Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1999, Qupperneq 14
1
Scream
Táninga-
hrollvekj-
ur eru í
tísku
þessa
dagana
og nú er
allt til
reiðu að
hefja
gerð Scr-
eam 3. Eru framleiðendur myndar-
innar búnir að tryggja að Neve
Campbell, Courtney Cox og David
Arquette muni leika sömu hlutverk
og þau léku í fyrri myndunum
tveimur. Myndin mun fylgja Sidney
(Campbell) eftir þegar hún hættir í
háskóla og flytur til Hollywood til
að verða leikkona. Wes Craven
mun leikstýra og Kevin Williamson
skrifa handritið en þeir hafa unniö
saman frá þvi Scream 1 var gerð.
Þegar er búið að ákveða frumsýn-
ingardag 10. desember og ef allt
gengur samkvæmt áætlun ætti það
að ganga upp. Þess má geta að í
undirbúningi er gamanmynd sem
mun heita Scream If You Know
What I Did Last Halloween.
mTiimrr
og Coen=
bræður
Fyrir tveimur vikum hengdi Ge-
orge Clooney læknasloppinn sinn á
snaga í síðasta sinn, hann er hætt-
ur i þeirri ágætu sjónvarpsseríu ER
og eiga margir eftir að sakna hans.
Um sama leyti undirritaði hann
samning um að lcika í næstu kvik-
mynd Coenbræðra, Joels og Ethens,
Oh Brother, Where Art Thou?. í
myndinni leikur Clooney fanga sem
fer fyrir hópi fanga sem reyna
þrisvar sinnum að brjótast út úr
fangelsi. Tökur hefjast ekki fyrr en
í sumar. Clooney er þó ekki að-
gerðalaus, hann er þessa dagana að
leika í Three Kings, mynd sem ger-
ist í Persaflóastríðinu. Þá hefur
hann stofnað eigið kvikmynda- og
sjónvarpsfyrirtæki og ætlar sér
stóra hluti. Meðal þess sem er á
framkvæmdaáætlun fyrirtækisins
er að endurgera kvikmynd Sidneys
Lumets, Fail Safa, frá árinu 1964.
að gora hjá
Það hefur greinilega haft góð
áhrif á Woody Alfen hversu vel
honum tókst upp i Antz. Allen, sem
hefur yfirleitt ekki litið við tilboð-
um um að leika í öörum myndum
en sínum eigin, er allt í einu búinn
að semja um að leika körfubolta-
fréttamann i Loud and Clear (fær
litlar sex milljónir dollara fyrir) og
að leika í Picking up the Pieces,
sem Alfonso Arau mun leikstýra.
Mun Allen leika slátrara frá New
’fork sem er vitni saksóknara og
fer síðan í felur sem kúreki frá
Arizona. Hvenær hann getur komið
því við að leika í síðastnefndu
myndinni er aftur á móti ekki vitað
því auk þess sem hann er að leika í
Loud and Clear er hann að gera eig-
in mynd.
Vaski grísinn Baddi sló í gegn í sinni fyrstu mynd
en síðan hefur lítið til hans spurst. Fyrr en nú
að myndin Babe: Pig in the City er frumsýnd.
Svín lend
ir
í sollinum
Það eru liðin rúmlega þrjú ár síð-
an Babe, eða vaski grísinn Baddi
eins og hann heitir upp á íslensku,
lét heyra frá sér. Á sínum tíma fór
hann sigurfór um heiminn og hlaut
ótal viðurkenningar. Síðan hefur
ekkert til hans spurst fyrr en nú,
þegar ný mynd með honum er vænt-
anleg í kvikmyndahús hérlendis.
Síðan við skildum seinast við
Babe og bóndann Arthur Hoggett
hefur lítið vatn runnið til sjávar.
Hogget hefur ákveðið að hafa ekki
frekari sýningar á Babe og hefur
einsett sér að lifa venjulegu lífi með
tilheyrandi kaupi. En þegar hann
veikist skyndilega verður konan
hans, Esme Hogget, að taka við
rekstri heimilisins. Þrátt fyrir góð-
an vilja tekst henni ekki að afla
nægilegs fjár fyrir heimilið og lánar-
drottnar fara að gera vart við sig
með tilheyrandi veseni. Fljótlega
ákveður hún að reyna að græða pen-
inga á Babe og fyrr en var-
ir eru þau tvö farin af
stað til borgarinnar.
Þegar þangað er kom-
ið lenda þau í stökustu
vandræðum með að
finna hótel sem leyfir
ekki aðeins gæludýr, '
heldur líka svín! Svo
taka hlutirnir að
flækjast og að lok-
um er allt mor-
andi í dýrum.
Handrits-
höfundur-
inn og leik-
stjórinn
George
Baddi á sér marga merka samstarfsgelti og -gyltur:
trierk dýr ör
ÍS&ryndasöguW
Dýramynd. Hvað er dýramynd? Það er hægt að túlka þetta orð á marga vegu. Sumum
dettur í hug James Cameron sem gerði einmitt mjóg dýra mynd, Titanic, sumum dettur
í hug náttúrulífsmynd á RÚV með íslenskri þuiarródd yflr hljóðrásinni og sumum dettur
í hug mynd þar sem eltt dýr eöa flelri leika aðalhlutverk. Hér verður ekki leitast vlö
aö útskýra í lóngu máli hvernig dæmigerð dýramynd er, heldur verða einfaldlega talln
upp 10 merk dýr úr kvlkmyndum.
1. Frk. Svínka.
Eins og einhver
blaöamaðurinn
sagði: Gáfuð og
glæsileg!
