum við I rútuna og sofum og horfum á vídeó þangað til er stoppað á McDonalds eftir tólf tíma. Við keyrum og keyrum og ég les svona unglingagelgjupæjublöð og svo fórum við og spiium. Svo byrjar allt aftur.“ 16. Yfir hverju hefurðu kvartað á hóteli? „Ég kvartaði einu sinni af því ég ætlaði að horfa á teiknimyndir í „pay-TV“ og það virkaði ekki. Það var lagað.“ 17. Hver er bjánalegasta spurn- ingin sem þú hefur fengið? „Eru allar íslenskar konur eski- móar eins og þú og Björk?“ 18. Hverju svaraðir þú þvi? „Er ég eskimói?“ 19. Hvað ertu að fara að gera núna? „Æi, bara halda áfram að borða. Svo er ég að fara að spila á afrísk- ar trommur í Kramhúsinu á eft- ir.“ 1. Hvernig hefurðu það? „Ég hef það fint. Ég var að kom- ast úr þessum trommulúpum sem ég er búin að vera með í hausnum síðan ellefu í morgun. Ég er kom- in heim til mín og er að borða.“ 2. Hverjir eru eftirminnilegustu tónleikarnir með Gus gus? „Tónleikar sem við héldum í París í febrúar sl. Þetta voru stærstu tónleikarnir okkar, vorum að spila á stærri stað en vanalega. Það var æðisleg stemning og fullt hús. Það er alltaf svo góður mórall fyrir okkur í Frakklandi." 3. Hver er munurinn á að spila á íslandi og í útlöndum? „Þegar þú ert að spila á íslandi er einhver sem er með þér í bekk í MK fremst að öskra; Hey, getiði ekki tekið Horfðu til himins?! Það er heimilisleg stemning yfir öllu sem er stundum kósi en getur líka verið óþægileg.“ 4. Þið hafið nú ekki spilað mik- ið á Islandi, er það? „Nei, við erum ekkert sérstak- lega vinsæl hérna. Við spiluðum á skólaballi á Akureyri '95 og eftir að við sögðumst ekki spila nein óskalög rigndi yfir okkur flösk- um.“ 5. Hvaða plötu keyptirðu síð- ast? „Ég keypti The Miseducation of Lauryn Hill.“ 6. Hver er hallærislegasta plat- an í safninu þínu? „Biddu, ég ætla að kíkja á það ... Vá, ég á svo mikið af hallærisleg- Ef Saddam flippar endanlega út verðum við á helvíti góðum stað því skýlið er sprengjuhelt. Stefán Guðjohnsen er búinn að reikna hljómburðinn út í tölvunni sinni. Veggurinn gegnt sviðinu er t.d. flatur og því þarf að brjóta hann upp til að fá ekki endurkast. Við værum auðvitað ekki að standa í þessu ef það væri almennilegur tónleikastaður í Reykjavík. Á næstum hverju krummaskuði úti á landi eru fm 900-1300 manna hús með góðu sándi. Flugskýlið er ör- þrifaráð. Þessir tónleikar eru frumsýningin á prógrammi sem við verðum að keyra út árið þótt það eigi eflaust eftir að breytast „írinn Bob keyrir hljómsveitarrútuna í Evrópuferðum. Hann sendi okkur jóla- kort í ár. Hann er með mesta langlundargeð sem til er nema þeg- ar hann fær ekki teið sitt. Við tókum vaktir á morgnanna til aö færa hon- um te svo hann yrði ekki brjálaður. Hér er hann að kenna Magga Chris Rea-lagiö „Road to Hell“ sem hann hit- aði einu sinni upp með fyrir okkur. Við þurfum enga tónlist í rútunni því Bob syngur hástöfum þegar hann keyrir." aðeins. Það verður spilað mikið af nýju efni og líklega bara 1-2 göm- ul lög. Við höfum verið með tvo skerma og skyggnur en nú erum við bara með einn risastóran skjá á bak við bandið.“ „Mjög lýsandi mynd fyrir lífið í rútunni. Það er akkúrat ekkert glamúrlíf eins og margír halda. Þetta er mikil keyrsla og vlð erum 13 í rútunni og lítið prívatlíf. Menn drepa tímann með því að glápa á videó og spila risk. Það góða við risk er að það getur tekið upp í átta tíma að spila það. Svo er bannaö að gera stórt í rútunni en á fylliríum kemur það fyrir og þá fer næsti dagur í að spá í hver skeit. Ég tók síðasta jólafrf í að pæia í því að þetta líf væri þaö sem biði mín á árinu.“ „GusGus er alltaf rosalega vel tekið í Frakklandi og kannski er það höfuö- vígi bandsins. Stærsta tónlistarblað- ið, Les Inrockuptebles, telur GusGus t.d. vera þriðja besta tónleikaband heims og hljómsveitin veröur á for- síöu þar í maí. Þetta eru tónleikar á La Route de rock hátíðinni í St. Malo sem haldnir eru árlega í æðls- lega flottu virki. Klukkan er ekki nema svona hálfátta en eins og sést er fólkið komið í stuð.“ Siggi Kjartans Laga- og textasmiður, leikstjóri og bassaleikari. StefánÁmi Leikstjóri og videolistamaður. EIÍ19 plötuútgáfan Popp í Reykjavík og Hjart- sláttarsafnplata (væntanleg). Framkvæmdastjóm erlendis Fyrir Maus, Slowblow, Bang gang, Sigurrós, Bigga Bix, Dip og Pál Oskar. Kvikmyndaieil og augTýsir M.a. La prima vera, Mbl.is. Kvikmyndahandrit í smíðum. Baldur Stefánsson Framkvæmdastjóri og athafnamaður. Það er níu meðlimir í Gus gus. Þeir inna af hendi ýmis verkefni og hafa aðsetur á Ægisgötu 7 sem er vígi Gus gus. Þar fer framleiðslan fram, m.a. í hljóðverinu „Græna herbergið". Gus gus er flókinn heimur og því þýddi ekkert annað en að koma skipuriti á batteríið. Gus gus veldisins Aifred More Ljósmyndari, útsetjari, mixari á tónleikum og dj. Utsetjari, prógrammer og rímixari. Veiran og Alfred upptökustjórn og hljóðblöndun M.a. fyrir Depeche Mode, Björk og fyrir myndina Carrie II (í vinnslu). Heffo Legowitz Útsetjari, prógrammer, rímixari og dj. Fólk í vinnu hjá Gus gus: Páll Borg - hljóðmaður (salur) Jón Skuggi - hljóðmaður (svið) Fredrík Kolderup - Ijósahönnuður Peter R. Smith - tæknistjóri á tónleikum lan Killock- framkvæmdastjóri á tónleikum Snorrí Sturluson - aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Stefán Guðjohnsen - hljóðtæknifræðingur Julian Headley fjármálastjóri (Evrópa) Jay Sendyk - fjármálastjóri (Ameríka) Ben Winchester - tónleikabókari (Evrópa) Marc Geiger - tónleikabókari (allt nema Evrópa) Þorsteinn Stephensen - markaðsráðgjafi Svanni - aðstoðarmaður í hljóðveri og á skrifstofu Guðjón Hauksson - framleiðandi tónlistarmyndbanda + fjöldi af öðru tækni- og listafólki Lego Hi-fi Enterprizes upptökustjóm og hljóðblöndun M.a. fyrir David Byrne, Pizzicato 5 og Juan Atkins. Cryiab fatafyrirtækið Ásamt Lindu B. Árnadóttur og Nýsköpunarsjóði. 19. febrúar 1999 f Ókus 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.