3. Dr. Zaius
Einn af fáum
öpum sem hafa
lagt sig í líma við
aö standa vörð
um hagsmuni
þjóðarinnar meö
að útrýma villutrú.
2. Apinn í
Outbreak.
Sennilega mest
ógnvekjandi api
síðan Conga
gamli var og hét.
4. Trigger
Tryggur reiðskjóti.
Synd að hann skyldi
ekki hafa verið jafn
tanglífur og Roy
Rogers sjálfur.
llílíffil
5. Lassý
Ef þaö er til
himnaríki fyrir
hunda þá fer
Lassý þangaö.
6. The Creature
from the Black
Lagoon
Skringileg vera meö
rennilas a bakinu.
7. King Kong
Hann er bæði
tortímandi og
kvennamaður.
Þarf maður
nokkuö meira?
9. Jaws
Ókindin sjálf. Var ógnvekjandi í
fyrstu myndinni en var orðin
eitthvað bragðdauf þegar komið
var að þeirri fjórðu.
8. Tarantula
Risavaxin könguló. Jack Arnold
leikstjóri var mjög hrifinn af
þessari könguló.
10.
Hestshausinn í
The Godfather
Ekkert sem maður
myndi vilja vakna við
hliðina á.
Miller er flestum að góðu kunnur
fyrir myndirnar um Mad Max, sefn
hann skrifaði og leikstýrði, en hann
hefur einnig gert myndirnar Lor-
enzo’s Oil, The Year that My Voice
Broke og The Witches of Eastwick,
svo fátt eitt sé nefnt. Auk þess skrif-
aði hann handritið að fyrri mynd-
inni um Babe og hefur mikið starfað
sem framleiðandi. Chris Noonan,
sem leikstýrði fyrri myndinni, er
ekki með í þetta skiptið og það sama
gildir um hana Cristine Cavanaugh
sem talaði fyrir Babe. í hennar stað
er komin Elizabeth nokkur Daily
sem hefur leikið heilan helling af
smáhlutverkum í gegnum
tíðina og þar að auki
talað inn á teiknik-
myndir á borð við
A 1 1 a d í n ,
Guffagrín og
Rugrats þar sem
hún las á móti
Cristine Cavan-
augh sem er,
eins og fyrr segir,
gamla röddin í
Babe.
Babe: Pig in
the City hefur
fengið góðar við-
tökur, til dæmis
valdi Gene Siskel,
sem lést á dögunum,
hana bestu mynd
ársins 1998. Einnig
þykir myndin hafa
sannað að framhalds-
myndir eru ekki allar
þar sem þær eru séðar.
Svo er bara að vona að
myndin verði jafnfyndin
i og forveri hennar sem
var, þrátt fyrir efnistök,
ekki bara barnamynd.
-Ari Eldjárn
*
m
Hvað gera nokkrir félagar þegar þeir sitja
uppi með lík af nektardansmey sem
hafði verið fengin til að
skemmta þeim í piparsveinapartíi?
læmum malum
Very Bad Things, sem Laugar-
ásbíó sýnir, er svört kómedía sem
leikstýrt er af Peter Berg. Hann er
rnun þekktari sem leikari en leik-
stjóri enda er þetta fyrsta kvik-
myndin sem hann leikstýrir. í
Very Bad Things fjallar hann á
meinfyndinn hátt um pipar-
sveinapartí sem fer úrskeiðis, svo
að ekki sé meira sagt.
Sá sem er tilefnið að pipar-
sveinapartíinu er Kyle Fisher (Jon
Favreau), ungur og myndarlegur
maður sem er mjög ástfanginn af
konuefni sinu, Laura Garrety
(Cameron Diaz). Félagar hans sem
halda honum veislu í Las Vegas
eru ekki allir þar sem þeir eru séð-
ir eins og fljótt kemur í ljós. Með-
al þeirra eru vafasamur fasteigna-
sali, Boyd (Christian Slater),
Berkow bræðurnir, Adam (Daniel
Stern) og Michael (Jeremy Piven)
og sérvitur bifvélavirki Moore
(Leland Orser). Til að lífga upp á
partíiö er fengin ung nektardans-
mey til að skemmta piltunum. En
slys eiga sér stað og áður en hinn
glaðværi piltahópur veit af þá sitja
þeir upp með líkið af nektardans-
meyjunni. Flestir eru á því að
kalla til lögregluna. Boyd fær þó
félaga sína á aðra skoðun og segir
það ekki vera mikið vandamál að
losna við „60 kílóa vandamál" í
eyðimörkinni, snúa síðan til síns
heima og gleyma vandamálinu.
Þeir hefðu betur látið lögregluna
vita því óhætt er að segja að í
þeirra villtustu hugsunum hefðu
þeir ekki getað vitað hvað beið
þeirra.
Peter Berg, sem einnig skrifaði
handritið að Very Bad Things, er
sjálfsagt þekktastur hér á landi
fyrir að vera einn af læknunum í
sjónvarpsseríunni Chicago Hope
sem Stöð 2 sýnir um þessar mund-
ir. Meðfram leik hefur Peter Berg
skrifað nokkur handrit fyrir sjón-
varp og kvikmyndir og er þessa
dagana að klára að skrifa handrit
að kvikmynd sem fjallar um hóp
slökkviliðsmanna í New York.
Mun hann sjálfur leikstýra mynd-
inni. Auk sjónvarpsleikrita hefur
Berg leikið í mörgum kvikmynd-
um, má þar nefna Coplabd, The
Great White Hope, Girl Six, The
Last Seduction, Late for Dinner og
Fire in the Sky.
-HK
fl4
f Ó k U S 5. mars 1999